Morgunblaðið - 13.10.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Arafat
hrósar
sigri
MIÐSTJÓRN Frelsissamtaka
Palestínumanna (PLO) sam-
þykkti í gær friðarsamninga
sem Yasser Arafat, leiðtogi
PLO, og Yitzhak Rabin forsæt-
isráðherra ísraels undirrituðu í
Washington í síðasta mánuði.
Niðurstaðan þykir mikill sigur
fyrir Arafat en samningurinn
hlaut 63 atkvæði gegn 8 en 11
fundarmenn sátu hjá.
Stöðva smygl
á hvalkjöti
NORSKA tollgæslan kom í veg
fyrir að 3,5 tonnum af hrefnu-
kjöti yrði smyglað til Kóreu um
flugvöílinn í Ósló. Var kjötið
pakkað í kassa sem merktir
voru sem þar væru frystar
rækjur á ferðinni.
Ný sljórn í
Grikklandi
ANDREAS Papandreou segist
vilja hafa hraðann á og hét því
í gær að ljúka útnefningu ráð-
herra í nýrri ríkisstjórn grískra
sósíalista svo hún gæti svarið
embættiseið í dag, miðvikudag.
Havel vill í
NATO
VACLAV Havel forseti Tékk-
lands hvatti til þess í ræðu í
tékkneska þinginu í gær að
fyrrum kommúnistaríkjum í
Austur-Evrópu yrði boðin aðild
að Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Skoraði hann á leið-
toga þess að láta afstöðu Rússa
ekki tefja fyrir því að nýjum
lýðræðisríkjum í Austur-Evr-
ópu verði boðin aðild.
Stjórnin i Berl-
ín árið 2000
ÞÝSKA stjórnin samþykkti í
gær áætlun sem miðar að því
að aðsetur hennar verði með
öllu komið til Berlínar árið
2000. Verða 12 stjómarstofn-
anir fluttar til Berlínar en átta
verða áfram í Bonn.
Stjórn að fæð-
ast í Póllandi
PÓLSKI bændaflokkurinn
(PSL) ákvað í gær að ganga
til stofnunar vinstri samsteypu-
stjómar með Lýðræðissam-
bandinu (SLD), gamla Komm-
únistaflokknum. Tilnefndi PSL
Waldemar Pawlak sem forsæt-
isráðherraefni. Flokkamir hafa
drjúgan meirihluta á þingi.
Mandela á móti
þjóðaratkvæði
NELSON Mandela leiðtogi Af-
ríska þjóðarráðsins (ANC)
sagðist í gær mótfallinn þeirri
hugmynd F.W. de Klerk forseta
frá í fyrradag, að reynt verði
að höggva á hnútinn í viðræð-
um um lýðræðislegar umbætur
í Suður-Afríku með því að efna
til þjóðaratkvæðis um framhald
lýðræðisþróunarinnar í landinu.
Hald lagt á
sprengiefni
LUNDÚNALÖGREGLAN
lagði í gær hald á efni til
sprengjugerðar, sem fannst við ,
húsleit í borginni. Talið er að
um sé að ræða einn af vopna-
búrum IRA-hreyfíngarinnar.
Efnið sem fannst hefði nægt
til að gera 20 sprengjur en IRA
hefur játað á sig fjölda sprengj-
utilræða á síðustu mánuðum.
Fj öldasj álfsmorð í
víetnömsku þorpi
Hanoi. Reuter.
FIMMTÍU og þrír íbúar afskekkts fjallaþorps í Víetnam
styttu sér aldur nýlega að áeggjan leiðtoga síns, blinds
manns, sem krýnt hafði sjálfan sig konung meðal fólksins
og blekkt það á ýmsa lund.
Atburðurinn átti sér stað 2.
október sl. í þorpinu Ta He, sem
er 300 km norðvestur af höfuð-
borginni, Hanoi. Var aðkoman
ófögur enda hafði fólkið vegið
hvert annað með tiltækum vopn-
um, gömlum framhlaðningum,
hnífum, skóflum og hlújárnum.
Meðal hinna látnu voru 19 börn.
Himnaríkisvist
gegn greiðslu
Víetnamskur embættismaður
sagði í gær, að þorpsbúamir, sem
voru andatrúar og ákaflega hjá-
trúarfullir eins og títt er um fjalla-
fólkið, hafi verið fómarlömb stór-
kostlegra blekkinga manns að
nafni Ca Van Liem. Sagði hann,
að 1985 hefði hann gerst liðhlaupi
eftir þriggja ára herþjónustu og
haft með sér sprengiefni, sem
hann notaðf síðan til fiskveiða í
fjallaánum. í einni sprengingunni
Sir James
Hender-
son látinn
SIR James Henderson, fyrrver-
andi sendiherra og formaður
bresku sendinefndarinnar á Is-
landi 1953-’56, lést fyrir skömmu,
92 ára að aldri. Fyrir bresku utan-
ríkisþjónustuna starfaði hann frá
1925 til 1960 en hann var aðlaður
1959.
Sir James var formaður bresku
sendinefndarinnar í Reykjavík
1953-’56, áður en Bretar komu hér
• upp eiginlegu sendiráði, og átti þá
sinn þátt í að leysa fyrsta landhelgis-
stríðið milli Breta og íslendinga.
Eiginkona hans lést í maí á þessu ári.
Loksins vann
Short skák
Skák
Margeir Pétursson
ENGLENDINGNUM Nigel
Short tókst loks í gær að vinna
skák í heimsmeistaraeinvígi sínu
við Gary Kasparov í London. Short
hafði hvítt í sextándu skákinni,
tefldi af miklu öryggi og Kasparov
gafst upp eftir 38 leiki. Þrátt fyr-
ir þetta er aðstaða Shorts í einvíg-
inu afar vonlítil. Hann hefur að-
eins hlotið fímm og hálfan vinning
gegn tiu og hálfum vinningi
heimsmeistarans og ekki er eftir
að tefla nema átta skákir.
Short tefldi skákina í gær ró-
lega framan af og eftir u.þ.b. 20
leiki var Kasparov kominn mjög
nálægt því að hafa jafnað taflið.
En heimsmeistarinn vildi ekki
Iétta sér vömina með því að skipta
upp á drottningum og reyndi sókn
á kóngsvæng. Á meðan bætti
Short stöðu sína á miðborði og
drottningarvæng og eftir 32 leiki
var staða hans orðin afar vænleg.
Þetta var sannfærandi sigur.
16. einvígisskákin:
Hvítt: Nigel Short
Svart: Gary Kasparov
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 -
a6 6. Bc4 - e6 7. Bb3 - b5 8.
0-0 - Be7 9. Df3 - Dc7 10. Dg3
- Rc6
Kasparov fékk sjálfur góða
stöðu á hvítt gegn Gelfand í Linar-
es í vor eftir 10. — 0-0 11. Bh6
- Re8 12. Hadl - Bd7 13. Rf3!
- b4?! 14. Re2 - a5 15. Rf4! og
vann í aðeins 25 leikjum.
II. Rxc6 — Dxc6 12. Hel — Bb7
13. a3 - Hd8 14. f3 - 0-0 15.
Bh6 - Re8 16. Khl - Kh8 17.
Bg5 - Bxg5 18. Dxg5 - Rf6
19. Hadl - Hd7 20. Hd3 -
Hfd8 21. Hedl - Dc5 22. De3
- Kg8 Upp er komið mjög svip-
að miðtafl og í skákinni A. So-
kolov-Portisch á heimsbikarmót-
inu í Rotterdam 1989. Þá urðu
fljótlega uppskipti á drottningum,
en það leysti ekki öll vandamál
svarts og hann tapaði í 50 leikjum.
Það verður þó að segjast að jafnte-
flismöguleikar Kasparovs hefðu
verið mjög góðir ef hann hefði
brotið odd af oflæti sínu og farið
í kaupin.
23. Kgl - Kf8 24. Df2 - Ba8
25. Re2 - g6 26. Rd4 - De5
27. Hel - g5!? 28. c3 - Kg7
29. Bc2 - Hg8 30. Rb3! - Kf8?
Með yfirlætislausri taflmennsku
hefur Short bætt stöðu sína jafnt
og þétt. Hann hefur undirbúið
atlögu á drottningarvæng og tekið
alla reiti nema tvo af svörtu
drottningunni.
Kasparov teflir hins vegar uppá
sóknaraðgerðir á kóngsvæng, sem
ekki eru þó vænlegar til árangurs.
Að fara með kónginn á miðborðið
gerir illt verra.
31. Hd4 - Ke7
32. a4! — h5 33. axb5 — axb5
34. Hb4 - h4 35. Rd4
Kasparov flýtur sofandi að
feigðarósi. Nú tapar hann óumflýj-
anlega peðinu á b5.
35. - g4 36. Hxb5 - d5 37.
Dxh4 - Dh5
38. Rf5+!og Kasparov gafst upp,
því eftir 38. — exf5 39. exd5+ —
Kf8 40. Dxf6 er hvítur orðinn
þremur peðum yfir og hótar þar
að auki máti á b8.
missti hann sjónina og annan
handlegginn. Liem var nú illa
staddur og brá því á það ráð að
lýsa yfir við þorpsbúana, að hann
væri konungur þeirra og gæti
tryggt þeim eilífa sæluvist á himni
ef þeir greiddu honum fyrr það í
peningum.
Hver gekk í skrokk á öðrum
Fólkið trúði þessu öllu og lét
Liem fá allt, sem það átti. Hann
gat því lifað eins og konungur í
allri örbirgðinni í þorpinu. Hann
óttaðist þó, að illa færi að lokum
og því kallaði hann fólkið saman
og sagði því, að nú væri komið
að himnaförinni. Var byijað á því
að brenna húsin en því næst var
Liem sjálfur drepinn fyrstur
manna. Að því búnu gekk hver í
skrokk á öðrum.
Tvær ljölskyldur af átta, eða
15 manns, lifðu blóðbaðið af enda
vildu þær ekki taka þátt í átrúnað-
,.inum á Liem. Atburðurinn hefur
vakið litla athygli í því stríðshijáða
landi Víetnam.
Vínarfundinum lokið
Starfi mann-
réttindadóm-
stóls hraðað
Vínarborg. Frá Önnu Bjarnadóttur,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FYRSTA leiðtogafundi að-
ildarríkja Evrópuráðsins
lauk í Vínarborg á laugar-
dag. Franz Vranitzky, kansl-
ari Austurríkis, sagði að leið-
togarnir hefðu komist að
málamiðlun um lokaskjal
fundarins, það væri mála-
miðlun sem fundurinn hefði
samþykkt einróma.
Leiðtogarnir samþykktu að
einfalda starf mannréttinda-
dómstólsins í Strassborg svo
að hann geti afgreitt mál hrað-
ar og orðið afkastameiri í fram-
tíðinni. Aðildarríki Evrópur-
áðsins eru nú 32 en voru 23
fyrir íjórum árum og málum
sem eru lögð fyrir dómstólinn
hefur fjölgað að sama skapi.
Leiðtogarnir voru sammála
um að þjóðernisminnihlutahóp-
ar þyrftu verndar við en tóku
ekki ákvörðun um hvernig
henni skyldi háttað. Þeir fólu
ráðherranefnd ráðsins að
semja viðauka við mannrétt-
indasáttmálann þar sem réttur
þjóðernisminnihlutahópa á
menningarsviðinu er tryggður.
Eeuter
Afbrotamenn auðmýktir í Kína
ÞRJÁTÍU Kínveijar voru dæmdir í 3-10 ára fangelsi á mánudag fyrir
að selja falsaða jámbrautamiða. Til viðbótar refsingunni voru þeir leiddir
í hringi á torginu fyrir framan aðalbrautarstöðina í Peking, öðrum til
viðvörunar.
Nítján dverg'vax-
in börn létust eft-
ir hormónagjöf
París. Reuter.
RANNSÓKN er hafin á meintri aðild Henri Cerceau, fyrrum
forstjóra lyfjamiðstöðvar frönsku ríkisspítalanna, að mann-
drápsmáli sem tengist læknismeðferð dvergvaxinna barna á
árunum 1983-88. Nokkur böm hafa dáið af völdum hormóna-
gjafar og önnur em talin í lífshættu.
Cerceau er þriðji háttsetti emb-
ættismaðurinn sem tengist málinu
en áður hafa Fernand Dray, deildar-
stjóri hjá Pasteur-stofnuninni, og
Jean-Claud Job, barnalæknir, verið
kærðir fyrir manndráp af gáleysi.
Tuttugu og fimm böm sem hlutu
hormónameðferð vegna dvergvaxt-
ar á ámnum 1983-88 hafa veikst
af svonefndri Creutzfeldt-Jakob
veiki sem ræðst á heilann og veldur
andlegri hrömun og dauða.
Nítján barnanna hafa þegar Iát-
ist af völdum veikinnar og hafa
foreldrar tveggja þeirra lagt fram
manndrápskæru á hendur heil-
brigðisyfirvöldum. Málið allt hefur
orðið til þess að draga úr trúverðug-
leik lækna og lækningastofnana í
Frakklandi og var þó vart á bæt-
andi eftir stórtækt hneyksli sem
tengdist franska blóðbankanum og
varðaði alnæmissmit við blóðgjöf á
spítulum.
Cerceau segist saklaus
Ekki er dregið í efa að hormóna-
lyfin hafi valdið því að börnin sýkt-
ust því hormónarnir voru unnir úr
heiladingli látins fólks. Helmingur
innkirtlanna var fenginn frá Búlg-
aríu og Ungveijalandi. Málsrann-
sóknin snýst um það hvort innflutn-
ingur þeirra jafngildi glæpsamlegu
gáleysi og hver hafi heimilað notk-
un þeirra við framleiðslu hormóna-
lyfsins þar sem Ijóst mátti vera að
þeir gætu vart talist skaðlausir.
Lögmaður Cerceau, sem var
ábyrgur fyrir tilraunum með horm-
ónalyfið og dreifingu þess, hélt því
fram í gær að skjólstæðingur sinn
væri saklaus og myndi gera sitt til
að auðvelda rannsókn málsins.