Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
41
J
i
I
i
i
i
i
i
i
i
i.
i
i
f
Ranghugmyndir um nudd
Frá Hörpu Harðardóttur:
Að gefnu tilefni og til að fyrir-
byggja allan misskilning langar mig
að koma eftirfarandi á framfæri.
Nýlega var rætt í dægurmála-
útvarpi Rásar 2 um ónefndan
„nuddara" sem hefur verið sakaður
um kynferðislega áreitni í starfí
sínu í Laugardalslauginni. Viðmæl-
andi þáttarins sem er starfsmaður
sundlaugarinnar, hélt því fram að
„nudd væri kynferðisleg áreitni".
Ekki veit ég hvar hann fær þessa
hugmynd, nema að áðurnefndur
„nuddari" hafí tjáð honum það.
Þetta finnst mér lýsa brengluðum
hugsunarhætti og fáfræði, þótt ekki
sé meira sagt. Og nú er búið að
ráða nýjan „nuddara“ í þessa sund-
laug, þrátt fyrir staðhæfingar
starfsmannsins um hvað nudd sé!
Einnig var sundlaugarmaðurinn
spurður að því hvort „nuddarinn"
væri löggiltur sjúkranuddari. Svarið
var heldur loðið, en í lokin tók hann
það fram að þessi „nuddari" væri
með pappíra og próf frá Þýska-
landi. Ég veit persónulega deili á
„nuddaranum“ því hann fékk bæði
upplýsingar og heimilisföng nokk-
urra nuddskóla í Þýskalandi hjá
Sjúkranuddarafélagi íslands, því
við í félaginu aðstoðum alla þá sem
hafa áhuga á viðurkenndu nudd-
námi. Vissulega fór þessi náungi
til Þýskalands í nuddskóla, en ég
veit ekki betur en að hann kláraði
aldrei námið, heldur hætti eftir
stuttan tíma og lauk því aldrei prófi,
en námstíminn er 2 'h ár. Hann
hefur því hvorki löggildingu sem
sjúkranuddari né er hann félagi í
Sjúkranuddarafélagi íslands
(SNFÍ).
í lokin vil ég beina þeim tilmæl-
um til „nuddarans" að hann fari í
eitthvað annað starf ef hann er
haldinn einhveijum ranghugmynd-
Frá Agli Sigurðssyni:
ÓMAR Smári Ármannsson gerir í
Bréfi til blaðsins 5. okt. athuga-
semdir við pistil minn um ómerktar
lögreglubifreiðar.
Vil ég ítreka það, sem reyndar
sagði í pistlinum, að maður úr hans
eigin stétt, lögregluþjónn í áratugi
á götum Reykjavíkur, vakti fyrst
athygli mína á „feluleik“ stéttar-
bræðra sinna, sem honum líkaði
hvergi. Hann taldi of marga I lög-
reglunni líta á starf sitt sem ein-
hvers konar „bófahasar". Það kom
líka að nokkru fram í orðum Ómars
sjálfs: „Þessir einstaklingar (öku-
menn) vilja vita hvenær þeir
áhættulítið telja sig geta brotið
reglurnar." Sem sagt, menn reyna
vísvitandi að bijóta reglur, þegar
færi gefst.
Afbrot verða aldrei upprætt eða
jafnvel minnkuð með vafasömum
um um hvað nudd sé. Þetta ensjúk-
legt og getur því endurtekið sig og
þá verður ekki nein nafnleynd við-
höfð.
HARPA HARÐARDÓTTIR,
löggiltur sjúkranuddari,
Hátúni 6a,
Reykjavík.
eltingarleik lögreglunnar við af-
brotamenn á götunum. Komast
þarf fyrir rætur vandans. Þannig
bendir t.d. landlæknir á það, að
með tilkomu sjónvarps, sem sýnir
eina eða fleiri glæpamyndir á hveiju
kvöldi, hafí tíðni ofbeldisglæpa auk-
ist um 90%. Stemma skal ána við
upptökin. Tilgangslaus eltingarleik-
ur lögreglu á bílaflota kostar auk
þess skattborgarana óhemju fé.
Það er alrangt hjá Ómari, að stór-
ar rekstrareiningar starfi betur en
minni. í viðskiptalífinu er það við-
tekin regla, að smærri einingar, er
hafa samvinnu sín á milli, nái mun
betri árangri.
Að lokum: íslenska lögreglan
ætti ekki að sækja fyrirmyndir til
Bandaríkjanna, þar sem líkams-
árásir og morð eru tíu sinnum al-
gengari en í öðrum vestrænum
löndum, miðað við fólksfjölda.
EGILL SIGURÐSSON,
Mávahlíð 29,
Reykjavík.
Pennavinir
Fjórtán ára úkraínskur piltur sem
safnar frímerkjum og erlendri
mynt:
Sergy A. Avramenko,
Lenin street 149-51,
Zaporozhye 330035,
Ukraine.
Tvítug þýsk stúlka með áhuga á
smásagnaritun og bréfaskriftum:
Heidi Wolter,
St.-Pauli-Deich 26,
2800 Bremen 1,
Germany.
Frá Ghana skrifar 24 ára stúlka
með áhuga á ljósmyndun, sundi,
matargerð, ferðalögum og tónlist:
Dina Bonney,
P.O. Box 957,
Cape Coast,
Ghana.
LEIÐRÉTTIN G AR
Rangt ártal
Ranglega var sagt í frétt um
ráðningarkjör Seðlabankastjóra í
gær, að reglur sem ríkisstjórnin
setti um bílamál ráðherra, væru frá
áramótum 1990-1991. Hið rétta er
að reglurnar tóku gildi um áramót-
in 1991-1992. Er beðist velvirðing-
ar á þessu.
Misritun
Misritun var í nafni danska verk-
takafyrirtækisins Pihl og Sön, á
baksíðu blaðsins síðastliðinn sunnu-
dag. Er hér með beðist velvirðingar
á því.
Sviffluguverð
í myndatexta með greininni Svif-
flugur og skotflaugar, sl. sunnudag,
er villa í útreikningi á verði svif-
flugu. Flugan kostar réttilega 300
dollara, sem gerir um 21 þúsund
íslenskar krónur. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á villunni.
Nafn misritaðist
Á eftir minningargrein um Kjart-
an Friðgeir Þorsteinsson sem birtist
í Morgunblaðinu á sunnudag misrit-
aðist nafn annars höfundarins. Þar
átti að standa Guðfinna og Marín.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á þessum mistökum.
VELVAKANDI
SKRANING
REIÐHJÓLA -
AUKIÐ ÖRYGGI
HJÓLEIGENDA
VELVAKANDA hefur bori^t
fréttabréf frá Öryggisþjón-
ustunni Vara þar sem fjallað
er um skráningu reiðhjóla. Þar
segir m.a. að árlega sé hundr-
uðum reiðhjóla stolið í Reykja-
vík eigendum þeirra til sárra
vonbrigða. Stundum fínnast
þessi reiðhjól aftur, en þótt
fínnandinn sé allur af vilja
gerður að koma hjólinu til skila
getur hann ekkert aðhafst
nema láta óskilamunadeild lög-
reglunnar vita eða bíða eftir
auglýsingu eftir hjólinu. Nú
hefur Öryggisþjónustan Vari
boðið reiðhjólaeigendum að
koma með farskjóta sína í höf-
uðstöðvar Vara að Þórodds-
stöðum við Skógarhlíð og láta
skrá hjólin sín og merkja.
Vert er að vekja athygli á
þessari þjónustu og merking
hjá Vara kostar ekkert en getur
bjargað verðmætum og létt
áhyggjum af mörgum ungum
reiðhjólaeigandanum.
HVER GREIÐIR
AUGLÝSINGARN-
AR?
SKATTGREIÐANDI hringdi
með þá athugasemd að honum
þætti nær að lækka kostnað
við framleiðslu íslenskrar land-
búnaðarvöru með því fé sem
eytt er í auglýsingarnar sem
tröllríða öllum fjölmiðlum núna.
Auglýsingarnar eru óþarfar og
kjánalegar, ekki síst vegna þess
að þarna er um einokunarfyrir-
tæki að ræða og Islendingar
hafa ekki kost á að kaupa neitt
annað.
13. KROSSFERÐIN
GUÐRÚN Helga hringdi og
sagði að hún og vinkonur henn-
ar, 13 og 16 ára, hefðu farið
fyrir nokkru með fjölskyldunni
til að sjá leikritið 13. krossferð-
in og í stuttu máli sagt fannst
þeim leikritið vera fullt af
klámi, langdregið og leiðinlegt.
Þeim fínnst það eigi að vara
fólk við klámi í leikritum ekki
síður en á myndbandsspólum
og í kvikmyndahúsum.
TOMBÓLUDÓT
TOMBÓLUDÓT (fyrir krakka)
fæst fyrir ekki neitt. Upplýs-
ingar í síma 27214.
GÆLUDÝR
Týndur köttur
SVARTUR köttur, Kolbeinn,
með grænt hálsband hvarf frá
heimili sínu, Smárahvammi 4,
Hafnarfírði, fyrir rúmri viku.
Þeir sem kynnu að hafa orðið
hans varir vinsamlega hringi í
síma 51974.
Kettlingur í óskilum
SVARTUR kettlingur, u.þ.b.
tveggja mánaða, fannst á
Flókagötu þriðjudaginn 5.
október. Upplýsingar í síma
623073.
Kettlingar
ÞRÍR kassavanir, ljónfjörugir
kettlingar, tveir svartir og einn
svartur og hvítur, fást gefins.
Upplýsingar í síma 624772.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Hringar töpuðust
TVEIR gullhringar töpuðust á
Suðurnesjum, einbaugur og
steinhringur, þann 12. ágúst
sl. Líklegir staðir eru: við Fjöl-
brautaskólann í Keflavík, í
Sandgerði nálægt Arnarhóli
eða við hjúkrunarheimilið Garð-
vang í Garði. Skilvís finnandi
geri aðvart í Fjölbrautaskólan-
um í Keflavík. Fundarlaun.
Svar til Omars aðstoð-
ary firlögregluþj óns
Excel 4.0
Macintosh og Windows: 25.-29. okt kl. 9-12
Access gagnagrunnurinn
18. - 22. október kl. 16-19
FiIeMaker Pro
18. - 22. október kl. 16-19
Quark Xpress
Macintosh og Windows: 18.-22. okt. kl. 13-16
PageMaker
Macintosh og Windows: 25.-29. okt. kl. 13-16 g
Macintosh f. byrjendur s
25.-29. októberkl. 16-19
System 7.0 og net
18.-20. október kl. 9-12
Windows 3.1
25.-27. októberkl.16-19
Word námskeið
Macintosh og Windows: 19.10-2.11 kl. 19:30-22:30
Tölvu- og verkfræöiþjonustan
Grensásvegi16
Sími 68 80 90
HÓTEL
LEIFUR EIRÍKSSON
Skólavörðustíg 45
Reykjavík
sími 620800
Fax 620804
Hagkvæm gisting
íhjarta borgarinnar
Einst.herb.
kr. 2.800
Tveggja m. herb.
kr. 3.950
Þriggja m. herb.
kr. 4.950 j
Morgunverður innifalinn:
vera dn þeirra? íslenskir bændur
MARGAUX
/ kvöld bjóðum við rauðleita
og höfuga landbúnaðarafurð
frd Margaux héraði d kostnaðar-
verði fyrir matargesti.
Fimmtudagskvöld ertt kvöld
hinna vínrauöu guöaveiga.
Boröapantanir í síma 25700
Samkvœmt íslenskum löguni nuí ekki auglýsa borövtn ifjolmiölum.
Óréttmætir
sammngsskilmálar
Neytendafélag höfuðborgarsvæðisins heldur
fræðslufund um tilskipun Evrópubandalagsins um
óréttmæta samningsskilmálafimmtudaginn 14.
október kl. 20.00 í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni).
Jón Magnússon, formaður NH, og Sigrún Krist-
mannsdóttir, lögfræðingur hjá Samkeppnisstofnun,
skýra reglur um óréttmæta samningsskilmála.
Sigríður Arnardóttir, iögfræðingur Neytendasam-
takanna, fjallar um dæmi um íslenska samningsskil-
mála, sem stangast á við hinar nýju reglur EB.
Fundurinn er öllum opinn.
Neytendafélag höfuðborgarsvæðisins