Morgunblaðið - 13.10.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993
43
HANDBOLTI
Guðríður
tókfram
skóna
Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari
Fram, tók fram skóna í gær
eftir rúmlega tveggja ára hlé. Hún
lék með Frarn þegar
liðið vann Hauka
20:15 í 1. deild
kvenna í Laugar-
dalshöllinni. Stjarn-
an burstaði Fylki
32:15 í Garðabænum.
Leikur Fram og Hauka fór frekar
rólega af stað og til marks um það
má geta að eftir 15. mín. leik var
staðan 2:2. Þá tóku Framstúlkur
aðeins við sér og staðan í hálfleik
var 9:6. Framstúlkur komu ákveðn-
ari til leiks í síðari hálfleik, en
Haukastúlkur héngu í þeim þar til
þrettán mín. voru til leiksloka. Þá
skiptu Framarar um gír og gerðu
út um leikinn. Harpa Melsted var
best í liði Hauka. Zelka Tosic átti
mjög góðan leik fyrir Fram og
Kolbrún Jóhannsdóttir varði vel.
Guörún
Kristjánsdótlir
skrífar
URSLIT
Körfuknattleikur
Tindastóll - Haukar 73:95
íþróttahúsið á Sauðárkróki, íslandsmðtið í
körfuknattleik — Úrvalsdeild, þriðjudaginn
12. okt. 1993.
Gangur leiksins: 2:2, 6:16, 9:28, 16:36,
26:44, 34:53, 36:55, 38:65, 47:75, 58:81,
67:86, 73:95.
Stig Tindastóls: Robert Buntic 32, Lárus
Pálsson 19, Ingvar Ormarsson 13, Hinrik
Gunnarsson 6, Páll Kolbeinsson 3.
Stig Hauka: Jón Amar Ingvarsson 24, Jón
Öm Guðmundsson 22, John Rohdes 20,
Bragi Magnússon 8, Tryggvi Jónsson 6,
Sigfús Gizurarson 6, Rúnar Guðjónsson 4,
Pétur Ingvarsson 2, Steinar Hafberg 2,
Guðmundur Björnsson 1.
Dómarar: Ámi Freyr Sigurlaugsson og
Bergur Steingrímsson. Dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: 600.
1. DEILD KARLA
Breiðablik - ÍS................64:69
Handknattleikur
Fram-Haukar 20:15
Laugardalshöll, 1. deil^ kvenna í handknatt-
leik, þriðjudagur 12. október 1993.
Gangur leiksins: 1:1, 2:2, 4:2, 5:3, 7:4,
9:6.11:9, 13:11, 16:11, 18:12 20:15.
Mörk Fram: Zelka Tosic 8/3, Hafdís Guð-
jónsdóttir 3, Kristín Ragnarsdóttir 3, Ósk
Vfðisdóttir 2, Díana Guðjónsdóttir 2, Arna
Steinsen 1, Margrét Blöndal 1.
Varin skot: Kolbrún Jóhannsdóttir 12/1
(þar af eitt til mótheija). Hugrún Þorsteins-
dóttir 1.
Utan vallar: 4 mín.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 6/2, Hrafn-
hildur Pálsdóttir 3, Kristín Konráðsdóttir
3/2, Hulda Rún Svavarsdóttir 1, Rúna Lísa
Þráinsdóttir 1, Heiðrún Karlsdóttir 1.
Varin skot: Álma Hallgrímsdóttir 7.
Utan vallar: 10 mín.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og Sigurgeir
Sveinsson.
Stjarnan - Fylkir 32:15
Ásgarður:
Mörk Stjömunnar: Margrét Vilhjálmsdótt-
ir 5, Una Steinsdóttir 5, Ragnheiður Steph-
ensen 5, Inga Fríða Tryggvadóttir 3, Ásta
Sölvadóttir 3, Herdís Sigurbergsdóttir 2,
Þuriður Hjartardóttir 2, Drífa Gunnarsdótt-
ir 2, Ólavía Bragdóttir 2, Þuríður Á. Þorkels-
dóttir 2, Guðný Gunnsteinsdóttir 1.
Mörk Fylkis: Anna G. Halldórsdóttir 5,
Rut Baldursdóttir 4, Ágústa Sigurðardóttir
2, Súsanna Gunnarsdóttir 2, Steinunn Þor-
kelsdóttir 1, Eva Baldursdóttir 1.
BSóley Halldórsdóttir, markvörður Stjöm-
unnar sem er aðeins 18 ára, var valin besti
leikmaður Stjörnunnar af sérstakri dóm-
nefnd Stjörnunnar og Anna G. Halldórsdótt-
ir var best þjá Fylki. Báðar fengu þær bók-
argjöf frá Stjömunni.
Knattspyrna
Undankeppni HM 5. riðill
Lúxemborgr
Lúxemborg - Grikkland............1:3
Stefano Fanelli (82.) - Nikolaos Maglas
(31.), Efstrapios Apostoliakis (63.), Dimitri-
os Saravakos (72.).
Staðan
Rússland.............7 5 2 0 15:3 12
Grikkland............7 5 2 0 9:2 12
fsland...............8 3 2 3 7:6 8
Ungveijal............7 115 5:11 3
Lúxemborg............7 0 1 6 2:16 1
Evrópukeppni U-21s árs
Lúxemborg - Grikkland............0:4
■Rússland og Grikkland er eru efst með
13 stig, en þjóðirnar eiga eftir að mætast.
KORFUKNATTLEIKUR
Var mjög hræddur
— sagði Charles Barkley, sem hné niðurá æfingu.
Ekkert alvarlegt kom í Ijós við læknisskoðun
CHARLES Barkley, körfuknattleikmaður-
inn snjalli hjá Phoenix Suns, hné niðurá
æfingu með liði sínu á laugardaginn og
var fluttur á sjúkrahús til rannsóknar. Við
rannsókn kom í Ijós að ekkert alvarlegt
var að Barkley, bólgur fundust í baki hans
og mynduðu þær þrýsting á taugar með
þeim afleiðingum að fæturnir gáfu sig á
æfingunni.
Eg verð að viðurkenna að ég varð mjög
hræddur þegar þetta gerðist því ég vissi
ekki hvað væri að,“ sagði Barkley en bætti
síðan við að sem betur fer væri
þetta ekkert alvarlegt. „Ég þarf
bara að fara mér aðeins hægar
á æfingum næstu dagana.“
Barkley mætti á æfingu hjá
Phoenix Suns í gær en tók því létt, var á þrek-
hjóli, skokkaði og tók nokkur æfingaskot á
körfuna á meðan aðrir leikmenn liðsins æfðu
á fullu. Hann sagði að líklega þyrfti hann að
gangast undir skurðaðgerð á baki í framtíð-
inni. „En ef ég get leikið án þess að finna
mikið til í vetur er enginn þörf á uppskurði
núna,“ sagði Barkley sem er þrítugur. „Það
er farið að nálgast endalokin hjá mér í körfu-
boltanum og ég held að ég gæti ekki náð mér
upp eftir skurð.“ Hann vonast til að geta leik-
ið með Phoenix gegn Golden State Warriors í
forkeppni NBA á föstudaginn.
Gunnar
Valgeirsson
skrífar frá
Bandaríkjunum
Leikur Charles Barkley með Phoenix Suns á föstudaginn?
O’Neal fær ekki að leika
með „Draumaliðinu"
Bandaríkjamenn hafa valið
landslið sitt f
landslið sitt í körfuknattleik
sem tekur þátt í Heimsmeistara-
mótinu sem fram fer í Toronto í
Kanada í ágúst á næsta ári. Þar
munu sextán fið reyna með sér og
búast flestir við að lið Bandaríkj-
anna leiki til úrslita.
Dominique Wilkins frá Atlanta
og Larry Johnson frá Charlotte eru
efstir á listanum en aðrir í liðinu
eru Alonzo Mouming frá Charlotte,
Joe Dumars frá Detroit, Tim
Hardaway frá Golden State, Mark
Price frá Cleveland, Steve Smith
frá Miami, Derrick Coleman frá
Nets, Shawn Kemp frá Seattle og
Dan Maijerle frá Phoenix. Sjö af
þessum tfu leikmönnum léku í sfð-
asta Stjömuleik.
Þjálfari liðsins verður þjálfari
Golden State Warriors, Don Nelson.
„Ég er stolltur að fá að stjóma
svona mörgum hæfileikaríkum
körfuknattleiksmönnum," sagði
hann. „Þetta er svo sannarlega
„Draumalið 11“ og þettaJið er miklu
yngra en á sinn hátt jafn gott,“
sagði hann.
Það vekur óneitanlega furðu að
Shaquille O’Neal frá Orlando er
ekki í hópnum en það á sínar eðli-
íegu skýringu. O’Neal er samnings-
bundinn gosdryklqaframleiðandan-
um Pepsi en ailir sem leika í lands-
liði Bandaríkjanna verða að undir-
rita samning við stuðningsaðila liðs-
ins og einn þeirra er Coke. Pepsi
hefur því bannað O’Neal að leika
með landsliðinu.
faém
FOLX'
■ ARNHEIÐUR Hreggviðsdótt-
ir, handknattleiksstúlka úr Val,
meiddist í Evrópuleik á dögunum —
og er talið að krossbönd í hné hafí
slitnað.
■ TVÆR ungar handknattleiks-
stúlkur úr KR héldu fyrir skömmu
til Svíþjóðar þar sem þær hyggjast
leika í vetur með Bromella. Þetta
eru þær Erna Eiríksdóttir og
Steinunn Kjartansdóttir. >■
■ STEFÁN Arnarson þjálfari
KR sagði að þær hefðu verið alveg
við bytjunarlið hjá KR en þær hefðu
það betra með því að leika í Sví-
þjóð og því hefðu þær slegið tii.
B MARKO __ Tanasic, Serbinn
sem lék með IBK sl. sumar, er nú
í Portúgal til að freista þess að
komast á samning hjá þar lendu
liði. Ef það tekst ekki er líklegt að
hann leiki áfram með ÍBK næsta
sumar.
■ FORRÁÐAMENN ÍBK hafa
rætt við Ian Ross, fyrrum þjálfara
Vals og KR, um að taka við liðinu
fyrir næsta tímabil. Jóhannes Ell-
ertsson, formaður knattspyrnu-
deildar IBK, sagði að Ross hefðí
sýnt mikinn áhuga, en ekkert væri
enn ákveðið. „Þetta kemur til með
að skýrast um næstu helgi," sagði
Jóhannes.
■ RAGNAR Margeirsson mun
að öllum líkindum ganga til liðs við
ÍBK fyrir næsta tímabil. Ragnar
var meiddur í allt sumar og náði
ekki að einum leik í deildinni með
KR. Hann er þó samningsbundinn
KR til áramóta.
■ LOU Macari, framkvæmda-
stjóri Stoke, hefur fengið leyfi fé-
lagsins til að ræða við Celtíc um
að gerast stjóri hjá félaginu. Það
bendir því flest til þess að Macari
fari til Celtíe, en 20 ár eru síðan
hann var hjá félaginu sem leikmað-
ur. Liam Brady var rekinn frá fé-
laginu í síðustu viku og aðstoðar-
maður hans Joe Jordan tók einnig
pokann sinn sama dag.
■ PAUL Gascoigne mun líklega
spila með Lazio gegn Piacenza í
ítölsku deildinni á sunnudaginn.
Hann hefur aðeins leikið þrjá leiki
á þessu tímabili, en hann hefur átt
við meiðsli að stríða í hné.
Góð byrjun Hauka sló Hndastól út af laginu
Góð byijun Hauka sló Tindastól
út af laginu í leik liðanna í
úrvalsdeildinni á Sauðárkróki í
gærkvöldi. Haukar
sigruðu örugglega
með 22ja stiga mun,
73:95. Það var
greinilegt strax á
upphafsmínútunum að Haukar
höfðu náð úr sér byijunarhrollinum
Bjöm
Björnsson
skrífar frá
Sauöárkróki
því þeir hreinlega gerðu út um leik-
inn á fyrstu mínútunum. Tinda-
stólsmenn virkuðu óöruggir og
taugaspenntir í sínum fyrsta leik.
Þegar liðnar voru um sjö mínútur
voru gestirnir komnir með 19 stiga
forskot og munaði þar mestu um
stórleik Jóns Arnars Ingvarssonar
sem raðaði niður þremur þriggja
JUDO
i
öðru sætiá
sterku móti í
Kanada
Halldór Hafsteinsson, júdó-
maður úr Ármanni, varð
í öðru sæti í -86 kg flokki á
opnu móti í Kanada um helgina
þar sem 14 þjóðir sendu kepp-
endur. Halldór sat yfir í fyrstu
umferð, en síðan vann hann
þijár glímur í röð. Þá fyrstu
gegn Ný-Sjálendingi á Yoko og
síðan hinar tvær á Ippon og þar
með var hann kominn í úrslit.
En hann varð að gafa úrslitaglí-
muna vegna þess að hann fékk
skurð á höfuðið í undanúrslitum.
Halldór Hafsteinsson.
Halldór, sem varð í 17. sæti
í sínum flokki á nýloknu heims-
meistaramóti, dvaldi i æfinga-
búðum í viku fyrir mótið um
helgina. Hann ætlaði sér að vera
lengur í Kanada og taka þátt í
opna bandaríska meistaramót-
inu, en meiðslin settu strik í
reikninginn og því kom hann
heim til íslands.
stiga körfum með stuttu millibili.
John Rohods var einnig sterkur
undir körfunni og tók fjölda frák-
asta. í seinni hálfleik náðu heima-
menn að minnka muninn í 9 stig,
en lengra komust þeir ekki og
Haukar juku forskotið aftur í lokin.
Jón Árnar, Rohdes og Jón Öm
Guðmundsson voru allt í öllu hjá
Haukum, en hjá Tindastóli stóð
GOLF
Robert Buntic upp úr og skoraði
grimmt, sérstaklega í fyrri hálfleik.
Láms Pálsson, nýliðinn frá Val, lék
vel og Ingvar Ormarsson komst
ágætlega frá leiknum. Páll Kol-
beinsson fann sig ekki og munar
um minna. Hann gerði aðeins eina
þriggja stiga körfu.
ÚKar krækti sér
í verðlaunafé
Lék á einu undir pari á móti í Flórída
Ufar Jónsson, kylfmgur úr Keili,
krækti sér um helgina í verð-
launafé á atvinnumannamóti í
Bandaríkjunum þegar hann varð
annar á Tiger Point vellinum í
Florida. Þetta er annað atvinnu-
mannamót Úlfars og í fyrsta sinn
sem hann krækir sér í verðlaunafé.
Völlurinn er 6.400 metra langur og
par 72 og „hörkuvöllur” eins og
Úlfar orðaði það.
Úlfar lék fyrri hringinn á 74
höggum, tveimur yfir pari en síðari
hringinn lék hann á þremur undir
pari, 69 höggum, og varð í örðu
sæti. Fyrir það hlaut hann 56 þús-
und krónur sem hann telur ágætis
tímakaup. Úlfar sagðist hafa slegið
sæmilega og púttað mjög vel og sem
dæmi nefndi hann að síðustu átta
holurnar einpúttaði hann.
Arnar Már Ólafsson golfkennari
er nú í Bandaríkjunum til að að-
stoða Úlfar. „Hann er mér til halds
og trausts og er í fullu starfí við
að tjösla sveiflunni saman hjá mér,“
sagði Úlfar, sem er nú að leika í
öðru mót í Florida.