Morgunblaðið - 13.10.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
SÝNINGARSTÖRF
Sextán ára stúlka
bar sigur úr býtum
Veronica Blume hefur gert
milljónasamning við Ford-
umboðsskrifstofuna.
Veronica Blume er aðeins sextán
ára og hefur einungis unnið
við sýningarstörf í hálft ár. Þrátt
fyrir það hefur hún gert rúmlega
17 milljóna dollara samning við
fyrirtækið Ford Modeling Agency í
Bandaríkjunum. Var samningurinn
gerður í kjölfar þess að Veronica
bar sigur úr býtum í keppninni
„Aðaltískusýningarstúlka heims“
eða „Supermodel of the World“. Þar
með gefst henni einnig tækifæri á
að búa heima hjá stofnanda fyrir-
tækisins, Eileen Ford, sem sögð er
vera haukur í homi ungra sýningar-
stúlkna sinna.
Veronica segir að það sé jafn
lærdómsríkt að búa hjá Eiieen og
að ganga í skóla. „Hún vill að við
séum vel menntaðar. Við lærum
meðal annars manna- og borðsiði
heima hjá henni auk þess sem okk-
ur er kennt hvemig kvenfólk á að
korria fram.“ Veronica segist hafa
lent í því að sitja til borðs með
Eileen, þar sem tvenn hnífapör voru
við diskinn. „Ég vissi ekki hvom
gaffalinn ég átti að nota og valdi
rangan gaffal. Stokkroðnaði svo
þegar ég sá að Eileen hafði tekið
eftir því. Maður venst þessu þó,“
sagði hún í nýlegu blaðaviðtali.
Mason Gamble
Denni dæmalausi
Mason Gamble er ekki nema sjö
ára en leikur aðalhlutverkið í mynd-
inni „Denna dæmalausa". Hann var
valinn úr hópi hvorki fleiri né færri
en tuttugu þúsund drengja. Hann
er sagður vera allt að því jafn upp-
átækjasamur í einkalífi og í kvik-
myndinni. Nýjasta dæmið var þegar
hann setti platflugu ofan á kartöflu
á matardiski mömmu sinnar. „Hún
trompaðist,“ sagði hann og
skemmti sér vel yfir atburðinum.
Jason James Richter
Frelsum Willy
Jason James Richter er einnig
13 ára. Framraun hans í kvik-
myndaleik var í myndinni „Frelsum
Willy“. Hún fjallar um hvernig
drengur verður þess valdandi að
háhymingur að nafni Willy er frels-
aður frá dýragarði og honum sleppt
á haf út. Jason segist sakna Willy
því samskipti þeirra vora mikil
meðan á upptökum stóð. Hann seg-
ist gjarnan vilja heimsækja hann.
„Ég gæti alveg hugsað mér að hafa
hann í bakgarðinum, en því miður
á ég ekki neina sundlaug,“ sagði
hann.
Skyldu þeir Bill Clinton og Kenny Rogers hafa skipst á eiginhandar-
áritunum?
KÁNTRÍTÓNLIST
Bill Clinton aðdá-
andi Kenny Rogers
að era ekki allir sem vita að
kántrísöngvarinn Kenny Rog-
ers er líka góður ljósmyndari. Hann
hefur meðal annars tekið myndir af
þremur forsetum Bandaríkjanna;
Billy Carter, Gerald Ford og Ronald
Reagan. Nýlega var hann enn á ferð
í Hvíta húsinu, þar sem hlutverk
hans var að taka myndir af, Hillary
^ 1993^1
í KVÖLD
KL. 21.00
CAFÉ
GRAND
Dúndur októberfest
stemmning með
DIE FIDELEN
MÚNCHENER
Öl-leikir og fleira
skemmtilegt að hætti
hússins.
AKUREYRI
Allir betri bjórstaðir.
Clinton. Átti myndatakan að vera
hluti af dagskrá í sjónvarpsþætti
CBS, Dagur í lífi kántrítónlistar-
manns.
Kenny komst að því að Bill Clinton
er mikill aðdáandi hans, en gerði
grín að forsetanum þegar hann
komst að því að Clinton hafði spurt
hvort hann mætti fara inn í herberg-
ið þar sem Kenny var að mynda.
„Þetta var eins og í kvikmyndinni
„Dave“,“ sagði hann, en í þeirri kvik-
mynd deyr forsetinn og tvífari hans
er fenginn til að taka við forsetahlut-
verkinu án þess að vita hvemig hann
hætti að haga sér. Fannst Kenny
Rogers sem Clinton væri ekki alveg
með á nótunum hvað hann mætti
gera og hvað ekki.
HEILSA OG
HEILBRIGÐI
í PERLUNNI 9. -17. OKT.
Opið: Virka daga kl. 17-22, laugard.
og sunnud. kl. 13-19.
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Dagur psoriasis, exems,
astma og ofnæmis.
P E R L A N
KVIKMYNDASTJÖRNUR
Uppátækjasamir
strákar upp til hópa
Kvikmyndir sem höfða til allrar
fjölskyldunnar hafa náð meiri
vinsældum í Bandaríkjunum en þær
sem hafa einhver aldurstakmörk.
Þessi þróun hefur leitt til þess að
sífellt fleiri börn og unglingar lenda
í aðalhlutverkum. Sá sem unnið
hefur sér inn hvað hæstu upphæð-
ina að undanfömu er að öllum lik-
Nick Stahl
Maður án andlits
Hinn þrettán ára Nick Stahl leik-
ur ásamt Mel Gibson í myndinni
„Maður án andlits“. Mel leikur mjög
svo ófrýnilegan mann og Nick við-
urkenndi að í fyrsta skipti sem hann
sá Mel í upptöku eftir að búið var
að afmynda andlit hans varð honum
ónotalega við. „Þetta leit svo raun-
verulega út,“ sagði hann. Helstu
áhugamál Nicks era froskar og
kveðst hann nýlega hafa keypt stór-
an og hávaðamikinn frosk frá Suð-
ur-Ameríku. Það fylgir þó ekki sög-
unni hvað mömmu hans finnst um
froska.
indum Macaulay Caulkin, sem er
einna ■'þekktastur fyrir „Home
Alone“-myndimar.
Samkvæmt heimildum tímarits-
ins People má Macaulay fara að
vara sig, því nokkrir drengir eru
komnir fast á hæla honum. Ljós-
myndari tímaritsins, Lara Rossign-
ol, fór á stúfana nýlega til að taka
Ross Malinger
Svefnlaus í Seattle
Þrátt fyrir að Ross Malinger sé
einungis níu ára hefur hann leikið
í fjölda sjónvarps- og kvikmynda.
Nýjasta kvikmyndin er „Svefnlaus
í Seattle" sem nú er einmitt verið
að sýna í Stjörnubíó. Hann langar
þó ekki að verða leikari þegar hann
verður stór. „Mig langar að verða
flugmaður eða kannski körfubolta-
stjarna. Og ef ég hef tíma til ætla
ég líka að verða læknir," sagði
hann.
myndir af nokkrum þeirra. Kveðst
hún hafa viljað fá myndir af þeim
eins og þeir eru í raun og vera.
„Mig langaði ekki til að mynda þá
sem litla karla eða litla leikara,
heldur ósköp venjulega drengi,"
sagði hún.
Austin O’Brien ásamt Arnold
Scwarzenegger.
Síðasta stríðshetjan
Þegar Austin O’Brien var sagt
að hann ætti að leika á móti Arn-
old Schwarzenegger í myndinni
„Last Action Hero“ var hann alveg
í skýjunum, enda ekki á færi allra
12 ára stráka að feta í fótspor hans.
Austin segir að Amold sé meiri
háttar grínisti. Þegar þeir fóru sam-
an á kvikmyndahátíðina í Cannes
fór Austin á salerni eins og gengur
og gerist. Þegar hann ætlaði að
sturta niður togaði hann í rangan
streng, þannig að vatn úðaðist yfir
hánn frá sturtuhaus. Þegar hann
kom svo út holdvotur hafði Arnold
gaman af og gerði stólpagrín að
honum.