Morgunblaðið - 13.10.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
21
Borís Jeltsín Rússlandsforseti biður Japana afsökunar á afdrifum stríðsfanga
Forsetafrúin og keisaraynjan
Reuter
NAÍNA Jeltsín kemur til gestamóttðku ásamt Michiko keisaraynju
Japans. Naína fylgir manni sínum í opinberri heimsókn til Japans.
Samningum um
Kúrilevjar frestað
Tókýó. Reuter.
BORÍS Jeltsín, Rússlandsforseti, og Morihiro Hosokava, for-
sætisráðherra Japans, komust í gær að samkomulagi um að
fresta samningaviðræðum um yfirráð yfir Kúrileyjum. Þá
baðst Jeltsín margsinnis afsökunar á afdrifum japanskra
fanga í síðari heimsstyrjöldinni en talið er að um 60.000 af
600.000 stríðsföngum hafi látist í fangabúðum Sovétmanna.
Lýstu japanskir ráðamenn ánægju sinni með innilega afsökun-
arbeiðni Jeltsíns en þeta er í fyrsta sinn sem rússneskur eða
sovéskur ráðamaður biðst afsökunar á meðferð japönsku
stríðsfanganna, þrátt fyrir kröfur Japana þess efnis.
Jeltsín lýsti því yfir að Rússar
viðurkenndu að deila stæði um
Kúrileyjar, sem sovéskir herir
náðu á sitt vald í lok heimsstyijald-
arinnar síðari. Sagði Jeltsín að
leysa yrði deiluna en hafa yrði í
huga afstöðu beggja þjóða og
hvernig samskipti þeirra gætu
þróast. Lofaði hann því að her-
sveitir á eyjunum yrðu fljótlega
fluttar á brott en þeim hefur þeg-
ar verið fækkað um helming. Árið
1956 undirrituðu Japanir og Sov-
étmenn yfirlýsingu um að tvær
af fjórum Kúrileyjum yrðu afhent-
ar Japönum. Gekk Hosokawa eftir
því að hún yrði virt og tók Jeltsín
undir það. Vegna deilunnar um
Kúrileyjar og vegna afdrifa stríðs-
fanganna hafa samskipti Japana
og Rússa verið stirð. Japanir hafa
ekki undirritað friðarsáttmála um
lok heimsstyijaldarinnar síðari og
hafa ekki haldið áfram mikilli fjár-
hagsaðstoð við Rússa.
Rússar skulda Japönum nú um
1,6 milljarð dollara og bað Jeltsín
Hosokawa um að endurmeta þær.
Kvaðst Hosokawa vel skilja mikil-
vægi málsins, þar sem efnahagur
Rússlands hefði áhrif á heims-
markaði.
Hreinsað til
í Sarajevo
BRYNVAGN á vegum her-
sveita Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) dregur sundurskotinn
spro'vagn í Sarajevo í gær
en þar er nú unnið að
hreinsunarstörfum eftir
hálfs annars árs stríðsátök.
Serbneskar sveitir sem sitja
um borgina skutu á hverfi
múslima í fyrrinótt og átök
hörnuðu í nágrenni borgar-
innar.
Reuter
Upplausnarástand í Georgíu vegna árása herja Gamsakhurdia
Reiða sig á hjálp Rússa
Tbilisi. Reuter.
LIÐSMENN Zviads Gamsakhurdia, fyrrverandi forseta Ge-
orgíu, heijuðu í gær á mikilvægan bæ í vesturhluta landsins
en þau hafa aðra níu bæi á valdi sínu. í Tbilisi, höfuðborg-
inni, kváðust stjórnvöld búast við, að herlið frá Samveldi sjálf-
stæðra ríkja kæmi þeim til hjálpar á næstu vikum.
Uppreisnarmenn úr flokki Gams-
akhurdia hafa gert harða hríð að
Samtredia, 50.000 mann bæ í Vest-
ur-Georgíu, en hann er mikilvæg
miðstöð járnbrautarsamgangna í
landinu og við Suður-Rússland. Það
yrði því alvarlegt áfall fyrir stjóm
Edúards Shevardnadze ef hann félli
en hún þarf nú að beijast á tvenn-
um vígstöðvum, við aðskilnaðar-
sinna í Abkhazíu og uppreisnar-
menn Gamsakhurdia. I þessum
ógöngum sá Shevardnadze það eitt
ráð, að Georgía gengi í Samveldið.
Alexander Chikvaidze, utanrík-
isráðherra Georgíu, sagði í gær,
að samveldisliðið kæmi á næstu
vikum og myndi í fyrstu standa
vörð um járnbrautir og önnur mikil-
væg mannvirki í landinu. Verða
hermennirnir flestir Rússar.
Aldrei samið við
Gamsakhurdia
Shevardnadze sagði í viðtali við
rússneska dagblaðið Komso-
molskaja Pravda í gær, að aldrei
yrði samið við Gamsakhurdia.
Sagði hann, að hann hefði rekið
burt flóttafólk frá Abkhazíu og þar
með „vísað því út í opinn dauðann
í fjöllum Svanetiu".
Nóbelsverðlaun tilkynnt í hagfræði
Veitt tveimur
fyrir hagsögu
Stokkhólmi. Reuter.
TVEIR Bandaríkjamenn, Robert Fogel við háskólann í Chicago og
Douglass North við Washington-háskóla í St. Louis, hljóta Nóbels-
verðlaunin í hagfræði á þessu ári. Segir í tilkynningu sænsku vísinda-
akademíunnar, að þeir hafi „blásið nýju lífi í rannsóknir á hagsögu
með því að beita hagfræðikenningum og sundurgreinandi aðferðum
til að skýra þróun efnahagsmála og samfélagsstofnana".
Fogel hefur gefið út mjög um-
deilda bók þar sem hann sýnir fram
á, að þrælahaldið hafi burtséð frá
öðru verið efnahagslega hagkvæmt
og endalok þess hafi eingöngu ver-
ið af pólitískum rótum runnin. Þá
hefur hann einnig reynt að koll-
varpa þeirri kenningu, að tilkoma
járnbrauta í Bandaríkjunum hafi
ein og sér verið forsenda efnahags-
legra framfara í landinu. Heldur
hann því fram, að summa margra
breytinga fremur en fáar, merkár
nýjungar ráði mestu um efnahags-
þróunina. Þetta er í fjórða sinn í
röð, að hagfræðingur við Chicago-
háskóla fær Nóbelsverðlaunin.
Hagþróun og stofnanaskipan
Noith hefur lagt stund á rann-
sóknir á efnahagsþróun í Evrópu
og Bandaríkjunum og skilgreint
sérstaklega hlutverk stofnana í
henni. Er það kenning hans, að
nýjar stofnanir verði til þegar ein-
hveijir þjóðfélagshópar sjái í þeim
möguleika á hagnaði, sem er ann-
ars útilokaður við gildandi stofn-
anaskipan. „North kennir, að þeir,
sem vilja skilja og skýra út hagvöxt
í Evrópu síðustu 4-500 árin, verði
ekki aðeins að kynna sér breýtingar
á fólksfjölda og verkmenningu,
heldur einnig á þjóðfélagsstofnun-
unum,“ sagði Lennart Jorberg, pró-
fessor í hagsögu, en hann átti sæti
í Nóbelnefndinni.
í tilkynningu sænsku vísindaaka-
demíunnar segir, að þeir Fogel og
North séu fyrstu hagsögufræðing-
arnir, sem fái Nóbelsverðlaunin í
hagfræði. Sænski seðlabankinn
stofnaði til þeirra og voru þau fyrst
veitt 1969. Er verðlaunaféð um 65
milljónir kr.
^ORRis
GÓÐ BÓK FYRIR FORELDRA OG ALLA AÐRA4I
í bókinni Sjáðu barniö eftir hinn þekkta rithöfund Desmond Morris er sjónum beint að merki-
legasta fyrirbæri hinnar lifandi náttúru, mannsbarninu. Þar er varpaS fram skýrri og óvæntri mynd
' af fyrsta árinu í lífi barnsins - mynd sem svarar fjölmörgum spurningum sem fólk veltir fyrir sér.
V
Hvers vegna er svo erfitt að fæða mannanna börn? i
Hversu vel sjá þau?
Hve vel heyra þau?
Hve næm eru börn á lykt og bragð?
Hvað róar börn?
Hve mikilvæg er móðir barni sínu?
Hvernig læra börn að tala?
Hvers vegna eru drengir klæddir í blátt en telpur í bleikt?
\
ALMENNA BOICAFELAGIÐ H F