Morgunblaðið - 13.10.1993, Side 44
NÝÚTGÁFAI
ALWÓÐLEGT
'/I3A
SÉVIAKORT
FYRIR ALLA
KORTHAFA .
MORGUNBLAÐID. KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
10,7 milljónir í Lottó
Morgunblaðið/Jón Karl Snorrason
Sölumiðstöð íslenskra fiskframleiðenda hf. tók í gær víð eignum og rekstri SÍF
118 milljóna króna tap
varð á SIF á síðasta ári
SÍF hf., hlutafélag með 484 millj-
ón króna hlutafé, tók í gær form-
lega við eignum og rekstri Sölu-
sambands íslenskra fiskfram-
leiðenda eftir að 60 ára starfi
sölusambandsins hafði verið slit-
ið á sérstökum skilafundi í gær-
morgun. Á skilafundinum var
lagt fram fjárhagslegt uppgjör
sölusambandsins í ársreikningi
síðasta árs og uppgjöri fyrstu
tveggja mánaða þessa árs en
hlutafélagið tók í raun við
rekstri SIF frá 1. mars sl. í árs-
reikningi kemur fram að á árinu
1992 nam tap á rekstri SÍF 118
milljónum króna og 5,5 milljón-
um króna fyrstu tvo mánuði
þessa árs. Hröð umskipti urðu í
rekstri sölusambandsins síðustu
þijú árin sem það starfaði; árið
1990 varð hagnaðurinn 483 miHj-
ónir króna og 150 milljónir árið
1991.
í ársreikningi ársins 1993 kemur
fram að bókfært verð fasteigna SÍF
hafi verið fært niður úr 218 millj.
í 137 millj. í samræmi við fyrir-
mæli hlutafjárlaga um að slíkt beri
að gera þegar markaðsverð fasta-
fjármuna falli af ástæðum sem ekki
verði taldar skammvinnar.
í ávarpi sem Dagbjartur Einars-
son, fráfarandi formaður SÍF, flutti
á skilafundinum kom fram að
undanfarin þijú ár hefðu forráða-
menn SÍF unnið að því að aðlaga
samtökin breyttum tímum og í lok
sl. árs samþykkt að beita sér fyrir
stofnun nýs hlutafélags.
Um 700 hluthafar
Um 700 hluthafar standa að SÍF
hf. Meðal stærstu hluthafa eru
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
„Þetta er ákvörðun sem ég tek til
að reyna að binda enda á þetta upp-
þot og að mínu áliti, óheppilega
umræðu um málefni bankans. Ég sé
að þessi kaup eru óheppileg fyrir
bankann og fyrir framhald málsins,"
sagði Jón í samtali við Morgunblaðið.
Sá aldrei bílinn
Hann kvaðst aldrei hafa séð þann
bíl sem svo mjög hefði verið til um-
með 15,8 milljóna króna hlutafé, eða
3,26%, Þorbjörn hf. í Grindavík á
10,3 milljónir eða 2,13%, Síldar-
vinnslan Neskaupstað á 14,6 millj-
ónir eða 3,03%, KEA á alls um 17
milljónir eða um 3,5%, ísfélag Vest-
mannaeyja 10,8 milljónir eða 2,24%,
Árnes með 13,4 milljónir eða 2,76%
og stærsti hluthafinn er KASK með
22,8 milljónir eða 4,71%.
Eiginir nýja hlutafélagsins eru 2,2
ræðu. Aðspurður hvort hann hefði
samt sem áður ekki verið maðurinn
sem valdi bílinn, svaraði seðlabanka-
stjóri: „Ég gerði það í samráði við
mína starfsmenn, en það er að sjálf-
sögðu ekki neitt aðalatriði í málinu."
Seðlabankastjóri var spurður
hvort hann hefði ekki mátt sjá það
fyrir, að þjóðinni ofbyði að keyptur
yrði tæplega fimm milljóna króna
jeppi handa honum, þegar efnahags-
milljarðar króna en skuldir 1.680
milljónir króna.
I stjórn hlutafélagsins sem kosin
var á hluthafafundi í gær eiga sæti
Karl Njálsson, Garði, Sighvatur
Bjarnason, Vestmannaeyjum, Guð-
jón Indriðason, Tálknafirði, Jón Þór
Gunnarsson, Akureyri, Geir Sigur-
jónsson, Hafnarfirði, Pétur Pálsson,
Grindavík, og Einar Sigurðsson,
Þorlákshöfn.
þrengingar væru hvarvetna í þjóðfé-
laginu: „Ég ætla ekki að veija þessa
ákvörðun, enda hef ég tekið hana til
baka. í því felst að sjálfsögðu viður-
kenning mín á því að beygja mig
fyrir þeirri gagnrýni, sem þarna hef-
ur komið fram, en mér er það alls
ekki óljúft," sagði Jón Sigurðsson.
Í fréttatilkynningu frá Seðlabank-
anum í gær sagði, að þótt enginn
vafí leiki á að þessi bílakaup bankans
hafí að öllu leyti verið í samræmi
við gildandi reglur bankaráðsins
varðandi kaup á bílum fyrir banka-
stjórnina, hafí Jón Sigurðsson ákveð-
NÝR sendir fyrir sjónvarpsstöð-
ina Omega hefur verið settur upp
á Vatnsenda. Að sögn Eiríks Sig-
urbjörnssonar sjónvarpsstjóra
nást útsendingar stöðvarinnar
nú á Reykjanesi og Akranesi auk
höfuðborgarsvæðisins.
Útsendingar Ómega eru enn það
sem kallast tilraunaútsendingar en
að sögn Eiríks munu „alvöru" út-
sendingar líklega hefjast í desember.
Þá verður erlent efni textað en stöð-
in hefur fest kaup á textatölvu og
fær send handrit að erlendum þátt-
um.
Innlend dagskrárgerð eykst
Ómega sendir út allan sólarhring-
inn alla daga og samanstendur dag-
skráin aðallega af erlendu trúarlegu
efni, Gospel-tónleikum, samkomum
og fræðsluefni. Á sunnudögum er
sendur út íslenskur biblíulestur í
beinni útsendingu og síðan samkoma
hjá Orði lífsins sem tekin er upp
sama morgun. Að sögn Eiríks stend-
ur til að auka innlenda dagskrárgerð
á næstunni og stefnt að því að gera
Ómega að fjölskyldurás með bíó-
myndum, fræðslumyndum og dag-
skrá fýrir böm.
Rekstur Ómega er fjármagnaður
með framlögum úr ýmsum áttum.
Engin afnotagjöld eru innheimt. Ei-
ríkur segir auglýsingar á stöðinni
vera að aukast.
ið að afturkalla þessi kaup. „Þessi
ákvörðun er tekin til þess að koma
í veg fyrir frekari skaðlegar umræð-
ur um málefni Seðlabankans og til
þess að auðvelda endurskoðun á
þessum reglum, ef bankaráðið ákveð-
ur að taka þær til endurskoðunar."
Ágúst Einarsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, sagði að
Jón væri maður að meiru eftir að
hafa tekið þessa ákvörðun. Þetta er
ákvörðun sem hann tekur einn og
er hvorki beittur þrýsting/ af minni
hálfu né annarra," sagði Ágúst.
Sjá bls. 16: „Seðlabankinn...
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri afturkallar bílakaup Seðlabanka
Er ekki óljúft að beygja mig
JÓN Sigurðsson seðlabankastjóri hefur ákveðið að afturkalla kaup
Seðlabankans á bifreið fyrir tæpar fimm milljónir króna, til eigin
afnota, sem mikið hefur verið fjallað um að undanförnu.
Flugmóðurskip á Húnaflóa?
Flugmenn sem flugu yfír Húnaflóann í gærdag til að mynda borgarísjakann
sem þar hefur lónað undanfama daga ráku upp stór augu þegar þeir nálguð-
ust jakann. Engu var líkara en risastórt flugmóðurskip væri þarna á sigl-
ingu. Borgarísjakinn er um 250 metrar á lengd og um 80 metrar þar sem
hann er hæstur í „brúnni". Þótti flugmönnunum ákaflega tilkomumikið að
sjá borgarísjakann í fallegu haustveðrinu, blankalogni og sólskini.
Vimiiiigs-
hafinn
fundinn
KONA í Iteykjavík reyndist vera
vinningshafi að lottóvinningi að
upphæð rúmlega 10,7 milljónir
króna sem dregið var um síðast-
liðinn laugardag. Hún gaf sig
fram við Islenska getspá í gær.
í samtali við Morgunblaðið sagði
konan að hún hefði heyrt það á
vinnustað sínum í gærdag að vinn-
ingurinn væri ósóttur og vinnings-
miðinn hefði verið keyptur í sölu-
turninum Sogaveri við Sogaveg.
Fletti hún þá upp á vinningstölun-
um í Morgunblaðinu og kom í ljós
að hún hafði dottið í lukkupottinn.
----» ♦ ♦---
Nýr sendir
Omega á
Vatnsenda