Morgunblaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. NÓVEMBER 1993
Umdæmanefnd höf-
uðborgarsvæðisins
Samkomulag
samþykkt um
framkvæmd
sameiningar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
samkomulag um framkvæmd
sameiningar sveitarfélaga ef íbú-
ar samþykkja sameiningu í kosn-
ingunum 20. nóvember næstkom-
andi. Samkomulagið á við um
borgarstjórn Reykjavíkur, bæj-
arstjórn Seltjarnarneskaupstað-
ar, bæjarstjórn Mosfellsbæjar,
hreppsnefnd Kjalarneshrepps og
hreppsnefnd Kjósahrepps.
í samþykktinni kemur fram að
kosið verður eftir óbreyttu fyrir-
komulagi í sveitarstjórnarkosning-
unum árið 1994 og að unnið verði
að undirbúningi sameiningar á
næsta kjörtímabili. Ennfremur að
sveitarfélögin verði sameinuð eigi
síðar en við sveitarstjórnarkosning-
ar árið 1998. Verður eigi síðar en
þá kosið í fyrsta sinn til nýju sveit-
arstjórnarinnar.
Á undirbúningstímanum eiga
sveitarfélögin að taka uþp nána
samvinnu á sem flestum sviðum,
auk þess sem unnið verður að sam-
ræmingu skipulags, verklegra
framkvæmda, þjónustu og gjalda .
Yfírumsjón með samræmingunni
verður í höndum samstarfsnefndar
sveitarfélaganna, sem skal skipuð
framkvæmdastjórum þeirra.
Mótuð verður áætlun um sam-
ræmingu verklegra framkvæmda,
þannig að framkvæmdir einstakra
sveitarfélaga á aðlögunartímanum
séu í eðlilegu samræmi við heildar-
hagsmuni hins nýja sveitarfélags.
Gert er ráð fyrir að unnið veðri að
samræmingu þjónustuþátta, en
þess þó gætt að hún versni ekki á
stöku svæði við sameiningu.
Þá segir að tekjustofnar og gjald-
skrár verði samræmdar á aðlögun-
artímanum og að sveitarfélögin
vinni í sameiningu að aðalskipulagi
nýja sveitarfélagsins sem tekur
gildi frá árinu 1998 til ársins 2020.
Skipulagsráð, skipað fulltrúum frá
hveiju sveitarfélagi, móti skipuiag-
ið. Það skal hljóta samþykkt í öllum
sveitarfélögunum áður en til sam-
einingar kemur. Gert er ráð fyrir
að skipulagsráð starfi fram að sam-
einingu.
Veðurblíða í október
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Minnsta úrkoma á Akureyri
í 54 ár og í Reykjavík í 33 ár
ÚRKOMA á Akureyri í októbermánuði var 4 millimetrar sem er
um 7% þess sem tíðkast í meðal októbermánuði og hefur ekki
verið jafn lítil úrkoma í októbermánuði á Akureyri síðan 1939.
Úrkoman í Reykjavík í októbermánuði var 37 millimetrar sem
er innan við helmingur af meðalúrkomu í október í Reykjavík
og hefur ekki verið minni síðan 1960. Meðalhiti í Reykjavík í liðn-
um mánuði var 4,8 gráður sem er 0,4 gráðum yfir meðallagi en
meðalhiti á Akureyri var 3,8 gráður sem er 0,8 gráðum yfir
meðallagi.
Sólskinsstundirnar voru 66 á
Akureyri sem er 14 stundum eða
um það bil fimmtungi yfir meðal-
lagi, samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu íslands. Sólskins-
stundir í Reykjavík voru alls 88
sem er 5 stundum yfir meðallagi.
Á Akurnesi við Höfn í Horna-
firði var meðalhitinn 3,8 gráður
og úrkoma 52 millimetrar, en í
Keflavík var meðalhiti 5 gráður
sem er 0,4 gráðum yfir meðaltali
og nam úrkoman 83 millimetrum,
sem er 75% af meðalúrkomu þar.
Á Hveravöllum var meðalhiti mín-
us 0,9 gráður sem er 0,3 gráðum
yfir meðaltali þar, og úrkoman
var 90 millimetrar og sólskins-
stundir 75.
„Mánuðurinn var mjög veður-
blíður fyrir utan hastarlegt kulda-
kast um miðjan mánuðinn sem
stóð í nokkra daga en seinustu
10-12 dagarnir var veðráttan
afar mild og góð, nánast vorveð-
ur,“ segir Haraldur Eiríksson veð-
urfræðingur á veðurfarsdeild
Veðurstofu íslands og segir einnig
útlit fyrir gott veður næstu daga,
þó ólíklegt sé að úrkomuleysið
verði jafn mikið í nóvember og i
liðnum mánuði.
Inntak umijöllunar minnar var
öðru fremur að ég saknaði frum-
mynda frá hendi meistarans, svo
og verka í gipsi, marmara — auk
teikninga og málmætinga, og taldi
hann ekki nægilega vel kynntan.
Hið sama hefur því miður verið
uppi á teningnum varðandi sýning-
ar á verkum ýmissa heimsþekktra
snillinga myndlistarinnar á undan-
förnum árum sem hér hafa verið
settar upp með ærnum tilkostnaði
og auglýstar með brauki og
bramli. Og stundum hafa sumir
nafnkenndir myndlistarmenn
gengið svo langt, að kalla þetta
„uppsóp“, sem þó hefur ekki alla-
jafna verið sanngjarnt að mínu
mati og á stundum beinlínis rangt.
Til stuðnings skrifum mínum
hafði ég ágætar bækur um Rodin,
auk uppsláttarritara sem eru ein-
hver þau áreiðanlegustu í heimi
hér.
Þá hef ég á meðan ég er að
hripa þessar iínur verið upplýstur
símleiðis að til er lærð ritgerð er
styður mál mitt sem mér er vel-
komið að nota ef vill. En ég kýs
að svo komnu að vísa málinu frá
mér, því að framanskráð ætti í
hnotskurn að skilgreina meinta
fáfræði mína og þar með tilgang-
inn með skrifunum og legg málið
óhikað í dóm hins óvilhalla fræði-
og myndlistarmanns sem al-
mennra lesenda.
Höfundur er myndlistarmaður.
Vegna Gunnars Kvarans
eftir Braga
Ásgeirsson
í annað sinn á émbættisferli
sínum geysist Gunnar Kvaran list-
ráðunautur Kjarvalsstaða fram á
sjónarsviðið og fer mikinn varð-
andi skrif mín.
í fyrra skiptið var það í sam-
bandi við sýningu á íslenzkri ab-
straktlist á Kjarvalsstöðum fyrir
nokkrum árum árum, en fram-
kvæmd hennar var um sumt í
meira lagi undarleg og höfðu há-
menntaðir menn á núlistir erlendir
jafnvel orð á því að fyrra bragði
og hristu höfuðið. í það skiptið
datt Gunnari ekki í hug að fara
með rétt mái heldur skyldi gera
skrif mín tortryggileg, en ég hafði
traust rök ög jafnvel vitni fyrir
því að hann fór með rangt mál.
Gunnar virðist lítið hafa lært
er hann í blaðinu í gær sakar mig
um fáfræði hvað hefðbundna
höggmyndalist snertir og er það
alvarleg ásökun og skal borin til
baka.
Sjálfur hef ég mótað í leir og
steypt í gips á námsferli mínum
svo ég veit hvað það er og þar
að auki héf ég verið innan veggja
nafnkenndra listaháskóla í sex ár
erlendis og að sjálfsögðu voru þar
margvísleg höggmyndaverkstæði
og á stundum í næsta nágrenni
við mig. Þá hef ég heimsótt verk-
stæði látinna sem lifandi mynd-
höggvara austan hafs og vestan
og sótt ótal myndlistarsöfn og sér-
staklega lagt áherslu á að kynna
mér málaralist, höggmyndalist og
grafík. Ekki þröngt svið heldur frá
upphafi vega fram á daginn í dag
og er sérstaklega hrifinn af sí-
gildri og og fornri höggmyndalist.
Ég tel mig þannig vel kunnan
ferli höggmyndar frá því listamað-
urinn hnoðar leirinn þar til hún
er hoggin í marmara af honum
sjálfum eða aðstoðarmönnum
hans. Jafnframt hef ég með eigin
augum horft á höggmyndir steypt-
ar í brons.
Hér þarf maður sem vermt hef-
ur stóla fyrirlestrasala almennra
háskóla og lesið svo og svo marg-
ar bækur um myndlíst og tekið
próf í afmörkuðum þætti þeirra,
ekki að upplýsa mig um eitt né
neitt, né setja sjálfan sig á háan
stall um þekkingu á handverki sem
hann sjálfur hefur aldrei komið
nálægt.
Þá sagði ég aldrei að myndir
Rodins væru nýantík og eftirgerð-
ir í eins konar súkkulaðihjúp, held-
ur að þau „minntu“ mig á slík
fyrirbæri. Hér var þannig engu
slegið föstu sem allir geta séð
nema kannski listráðunauturinn.
Og hvort skyldi Gunnar Kvaran
heldur vilja eiga á heimili sínu
frumgerð frá hendi snillingsins
Auguste Rodins eða nýgerða af-
steypu nr. 1001? Hvað telur hann
verðmætara og fyndist honum t.d.
safn Ásmundar Sveinssonar, sem
hann er í forsvari fyrir, jafn merki-
legt ef þar væru eingöngu afsteyp-
ur en engar frummyndir? Og jafn-
framt að kúlan sem Ásmundur
lagði hönd að væri einungis eirlíki
upprunalegu byggingarinnar?
Vill listsögfræðingurinn
kannski leggja starfsheiður sinn í
veði fyrir það að eftirgerð sé jafn
verðmæt og frumgerð?
Einhver mesti viðburður síðustu
áratuga úr listheiminum var er
Pietá Michaelangelos var flutt úr
Vatikaninu vestur um haf í lög-
reglufylgd og lánuð á sýningu
þar. Hið ómetanlega listaverk var
með sanni vel vaktað allan sólar-
hringinn og allt þar til það var
komið til síns heima aftur og vakti
sú gæsla einnig heimsathygli.
Hefði þetta gerst með afsteypu
frumgerðarinnar? Þær eru raunar
víða til, en ekkert pólití nálægt til
að gæta þeirra!
Þá vil ég upplýsa að staða Rod-
ins í heimslistinni er skýr og klár
Bragi Ásgeirsson
og hann er einn af þeim mynd-
höggvurum sem ég dái mest, eins
og vel kemur fram í umfjöllun
minni.
Ég hefði brugðist öðruvísi við,
ef hér hefðu verið kynntar högg-
myndir Malliols, Despiaus og Bo-
urdelles, sehi eru Iítið kunnir á
Islandi, en allir frábærir mynd-
höggvarar.