Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 1
56 SIÐURB/C
232. tbl. 81.árg.
Niðurstaða Þjóðverja
Maastricht
í samræmi
við stjórn-
arskrána
Karlsruhe, Brussel. Reuter.
ÞÝSKI stjórnlagadómstóllinn í
Karlsruhe kvað í gær upp þann
úrskurð að Maastricht-sam-
komulagið um efnahagslegan og
pólitískan samruna Evrópu-
bandalagsríkjanna bryti ekki í
bága við stjórnarskrá landsins.
Þjóðveijar voru eina aðildar-
þjóð EB, sem átti eftir að stað-
festa samkomulagið og er þessi
niðurstaða mikill léttir fyrir
ríkisstjórn Helmuts Kohls kansl-
ara.
„Mestu skiptir nú að hrinda þess-
um samningi ... í framkvæmd af
festu og án tafar,“ sagði Kohl er
niðurstaðan var ljós. Stjórnlaga-
dómstóllinn setti ýmis skilyrði fyrir
staðfestingu Þjóðverja á Maas-
tricht. Þannig áskilur hann sér rétt
til að kanna á síðari stigum hvort
samruni bandalagsríkjanna í eina
heild sé í samræmi við ákvæði
Maastricht-samkomulagsins.
Smuga opnuð?
Sumir lögskýrendur vildu í gær
túlka niðurstöðuna sem svo að Þjóð-
vetjar gætu vissulega staðfest
Maastricht en síðan dregið sig út
úr því ef það hentaði þeim. Þá á
þýska sambandsþingið að taka
lokaákvörðun um þátttöku Þjóð-
veija í ýmsum stærri málum, s.s.
aðild að einum sameiginlegum
gjaldmiðli fyrir EB, sem ráðgert er
að taka upp fyrir aldamót.
Ráðherrum þýsku ríkisstjórnar-
innar var greinilega létt er niður-
staðan lá fýrir. Klaus Kinkel utan-
ríkisráðherra gerði lítið úr þeim
skilyrðum sem dómstóllinn setti og
sagði þetta vera atriði, sem stjórnin
hefði nú þegar til hliðsjónar.
Kínverjar
bannað-
ir í Kína
Peking. Reuter.
KÍNVERSK stjórnvöld bönn-
uðu í gær framleiðslu og sölu
á flugeldum og púðurkerl-
ingum í Kína frá og með 1.
desember. Astæðan er sögð
sú að almenningi geti stafað
hætta af flugeldunum. Fáein
afskekkt héruð eru þó und-
anþegin banninu.
Kínveijar fundu upp púðrið
og flugeldana og hafa framleitt
þessa hluti í árhundruð. Mestu
hátíðahöld landsmanna ár hvert
eru á vorin. Þá er veturinn rek-
inn á braut með því að skjóta
upp aragrúa flugelda og
spreiigja púðurkerlingar af öll-
um stærðum og gerðum. Vilja
kínversk yfirvöld nú koma í veg
fyrir slys og eldsvoða sem ávallt
hljótast af hátíðahöldunum.
STOFNAÐ 1913
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rushdie í viðtali
Hvetur til
Ósló, London. Reutcr, The Daily Tele-
graph.
BRESKI rithöfundurinn Salman
Rushdie fordæmdi í gær harð-
lega skotárásina á norskan út-
gefanda „Söngva Satans“.
Hvatti Rushdie til þess að Iranir
yrðu látnir svara til saka og
þeir sættu pólitískum og efna-
hagslegum þvingunum ef það
sannaðist að þeir stæðu á bak
við tilræðið við útgefandann,
William Nygaard sl. mánudag.
Nygaard sá ekki árásarmanninn
sem skaut þremur skotum í bak
hans. Um hálf klukkustund leið frá
því að skotið var á Nygaard og þar
til það uppgötvaðist hvað gerst
hafði. Var jafnvel talið að hann
hefði fengið raflost. Hann er talinn
úr lífshættu þó ástand hans sé enn
alvarlegt og búast læknar við því
að hann nái sér að fullu.
Mikil leit er nú gerð að árásar-
manninum en fátt er vitað um hann
annað en að tveir þrettán ára piltar
sáu dökkhærðan mann á fertugs-
aldri, klæddan síðum frakka, koma
út úr innkeyrslunni að húsi Ny-
gaards eftir að skotin heyrðust.
Andstæðingar Jeltsíns hyggjast taka þátt í þingkosningum
Ráðamenn í Moskvu íhuga
breytingar á kjördögum
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
HÁTTSETTUR ráðgjafi Borísar N. Jeitsíns Rússlandsforseta segir
að til greina komi að kjósa samtímis til þings og forsetaembættis á
næsta ári og fresta þannig þingkosningunum sem heitið hefur verið
í desember. Forystumenn þingmanna í Hvíta húsinu kröfðust þess
á sínum tíma að kosið yrði samtímis en Jeltsín vísaði kröfunni á
bug, sagði að myndast gæti hættulegt, pólitískt tómarúm meðan
nýtt þing og forseti væru að búa sig undir að taka við embætti.
stæðingum yrði tryggður aðgangur
að íjölmiðlum og kosningarnar yrðu
ekki „skrípaleikur". Andstæðingar
umbótastefnu Jeltsíns ættu góða
möguleika á sigri. Harðlínuleiðtogi
sem nú er í felum sagði á hinn bóg-
inn að atburðirnir í Hvíta húsinu
hefðu gert borgarastríð óumflýjan-
legt.
91 flokkur
Dómsmálaráðuneytið í Moskvu
hefur birt lista með nöfnum 91
flokks sem fær að taka þátt í kosn-
ingum en nokkrir flokkar harðlínu-
manna eru enn bannaðir. Leiðtogar
stjórnarandstöðunnar eru þegar
byijaðir að skrá flokka sína til þátt-
töku í væntanlegum kosningum og
fyrstur þeirra var flokkur Vladímírs
Zhírínovskís, öfgafulls þjóðemis-
sinna er hlaut um 10% atkvæða í
forsetakjörinu 1991. Hann vill m.a.
að Finnland verði á ný lagt undir
Umræddur ráðgjafi Jeltsíns,
Georgí Saratov, sagði að forsetinn
myndi ef til vill fara aðra leið og
flýta forsetakjörinu. Jeltsín hefur
boðað að það verði í júní en Saratov
benti á að sameina mætti forseta-
kosningarnar og kjör til nýrra hér-
aða- og sveitastjóma í mars. Þá
yrðu þingkosningarnar í desember,
eins og fyrirhugað hefur verið.
Sergej Babúrín, ungur þingmaður
og áhrifamikill andstæðingur Jelts-
íns, var í þinghúsinu meðan barist
var. Hann hyggst hvergi hvika í
andstöðu við Jeltsín en gagnrýnir
þingleiðtogana Alexander Rútskoj
og Rúslan Khasbúlatov fyrir ýmis
mistök; Rútskoj hafi treyst því að
Pavel Gratsjov varnarmálaráðherra
myndi slást í lið með sér. Babúrín
hvatti andstæðinga Jeltsíns til að
taka þátt í væntanlegum þingkosn-
ingum að því' tilskildu að jafnt
stjómarsinnum sem stjórnarand-
Rússland. Zhír-
ínovskí studdi
Jeltsín í barátt-
unni við þingið.
Enn er mikil
* j andstaða við Jelts-
ín og stjórn bans
H \ ^l| í nokkrum hémð-
HL um, þar sem ráða-
l i \ > menn frá tímum
kommúnista halda
um stjórnartaum-
Babúrín ana. I Moskvu hef-
ur komið í ljos að borgarsovétin, sem
nú hafa verið lögð niður, stóðu á
bak við ýmsa mafíuflokka og fjár-
mögnuðu þannig að nokkru leyti
baráttu þingmanna við Jeltsín.
Eitt auðugasta sjálfsstjórnarhér-
að Rússlands, Jakútía í Síberíu,
ákvað í gær að hlíta fyrirmælum
Jeltsíns og leysa upp héraðsþingið.
Nýtt, tveggja deilda þing verður síð-
an kosið í desember. Sama var upp
á teningnum í Bashkortostan, olíu-
auðugu héraði í Úralfjöllum.
Short sigraði Kasparov
Lundúnum. Reuter.
BRETINN Nigel Short hafði i
gær betur í sextándu einvígis-
skák sinni við Garrí Kasparov.
Er það fyrsta skákin sem Short
vinnur i einvíginu. Staðan er nú
5Vi vinningur Shorts gegn 10Vi
vinningi Kasparovs. Sex ár eru
síðan Short sigraði Kasparov síð-
ast í kappskák.
Gríðarleg fagnaðarlæti brutust
út í salrlum er sigur Shorts var í
höfn. í upphafi skákarinnar höfðu
sérfræðingar spáð jafntefli þar sem
Short lék varlega.
Hann var með
hvítt og byggði
stöðu sína upp
hægt og rólega.
Lokaleikur hans
var riddarafórn
sem braut niður
máttlitla vörn Ka-
sparovs.
Næsta skák verður tefld á morg-
un, en þá hefur Kasparov hvítt.
Sjá skákskýringu á bls. 20.
Short
þvingana
gegn Iran
Varna Bandaríkjamönnum landgöngu
Reuter
WARREN Christopher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, varaði í gær yfirmenn hersins á Haiti
við afleiðingum þess að virða ekki samkomulag
Sameinuðu þjóðanna um að réttkjörinn forseti
landsins, Jean-Bertrand Aristide, kæmist til valda.
Aristide hvatti til þess að stjórn herforingjanna
yrði beitt efnahagsþvingunum. Vopnaðir Haitibú-
ar komu í gær og fyrradag í veg fyrir að banda-
rískar og kanadískar friðargæslusveitir kæmust
á land í Port-au-Prince. Réðst hópur fólks einnig
á bandaríska sendiráðsmenn og blaðamenn. Einn
lést í árásinni.