Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Globe-
trotters sýna
listir sínar
Sýningarlið Harlem Globe-
trotters lék listir sínar fyrir
íslenska körfuknattleiks-
unnendur í íþróttahúsinu
Kaplakrika í Hafnarfirði í
gærkvöldi. Það var greini-
legt að áhorfendur kunnu
vel að meta það sem
bandarísku leikmennirnir
buðu uppá, þó sumt af því
hafi ekki átt neitt skylt við
körfuknattleik. Meðal ann-
ars fór einn liðsmaðurinn
upp í áhorfendastúku og
skvetti gosi á áhorfendur
sem flestir voru af yngri
kynslóðinni. Önnur sýning
liðsins verður á Akureyri í
kvöld og lokasýningin
verður í Laugardalshöll
annað kvöld.
Morgunblaðið/RAX
f" ;
r* ■ ■; ^<y! rrl^ 't cH;
Sjálfstæðisflokkurinn
Prófkjör
30.-3 l.jan.
Á FUNDI fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík í gær-
kvöldi var samþykkt tillaga full-
trúaráðsins um að prófkjör
vegna borgarstjómarkosning-
anna í Reykjavík verði haldið
dagana 30. og 31. janúar.
Samkvæmt tillögunni hafa rétt
til þátttöku í prófkjörinu fullgildir
félagsmenn í sjálfstæðisfélögunum
í Reykjavík sem náð hafa 16 ára
aldri og þeir stuðningsmenn flokks-
ins sem munu eiga kosningarétt í
sveitarstjórnarkosningunum í vor
og undirrita inntökubeiðnir í eitt-
hvert flokksfélaganna fyrir lok kjör-
fundar í prófkjörinu.
Á fundinum var borin fram breyt-
ingartillaga um að þeir einir hefðu
kosningarétt sem hefðu verið skráð-
ir félagar að minnsta kosti mánuði
fyrir prófkjör. Sú tillaga var felld
með 74 atkvæðum gegn 29.
Þá var samþykktur listi fulltrúa-
ráðsins yfir fulltrúa á landsfund.
Miklar tilfærslur urðu á fiskveiðiheimildum á síðasta fiskveiðiári
Rúmur helmingnr kvót-
ans fluttur á milli skipa
NÚ LIGGUR fyrir uppgjör á flutningum á kvótum milli skipa á
síðasta fiskveiðiári. Mjög mikið var flutt til eða samtals rúmlega
210.000 tonn af þorskígildum. Er það meir en helmingur af heUd-
arkvótanum upp úr sjó því hann nam 400.000 þorskígildistonnum.
Viðskipti með kvóta, það er flutiíingur milli skipa sem ekki voru
í eigu sömu aðila eða gerð út frá sömu verstöð, voru tæplega
70.000 þorskígildistonn. Meðalverð á leigukvótanum á síðasta ári
nam um 35 kr. á tonn þannig að verðmæti þessara viðskipta
námu um 2,2 milljörðum króna.
milli skipa sem ekki eru í eigu
sömu aðila og ekki eru gerð út frá
sömu verstöð, er að stærstum
hluta þorskur eða 41.000 af
70.000 tonnum. Fiskistofa hefur
ekki sundurgreint nákvæmlega
um hvernig viðskipti er að ræða
en ætla má að megnið af þeim sé
vegna „tonn á móti tonni“-við-
skipta eða verslunar fiskmarkaða
á kvóta handa bátum sem eru í
föstum viðskiptum hjá þeim. Af
öðrum fisktegundum sem flutt
hafa verið milii ólíkra aðila má
nefna að 19.000 tonn af úthafs-
rækju voru flutt, tæp 14.000 tonn
af ufsa og 13.500 tonn af karfa
en minna af öðrum tegundum.
Forræðismálið
Hungurverk-
fall að byrja
SOPHIA Hansen og Rósa Han-
sen, systir hennar, hefja hung-
urverkfall í húsakynnum
Mannréttindasamtakanna í
Istanbúl kl. 12 að tyrkneskum
tíma í dag.
Sigurður Pétur Harðarson,
stuðningsmaður Sophiu, sagði
að með hungurverkfallinu vildu
systumar vekja athygli á því að
Sophia fengi hvorki að hitta
dætur sínar né tala við þær. Þá
hefðu tyrknesk stjómvöld ekki
hreyft hendi til að tryggja að
þeirra eigin úrskurði um um-
gengnisrétt Sophiu við dætur
sínar yrði framfylgt.
Borgarráð gengur frá ráðningu nýs vatns veitustj óra
Sljórn veitustofnana mælti
með öðrum umsækjanda
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að ráða Guðmund Þóroddsson véla-
verkfræðing í stöðu vatnsveitustjóra, en stjórn veitustofnana hafði
samþykkt að mæla með ráðningu Hólmsteins Sigurðssonar skrif-
stofustjóra Vatnsveitu Reykjavíkur og staðgengils vatnsveitustjóra
í stöðuna. Sjö umsækjendur voru um stöðuna, en Þóroddur Th.
Sigurðsson vatnsveitusljóri lætur af störfum fyrir aldurs sakir 1.
nóvember næstkomandi.
Á kvótaárinu 1991-1992 voru
til samanburðar flutt alls 173.000
þorskígildistonn af kvóta á milli
skipa en þá nam heildarkvótinn
453.000 tonnum. Flutningur milli
skipa í eigu ólíkra aðila og frá
ólíkum verstöðvum var 50.000
tonn eða 20.000 tonnum minni en
á síðasta fiskveiðiári.
Samkvæmt yfírliti frá Fiski-
stofu um þessa flutninga kemur í
Ijós að nær helmingur af þorsk-
kvótanum á síðasta fiskveiðaári,
eða 105.000 tonn, var fluttur á
milli skipa. Þar af voru rúm 41.000
tonn flutt á milli skipa sem voru
ekki í eigu sömu aðila eða gerð
út frá sömu verstöð. Rúm 23.000
tonn voru flutt á milli skipa frá
sömu verstöð en tæp 10.000 tonn
milli skipa frá ólíkum verstöðvum
og rúm 30.000 tonn voru flutt á
milli skipa í eigu sömu aðila.
Ónotaður kvóti
Ónotaður kvóti á síðasta fisk-
veiðiári, það er kvóti sem ekki
veiddist og ekki var hægt að flytja
milli kvótaára, nam samtals um
17.000 tonnum. Þar munar mest
um 9.560 tonn af ýsu en ónotaður
þorskkvóti nam 2.115 tonnum,
ónotaður ufsakvóti 3.235 tonnum
og ónotaður karfakvóti 2.475
tonnum.
Þegar skoðaðar eru tölur um
hvernig ónotaður kvóti skiptist á
milli skipaflokka kemur í ljós að
mest af ýsukvótanum glataðist hjá
ísfisk- og frystitogurum. Þannig
nam ónotaður ýsukvóti ísfisktog-
ara um 3.000 tonnum og frystitog-
ara um 1.900 tonnum. Þar að
auki nam ónotaður ufsakvóti ís-
fisktogara um 1.700 tonnum og
ónotaður karfakvóti um 1.300
tonnum.
Viðskiptin af ýmsum toga
Það sem flokka má sem við-
skipti með kvóta, þ.e. flutningar á
Stjórn veitustofnana samþykkti
með þrem samhljóða atkvæðum að
mæla með ráðningu Hólmsteins, en
tveir stjórnarmanna sátu hjá við
atkvæðagreiðslu. Að sögn Áma
Sigfússonar, sem sæti á í borgarráði
fyrir Sjálfstæðisflokkinn, töldu borg-
arráðsmenn hins vegar ótvírætt
samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
að Guðmundur væri hæfastur um-
sækjenda um stöðuna og góð sam-
staða hefði verið um að ráða hann.
Guðmundur Þóroddsson hefur
stundað kennslu við Háskólann og
Jarðhitaskólann, en hann hefur ver-
ið verkefnastjóri og deildarstjóri
tæknideildar Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins. Þá hefur hann einn-
ig m.a. unnið að hönnun fyrir
Vatnsveitu Reykjavíkur. Auk hans
sóttu um stöðuna þeir Auðunn El-
íasson byggingafraíðingur, Haf-
steinn Helgason byggingaverk-
fræðingur, Haukur Baldursson
vélaverkfræðingur, Hólmsteinn
Sigurðsson viðskiptafræðingur, Jón
G. Óskarsson byggingaverkfræð-
ingur og Sigurður Siguijónsson
byggingaverkfræðingur.
í dag
Dómsmál
Saksóknari krefst ævilangs fang-
elsis yfír manni sem varð öðrum
manni að bana í haust 4
Skák ___________
Nigel Short tókst loks að vinna
Kasparov í skákeinvíginu sem fer
fram í London 20
Forstjórabílar
Forstjórar Þjóðhagsstofnunar og
Byggðastofnunar ætla ekki að skila
nýjum bílum sem þeir hafa fengið
til afnota 16
lAÖari
Kosningarnar í Grikklandi
Úr verinu
► 7,5 milljarða tekjutap ú þorsk-
veiðum - Laxeldismenn bjartsýn-
ir - Útgerðarmenn íhuga veiðar
við Svalbarða
Myndosögur
► Krákkar, inn klukkan átta -
Banki sem geymir blóð en ekki
peninga - Ætlar að verða sauma-
kona
Komst á vélsleða til Við-
eyjar og aftur til baka
VÉLSLEÐAMAÐURINN Jónmundur Gunnar Guðmundsson
komst fyrstur manna á vélsleða út í Viðey og aftur til baka
síðdegis í gær en vélsleðamenn hafa áður komist út í eyjuna.
„Ég var á 70 hestafla Ski-Doo
MXZ-vélsleða og bjóst ekki við að
þetta gengi svona vel,“ sagði Jón-
mundur, sem er 21 árs að aldri, í
samtali við Morgunblaðið.
Undiralda
Hann sagði að tekist hefði að kom-
ast út í Viðey á 150 hestafla sleðum
en 70 hestafla sleðar ekki verið tald-
ir hafa möguleika. Vegalengdin er
um 900 metrar og sagði Jónmundur
að undiraldan hefði gert „siglinguna"
vandasama. Hann sagði að gott væri
að taka land í Viðey en erfíðleikum
bundið að ná upp nógu miklum hraða
þegar farið væri til baka því sand-
fjaran væri hvergi breið.
Jónmundur sagði að halda þyrfti
60 til 70 km hraða á klst. til að sleð-
inn sykki ekki. Hann sagði að marg-
ir hefðu lent í því að sökkva sleðum
þama og hefði það gerst um síðustu
helgi. Jónmundur sagði að áhugi færi
vaxandi á þessari íþrótt og væri hún
mest stunduð á Veiðivötnum.