Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993 21 Gamalt deilumál vestra endurvakið Gögn sanna að Alg- er Hiss var njósnari Washington. The Daily Telegraph. SAGNFRÆÐINGUR kveðst hafa fundið gögn sem sanni að Alger Hiss, fyrrverandi embættismaður í bandaríska utanríkisráðuneyt- inu, hafi njósnað fyrir kommúnistaríki. Deilur hafa risið öðru hvoru um málið frá McCarthy-réttarhöldunum á sjötta áratugnum. Á floti í höfninni Reuter Sagnfræðingurinn, Maria Schmidt, sem er ungversk, kveðst hafa fundið gögnin í skjalasafni ungverska innanríkisráðuneytisins í Búdapest. Á meðal þeirra er skýrsla frá árinu 1954 um yfir- heyrslur ungversku leyniþjón- ustunnar yfír Bandaríkjamannin- um Noel Field, sem flúði yfir járn- tjaldið. Samkvæmt skýrslunni sagði Field leyniþjónustunni að Hiss hefði reynt að fá hann til að njósna fyrir kommúnistaríki árið 1935 þegar þeir störfuðu báðir hjá bandaríska utanríkisráðuneytinu í ÖLLUM 296 farþegum Boeing 747-vélar fá Tævan var bjargað á fáeinum mínútum úr vélinni eftir að hún rann út af flugbraut í Hong Kong og endaði í höfninni. _ Farþegar sluppu ómeidd- ir er vélin rann í höfnina Boeing 747 farþegaþota rann út af flugbraut á flugvellinum í Hong Kong Hong Kong. Reuter. The Daily Telegraph. KRAFTAVERKI þykir ganga næst að allir 296 farþegar Boeing 747-þotu tævanska ríkisflugfé- lagsins skyldu sleppa ómeiddir er þotan rann á hálli flugbrautinni í Hong Kong og endaði í höfn- inni. Hvassviðri og rigning var þegar slysið varð. Vélin var að koma frá Tævan og tókst flug- stjóranum ekki að stöðva vélina, sem þeyttist eftir brautinni og út í höfnina. 23 farþegar voru fluttir á sjúkrahús með minni háttar meiðsli. Mikil skelfing greip um sig meðal farþega er þeim var ljóst að ekki var allt með felidu í Iendingunni. Vélin hristist mikið áður en hún lenti og þeyttist svo af enda flugbrautar- inri'ar og út í höfnina, þar sem hún hélst á floti. Fimm farþegar skrám- uðust lítillega og 18 voru í losti eft- ir lendinguna en öllum farþegunum var bjargað út á fáeinum mínútum. Hálli flugbrautinni kennt um Þegar flugstjóranum tókst ekki að stöðva flugvélina á flugbrautinni, reyndi hann að snúa henni er hún geystist eftir brautinni. Segir for- stjóri flugfélagsins að flugstjórinn hafi brugðist hárrétt við og kennir hálli flugbrautinni um hvernig fór. Aðstoðarforstjóri flugmálastjórnar- innar í Hong Kong sagði allt of snemrnt að segja til um orsakir óhappsins, rannsókn á flugrita vélar- innar myndi væntanlega svara þeirri spumingu. Þotan er lítillega löskuð að framanverðu eftir óhappið. Erfið aðkoma að flugvellinum Aðkoma að Kai Pak-flugvellinum í Hong Kong þykir erfíð en hann ligg- ur þétt á milli byggðar og hafnar. Hafa yfírvöld í Hong Kong legið undir auknum þrýstingi um að flug- öryggi verði aukið á vellinum. Ætl- unin er að nýr flugvöllur komi í stað Kai Pak-vallar árið 1997 er Hong Kong fer undir stjóm Kínverja. Þeir hafa hins vegar neitað að leggja til fjármagn til vallarins og em því uppi efasemdir um að þessar áætlanir muni standast. Washington. Þá var Field þegar byijaður að njósna fyrir sovésku leyniþjónustuna. Tímaritið New Republic birtir útdrátt úr skýrslunni ásamt hand- skrifuðum bréfum sem Hiss og Field skrifuðu hvoram öðrum. Skýrslan og bréfin þykja varpa skýru ljósi á njósnastarfsemina í Washington á fjórða og fimmta áratugnum og þenda til þess að margir bandarískir stjórnarerind- rekar hafi verið á mála hjá Sovét- mönnum. Rússneskur hersagnfræðingur, Dmítríj A. Volkogonov hershöfð- ingi, sagðist í fyrra hafa leitað í skjalasöfnum sovésku leyniþjón- ustunnar KGB og ekki fundið nokkur gögn sem bentu til þess að Alger Hiss hefði njósnað fyrir Sovétríkin. Hiss er nú 89 ára gamall og hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu. Hann var dæmdur í fimm ára fangelsi árið 1950 fyrir meinsæri eftir að hafa logið þvi fyrir rétti að hann hefði ekki tengst banda- rískum kommúnistahreyfingum á nokkurn hátt. Hins vegar tókst ekki að sanna á hann njósnir fyrir Sovétmenn. Hiss hafði meðal annars verið ráðgjafí Theodore Roosevelts Bandaríkjaforseta í viðræðunum við Jósef Stalín á ráðstefnunni í Jalta árið 1945. FLUGOHAPPIÐ I HONG KONG Allir 296 farþegar Boeing 747 vélar frá Tævanska flugfélaginu komust lifs af niður neyðarennur vélarlnnar eftlr að hún fór út af enda flug- brautarlnnar og endaði I höfninni. LENDING Á KAITAK ALÞJÓÐAFLUG- VELLINUM Margslungið og metnaðarfullt verk eftir Odd Bjömsson Sunnudaginn 7. nóvember kl. 20:00 Fimmtudaginn 11. nóvember kl. 20:00 Aðalhlutverk: Pálmi Gestsson Baltasar Kormákur Eggert Þorleifsson ^ÍlÍ^ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Miðasala í síma 11200.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.