Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
35
Vikuferð fyrir aðeins 39.000 krónur á mann
SÖGUSTUND
Olafur Stefánsson
geldur enn deilna
við Skúla fógeta
Jón Böðvarsson skólameistari
flutti aðalræðu um Ólaf Stef-
ánsson stiftamtmann í sérstakri
dagskrá, Sögustund á síðdegi, sem
haldin var í Viðey sunnudag 3.
október. Tilefnið var að 200 ár eru
á þessu ári liðin frá því að Viðey
varð stiftamtmannssetur, er Ólafur
Stefánsson stiftamtmaður fluttist
þangað og eyjan varð æðsta emb-
ættissetur landsins. Viðstaddir
voru forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir og borgarstjórinn í
Reykjavík, Markús Örn Antonsson,
auk fjölda gesta.
Athöfnin hófst með því að séra
Þórir Stephensen staðarhaldari í
Viðey setti samkomuna, sem fram
fór á lofti Viðeyjarstofu. Þá léku
nokkur lög á píanó og flautu þeir
Marteinn H. Friðriksson dó-
morganisti og Martial Nardeau
Haustferð um
Danmörku og Þýskaland
þóknanlegt söguriturum að gera
Ólafi svo hátt undir höfði, sem
honum bæri. Hann hafi að þessu
leyti goldið deilnanna við Skúla.
Ólafs ekki getið í nýrri bók
Jón Böðvarson flytur fyrirlestur sinn um Ólaf Stefánsson stiftamt-
mann.
Morgunblaðið/Finnur Magnusson
Frú Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands á tali við Markús Orn
Antonsson borgarstjóra og Ólaf Stephensen markaðsráðgjafa og
forstjóra Auglýsingastofunnar OSA.
flautuleikari og voru lögin öll frá
tímum Ólafs Stefánssonar, en hann
fæddist árið 1731 og dó 1812.
Ólafur naut ekki sannmælis
Jón Böðvarsson rakti ítarlega
lífshlaup Ólafs Stefánssonar og gat
þess að einhverra hluta vegna hefði
Ólafur ekki notið sannmælis sagn-
fræðinga, þar sem hann hafi ekki
verið minni höfðingi og baráttu-
maður fyrir velferð íslenzkrar al-
þýðu en þeir Skúli Magnússon
landfógeti og Jón Eiríksson. Hins
vegar hafi Ólafur lent í deilum við
Skúla. Þar sem hann hafi verið
tekin í dýrlinga tölu sem veraldlegt
yfirvald, mun það ekki hafa verið
Ennfremur gat Jón sér til að sú
staðreynd að Magnús Stephensen
sonur Ólafs hafi í flestu tekið upp
merki föður síns, hafi hann í raun
skyggt á föður sinn í þessum efn-
um. Því hafi Ólafur ekki náð inn
á spjöld sögunnar með sama hætti
og hinir höfðingjarniiy Hann kvað
furðulegt, að í nýrri íslandssögu,
sem gefin hafi verið út, væri Ólafs
Stefánssonar hvergi getið.
Að lokinni athöfninni var boðið
til kaffidrykkju, en að henni lok-
inni var helgistund í „leirgerðar-
stíl“ í Viðeyjarkirkju. Séra Jakob
Ágúst Hjálmarsson dómkirkju-
prestur þjónaði þar fyrir altari, en
séra Þórir Stephensen flutti gamla
predikun séra Árna Helgasonar
prófasts í Görðum, sem uppi var á
tímum Ólafs Stefánssonar og þjón-
aði þá m.a. Viðeyjarkirkju.
Til gamans má geta þess að
báðir eru prestarnir séra Jakob og
séra Þórir afkomendur Ólafs, en
margt kirkjugesta og gesta við
þessa sögustund voru niðjar Ólafs.
Niðjar Olafs Stefánssonar skipta
þúsundum, en hann átti þtjá sonu
og tvær dætur. Dómkórinn söng
við messugjörðina.
Bergþór á Borginni
Dinner og jass
í Dyllta sal
Öll fimmtudagskvöld í október býður
Hótel Borg upp á jazzhljómleika með
kvöldverðinum í gyllta sal.
Það er hljómsveit Þóris Baldurssonar ásamt
söngvaranum Bergþóri Pálssyni sem flytur létt
jazzlög í hæsta gæðaflokki.
Boðið er upp á þriggja rétta matseðil
Verð kr. 2.490.
Húsið opnað kl. 19.30, hljómleikar byrja kl. 21.00.
Borðapantanir í símum 11247 og 11440 .
Húsið opið til kl. 1.00.
Flogið verður til Kaupmannahafnar föstudaginn 5. nóvember þar sem gist
verður 2 nætur og farið í skoðunarferð um Norður-Sjáland. Á þriðja degi verður
ekið um Danmörku til Þýskalands þarð sem dvalið verður næstu 5 nætur í
Damp við Eystrasalt og farið í skoðunar- og verslunarferðir til Flensborgar,
Slésvíkur og Hamborgar. Á áttunda degi verður síðan fiogð heim frá Hamborg.
Innifalið í verði er flug til Kaupmannahafnar, gisting í tveggja manna herbergi með baði og
morgunverði í tvær nætur, gisting í tveggja manna íbúðum í Damp, skoðunarferðir um
Norður-Sjáland, ferðalag um Sjáland, Fjón og Jótland á leið til Þýskalands, skoðunarferðir til
Flensborgar, Slésvíkur og Hamborgar, flug heim frá Hamborg og flugvallarskattur.
(slensk fararstjórn og hópferðabíll með hópnum allan tímann.
Ferðaskrífstofa
GUÐM UNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, sími 683222
FLUGLEIÐIR
vv
YV
lli og l]úffeng ti/A
ViMrdðar
14.-17. október
Verð aðeins 2.900 kr.-
Gestgjafar verða matreiðslumeistararnir
Sigurður Hall og Rúnar Guðmundsson.
Halldór Gunnarsson (Þokkabót)
leikur á píanó.
Njótið lífsins yfir úrvalsréttum
úr íslenskri náttúru.
Borðapantanir í síma 17759
Veitingahúsið Naust
— S/tSt) ■}///