Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
27
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Afmælisfundur
í MÁLI Sigurðar Helgasonar á afmælisfundi Hjartaverndar kom m.a. fram að hæsta meðalævi
karla væri 75,9 ár í Japan en næst á Islandi, 75,7 ár. Hæsta meðalævi kvenna er 82,1 ár í Japan, næst
í Frakklandi eða 81,1 ár og á íslandi 80,9 ár. Á meðal gesta á afmælisfundinu voru Guðmundur
Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, Ólafur Ólafsson, landlæknir, og frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands.
Tíu ára afmæli Landssamtaka hj artasj úklinga
Lög verði sett um grund-
vallarréttindi sjúklinga
HALDIÐ var upp á 10 ára afmæli Landssamtaka hjartasjúklinga
í Perlunni sl. laugardag. Öllum félagsmönnum var boðið að koma
til fundarins og sóttu hann um 500 af 2.300 félögum í samtökun-
um. Guðmundur Árni Stefánsson, heilbrigðisráðherra, og Ólafur
Ólafsson, landlæknir, voru meðal þeirra sem fluttu ávörp á fund-
inum. Heiðursgestur var Anna Cronin sem annast hefur íslenska
hjartasjúklinga í Bretlandi.
Fyrstur á fundinum talaði Sig-
urður Helgason, formaður Lands-
samtaka hjartasjúklinga og rit-
stjóri Hjartaverndar, og minnti
m.a. á að umræða um forgangs-
röðun í heilbrigðisþjónustu færi
fram hjá flestum þjóðum. Nefndi
hann sem dæmi umræðu sem orð-
ið hefði í Skotlandi um 57 ára
gamlan mann, sem látist hefði úr
kransæðastíflu, eftir að læknar
neituðu honum um aðgerð vegna
veikinda og langra biðlista. Hann
sagði að brýnt væri að hefja hrein-
skilna umræðu af þessu tagi hér
á landi með virkri þátttöku sjúkl-
ingasamtaka og taldi nauðsynlegt
að setja lög um grundvallarrétt-
indi sjúklinga. Á þann hátt yrði
þeim tryggð réttarvernd í framtíð-
inni. „Efni væntanlegra laga verð-
ur ekki rakið á þessu stigi málsins
enda þarf að fara fram rækileg
undirbúningsvinna. Ég tel að ekki
megi dragast að sú vinna hefjist
sem fyrst og vil hvetja öll sjúkl-
ingasamtök, félög og einstakl-
inga, að veita þessu máli liðveislu.
Sláum skjaldborg um velferðar-
kerfíð og hefjum baráttu til sókn-'
ar en ekki til skipulagslauss und-
anhalds, eins og áðumefnd hel-
stefna ber í skauti sér, að minni
hyggju. Stór hluti þjóðarinnar
verður að sameinast í slíkri bar-
áttu og sýna með því mikla sam-
stöðu. Leggja þarf það síðan fyrir
stjórnmálaflokka hvort þeir vilja
styðja framgang slíks lagafmm-
varps á Alþingi fyrir næstu al-
þingiskosningar," sagði Sigurður
m.a.
Heimsforseti Kiwan-
is heimsækir Island
ALHEIMSFORSETI kiwanishreyfingarinnar, Arthur Swanberg,
og kona hans Alice koma í heimsókn til íslands í dag, 13. október.
ísland er fyrsta landið sem þau
hjón heimsækja á nýbyrjuðu
starfsári kiwanismanna en hr.
Swanberg tók við embætti 1. októ-
ber sl. Starfinu gegnir hann í eitt
ár. Hann mun á þessu ári heim-
sækja fjölmörg lönd þar sem kiw-
anismenn og -konur starfa að
mannúðarmálum.
Þau hjón verða viðstödd er kiw-
anishreyfingin á íslandi afhendir
formlega til ríkisspítalanna hús
sem reist er fyrir það fé sem safn-
aðist á K-degi 1992. Húsið er á
lóð Kleppsspítala og verður notað
sem verndaður vinnustaður.
Alls söfnuðu kiwanismenn og
-konur og fjölskyldur þeirra 17
milljónum og var fénu einnig varið
til að ljúka endurbótum við sam-
býli geðfatlaðra á Akureyri.
Heimsforsetinn mun einnig sitja
fund með kiwanisfólki fimmtudag-
inn 14. október í kiwanishúsinu í
Reykjavík. Héðan fara þau hjón á
föstudag.
Hr. Arthur Swanberg, alheims
forseti kiwanishreyfingarinnar.
Lífeyrissjóðirnir
mótmæla skatti
STJÓRN Landssambands lífeyrissjóða ákvað á fundi sínum sl. þriðju-
dag að senda öllum alþingismönnum bréf þar sem vakin er athygli
þeirra á viðvarandi ranglæti um skattlagningu lífeyrisgreiðslna,
þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt þingsályktunartillögu um nauð-
syn athugana og úrbóta á fyrrgreindu sviði. Til viðbótar núverandi
ranglæti í þessum málum bætast nú vangaveltur ráðherra um nauð-
syn enn meiri skattlagningar lífeyrissparnaðar, segir í frétt frá sam-
bandinu.
í fréttinni segir einnig: „Stjórn
Landssambands lífeyrissjóða mót-
mælir harðlega hvers konar áform-
um stjórnvalda um aukna skatt-
lagningu lífeyrissparnaðar lands-
manna. Nær væri að bæta úr því
ranglæti sem felst í þrísköttun líf-
eyrisgreiðslna, en í dag greiða
launamenn tekjuskatt af iðgjaldi
sínu til lífeyrissjóðanna og lífeyris-
þegarnir greiða tekjuskatt af mót-
teknum lífeyri frá sjóðnum. Við
þessa óréttlátu skattlagningu bæt-
ist síðan skerðing á tekjutryggingu
almannatrygginga með hækkandi
ellilífeyri frá lífeyrissjóðunum.
Viðbótarskattlagning lífeyris-
sparnaðar myndi auka á það rang-
læti sem ríkir í mismunandi lífeyris-
réttindum ríkisstarfsmanna annars
vegar og almennra launamanna
hins vegar. Því yrði skattlagning á
eignir eða fjármagnstekjur Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins einungis
tilfærsla á peningum milli vasa hjá
ríkissjóði, þar sem hann ber ábyrgð
á lífeyrisgreiðslum frá sjóðnum. En
skattlagning almennu lífeyrissjóð-
anna hefði í för með sér lægri lifeyr-
isgreiðslur til launafólks í landinu.
Þannig er ljóst að lífeyrissparn-
aður landsmanna er nú þegar skatt-
lagður af ógnarþunga og hvers
kyns vangaveltur um viðbótarskatt-
lagningu í formi skattlagningar
fjármagnstekna eða eigna lífeyris-
sjóðanna því veruleikafirrtar.
Stjórn Landssambands lífeyris-
sjóða treystir því alþingismönnum
til þess að standa einhuga saman
um að vísa frá Alþingi hverju því
lagafrumvarpi sem felur í sér aukna
skattlagningu lífeyrisspamaðar.
Með þeim hætti gæta þeir þess að
ekki sé ráðist með skattlagningu
að lífeyrisréttindum þess fólks, seyj,
lakastan rétt hefur.“
Markaðsátak Landsvirkjunar stendur yfir
30 milljón kr. ár-
leg tekjuaukning
LANDSVIRKJUN áætlar að auka árlegar tekjur sínar um 30 miHjón-
ir kr. með markaðsátaki sem hefur staðið yfir undanfarið. Átakið
byggist á samþykki stjórnar Landsvirkjunar um að veita afslátt sem
nemur einni kr. á kílóvattstund af verði svokallaðs forgangsraf-
magns til þeirra notenda sem fullnægðu vissum skilyrðum, m.a.
varðandi lágmarksaukningu i árlegum rafmagnskaupum. Einnig
hefur stjórnin samþykkt helmings afslátt af verði svokallaðs ótryggðs
rafmagns til fiskimjölsverksmiðja og annars atvinnureksturs.
Markmiðið með afslættinum af
verði ótryggðs rafmagns er að gera
vissum notendum fjárhagslega
kleift að taka upp notkun rafmagns
í stað olíu, samkvæmt upplýsingum
frá Landsvirkjun.
Þegar hafa verið gerðir samning-
ar um sölu á að allt að sex gígavatt-
stundum á ári af forgangsrafmagni
með afslætti, einkum til aðila á
sviði ylræktar, fiskvinnslu og mjólk-
urvinnslu, og sömuleiðis um sölu á
ótryggðu rafmagni sem nemur um
60 gígavattstundum á ári. Hitaveita
Akureyrar, Mjólkursamlag KEA,
Fiskimjölsverksmiðja Krossness hf.,
Viking Brugg og Steinullarverk-
smiðjan á Sauðárkróki hafa þegar
gert samning um kaup, og áætiar
Landsvirkjun tekjuaukningu sípa.
um 30 milijónir króna á ársgrund-
velli, miðað við núverandi gjaldskrá.
I2ICMIEGA
•GÓLFHIRÐULÍNAN
: sci.frá
•íxiohnson
ÍSLENSKAR
LEIÐBEININGAR
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONT lakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
oca'&n
Faxafeni 12. Sími 38 000