Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
15
Mætir kirkjan trúarþörf fólks?
eftirsr. Solveigu
Láru
Guðmundsdóttur
Alls staðar í kringum okkur finn-
um við hve trúarþörf fólks er gífur-
lega mikil, sérstaklega nú á tímum,
þegar við vitum að tækni og vel-
megun svarar ekki öllum lífsins
gátum. Fólk er einnig nú á tímum
opnara fyrir því að láta í ljós tilfinn-
ingar sínar og vanmátt. Hver
ástæðan er fyrir því, kann að vera
of langt mál til að ræða í stuttri
blaðagrein. En það sem mig langar
þó að gera er að velta fyrir mér
hvernig fólk uppfyllir trúarþörf
sína og spyija síðan hvort íslenska
þjóðkirkjan mæti þeirri trúarþörf
sem samtíminn krefst.
Það sem ég vil þó að lokum
leggja sérstaka áherslu á eru kyrrð-
arstundir og Taize-stundir, þar sem
við einbeitum okkur að því að
mæta hveijum og einum persónu-
lega í því, sem henni eða honum
liggur á hjarta. Kyrrðarstundir eru
í hádeginu á miðvikudögum í Sel-
tjarnameskirkju og Breiðholts-
kirkju, á þriðjudögum í Grensás-
kirkju og á fimmtudögum í Laugar-
neskirkju. Á þessum stundum er
lesið úr Biblíunni, gengið til altaris
og boðið upp á fyrirbænir, sem vel
er þegið af þeim sem þær sækja.
Samfélagið á eftir stundinni er líka
dýrmætur þáttur, en þá er spjallað
saman yfir léttum hádegisverði.
„Nú er svo komið að
starf er fyrir nær alla
aldurshópa í nánast öll-
um kirkjum Reykjavík-
urprófastsdæma alla
daga vikunnar og vitn-
ar dagbók Morgun-
blaðsins best um þá
starfsemi.“
Taize-stundir hafa verið um hríð
í Háteigskirkju ' á fimmtudags-
kvöldum og voru á föstunni í fyrra
í Seltjamarneskirkju. Taize-stund-
irnar eru kyrrðar- og íhugunar-
stundir með svokallaðri Taize-tón-
list, sem upprunnin er í Frakklandi
og er sérlega vel til þess fallin að
ná kyrrð hugans og upplifa nær-
vera Guðs.
Nú eru þær hafnar á ný í Sel-
tjarnarneskirkju og verða annað
hvert þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Næsta Taize-stundin verður 19.
október nk.
Lesandi góður! Kynntu þér starf-
ið í þinni kirkju og láttu kirkjuna
mæta trúarþörf þinni.
Höfundur er sóknarprestur á
Seltjamarnesi.
Sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir
Mikið framboð
Fólk, sem lifir ekki í samfélagi
við þann Guð, sem skapaði það til
samfélags við sig, er leitandi. Það
leitar að uppruna sínum eins og
börn, sem þekkja ekki blóðforeldra
sína. Þjóðfélagið býður upp á ótal
möguleika til að mæta fólki í þess-
ari leit og til að uppfylla þessa innri
þörf. Hér mætti nefna alls kyns
námskeið og hugleiðsluæfingar.
Auk þess bjóða útvarpsstöðvarnar
fólki að hringja til sín hvort sem
er um miðjan dag eða síðla kvölds
og ljá þær fólki þannig eyra sitt
til að hlusta og gefa góð ráð. í
þessum þáttum birtist oft mikil þrá
og l^it eftir einhverri andlegri fyll-
inguj sem fólk virðist hvergi hafa
fundið.
Þegar við hlustum á slík viðtöl
vaknar óneitanlega spurningin um
hlutverk kirkjunnar og hvemig hún
getur náð til þessa fólks og gefið
því þá fyllingu sem hjarta þeirra
þráir.
Hvernig svarar kirkjan?
Umsvif og stárfsemi kirkjunnar
hafa aukist gífurlega á síðustu
áram. Hér má nefna alls kyns sér-
þjónustu, eins og þjónustu við
sjúkrahúsin, fanga, fatlaða og aldr-
aða. Og þar að auki hefur verið í
gangi í kirkjunni sérstakt verkefni,
safnaðaruppbygging, sem miðar að
þvi að auka þátttöku virkra með-
lima innan kirkjunnar og auka fjöl-
breytni í helgihaldi og safnaðar-
starfi.
Nú er svo komið að starf er fyr-
ir nær alla aldurshópa í nánast öll-
um kirkjum Reykjavíkurprófasts-
dæma alla daga vikunnar og vitnar
dagbók Morgunblaðsins best um
þá starfsemi. Starfsfólki safnað-
anna fer líka fjölgandi, en betur
má ef duga skal til að mæta allri
þeirri þörf, sem þjóðfélagið okkar
æpir á.
Nú era yfir hundrað manns við
nám í guðfræðideild Háskóla ís-
lands, tuttugu era í djáknanámi og
yfir fimmtíu manns stunda nám í
leikmannaskóla þjóðkirkjunnar.
Þessar tölur sýna hve mikill fjöldi
fólks vill vinna fyrir kirkjuna og
þráir að mæta þeirri trúarþörf sem
við verðum alls staðar vör við. Þessi
fjöldi er líka ákall til kirkjunnar til
að taka á móti þessu fólki og ráða
það til starfa. Ef svo verður mun
kirkjan verða betur í stakk búin til
að mæta þeirri trúarþörf sem fólk
kallar á.
En hvað er kirkjan að gera?
Það skalt þú, lesandi góður,
kynna þér í þinni sókn.
Gteðd
eWlús*
i«nrétti«Æ
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI4 R. SlMI 671010
Nuer
þrefalthir
1. vuinmgur