Morgunblaðið - 13.10.1993, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
U LOTHAR Matthaus jafnar
landsleikjamet Franz Beckenbau-
ers með þýska knattspymulandslið-
inu, þegar hann leikur fyrir Þýska-
land gegn Uruguay í æfingalands-
leik í kvöld. Þetta verður 103. lands-
leikur kappans, sem er 32 ára.
■ MATTHAUS var 19 ára, þegar
hann var fyrst valinn til að leika í
landsliðinu, en það var í Evrópu-
keppninni á Ítalíu 1980.
■ MATTHAUS leikur nú í stöðu
aftasta vamarmanns, sem „libero“,
og telur Beckenbauer að hann eigi
nokkur ár eftir.
■ PETER Shilton, fyrrum mark-
vörður Englands á landsleikjametið
í knattspyrnunni, en hann lék 125
leiki.
■ ALAN Shearer er sannfærður
um að hann nái að skora fyrir Eng-
land gegn Hollandi í HM-leik þjóð-
anna. „Eg hef haft það fyrir vana
að skora í fyrsta leik mínum, hvort
sem um hefur verið að ræða leik
með félagsliði eða landsliði, og það
má líta á þetta sem fyrsta leik, því
ég hef verið svo lengi frá vegna
meiðsla,“ sagði miðheijinn.
I DENNIS Bergkamp ætlar hins
vegar að leggja sitt af mörkum til
að Holland komist í úrslitakeppn-
ina. Hann hefur gert 11 mörk í 24
landsleikjum, en Shearer tvö mörk
í sex leikjum og 13 mörk í 12 leikj-
um með U-21s árs liðinu.
■ BERGKAMP hefur aðeins gert
tvö mörk í HM-keppninni og eitt
fyrir Inter á Ítalíu á leiktíðinni, en
Shearer er með fjögur mörk í fjór-
um leikjum Blackburn. „Hann er
sá sem getur gert okkur lífið leitt,“
sagði Bergkamp um Shearer. „Ef
við leikum eins og að undanförnu
megum við þakka fyrir að ná jafn-
tefli,“ bætti hann við.
■ ERIC Cantona og Jean-Pierre
Papin eiga^að sjá til þess að Frakk-
land sigri Israel og tryggi sér þar
með sæti í lokakeppninni. Cantona
hefur gert fimm mörk í keppninni
og Papin fjögur.
■ ANDY Townsend, fyrirliði ír-
lands, er meiddur og leikur ekki
gegn Spáni, en írar, sem hafa að-
eins tapað einu sinni á heimavelli í
sjö ár, eru sigurvissir.
■ ÍRAR eru með 17 stig í þriðja
riðli og eiga tvo leiki eftir. Danir
öfu með 16 stig og Spánverjar 15
stig-.
■ ITALIA ætlar að leika stíft til
sigurs gegn Skotlandi í 1. riðli.
„Vísasta leiðin til að tapa er að fara
útá völl með því hugarfari að halda
stiginu," sagði _ Arrigo Sacchi,
landsliðsþjálfari Ítalíu.
■ SKOTAR eiga ekki möguleika
á að komast áfram, en baráttan
stendur á milli Sviss, Ítalíu og
Portúgals.
■ SVISS er efst í riðlinum og fer
áfram með sigri gegn Portúgal, en
Sviss hefur ekki leikið í úrslita-
keppninni síðan 1966.
■ CARLOS Queiros, þjálfari
Portúgal, ætlar að leggja áherslu
á vamarleikinn. „Við verðum að
verjast gegn Sviss, því liðið virðist
alltaf getað skorað."
KNATTSPYRNA
Guðni Bergsson aft-
ur í raðir Valsmanna
Guðni Bergsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spymu, hefur ákveðið að leika með
Valsmönnum á ný eftir nokkurra
ára veru hjá Tottenham í Eng-
landi. Hann hefur átt við meiðsl
að stríða og er f endurhæfingu hjá
sjúkraþjálfara, en gerir sér vonir
um að ná sér fljótlega.
„Það er allt frágengið varðandi
félagaskiptin í Val,“ sagði Guðni
við Morgunblaðið í gær. „Ég er
laus allra mála hjá Tottenham og
bíð spenntur eftir næsta keppnis-
tímabili á íslandi. Það er mikill
hugur í okkur Valsmönnum, við
komum sterkir til leiks og ætlum
að gera betur en á síðasta tíma-
bili.“
Bjami Sigurðsson, markvörður,
og Sævar Jónsson hafa lagt skóna
á hilluna, en f staðinn hafa Vals-
menn fengið Guðna og Lárus Sig-
urðsson. Að sögn Theódórs S.
Halldórssonar, formanns knatt-
spymudeildar Vals, verða aðrir
menn áfram. Ágúst Gylfason leikur
í Sviss til áramóta og jafnvel ieng-
ur, en gert er ráð fyrir að hann
komi aftur áður en íslandsmótið
hefst í vor. Anthony Karl Gregory
fer til Bodö í Noregi í dag ásamt
Framaranum Kristjáni Jónssyni,
en þeim var boðið að koma og
skoða aðstæður án allra skuldbind-
inga. Theódór sagðist ekki vita
hvað yrði, en ef Anthony Karl gerði
ekki samning ytra væri gengið út
frá því að hann yrði áfram i Val.
Hollendingar og Englendingar mætast í Rotterdam
Merson og Shearer
í fremstu víglínu
Fimm breytingará landsliði Englandsfrá sigurleikgegn Pólverjum
GRAHAM Taylor, landsliðsein-
valdur Englands, hefur gert
fimm breytingar á landsliði
sínu, sem leikur hinn þýðingar-
mikla leik gegn Hollendingum
í Rotterdam í kvöld — leik sem
kemur til með að ráða úrslitum
hvort það verði Englendingar
eða Hollendingar sem leika í
heimsmeistarakeppninni í
Bandaríkjunum 1994, en Norð-
menn eru gott sem búnir að
tryggja sér rétt til að leika þar.
Nú þegar hafa tíu þjóðir tryggt
sér farseðilinn til Bandaríkj-
anna; Rússland, Grikkland,
Brasilía, Kolumbia, Bolivía,
Kamerún, Nígería og Marokkó,
en Bandaríkjamenn leika þar
sem gestgjafar og Þjóðverjar
verja meistaratitil sinn.
Taylor hefur tekið þá ákvörðun að
tefla fram reyndum leikmönnum
í Rotterdam og hefur hann kallað á
vamarmanninn Paul Parker, Manc-
hester United, og sóknarleikmanninn
Paul Merson, Arsenal, í landslið sitt.
Parker tekur stöðu hins unga Rob
Jones hjá Liverpool og Merson sæti
félaga sína Ian Wright, sem hefur
átt við meiðsli að stríða á hné. Par-
ker hefur ekki leikið með landsliðinu
síðan í september 1991 og Merson
aðeins byijað í tveimur af síðustu
fímmtán landsleikjum Englands.
Þetta eru tvær af fímm breytingum
síðan að England lagði Pólland, 3:0,
á Wembley. Tony Dorigo tekur sæti
fyrirliðans Stuart Pearce, sem stóðst
ekki læknisskoðun í gær, Alan Shear-
er tekur sæti Les Ferdinand, sem er
meiddur og Carlton Palm'er tekur
sæti Paul Gascoigne, sem er í leik-
banni.
„Parker hefur meiri reynslu en
Jones í þýðirngarmiklum leikjum. Þá
hefur Wright sýnt það að hann hefur
gert góða hluti þegar hann hefur
komið inná sem varamaður — hann
Islandsmót 1. deild karla
KR - ÞÓR
í kvöld kl. 20.00 í Laugardagshöll
KR-ingar! Fjölmennum og styrkjum okkar menn til sigurs
Handknattleiksdeild KR
rm
M
(<m\ TRYGGINGA „ ~ ‘
MIÐSTÖÐIN HF. ^L.offeiA
UMBOOS- OG HEILOSVERSLUN
Ármúla 36 I
Reuter
David Platt, fyrirliði Englands og
Alan Shearer, sem leikur á ný með
Englendingum, eftir að hafa verið frá
vegna meiðsla í ellefu mánuði, á æf-
ingu í Rotterdam í gær.
er leikmaður sem getur breytt leik
okkur í hag. Hann kom inná og skor-
aði jöfnunarmark, 1:1, okkar gegn
Pólveijum í Póllandi," sagði Taylor.
Það verður David Platt sem tekur við
fyrirliðastöðunni hjá Englendingum.
Paul Merson fær það hlutverk að
klekkja á vörn Hollendinga með hraða
sínum og leikni — skapa færi fyrir
sig og Alan Shearer.
Staðan er þessi í 2. riðli:
.8 6 2 0 21: 3 14
.8 4 3 1 24: 8 11
.8 4 3 1 19: 6 11
2 8: 7 8
6 7:17 3
8 1:39 1
Leikir sem eftir eru: Holland -
England, Pólland - Noregur, Tyrk-
land - Pólland, Tyrkland - Noregur,
San Marfnó - England, Pólland -
Holland.
Noregur ....8 ....8
....8
PólTand ....7
....8
SanMarinó... ....9
Hollendingar tilkynna ekki byijun-
arlið sitt fyrr en rétt fyrir leikinn,
en lið Englands verður þannig skipað:
David Seaman - Paul Parker, Tony
Dorigo, Tony Adams, Gary Pallister -
Carlton Palmer, David Platt, Paul Ince,
Lee Sharpe - Paul Merson, Alan Shearer.
HANDKNATTLEIKUR
Dómarar fá verkefni
Islenskum handknattleiksdómur-
um var um helgina úthlutað
verkefnum í Evrópumótunum í
handknattleik. Stefán Arnaldsson
og Rögnvald Erlingsson dæma leik
Paris St. Germain gegn Banik Kar-
vina í Borgarkeppni karla, Guðjón
L. Sigurðsson og Hákon Siguijóns-
son dæma leik Sávehof og Valencia
í meistarakeppni kvenna og Gunnar
Kjartansson og Ólafur Haraldsson
dæma leik Bákkerlaget og Lubin
frá Póllandi í Borgarkeppni kvenna.
Kjartan Steinbach verður eftir-
litsmaður á leik Skövde og Petroc-
hermia Plock frá Póllandi í EHF-
keppni karla og Gunnar Gunnars-
son á leik Sjetne frá Noregi og
Valencia Urbana frá Spáni í EHF-
keppni kvenna.
■ FINNAR telja sig ekki eiga
nokkra möguleika gegn Svíum í 6.
riðli. „Ef við leikum vel ættum við
að ná ásættanlegum úrslitum, en ef
ekki vil ég ekki sjá markatöfluna,"
sagði Tommy Lindholm, þjálfari
Finna. Svíþjóð fer áfram með sigri.
■ A USTURRÍKI hefur ekki sigrað
á útivelli í þijú ár, en vonar að biðin
endi gegn Búlgaríu. Hvorugt liðið
á möguleika á að komast uppúr 6.
riðli.
■ BELGAR sækja Rúmena heim
og þurfa aðeins eitt stig til að
komast áfram.
■ REINHARD Fabisch var í gær
látinn taka poka sinn sem þjálfari
Zimbabwe og er nú tæknilegur ráð-
gjafi knattspyrnusambandsins. For-
maður þess sagði að breytingin hefði
verið ákveðin fyrir löngú og hefði
ekkert með 3:1 tapið gegn Kamerún
í forkeppni HM s.j. sunndag að gera.
■ COSTAS Costa fær það verk-
efni í kvöld að taka Ryan Giggs í
landsliði Wales úr umferð, þegar
Wales tekur á móti Kýpur í 4. riðli
HM.
■ COSTA segist ekki verða í vand-
ræðum með Giggs og vonast til að
leika nógu vel til að Celtic eða
Newcastle bjóði sér samning,
■ WALES þarf á sigri að halda
eins og gegn Rúmeníu til að kom-
ast í úrslitakeppnina.
■ ANDREAS Michael, þjálfari
Kýpur, segist ekki vera hræddur
við lið Wales og gerir ráð fyrir jafn-
tefli í Cardiff, en Wales vann fyrri
leikinn 1:0.
■ MARK Hughes er með eitt gult
spjald á bakinu eins og Ian Rush,
Barry Horne, Mark Aizlewood og
Andy Melville. Spjald gegn Kýpur
þýðir bann gegn Rúmeníu.
■ BERTI Vogts lætur skoðanir
almennings á sér sem landsliðsþjálf-
ara Þýskalands ekki setja sig útaf
laginu, en samkvæmt nýlegri skoð-
anakönnun er 51% almennings á því
að Vogts sé ekki rétti maðurinn sem
landsliðsþjálfari.
■ VOGTS sagði að eitt sinn hefði
verið bannað að vera með eigin skoð-
anir í Þýskalandi, „en enginn vill
Þýskaland þannig."
■ RICHARD Möller Nielsen,
landsliðsþjálfari Dana, getur í fyrsta
sinn stillt upp sterkasta liði Dana,
sem taka á móti Norður-írum í 3.
riðli í kvöld. Sigur tryggir Dönum
þátttöku í úrslitakeppninni.
■ BILLY Bingham, sem er 61s
árs, hefur verið landsliðsþjálfari
Norður-íra í samtals 17 ár, en
hættir í desember.
■ ROBERT Prosinecki varð að
greiða Real Madrid 200.000 peseta
(um 106.000 kr.) fyrir að hafa ekki
Iagt sig nógu vel fram við æfingar.
Hann sagðist aldrei hafa æft eins
vel og því væri sektin óréttlát, en
hann ætlaði samt að borga hana.
íkvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Garðabær: Stjaman - UMFA ...20
Höll: KR-Þór...............20
KA-hús: KA - Selfoss.....20.30
Kaplakriki: FH - Víkingur...20
Valsheimili: Valur - Haukar.20
Vestmannaeyjar: ÍBV - ÍR....20
1. deild kvenna:
Höll: Ármann-Valur..........18
Seltjn.: Grótta-ÍBV........20
Körfuknattleikur
Úrvalsdcildin:
Stykkish.: Snæf. - Skallgr.20
Glíma
í dag hefj'ast glímuæfingar fyrir stelpur og
stráka á aldrinum 9-14 ára hjá Ármanni.
Upplýsingar í síma 72896.
Uppskeruhátíð Vals
Uppskeruhátíð knattspymudeildar Vals
verður að Hliðarenda sunnudaginn 17. októ-
ber og hefst kl. 14.