Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
7
Sigbjöm
formaður
fjárlaga-
nefndar
SIGBJÖRN Gunnarsson, þing-
maður Alþýðuflokksins, var á
mánudag kosinn formaður fjár-
laganefndar Alþingis í stað Karls
Steinars Guðnasonar, sem skip-
aður hefur verið forstjóri Trygg-
ingastofnunar ríkisins. Sturla
Böðvarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks, var endurkjörinn
varaformaður á fundi fjárlaga-
nefndar.
Þá var Björn Bjarnason, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, endur-
kjörinn formaður utanríkismála-
nefndar Alþingis og Steingrímur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, var kjörinn vara-
formaður nefndarinnar í samræmi
við samkomulag stjórnar og stjórn-
arandstöðu um þingsköp í síðustu
viku.
---» ♦---
■ MANNRÆKTARSTÖÐIN
Fjallið hefur hafið starfsemi sína
en það eru nokkir aðilar sem unnið
hafa við miðlun og aðra andlega
starfsemi sem hafa tekið sig saman
um reksturinn. Stefnt er að því að
vera með helgarnámskeið, fyrir-
lestra og ýmsa fræðslu er lýtur
þroska einstaklingsins. Einstök at-
riði munu verða auglýst á síðum
Morgunblaðsins. Aðsetur stöðvar-
innar er á Krókhálsi 4 (Harðvið-
arvalshúsinu) og er opið frá kl.
10-16 alla virka daga.
Póstur og sími setur upp símstöðvar
Notendum í stafræna
kerfínu íjölgar verulega
Dúfnafjölda
haldið niðri
DÚFUM hefur fækkað í miðborg
Reykjavíkur frá því sem áður var.
Að sögn Ólafs Karls Nilsen líf-
fræðings er nú aðeins einn dúfna-
hópur við Tjörnina sem eitthVað
kveður að.
Ólafur Karl telur að fækkun
dúfnanna megi helst rekja til öfl-
ugrar meindýraeyðingar í borg-
inni. Samkvæmt upplýsingum
Guðmundar Þ. Björnssonar mein-
dýraeyðis er brugðist við kvörtun-
um borgaranna þegar dúfur eru
orðnar of ágengar við mannabú-
staði og fuglarnir fjarlægðir. Lítið
hefur verið kvartað í sumar og
litlu sem engu eytt af dúfum.
NOTENDUM í stafræna símkerfinu hefur fjölgað verulega á
þessu ári. Að sögn Bergþórs Halidórssonar, yfirverkfræðings
hjá sjálfvirkum símstöðvum, hefur undanfarið verið unnið að
því að tengja símanúmer í Reykjavík sem byrja á 1 við staf-
ræna kerfið og sérstakt átak var í sumar gert í því að skipta
út litlum símstöðvum út um land og selja upp stafrænar í stað-
inn. Um næstu áramót verða 68% allra símnotenda á landinu
komnir inn í stafræna kerfið.
Bergþór segir að aldrei hafi á
jafnskömmum tíma verið gert eins
mijíið til að bæta samband út á
land eins og gert hefur verið á þessu
ári. Verið sé að ljúka við að tengja
ljósleiðarann hringinn í kringum
landið og flestum litlum símstöðv-
um úti á landi hafi verið skipt út
fyrir stafrænar stöðvar. Um næstu
áramót verði 68% allra símnotenda
tengdir stafrænum símstöðvum en
var u.þ.b. helmingur um síðustu
áramót.
þá er breytingin sú sama og úti á
landi, notendur fá strax són og
geta notfært sér ýmsa sérþjónustu
sem Póstur og sími býður upp á,“
sagði Bergþór.
Áhersla á litlu staðina
„Fyrstu stafrænu stöðvarnar
voru teknar í notkun árið 1983 og
hefur áherslan verið lögð á að
tengja notendur í þéttbýli við kerf-
ið. I sumar fórum við hins vegar á
minnstu staðina í dreifbýlinu og
settum upp stafrænar stöðvar. A
þessum stöðum voru gamlar stöðv-
ar og yfirleitt ófullkomnari en á
stærri stöðunum og gátu þær trufl-
að inn í heildarkerfið. Notendur á
þessum stöðum finna mikið fyrir
breytingunni en hún felst í því að
samband næst yfirleitt strax og nú
þarf ekki lengur að gera margar
tilraunir til að ná sambandi og fá
són. Þá gengur mun betur að ná
símasambandi t.d. úr Reykjavík og
út á Iand,“ sagði Bergþór.
„í Reykjavík er verið að tengja
öll númer sem byrja á 1 við staf-
ræna kerfið og verður því lokið um
næstu mánaðamót. Allir nýir not-
endur sem tengjast við kerfið^ fá
bréf frá Pósti og síma u.þ.b. viku
áður en tengingin kemst á. Fyrir
Polam&Pyret*
KRINGLUNNI8 -12 SÍMI6818 22
Blómagalli (stærö 60-140 cm., verð 4.900-6.900. Úlpur í stærð 90-170 cm.,
verð 4.900-5.900. Blómahúfa með skinnkanti, verð 1.690