Morgunblaðið - 13.10.1993, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
Valberg Hannesson
skólastjóri frá Mel-
breið — Minning
Dauðinn er sá dómur sem ekki
er hægt að áfrýja. Með stuttu milli-
bili hafa tveir af sveitungum mínum
orðið að hlýða kalli dauðans. Það
var ekki liðinn nema mánuður frá
því að ég fýlgdi Bjarna Pétursyni
til grafar þegar mér barst fregn
um að Valberg Hannesson væri
látinn. Báðir þurftu þeir að heyja
langt og strangt stríð sem ekki gat
endað nema á einn veg.
Valberg er fæddur og uppalinn
í Fljótum. Foreldrar hans voru
Hannes Hannesson kennari og
skólastjóri í Fljótum og Sigríður
Jónsdóttir frá Melbreið í Stíflu.
Hannes var þekktur fræðimaður og
eftir hann liggur mikill fróðleikur
um Fljótin. Vonandi er mikið af
þeim skrifum geymt í safnahúsinu
á Sauðárkróki, þó að hætt sé við
að sumt sé glatað. Þá skal þess
getið að Hannes var forgöngumað-
ur að stofnun tveggja ungmennafé-
laga í Fljótum árið 1918-1919 og
var félagssvæðið afmarkað af
Stífluhólum. Hannes lést árið 1963
en Sigríður er enn á lífí, orðin há-
•"íöldruð og dvelst á öldrunardeild
sjúkrahússins á Sauðárkróki.
Valberg, eða Valli, eins og allir
sem þekktu hann kölluðu hann, var
elstur átta systkina. Hin eru öll á
lífi og heita Aðalheiður, Pálína,
Guðfmna, Sigurlína, Erla, Snorri
og Haukur. Flest eru þau búsett á
Reykjavíkursvæðinu en Pálína er á
Sauðárkróki og Guðfinna í Hvera-
gerði. Allt er þetta atorkufólk og
er víst að út af Hannes og Sigríði
er kominn stór stofn góðra þegna
í okkar þjóðfélagi.
Viðurkennt er að Stíflan er ein
af fegurstu sveitum landsins.
Skeiðsfossvirkjun raskaði þó miklu
því þá fór stór hluti af fjölbreyttu
gróðurlendi undir vatn.
Margir þeir sem leið eiga um
Fljótin staldra við á Bröttubrekku,
en þar er best útsýni yfir Stífluna.
Fyrsti bær innan við Stífluhóla hét
Húnsstaðir. Þar er enginn bæ leng-
ur en við nánari athugum er hægt
fyrir kunnuga að sjá misfellur í
landinu sem sýna að hér hafi búið
fólk.
Það lengst sem ég man aftur í
tímann er þegar ég átti heima á
Húnsstöðum. Margir Reykvíkingar
sem komnir eru á efri ár hafa slitið
barnsskónum í sveit. Flest höldum
við tryggð við æskustöðvarnar og
oft er sú tryggð sterkari ef sveitin
okkar er langt frá heimilinu „því
fjarlægðin gerir fjöllin blá og menn-
ina mikla“. Þegar við stöndum á
þeim stað, þar sem við lékum okkur
sem börn, þá rifjast upp atvik sem
áður voru gleymd enda í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi fyrir annað
en það að lífshættir nú eru svo ólík-
ir því sem áður var.
Við Valli vorum jafnaldra, fædd-
ir í sama mánuði, hann aðeins tólf
dögum eldri en ég. Þegar hann er
allur, koma upp í hugann margar
minningar, sem ekki verða til-
greindar hér heldur aðeins stiklað
á stóru. Það fyrsta sem ég man er
dagsstund sem við vorum saman á
Húnsstöðum. Það var mikill fengur
fyrir mig að fá gest á mínu reki_ a
leika við 'og minningin er skýr. Ég
sé tvo sex ára stráklinga sulla í læk
á hornsílaveiðum. Veiðina settum
við í dósir sem við höfðum meðferð-
is. Þessi dagsstund var fljótt að líða
en litla hrifningu vakti að við vorum
rennblautir og lá við að þyrfti að
klæða okkur úr hverri spjör. Ekki
man ég hvað varð af fengnum (en
hugsanlega var þetta fyrsta tilraun
til fiskeldis í Fljótum). Þá minnist
ég skólagöngu okkar einkum vors-
ins sem við fermdumst. Það var oft
glaumur í frímínútunum í litla
skólahúsinu sem jafnframt var sam-
komuhús ungmennafélagsins Von-
ar. Námsárangurinn er mér ekki
eins minnisstæður.
Við unnum saman við Skeiðsfoss-
virkjun þá orðnir tvítugir og þaðan
lá leið okkar saman til Reykjavíkur
í vinnu. Mikil straumhvörf höfðu
orðið með tilkomu hersins og nú
var farið að byggja margskonar
húsnæði fyrir stríðsgróðann, því lá
leið margra til Reykjavíkur. Við
vorum í þeim hópi en það var ekki
auðvelt að fá húsnæði. Við vorum
svo heppnir að fá til afnota skúr-
garm, sem stóð á sjávarkambinum
vestur í Selsvör. Þessi skúr var
heimili okkar á meðan við vorum
að ná fótfestu í höfuðborginni. Oft-
ast vorum við fjórir strákar úr Fljót-
um í þessum skúr og gerðist þar
margt sögulegt. Flestir okkar fóru
í iðnnám en Valli fór aftur norður
og þar með rofnuðu samskipti okk-
ar í bili. Ég fór að læra húsamálun
en hann í undirbúningsnám fyrir
kennslu og að því loknu fór hann
að kenna í Fljótunum með föður
sínum og tók síðan við skólastjóm
að honum látnum.
Valli varð fyrir alvarlegu slysi
árið 1954 og varð að búa við afleið-
ingar þess æ síðan en það aftraði
honum ekki við að takast á við
krefjandi verkefni. Hann gegndi
ótal trúnaðarstörfum í Fljótum og
naut trausts og virðingar allra sem
við hann höfðu samskipti. Auk
kennslustarfa annaðist hann sund-
kennslu í Barðslaug á vorin eftir
að skóla lauk. Hann helgaði heima-
byggðinni starfskrafta sína og átti
þar heimili óslitið þar til fyrir ári
að hann lét af starfi vegna aldurs
og þá fluttust þau hjónin á Sauðár-
krók. Þá var hann orðinn veikur
og var undir læknishendi á Land-
spítalanum öðru hveiju síðastliðin
tvö ár.
Helstu persónueinkenni Valla
voru glaðværð og staðfesta. Hann
stóð ekki í deilum við fólk en kom
þó sínum áhugamálum fram. Hann
var húmoristi og hafði gaman af
frásögnum um kynlega kvisti og
safnaði efni um gamanmál bæði í
bundnu og óbundnu máli.
Við áttum sameiginlegt áhuga-
mál, það var að safna heimildum
um starfsemi unbgmennafélaganna
í Fljótum og gera henni skil í skráðu
máli. Um þetta verkefni ræddum
við í þau fáu skipti er við hittumst
á síðastliðnum árum.
Valli kvongaðist árið 1955 Ás-
hildi Magnúsdóttir Öfjörð, ættaðri
úr Gaulveijabæ í Árnessýslu. Ása
býr yfir listrænum hæfileikum og
hefur kirkjan á Barði fengið að
njóta þess að hún Ása kann að
nota pensil. Hún hefur líka unnið
ötullega að félagsmálum í sveitinni
og verið manni sínum stoð og stytta
í starfi og þá ekki síst í langvar-
andi veikindum hans. Valla og Ása
eiga saman sex börn. Eitt þeirra
lést af slysförum en það bar nafn
móðurafa síns, hélt Magnús Öfjörð,
hin heita Rögnvaldur, Aðalbjörg
Jóna, Valdís Sigrún, Hannes og
yngstur er Snæbjörn Freyr. Ása
átti tvö börn áður en hún giftist
Valla, þau heita Þórdís Ragnheiður
og Bergur.
Kveðjuathöfn um Valla fór fram
hinn 25. september í Sauðárkróks-
kirkju, en hann var síðan jarðsettur
í kirkjugarðinum á Barði.
Mikið fjölmenni var við þær at-
hafnir eins og vænta mátti, en
mesta athygli vakti að Sigríður
móðir Valla lét sig ekki vanta í
hópinn þrátt fyrir háan aldur.
Ætlunin var að þessi fátæklegu
kveðjuorð birtust fyrr, en af því gat
ekki orðið.
Ég sendi Ásu og bömum hennar
hlýjar samúðarkveðjur og einnig
systkinum Valla og öðrum nákomn-
um.
Sérstakar samúðarkveðjur send-
um við hjónin Sigríði Jónsdóttur
með ósk um notalegt ævikvöld.
Iljámar Jónsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HENRIK KNUDSEN
gullsmiður,
er látinn.
Bálför fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 14. október
kl. 15.00.
Hans Knudsen, Laufey Ármannsdóttir,
Sif Knudsen, Stefán Ásgrfmsson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
ÁSGEIR H. JÓNSSON,
Hólmgarði 40,
Reykjavfk,
lést á heimili sínu að morgni 12. október.
Stella Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þ. Ásgeirsson, Mette Astrup,
Margrét H. Ásgeirsdóttir, Eyjólfur Pálsson,
Örlygur H. Ásgeirsson, Ásta Long,
Lilja Ásgeirsdóttir.
t
Elskulegur sonur okkar,
ÞÓR SÆVARSSON,
Heíðmörk,
Biskupstungum,
lést af slysförum í Kaupmannahöfn aðfaranótt 10. október sl.
Karitas Óskarsdóttir og Sævar Magnússon.
Hermann Bridge,
Anna G. Ármannsdóttir,
Hafdfs J. Bridge,
Ólafur Ólafsson,
börn og barnabörn.
Tilboð - Tilboð - Tilboð - Tilboð - Tilboð - Tilboð
Baðherbergis-
innréttlng
hvítmáluð 120 cm br.
Frábærtverð kr. 34.200,- staðgreitt
án boröplötu. Til atgreiðslu strax.
Marmaravaskplata 120 cm
kr. 22.520,- staðgreitt.
Vegna breytinga í sýningarsal seljum
við baðinnréttingu og fataskáp með *
40% afslætti. 3
Visa/Euro tmm ■ ■ ■ w u ■# _ ■■ *+ m
r£2Sz Eldhusmiðstoðin
mdnaða Lágmúla 6, sími 684910, fax 684914
+
Móðirokkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
ÞÓRVEIG S. AXFJÖRÐ,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. október
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Brynhildur Jensdóttir,
Jensína Jensdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ODDUR ÁGÚSTSSON
fyrrverandi útvegsbóndi,
Ystabæ, Hrísey,
sfðar kaupmaður á Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 15. október
kl. 13.30.
Rannveig Magnúsdóttir,
Magna J. Oddsdóttir, Óskar Bernharðsson,
Gústaf R. Oddsson, Ute Stellý Oddsson,
Ágúst J. Oddsson, Helen Theresa Oddsson,
Gunnþórunn Oddsdóttir, Páll S. Jónsson,
Olga P. Oddsdóttir, Magnús Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.