Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
HREINLÆTISTÆKI
Baðkör
Formað með arm-
hvílum, króm-
handföngum og
hljóðeinangrun
170x75
Kr. 10.900
160x75
Kr. 9.950
170x70
Kr. 6.940
160x70
Kr. 6.520
140x70
Kr. 5.790
WC
sett
með stút í vegg
eða yfirbyggt í
gólfm/harðri
setu
Kr
9.9?°
Sturtubotnar
70x70 80x80
Kr. 2.650 Kr. 2.950
A vegg:
45x55 cm Kr. 2.490
35x45 cm Kr. 2.290
í borð:
55x47 cm
Kr. 6.420 „
64x52 cm Kr. 6.990
60x49 cm
Kr. 10.790
Sturtuklefar
Heill sturtuklefi m/horn-
opnun eða framopnun.
Með 80x80 cm. sturtu-
botni, blöndunartæki,
sturtustangarsetti,
vatnslás o.fl.
Kf-
29.893
Sturtuklefi (horn.
PVC og Akryl-gler.
Hvítir prófílar.
Stærð:
70x70 cm. - .
80x80 cm. 9.13*»
VCr.
Sturtuklefi í horn
m/öryggisgleri og hvít-
um prófílum. Vandaðar
rennihurðir m/segul-
lokun. Stærðir:
70x70 cm. iQr
80x80 cm. !VQr>
90x90 cm. 17
Öfl verö eru stgr.verö rrWSK.
Opið mánudaga
tíl föstudaga 9-18.
Opið laugardaga 10-16.
- tryggmg
FAXAFEN9
SÍMI 91-677332
I bláa fjarlægð
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það hefur ekki farið mitið fyr-
ir Þorgerði Sigurðardóttur í ís-
lenzku myndlistarlífi og sýningar
hennar hafa verið fáar og smáar.
Hún hóf þó listnám svo snemma
sem árið 1964, og hélt því áfram
fram til 1989, en þó með löngum
hléum. Það var fyrst á vinnustofu
sinni á Lambastaðabraut 1 á Sel-
tjarnarnesi 1990, að hún hóf
umsvif á sýningarvettvangi. Eftir
það hefur hún haldið 6 smáar
sýningar úti á landi og í Finn-
landi og Svíþjóð, og ekki getur
sýning sú er hún heldur í Stöðla-
koti og stendur til sunnudagsins
21. nóvember flokkast undir viða-
meiri umsvif, þótt allmargar
myndir séu á henni.
Á sýningunni eru þó mun fleiri
myndir en maður á að venjast á
þessurn stað, en það stafar öðru
fremur af því hve vel henni er
komið fyrir og svo eru allmargar
myndir í albúmi uppi á lofti og á
borði. En þrátt fyrir allt er alls
ekki þröngt um sýninguna og
mættu fleiri taka Þorgerði sér til
fyrirmyndar til að auka á fjöl-
breytni sýninga á þessum stað.
Állar eru myndirnar unnar í
tréristu á alveg sérstakan hátt,
því að ferlið er þannig að fyrst
vinnur Þorgerður tréristuna og
þrykkir hana, en síðan ristir hún
í gagnsætt harðplast og leggur
yfír tréristuna. En þær myndir
er hún kennir á snjallan hátt við
ýmis dagaheiti eru hins vegar
hrejnar tréristur.
Á neðri hæðinni vakti dökka
myndaröðin (nr. 9-13) mesta at-
hygli mína, en í þeim kenndi ég
mesta stemmningu, en tvær aðrar
myndir sóttu mjög á, sem voru
nr. 8 „í sólhvítu éli“, en í henni
eru formin mjög hrein og klár,
svo og nr. 17 „I bláa fjarlægð“,
sem býr yfir seiðmagnaðri
stemmningu. Tærleiki einkennir
myndina „Morgundagur" (24), en
fínir litrænir vefir myndina „Upp-
hafsdagur" (33), og það er heil-
mikið af skógi í myndinni „Skóg-
ardagur" í albúminu.
í heild virkaði þessi sýning
mjög þægilega á mig, en tæknin
er full einhæf og skreytikennd á
köflum og mikil átök við form og
liti ekki merkjanleg.
Nóg samt að vera að
klára menntaskóla
Kynning á verkum Njarðar P. Njarðvík
ísafirði
HAFBORG, nýjasta saga Njarðar P. Njarðvík, var kynnt á
Isafirði um helgina í tilefni af 30 ára rithöfundarafmæli hans.
Sagan byggir á æskuminningum skáldsins á ísafirði og gerist
að mestu um borð í togaranum Hafborgu við veiðar í Víkurál
og við Vestur-Grænland.
Daglegt líf/ Larry Towell. Canada Magnum Photos fyrir The
New York Times Magazine.
„World Press
Photo 93“
Prófessor Vésteinn Ólason
kynnti ritverk Njarðar, en sjálfur
las hann kafla úr Hafborgu, þar
sem hann segir meðal annars frá
því þegar hann sem aðstoðarmað-
ur Hannesar á forhleranum óttast
um að klemma hendur sínar sem
voru vanari píanóleik en átökum
til sjós. Hann sagðist þó ekki þora
að hafa á því orð, nóg væri víst
að því samt að vera að klára
menntaskóla.
Frásagan er lifandi og kunnug-
leg togarasjómönnum auk þess
sem Isfirðingar munu flestir kann-
ast við áhöfnina um borð með ein-
um eða öðrum hætti. Togstreitan
á milli alvöru sjómannsins og
menntaskóladrengsins kemur
skemmtilega fram, þegar neta-
mennirnir ætla að henda honum
úr netabætingu, sem aðeins er á
höndum reyndustu togaramanna,
en verða að beygja sig, þegar skip-
stjórinn rekur þá til að leyfa hon-
um að sýna þekkingu netagerðar-
mannssonarins, sem alinn var upp
í netabætingum á Grænagarði.
Svipað verður upp á teningnum
þegar Hannes slasast og bókaorm-
urinn er látinn taka við hinu mikla
ábyrgðarstarfí forhleramannsins
en gengið fram hjá eldri sjómönn-
um um borð.
Hann nær vel að lýsa andrúm-
inu í hinu þrönga mannlífi tog-
araáhafnar og togstreitunnar milli
mannanna sem hafa gert sjó-
mennskuna að ævistarfi og flestir
byijað mjög ungir og unga
menntamannsins sem kominn er
af sjómönnum en stefnir frá borði
til gagnslítils náms í skólum þar
sem jafnvel er kennd latína.
Bókmenntakynningin var á veg-
um Menningarráðs ísafjarðar,
Bókaútgáfunnar Iðunnar og
Framhaldsskóla Vestfjarða og
stjórnaði formaður Menningarráðs
Geirþrúður Charlesdóttir athöfn-
inni.
Á milli atriða söng Guðrún Jóns-
dóttir við undirleik Beátu Joó.
Úlfar.
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Verzlunarmiðstöðin Kringlan
hýsir fram til þriðjudagsins 16.
nóvember hina árlegu sýningu
heimspressunnar „World Press
Photo“.
Þessa sýningu sá ég á Þjóðminja-
safninu í Kaupmannahöfn í sept-
ember sl. og virðist mér einungis
helmingur hennar hafa ratað hing-
að.
Eg skoðaði hana mjög vel, bæði
við komuna og svo aftur þegar ég
var að fara, en hún var sett upp í
rúmgóðum forsal safnsins. Þetta
er ótrúlega fínt safn sem Danir
hafa endurbyggt og mununum vel
fyrir komið enda var múgur og
margmenni í byggingunni þennan
sunnudagseftirmiðdag. Fólkið var
á öllum aldri og rýndi vel og lengi
á munina og af nógu var að taka.
Og af hverju er slíkt ekki frétta-
efni fór ég fljótlega að velta fyrir
mér við skoðun myndanna er fólk
leitar þannig á vit fortíðarinnar
með vakandi skilningarvitum og
er áhugasamt og ánægt?
Nei, í stað þess virðist enn eitt
árið í röð helst það vera fréttaefni,
sem lýsir mestu hörmungunum og
mestu grimmdinni.
Heimurinn er vissulega fullur af
grimmd, en hann á sér h'ka aðrar
og bjartari hliðar og þær eru ekki
síður spennandi. Gleði og hamingja
virðast vera orðin að fágæti hjá
fréttaljósmyndurum, því það er
hasarinn sem gildir. í firrtum heimi
er það spennan, sem menn hlú
mest að og um leið fyllast allar
afslöppunarstofnanir, heilsuhælum
fjölgar vegna yfirþyrmandi þarfar
og þá einkum þeim er helga sig
andlegri huarró.
Hefur maðurinn ekkert þroskast
eða er hann að þroskast afturábak
í frumskógana og grípur þá
kannski í tómt, því þeir kunna að
verða horfnir áður en þar að kem-
ur? Rannsökum við lífið í sjónum
eða frumskógunum sjáum við sömu
grimmdina, en þar gilda þó önnur
lögmál og meira jafnvægi. En
maðurinn, Homo sapiens, sapiens,
virðist á hraðri leið til sjálfstor-
tímingar og þessi sýning virðist
undirstrika það, alveg ósjálfrátt.
Ég endurtek ósjálfrátt, því þessi
sýning á ekki að flytja boðskap,
einungis sannverðugar frétta-
myndir og þar hefur hið spennu-
þrungna forgang.
Fyrir þann mann, sem metur
hugarró, er jafnvel auðnin þrungin
spennu, en það eru fleiri sem sækja
á vit hávaðans og með sanni á hér
máltækið snjalla við „bylur hlæst
í tómri tunnu".
Sýningin er á alröngum stað, en
ekki fyrir mikla umferð fólks og
þar á meðal bama. Ég er algjörlega
ósammála þeim sem álíta, að það
eigi að fela grimmd heimsins fyrir
börnum. Þau eru sterkari en við
eldri höldum og eiga að horfast í
augu við lífið og nekt þess. Að
fela slíka hluti er bæði misvísandi
og rangt. Þau eiga eftir að taka
við og eiga að vita sannleikan um
það fólk sem hefur borið þau og
skilar til þeirra jafn hryllilegri út-
gáfu af heiminum. Er heimurinn
kannski bara fyrir fullorðna og
hvers konar fyrirbæri þroskastigs-
ins er það eiginlega? Hafa menn
virkilega gleymt þeim sígildu sann-
indum, að um leið og menn hætta
að vera börn er lífið búið ...
TÖLVUNÁMSKEIÐ |
Windows 3.1
PC grunnnámskeið
Word fyrir Windows og Macintosh
WordPerfect fyrir Windows
Excel fyrir Windows og Macintosh
Paradox fyrir Windows
Novell námskeið fyrir netstjóra
Word og Excel framhaldsnámskeið
Skráning í
síma 616699
Hagstætt verð og afar
veglegar kennslubækur
fylgja með námskeiðum.
Tölvuskóli ReykJauíkur
H Borgartúni 28, sími 91 -616699