Morgunblaðið - 13.10.1993, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Nátttröllið
DILJÁ Oladóttir og tíkin Hess heilsa hér upp á nátttröllið Drang
sem dagaði hér uppi fyrir nokkur þúsund árum er hann varð of seinn
til heimkynna sinna fyrir sólarupprás. Drangur skiptir löndum jarð-
anna Ytri-Tjarna og Bjarkar í Eyjafirði og stendur í hjalla rétt ofan
við efstu tún bæjanna.
Skinnaiðnaður endurreistur með nýju hlutafélagi
Níu aðilar hafa gef-
ið loforð um hlutafé
NÍU aðilar hafa gefið loforð um að leggja fram hlutafé í nýtt fyrir-
tæki um rekstur á þrotabúi íslensks skinnaiðnaðar, en formlega verð-
ur stofnað til hins nýja félags á morgun, fimmtudag, eða á föstudag.
Leigusamningur Rekstrarfélags Landsbanka íslands rennur út á föstu-
daginn, en bankinn hefur leigt reksturinn frá gjaldþroti íslensks
skinnaiðnaðar í júní síðastliðnum. Starfsmenn nýja fyrirtækisins verða
eitthvað færri en verið hefur en búist er við að ársverkin verði um
120 'talsins.
Ásgeir Magnússon, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar,
sem haft hefur það verkefni með
höndum að safna hlutafé og ganga
frá stofnun nýs fyrirtækis um rekst-
ur skinnaiðnaðar á Akureyri sagði
að málið væri nú á lokaspretti. Tek-
in verður ákvörðun í dag, miðviku-
dag, um stofnfund hins nýja fyrir-
tækis, en hann verður annað hvort
á fimmtudag eða föstudag. Nafn hins
nýja félags hefur ekki verið ákveðið.>
Hlutafé fyrirtækisins verður 45
milljónir króna og höfðu í gær safn-
ast loforð fyrir framlögum upp á 40
milljónir króna frá alls níu aðilum,
fyrirtækjum og sveitarfélögum.
Framkvæmdasjóður Akureyrar legg-
ur fram helming hlutafjárins eða
22,5 milljónir króna, en aðrir sem
taka þátt í endurreisn skinnaiðnað-
arins á Akureyri eru Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar, Kaupfélag Eyfirðinga,
Útgerðarfélag Akureyringa, Eyja-
fjarðarsveit, Glæsibæjarhreppur,
Svalbarðsstrandarhreppur, Hluta-
bréfasjóður Norðurlands og Starfs-
mannafélag íslensks skinnaiðnaðar.
120 ársverk
Morgunblaðið/Sigurður Björnsson
Framkvæmdasumri
að ljúka í Ólafsfirði
ólafsfirði. ,
Framkvæmdatímanum þetta árið hjá Ölafsfjarðarbæ er nú að ljúka.
Óvenju mikið hefur verið um framkvæmdir enda stendur bæjarsjóð-
ur vel fjárhagslega.
Bygging 1.500 fermetra íþrótta-
húss er langt komin og verður lokið
við hana í vetur samkvæmt áætlun.
f sumar var Túngata malbikuð og
jarðvegsskipti voru í Brimnesvegi
og nú er verið að Ijúka við gerð
götu og bflastæða við nýja íþrótta-
húsið, barnaskólann og sundlaug-
ina. Nú er búið að malbika allar
íbúðagötur bæjarins nema Brimnes-
veg og tveir stuttir spottar eru eftir
við höfnina.
Þá er nú verið að ljúka við að
reka niður stálþil í höfnina, en þar
er verið að gera 90 metra langa og
30 metra breiða bryggju auk þess
sem rýmkað verður til í höfninni
með því að fjarlægja tvær gamlar
bryggjur. Höfnin er nú að verða
örugg fyrir flota Ólafsfírðinga þó
enn sé eftir að bæta aðstöðuna þar
nokkuð.
SB
Slátursala mínni en
undanfarin tvö ár
Ásgeir sagði að auk þess væri
fastlega búist við að einhverjir slát-
urleyfíshafar myndu taka þátt í
stofnun félagsins, en það myndi ský-
rast í dag eða morgun. „Við vonum
að þetta smelli allt saman í dag eða
í síðasta lagi á morgun og allt bend-
ir til að svo verði,“ sagði Ásgeir.
Ársverk hjá nýja félaginu verða
um 120 talsins sem er eilítið færra
en verið hefur. „Það verða eitthvað
færri starfsmenn þarna til að byija
með en gert er ráð fyrir nokkrum
sveigjanleika í starfseminni, þannig
að stundum verði starfsmenn fleiri
og stundum færri,“ sagði Ásgeir.
Starfsemi nýja fyrirtækisins verð-
ur í svipuðum skorðum og verið hef-
ur, en þó er gert ráð fyrir að dregið
verði úr leðurframleiðslu og svokall-
aðri nappalanframleiðslu „Við gerum
þó ráð fyrir að geta haft alla þessa
framleiðslu í gangi, við höldum þeim
möguleika opnum, en það fer eftir
ástandi á mörkuðunum á hveijum
tíma.“
Dilkar koma þyngri af fjalli en undanfarin ár
Barnakór Glerárkirkju
hefur þriðja starfsárið
SLÁTURSALA hefur verið heldur minni nú en var á liðnu ári hjá
sláturhúsi Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. Sláturtíð lýkur um eða
eftir helgi þannig að það fara að verða síðustu forvöð að taka slát-
ur. Dilkar eru óvenjuvænir, en það gerir að verkum að búist er við
að um eitt þúsund færri ám verði slátrað en sláturloforðin hljóðuðu
upp á.
BARNAKÓR hefur verið starf-
andi við Glerárkirkju síðustu
tvö ár og er kórinn nú að hefja
þriðja starfsárið.
í kórnum hafa verið um þijátíu
10 til 12 ára börn og hefur hann
tekið þátt í ýmsum athöfnum í
kirkjunni. í vetur verður starfið
með líku sniði og fyrr en þó verð-
ur snemma farið að æfa aðventu-
og jólaefnisskrá því áætlað er að
kórinn syngi nokkur lög með Kór
Glerárkirkju. Æfingar verða í
Glerárkirkju á miðvikudögum frá
kl. 16 til 17 og eru allir krakkar
velkomnir að vera með.
(Fréttatilkynning.)
Óli Valdimarsson sláturhússtjóri
sláturhúss KEA sagði að lokið yrði
við slátrun sennilegast um helgina,
en verið gæti að hún myndi drag-
ast fram á mánudag.
Þegar er búið að slátra tæplega
27 þúsund fjár, en sláturfjárloforðin
voru upp á tæplega 35 þúsund fjár.
Óli sagðist allt eins búast við að
um eitt þúsund færri ám en gert
hafí verið ráð fyrir vegna þess hve
vænir dilkarnir eru. Meðalvigtin nú
er um 16 kíló, sem er með mesta
móti, að sögn sláturhússtjóra. Á
liðnu ári var meðalvigtin um 15,2
kíló og þótti reyndar heldur lítið
þegar miðað var við fyrri ár.
Helstu skýringar á vænleika
dilka eftir sumarið, sem var með
allra kaldasta móti sagði Óli vera
að féð hefði verið í nýgræðingi
meira og minna allt sumarið. Snjó
hefði verið að taka upp langt fram
eftir sumri og nýgræðingur undir
og eins hefði verið óvenjuhlýtt í
septembermánuði þannig að fé hafi
bætt á sig allt til loka.
Minni sala
Slátursala fór rólega af stað, en
hefur tekið vel við sér að undan-
förnu að sögn Óla, en þó taldi hann
að salan væri nokkru minni í ár en
var í fyrra. Metsala var árið 1991
þegar yfír 30 þúsund slátur voru
seld, í fyrra var salan heldur minni
og nú í ár er slátursala nokkru
minni en var þá. Óli sagði ómögu-
legt að geta sér til um skýringar
þar á, „þetta eru bestu matarkaup-
in og ef börnum er kennt að borða
slátur þá finnst þeim það yfirleitt
gott,“ sagði Óli.
Sláturtíðin fer nú að renna sitt
skeið, henni lýkur væntanlega um
helgina, en Óli sagði að ekki væri
á það treystandi að hægt yrði að
kaupa slátur eftir helgi. Um 2.400
slátur hafa verið send frá Húsavík
til Akureyrar á síðustu vikum, en
það er nokkru meira en keypt var
þaðan í fyrra.