Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 23
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993 Jlfofgmiiilafeife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Vaxtamál og tví- skinnungur verka- lýðshreyfingar Ríkisstjórn, verkalýðs- hreyfíng og vinnuveit- endur hafa haft það að meg- inmarkmiði undanfarin ár, að ná fram lækkun vaxta. Engin ein efnahagsaðgerð er talin létta jafnmiklum byrðum af atvinnulífinu, Vaxtalækkun er álitin gera fyrirtækjunum kleift að ráðast í arðbærar fjárfestingar á ný og auka þar með atvinnu í landinu. Sama gildir um skuldum vafin heimilin. Vaxtalækkun léttir miklum byrðum af þeim og ekki veitir af í þeirri miklu kjararýrnun, sem launþegar hafa mátt þola undanfarin samdráttarár. Hingað til hefur gengið illa að ná fram vaxtalækkun þrátt fyrir þjóðarsáttarsamninga og samkomulag aðila vinnu- markaðarins við bankana. Ástæðan er fyrst og fremst gífurleg lánsfjáreftirspurn hins opinbera. Hallarekstur ríkissjóðs hefur farið vaxandi ár frá ári, sem eykur að sjálf- sögðu lánsfjárþörfina. Annað- hvort þarf að fullnægja henni á innlendum lánamarkaði eða hjá erlendum lánardrottnum. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar nú til að knýja fram raun- vaxtalækkun hafa borið ótrú- lega mikinn árangur miðað við stöðuna á lánamarkaði undanfarin misseri. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, hefur lýst því sem markmiði ríkisstjórnarinnar að ná niður raunvöxtum um 2 prósentu- stig til að byija með. Allt bendir til að þetta sé að tak- ast á örfáum dögum, mun skemmri tíma en menn þorðu að vona. Þessum árangri hljóta verkalýðshreyfíngin og vinnuveitendur að fagna. Jóhanna Sigurðardóttir, fé- lagsmálaráðherra, íjallaði um áhrif raunvaxtalækkunar í grein hér í blaðinu sl. mið- vikudag. Þar kemur fram, að miðað við 2% raunvaxtalækk- un muni greiðslubyrði heimil- anna lækka um 4 milljarða króna á ári, greiðslubyrði at- vinnulífsins um 3 milljarða og vaxtakostnaður ríkissjóðs um 1,2 milljarða. Greiðslubyrðin minnkar því hvorki meira né minna en um 8,2 milljarða króna á ári og er þá ótalinn hagur sveitarfélaga og ýmissa annarra af vaxtalækk- uninni. Þáttaskil eru því að verða í efnahagslífínu vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Þróunin á næstunni mun hins vegar hafa úrslitaáhrif á það, hvort raunvaxtalækkun- in verður til frambúðar. Blik- ur eru á lofti, því verkalýðs- hreyfíngin hefur uppi auknar fjárkröfur á hendur ríkis- stjórninni. Slíkt leiðir þó óumflýjanlega til aukins halla ríkissjóðs, sem er gífurlegur fyrir. Afleiðingin eru auknar lántökur og þar með þrýsting- ur á vaxtahækkun. Þessi tvískinnungur í af- stöðu verkalýðshreyfingar- innar er svo sem ekki nýr, en hann undirstrikar erfiðleik- ana á því að ná raunvöxtum niður og koma á jafnvægi í ríkisbúskapnum. Sé raun- vaxtalækkun meginkrafa verkalýðshreyfingarinnar vegna hagsmuna atvinnulífs og launþega þá hlýtur hún að sjá og skilja, að ekki tjóar að vera með kröfugerð, sem gengur í þveröfuga átt. Það er ekki unnt að gera hvort- tveggja, éta kökuna og geyma hana. Morgunblaðið lýsti þeirri skoðun þegar kjarasamning- arnir voru gerðir, að þeir væru of dýru verði keyptir. Nú hefur ríkisstjórnin gripið til víðtækra aðgerða, sem augljóslega eru að ijúfa þá sjálfheldu, sem verið hefur í vaxtamálum misserum saman og legið eins og þungt farg á atvinnulífinu og raunar þjóð- inni allri. Takist að festa þessa vaxtalækkun í sessi, hvað þá ef tekst á næstu mánuðum að lækka raun- vaxtastigið enn meira eins og forsætisráðherra hefur boðað að stéfna skuli að, mun það fyrr en varir leiða til nýrrar uppsveiflu í efnahags- og at- vinnumálum okkar. Það væri glapræði og algerlega óafsak- anlegt af verkalýðshreyfíng- unni að stofna þessum árangri í hættu með því að krefjast enn meiri útgjalda úr ríkissjóði. Með slíkri kröfu- gerð er verkalýðshreyfingin að þjóna einhveijum öðrum hagsmunum en hagsmunum umbjóðenda sinna. Morgunblaðið/Sverrir Fjölmenni FJÖLMENNI var á fundinum og lögðu fundarmenn mesta áherslu á að framkvæmdum við Fylkishús yrði flýtt. Höfðu a.m.k. tveir þeirra orð á að þeir hefðu getað sætt sig við helmingi ódýrari sundlaug, þ.e. 250 milljóna í stað 500, ef slíkt hefði greitt fyrir framkvæmdum við íþróttahúsið. Fundarstjóri var dr. Einar Stefánsson og ritari fundarins Guðrún Theódórsdóttir. Borgarstjóri ræðir við íbúa Artúns, Arbæjar og Selás Vilja flýta framkvæmd- um við íþróttahús Fylkis SNARPAR umræður urðu um uppbyggingu íþróttamannavirkja á fundi Markúsar Árnar Antonssonar, borgarstjóra, með íbúum Ártúns-, Árbæj- ar og Seláshverfa á miðvikudagskvöld. Skorað var á borgarsljóra að sjá til þess að íþróttahús Fylkis yrði fullbúið árið 1995 svo nemendur í Árbæjarskóla mættu fá fulla leikfimikennslu. Þótti brýn þörf á endur- bótum við Árbæjarskóla, almenningssamgöngum til og frá hverfinu, gatna- og umhverfismálum svo sitthvað sé nefnt. Nokkrir fundar- manna urðu til að benda á að Árbæjarhverfi hefði lengi setið á hakan- um í borginni. Fjölmenni, eða hátt í 300 manns, var á fundinum. Einn fundarmanna sagðist hafa gert könnun á því hversu marga leik- fimitíma á viku börn í grunnskólum borgarinnar fengju og komist á því að þeir væru 2 í öllum skólum nema Álftamýraskóla og Árbæjarskóla. í fyrri skólanum væru tímarnir 3 en 1 í þeim síðari. Þótti mönnum niður- staðan sláandi og var þeirri spurn- ingu beint til borgarstjóra hvort eðli- legt væri að boðið væri upp á skerta leikfimiskennslu vegna húsnæðis- skorts í 30 ára gömlu hverfí. Markús Öm svaraði því til að hann hefði með samningi um 185 milljón króna ijárveitingu borgarinnar til íþróttahúss Fylkis staðið í þeirri trú að málið væri komið í hendur stjóm- ar Fylkis og ekki þyrfti að sinna því meir af hálfu borgarinnar. Þegar honum, hins vegar varð ljóst hversu mikil áhersla væri lögð á að fram- kvæmdum yrði flýtt, sagðist hann ætlað að koma þeim sjónarmiðum til borgarstjómar. Hann vísaði því al- gjörlega á bug að uppbyggingu íþróttamannvirkja hefði ekki verið sinnt í hverfunum og minnti í því sambandi á að tvö íþróttahús hefðu verið byggð og framkvæmdir við sundlaug stæðú yfir. Þess má geta að með sérstökum samningi hefur verið ákveðið að veita milljarði til uppbyggingar íþrótta- mannvirkja í borginni á næstu 6 árum. Skólamál og bókasafn Næst var komið að skólamálum og lá mönnum þungt á hjarta að brýn þörf væri á endurbótum við Árbæjarskóla, bæði skólanum sjálf- um og skólalóðinni. Markús Örn kvaðst ætla að ræða við skólamála- ráð vegna þessa. Þá kom fram fyrirspurn þess efnis hvort hægt væri að koma því í kring að ráðið yrði í stöðu yfirkennara í barnadeild Árbæjarskóla enda hefði megináhersla undanfarið verið á unglingadeildina. Við þessari fyrir- spurn fékkst það svar að ríkið hefði enn sem komið er forsjá með starfs- fólki skólanna. Mönnum þótti tími til kominn að reist yrði bókasafn svo íbúar þyrftu ekki að fara upp í Breiðholt, niður í Aðalstræti, eða stunda bókabíla, til að fá lánaðar bækur og kom fram í því sambandi að rætt hefði verið um að reisa menningarmiðstöð við Bæjarbraut. Almenningssamgöngur Almenningssamgöngur voru mikið til umræðu á fundinum og spurði einn fundarmanna hvort borgar- stjóra þætti eðlilegt að það tæki skólafólk jafn langan tíma að fara í Fjölbrautarskólann í Breiðholti með strætisvagni og að aka upp í Hval- fjörð. Öðrum fannst of stijálar ferðir úr miðbæ Reykjavíkur i hverfm og þeim þriðja þótti ástæða til að bjóða upp á strætisvagnaferðir úr miðbæn- um á nóttunni, a.m.k. um helgar. Markús Öm svaraði þessum fyrir- spurnum á þann veg að verið væri að endurskipuleggja leiðakerfi SVR og væri markmiðið með þeirri endur- skipulagningu að bæta samgöngur út frá Mjóddinni. Þannig yrðu tölu- verðar breytingar á leiðakerfinu inn- an tíðar. Gatna- og umhverfismál Einn fundarmanna lagði sérstaka áherslu á gatna- og umhverfismál og sagði m.a. að íbúamir hefðu ver- ið duglegir að rækta upp sín svæði. Öðm máli gegndi um svæði borgar- innar, þau væm ömurleg. „Það hvarflar að mér að fleiri tré hafi farið úr hverfinu, jafnvel í Grafar- voginn, heldur en hefur verið plantað í staðinn,“ sagði þessi fundarmaður. Hvað gatnamálin varðaði sagði hann svo m.a. að á meðan íbúarnir hefðu horft upp á uppbyggingu í Breiðholti og Grafarvogi hefðu þeir verið að beijast við að komast út úr eigin hverfí. Aðeins væm fimm ár síðan götuviti hefði greitt þeim Ieið út en svo hefði biðskylda aftur haml- að útgöngu. Fleiri tóku þátt i umræðunni um gatnagerð og var m.a. talað um hættur við Fylkisveg og endurbætur við Þykkvabæ. Markús Öm sagði að endurbætur á götu og gangstétt við Þykkvavæ væm næst á listi í for- gangsröð gatnamálayfirvalda. Elliðaárdalurinn Hvað Elliðaárdalinn varðaði kom annars vegar fram fyrirspurn um lýsingu göngustíga um dalinn og hins vegar um sjónræna mengun vegna rafmagnsstrengs hinu meginn í dalnum. Markús Öm sagðist halda að meta yrði hvers konar Iýsing ætti við hvern göngustíg fyrir sig. Þannig væri t.d. á einhveijum stöðum eðli- legt að taka tillit til nálægrar byggð- ar. Hann sagðist reikna með að raf- magnsstrengurinn yrði í framtíðinni grafinn niður. Vannýtt svæði Ýmsar fyrirspumir komu fram vegna vannýttra svæða og var mönn- um tíðrætt um svæðið miili Hraun- bæjar og Bæjarháls. Markús sagði að ýmsar hugmyndir hefðu komið fram um nýtingu svæðisins í gegnum tíðina, m.a. um léttan iðnað, en hann vissi ekki til annars en að nú væri gert ráð fyrir opnu svæði þama, annars staðar en við Bæjarbrautina. Hann kvaðst í þessu sambandi vænta þess að nýtt hverfaskipulag fyrir Árbæjarhverfi yrði birt innan tíðar. í kaffinu MARKÚS ÖRN, borgarstjóri, ræðir við Ingibjörgu Tönsberg í fundar- hléi. Hann hafði á fundinum orð á því að honum fyndist sérstakt að koma í Árbæinn þar sem hann og eiginkona hans hefðu hafið búskap sinn í tveggja herbergja íbúð. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5: NÓVEMBER 1993 Sam Nujoma forseti Namibíu í tveggja daga opinberri heimsókn á íslandi Samstarf einkafyrirtækja mun án efa ganga ágætlega — segir sjávarútvegsráðherra Namibíu um fyrirhugaðar fjárfestingar Islendinga SAM Nujoma, forseti Namibíu, kom í tveggja daga opinbera heimsókn til Islands í gær. Einka- þota Nujoma lenti á Reykjavíkur- flugvelli klukkan .11 í gærmorgun í dumbungsveðri. Forsetinn, sem er 64 ára gamall, hefur verið á ferð um Norðurlönd, m.a. í Finn- landi en hann lærði að lesa í finnskri trúboðsstöð í heimalandi sínu barn að aldri. Sjávarútvegs- ráðherra Namibíu vísar á bug ásökunum færeyska þingmanns- ins Óla Breckmanns, sem sakar namibíska samstarfsmenn sína í sjávarútvegsfyrirtæki um svik með aðstoð sijórnvalda. Nujoma forseti snæddi hádegis- verð með forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, á Bessastöðum og átti síðan viðræður við Davíð Odds- son forsætisráðherra í Reykjavík um samskipti ríkjanna. Þess má geta að árið 1989, áður en blökkumenn fengu kosningarétt í Namibíu og gerðu Nujoma að forseta landsins, átti Ólafur Egilsson, þáverandi sendiherra í London, leynilegar við- ræður við Nujoma um framtíðarsam- skipti þjóðanna, þ. á m. í sjávar- útvegsmálum. Davíð og eiginkona hans, Ástríður Thorarensen, buðu síðan til kvöldverðar í Súlnasal Hót- el Sögu til heiðurs namibíska forset- anum. Meðal fylgdarmanna Nujoma er Helmut Angula, sjávarútvegsráð- herra Namibíu. Hann var spurður um ásakanir Óla Breckmanns, kaup- sýslumanns og annars þingmanns Færeyja á danska þinginu, þess efn- is að innlendir samstarfsmenn hans í Namibíu hafi með aðstoð þarlendra embættismanna svikið kvóta út úr sameiginlegu sjávarútvegsfyrirtæki sem nú mun vera gjaldþrota. „Mér er kunnugt um þessar ásak- anir en ég veit ekki hvort þama er um að ræða slæma reynslu af við- skiptum við namibíska kaupsýslu- A Bessastöðum SAM Nujoma, forseti Namibíu, og frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands menn eða lélega stjórn á fyrirtæk- inu. Það er alltaf upplagt að kenna stjórnvöldum um þegar menn lenda í vandræðum með samstarfsmenn sína. En þetta kemur ekkert stjórn- völdum við“. Angula var spurður hvort íslendingar, sem hyggja á verulegar fjárfestingar í Namibíu, þyrftu að vera á varðbergi. „Alls ekki, því fer fjarri að nokkur hætta sé á ferðum. Þið verðið að fara að lögum, hlíta reglum eins og allir aðrir löghlýðnir borgarar, eins og gert er í öllum réttarríkjum. Ef þið teljið á ykkur hallað getið þið leitað til dómstólanna, þeir eru sjálfstæðir gagnvart framkvæmdavaldinu. Ég fullvissa ykkur um að dómstólamir okkar eru sjálfstæðari en hliðstæðar stofnanir í mörgum traustum lýð- ræðisríkjum". Angula sagðist telja að íslending- ar og Namibíumenn gætu átt mikið og farsælt samstarf. „Við eigum auðlindir og kaupsýslumenn sem vilja óðfúsir deila tækifæmnum í samstarfsfyrirtækjum með öðrum þjóðum. Þróunarsamvinna okkar við Islendinga hefur gengið prýðilega hingað til og þess vegna teljum við ástæðulaust að draga í efa að sam- starf einkafyrirtækja þjóðanna muni einnig ganga ágætlega. Namibíska fyrirtækið, sem ætlunin er að starfi með íslendingum, er gamalt og traust, ræður sjálft yfir umtalsverð- Morgunblaðið/Þorkell , ræðast við á Bessastöðum í gærdag. um kvótum, skipum og fiskvinnslu“ sagði Angula. I dag mun Nujoma forseti skoða Nesjavelli og Þingvelli þar sem for- sætisráðherra og eiginkona hans bjóða til hádegisverðar í ráðherrabú- staðnum. Þá verður ekið til Reykja- víkur og síðdegis mun forsetinn kynna sér útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækið Granda undir leiðsögn forstjórans, Brynjólfs Bjamasonar. Þar næst munu utanríkisráðherrar ríkjanna ræðast við, einnig sjávarút- vegsráðherramir og ráðherrar við- skiptamála. Klukkan 17 verður fréttamannafundur á hótel Sögu og í kvöld mun borgarstjórn bjóða gest- unum til veislu í Höfða. Samstarfi þremenninganna í Breiðholtslögreglunni lýkur í dag Eiga að vera komnir í önn- V ur störf í maí STARFSMANNASTJÓRI lögreglustjóraembættisins hefur ákveðið með tilkynningu frá í fyrradag hvernig staðið verði að færslu lögreglumannanna þriggja sem nú starfa í Breiðholtsstöð lögreglunnar til annarra verkefna. Sam- starfi þremenninganna lýkur í dag þegar sá fyrsti flyst til annarra starfa en allir eiga að vera farnir úr Breiðholts- stöðinni í maí. Frá og með næsta mánudegi mun Pétur Sveinsson rannsóknar- lögreglumaður fara til starfa í al- mennri rannsóknadeild á aðalstöð- inni eins og hann hafði óskað eftir. Gunnar Sigurðsson varðstjóri leysir hann af hólmi og starfar þar fyrst um sinn ásamt Einari Ásbjömssyni og Arnþóri H. Bjarnasyni. Einar verður sVo fluttur til starfa á d-vakt almennrar deildar lögregl- unnar á aðalstöðinni við Hverfis- götú frá 14. febrúar og Arnþór á einnig að ganga vaktir í almennri deild lögreglunnar á aðalstöðinni frá og með 11. maí næstkomandi. Með lægst launuðu lögreglumönnunum Lögreglumennirnir höfðu óskað eftir flutningi, einkum vegna óánægju með það að njóta engra álagsgreiðslna og engra auka- greiðslna umfram naumt skammt- aðan aukavinnukvóta sem gerir að verkum að þeir eru einhverjir lægst launuðu lögreglumenn landsins. Morgunblaðið/Júllus Fluttir til FARSÆLU samstarfi þremenninganna í Breiðholtsstöð lögreglunnar lýkur í dag þegar Pétur Sveinsson, í miðju, flyst til starfa í rannsókna- deild. Einar Ásbjörnsson, lengst til hægri fer á almennar vaktir á aðalstöðinni í febrúar og Arnþór H. Bjarnason til vinstri, fylgir honum þangað í maí, samkvæmt ákvörðun starfsmannastjóra lögreglunnar. Á myndinni eru þeir umkringdir brotí af þeim bruggtækjum sem þeir hafa lagt hald á undanfarin misseri. _____________________23 ~ I fangelsi fyrir mis- notkun á | bróður HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær tæplega 24 ára gaml- an mann í 12 mánaða fangelsi fyr- ir að hafa alloft, fyrst 1989 og síð- an nokkrum sinnum fyrri hluta ársins 1992, haft kynferðismök við greindarskertan hálfbróður siifti, sem var þriggja ára gamali þegar maðurinn braut gegn honum í fyrsta skipti. Málið komst upp vorið 1992 þegar drengurinn kvartaði við móður sína að hann ætti erfítt með hægðir vegna þess að bróðir hans hefði meitt hann. Hann lék fyrir sálfræðinga hvað bróð- ir sinn hefði gert við sig og var það mat sálfræðinga að jafn ungur dreng- ur, sem auk þess sé svo greindarskert- ur að 96% jafnaldra eru greindari en hann, hafi ekki hugmyndaflug og þroska til skálda upp atburði á borð við þær kynferðisathafnir sem hann lýsti. í dómi játaði maðurinn það sem honum var gefið að sök og kvaðst í allmörg skipti hafa haft mök við hálf- bróður sinn þegar móðir þeirra var ekki heima. í nokkur skipti vakti maðurinn bróður sinn til að misnota hann. ----» ♦ ♦---- 12 mánaða fangelsi ^ fyrir brot gegn bami HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær mann í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart 5-6 ára gamalli telpu. Brot mannsins áttu sér stað árið 1989 og fram á árið 1990. Maðurinn var í Hæstarétti sakfelldur fyrir að hafa átt kynferðismök önnur en sam- ræði við barnið, sem var fímm ára þegar brot mannsins hófust en sex ára þegar þeim lauk. Hæstiréttur tei- ur ekki að maðurinn hafi með brotum sínum rofið skilorð fangelsisdóms sem hann hlaut vegna annarra brota í júní 1990 þar sem líta verði svo á að hann hafi hætt brotum gegn telp- unni áður en sá dómur var kveðinn upp en Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu að brot mannsins gagnvart telpunni hefðu verið framin fram á árið 1991. ----♦ ♦ ♦---- Fulltráar ríkisinsá fund launa- nefndar LAUNANEFND aðila vinnumark- aðarins komst ekki að niðurstöðu í gærkvöldi um forsendur giidandi kjarasamninga enda var mest fjall- að um málsmeðferð, að sögn Bene- dikts Davíðssonar, forseta ASÍ. Ákveðið var að fulltrúar rikis- stjórnarinnar kæmu á fund nefiid-" arinnar klukkan níu í dag. Búist er við að ríkisfulltrúarnir leggi þar fram nýja útfærslu á þeim forsendum kjarasamninga sem ríkis- stjórnin fjallaði um í yfírlýsingu sinni við gerð síðustu kjarasamninga. Klukkan 14 verður síðan fundur í miðstjórn og samninganefnd ASÍ þar sem ákveða á hvort kjarasamningum verði sagt upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.