Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Seðlabankinn skilar
bílmun og tekur regl-
ur til endurskoðunar
ÁGÚST Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabanka íslands, kveðst
fagna þeirri ákvörðun Jóns Sigurðssonar seðlabankastjóra að láta
bílakaup Seðlabankans honum til handa ganga til baka. „Þetta er
góð og skynsamleg ákvörðun,“ sagði Ágúst í samtali við Morgun-
blaðið í gærkveldi. Ágúst segir að brátt verði reglur um bifreiða-
kaup Seðlabankans til handa bankastjórum endurskoðaðar, og þar
komi tvennt til greina: Annars vegar að miðað verði við samskonar
reglur og ríkisstjórnin noti um kaup á ráðherrabílum, þar sem
miðað sé við að hámarksverð bifreiða sé um 3,2 milljónir króna.
„Eða að endurskoðunin verði enn róttækari, og afnumin verði sú
regla að stofnanir leggi til forstjórum, forstöðumönnum og yfir-
mönnum bifreiðar," segir Ágúst.
Jón Sigurðsson, bankastjóri
Seðlabankans^ sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkveldi að í þess-
ari ákvörðun hans fælist viðurkenn-
ing á því að hann beygði sig fyrir
þeirri gagnrýni sem fram hefði
komið á ofangreind bílakaup. Hann
kvaðst því ekki ætla að veija þessa
ákvörðun, og gerði því þessa breyt-
ingu mjög fús. „Mönnum yfírsést
kannski, að með kaupum af þessu
tagi er alls ekki verið að skerða
það fé sem velferðarkerfíð hefur
úr að spila,“ sagði Jón, „þvert á
móti fylgir svona kaupum mjög
mikil skattgreiðsla til ríkisins sem
annars kæmi ekki, því það lætur
nærri að helmingur af andvirði
svona bíls sé óbeinir skattar.“
Hirði ekki um bílafríðindi
Seðlabankastjóri var spurður
hvort hann hygðist nýta sér bif-
reiðafríðindi Seðlabankans í fram-
tíðinni: „Ég ætla ekki að gera það
í bili. Ég hirði ekki um það mál,
sem er algjört aukaatriði í þessu
máli. Ég kemst allra minna ferða,“
sagði Jón Sigurðsson.
Ágúst Einarsson bendir á að í
ÞÓRÐUR Friðjónsson, forsljóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði að
hann hafí ekki hugleitt hvort
hann muni skila bíl sem sé þegar
komin í notkun, enda sé óvíst um
hagkvæmni þess, er hann var
spurður hvort hann myndi fylgja
í fótspor Jóns Sigurðssonar,
bankastjóra Seðlabankans og
skila bíl sem hann hefur afnot af
í tengslum við starf sitt. Guð-
mundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar, sagði aðspurð-
ur um hið sama að maður skili
ekki bíl sem sé þegar kominn í
notkun.
Fer eftir reglum
„Ég mun náttúrlega í framtíðinni
jafnt sem hingað til fara eftir þeim
reglum sem um þetta gilda, en ég
hef ekkert hugleitt hvort ég mun
skila bíl sem er þegar kominn í notk-
un eða ekki, enda er óvíst um hag-
kvæmni þess,“ sagði Þórður Frið-
jónsson í samtali við Morgunblaðið.
„Ég vek athygli á því að kjörin
hjá mér hafa ekkert breyst heldur
er þetta samskonar bifreið og ég
hafði til afnota áður og reyndar
ódýrari en sú sem ég hafði þar á
undan. Ég tel hins vegar skynsam-
legt að um afnot af þessu tagi giidi
skýrar og einfaldar reglur þannig
að ekki þurfi að koma til deilna í
þessum efnum. Verði reglum um
þetta breytt mun ég að sjálfsögðu
dag sé ekki lengur hægt að líta á
bílafríðindi sem launamál, þar sem
menn greiði skatta af afnotum bif-
reiðanna samkvæmt skattamati.
„Mér finnst kominn tími til að það
verði skorin upp herör gagnvart
þessum bílaflottheitum, bæði hjá
æðstu embættismönnum og for-
kólfum í viðskiptalífinu. Þetta er
kannski með ennþá meira áberandi
hætti úti í atvinnulífinu, þar sem
er fjöldinn allur af glæsilegum for-
stjórabílum. Þó að ekki sé um opin-
bera fjármuni að ræða í slíkum til-
vikum, þá greiða neytendur samt
sem áður fyrir þennan lúxus for-
stjóranna," sagði Ágúst.
Ekki við þetta búandi
Formaður bankaráðs Seðlabank-
ans kveðst eiga von á því að banka-
ráðið taki þessar reglur til endur-
skoðunar alveg á næstunni. „Ég
tel að það sé ekki við það búandi
að þessi bílamál skuli á nokkurra
ára fresti valda meiriháttar um-
ræðu í þjóðfélaginu. Við viljum
kanna hvort ekki geti skapast sam-
staða um uppstokkun á öllum þess-
um málum innan hins opinbera
skoða mín bílamál einfaldlega í því
ljósi," sagði hann ennfremur.
Ekki ný bifreið
„Ég er með bifreið sem er búið
að nota í þijá eða fjóra mánuði.
Maður skilar ekki slíku. Þetta er
ekki ný bifreið," sagði Guðmundur
dag.
í stefnunni kemur fram að frá því
stefnanda var veitt lausn frá emb-
ætti hæstaréttardómara 1. júlí 1992
hafi hann fengið greidd sömu laun
og starfandi hæstaréttardómarar
allt þar til haustið 1992 er farið var
að greiða fyrir yfirvinnu. Stefnandi
kerfís og það mun ekki standa á
Seðlabankanum í þeirri endurskoð-
un,“ .sagði Ágúst.
Ríkisbankar miða við reglur
um ráðherrabíla
í ríkisbönkunum, Landsbanka
íslands og Búnaðarbanka íslands,
eru reglur þessar með nokkuð svip-
uðum hætti þar sem í megindrátt-
um er miðað við viðmiðunarreglur
ríkisstjórnarinnar þegar ráðherra-
bílar eru keyptir. Einkabankinn,
íslandsbanki, kaupir, á og rekur
bifreiðar handa bankastjóra ís-
landsbanka og fimm framkvæmda-
stjórum bankans, og setur einnig
þak á kaupverð, sem miðast við
þrjár milljónir króna, samkvæmt
upplýsingum Kristjáns Ragnars-
sonar, formanns bankaráðs ís-
landsbanka.
Kjartan Gunnarsson, starfandi
formaður bankaráðs Landsbanka
íslands, segir að reglur bankans í
þessum efnum séu á þann veg að
á þriggja til fjögurra ára fresti
kaupi Landsbankinn bifreiðar sem
þrír bankastjórar Landsbankans
hafi síðan afnot af, en bankinn eigi
og reki. Ákveðinn hluti af bifreiðar-
verðinu sé síðan talinn bankastjór-
unum til tekna. Ekki sé lengur
einkabílstjóri fyrir bankastjórana
að störfum við Landsbankann, en
sá sem gegnt hafi því starfi, hafi
látið af því fyrir aldurs sakir á liðnu
ári. Bankastjórarnir hafi hins vegar
aðgang að bílstjóra umsjónardeild-
ar, ef svo beri undir.
„Segja má að almenna reglan
sé sú, þegar bifreiðakaup eru
ákveðin, að miða við þær reglur
Malmquist í samtali við Morgun-
blaðið. „Sjálfsagt eru mín mál í
nákvæmlega sömu stöðu og hjá
öðrum sem eru með bifreiðir á
samskonar kjörum," sagði hann
ennfremur.
Hann sagðist ekkert frekar hafa
að segja um þetta, en hann hefði
telji að ákvæði 2. og 3. málsliðar
44. greinar stjórnarskrár um hin
sérlegu málefni íslands frá 5. jan.
1874 veiti þeim dómurum sem
ákvæðin ná til þá vernd að þeir verði
launalega eins settir og ef þeir störf-
uðu áfram.
sem gilda um bifreiðamál ráðherra
á hveijum tíma,“ sagði Kjartan.
Reglum breytt 1985
Guðni Ágústsson, formaður
bankaráðs Búnaðarbankans, segir
að hjá bankanum hafi ákveðnar
viðmiðunarreglur verið í gildi frá
því árið 1985, um bifreiðakaup
bankans handa bankastjórum hans.
Frá árinu 1970 fram til ársins 1985
hafi gilt sömu reglur og um bif-
reiðakaup ráðherra. Það er, banka-
stjórarnir hafi getað keypt bíla á
ákveðnum kjörum, á þriggja ára
fresti, en bankinn hafi greitt að-
flutningsgjöld og tolla og síðan
hafi bankastjórarnir átt bílana og
rekið sjálfir. Með ákvörðun banka-
ráðsins árið 1985 hafi reglunum
verið breytt og hafi sömu reglur
verið í gildi síðan. Bankinn eigi og
reki bifreiðarnar, en bankastjórarn-
ir greiði skatta af þeim hlunnindum
sem afnot bifreiðanna teljast sam-
kvæmt skattmati. „Viðmiðun á
hámarksverði bifreiða þeirra sem
keyptar eru handa bankastjórum,
ekki rætt þetta við stjóm Byggða-
stofnunar. Aðspurður sagði hann
að bíllinn væri hluti af sínum ráðn-
ingarsamningi og keyptur sam-
kvæmt þeim reglum sem giltu í
þessum efnum. Bíllinn hefði verið
endurnýjun á eldri bifreið sem keypt
hefði verið 1987 eða fýrir sex árum.
Þá segir: „Engin önnur ákvæði
hafi þá verið til um starfslok þess-
ara embættismanna og þessum
ákvæðum verði auðvitað ekki breytt
með einfaldri lagasetningu, hvorki
um aldurshámark embættismanna,
Kjaradóm eða annað. Stefnandi
heldur því fram, að orðalag stjórn-
arskrárákvæðanna sé ótvírætt, enda
myndi sá skilningur að fram-
kvæmdavaldshafar eða almenni lög-
gjafinn gætu ákveðið að einhver
hluti þeirra peningagreiðslna, sem
hæstaréttardómarar fá á hverjum
tíma fyrir að sinna skyldustörfum
sínum, skuli kallast laun og aðrar
miðast við sama verð og sett var
í reglugerð um kaup á ráðherrabif-
reiðum, sem mun vera um 3,2 millj-
ónir króna í dag. Það hefur ekki á
það r-eynt hjá okkur enn sem kom-
ið er, en ég reikna með að við þá
viðmiðunarreglu verði stuðst hjá
okkur í Búnaðarbankanum,“ sagði
Guðni Ágústsson.
Einkabankinn bannar
starfsmönnum að þiggja
laxveiðiboð viðskiptamanna
Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðs íslandsbanka, segir að
bankinn kaupi, eigi og reki bifreið-
ar handa þeim yfirmönnum bank-
ans, sem mynda bankastjórn, þ.e.
bankastjóra og fimm framkvæmda-
stjórum. „Við teljum enga þörf fyr-
ir það hjá okkur að breyta þeim
reglum og viðmiðunum sem við
notumst við. Þessi bílafríðindi eru
í raun laun, eins og fyrirkomulagið
er í dag, en ekki skattaleg hlunn-
indi, eins og áður var. Mönnum eru
taldin til tekna 20% af verðmæti
bíls, á hveiju ári, sem er innan við
þriggja ára gamall, og 15% af verð-
mæti bifreiðar sem er fjögurra ára
eða eldri og þeir greiða sína skatta
og skyldur í samræmi við það,“
segir Kristján. Hann segir að miðað
sé við að kaupverð bifreiða sem
bankinn kaupir handa yfirmönnum
íslandsbanka sé ekki hærra en þrár
milljónir króna.
Kristján segir það geta verið
álitamál hvort greiða bæri yfir-
mönnum bankans hærri laun sem
þessu nemur og síðan ættu þeir og
rækju sína bíla. Að hans mati
mætti vel ræða það. Kristján bend-
ir jafnframt á að íslandsbanki hafi
engan einkabflstjóra í starfi, auk
þess sem bankinn sé einn slíkra
stofnana með reglu sem banni
starfsmönnum að þiggja gjafír og
boð. „Menn mega ekki þiggja boð
um laxveiðitúr hjá viðskiptamönn-
um, svo að dæmi sé nefnt,“ segir
Kristján.
launagreiðslur einhveiju öðru nafni,
sem stefnandi ætti ekki að fá greitt,
gera stjórnarskrárákvæðin gagns-
laus og marklaus. Stefnandi heldur
því fram, að föst laun að viðbættri
framangreindri aukaþóknun, en hún
hækkar laun hæstaréttardómara um
40-50% eftir því hvort miðað er við
mánaðarlaun eða árslaun, sé fyrir
sömu störfin og föstu launin hafi
áður verið greidd fyrir. Launahækk-
unin verði því ekki studd með nýjum
störfum í réttinum. Jafnvel þótt svo
væri ætti stefnandi rétt á launahækk-
uninni því hann á að vera eins settur
og ef hann hefði gegnt starfi áfram.“
Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að skýrar reglur eigi að gilda um bílamál
Ovíst um hagkvæmni þess að
skilti bfl sem er þegar í notkun
Búid að nota bifreiðina í 3-4 mánuði, segir forsljóri Byggðastofnunar
Fyrrverandi hæstaréttardómari stefnir forsætis- og fjármálaráðherra
Telur sig eiga rétt á sömu launa-
kjörum og starfandi dómarar
SIGURGEIR Jónsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, hefur stefnt
forsætis- og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til greiðslu 1.260
þúsund króna auk dráttarvaxta frá 1. ágúst í ár, þar sem hann telur
að hann eigi að njóta sömu launakjara og starfandi hæstaréttardóm-
arar, sem hafa fengið greiddar 48 yfirvinnustundir á mánuði í tíu
mánuði frá 1. september 1992 eða 126 þúsund krónur á mánuði.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, fimmtu-