Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 16.11.1993, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 13 Islensk-mexí- kóska félagið „Dagur hinna dauðu“ ÍSLENSK mexíkóska félagið hefur starfað í rúmt ár og hef- ur beitt sér fyrir mexíkóskum menningarkynningum af ýmsu tagi. Miðvikudaginn 17. nóvem- ber stendur félagið fyrir kynn- ingarkvöldi á Degi hinna dauðu, sem er sérstakt mexíkóskt fyrir- bæri. Þá skreyta Mexíkóar híbýli sín með margvíslegum dauðatáknum, sérstakir réttir eru bornir fram og fleira í þeim dúr. A dagskrá kynningarkvöldsins er fyrirlestur um Dag hinna dauðu sem Angélica Cantu Davila og Hilda Torres Ortiz sjá um. Þá verða sýnd myndbönd frá Mexíkó sem fjalla um þennan dag. Frá sendiráði Mexíkó kemur farand- sýning um Dag hinna dauðu og félagsmenn munu gera hefð- bundnar skreytingar á salnum. Kynningarkvöldið verður í Hákoti Félagsheimili Kópavogs 2. hæð kl. 20.30. Mexíkóskt kaffi og með- læti verður selt á staðnum og eru allir velkomnir. Standandi pínaút nóvember FRJÁLSI Ieikhópurinn frum- sýndi 19. september sl. banda- ríska leikverkið Standandi pínu eftir Bill Cain í Tjarnarbíói. Upphaiíega átti sýningarfjöldi að verða takmarkaður en vegna góðrar aðsóknar hefur þurft að bæta við sýningum og er nú ráð- gert að sýna verkið út nóvember segir í fréttatilkynningu. Með aðalhluverk fara Gunnar Helgason, Felix Bergsson og Þor- steinn Backmann en alls taka 14 manns þátt í sýningunni. Leik- stjóri er Halldór E. Laxness en Magnea Hrönn Örvarsdóttir og Hallgrímur Helgason þýddu verk- ið. Fijálsi leikhópurinn er óháður atvinnuleikhópur og hefur ekki hlotið neina styrki úr sjóðum hins opinbera. Macintosh LCIII er sérlega hentug tölva hvort heldur er fyrir heimili, skóla eða fyrirtæki. Hún er álíka öflug og Macintosh Ilci-tölvan var, en verðið á sér engan líka. Hún er með 14" hágæða litaskjá, hnappaborð, mús, 4 Mb vinnsluminni, 80 Mb harðdisk, Apple SuperDrive-diskadrifi, sem getur einnig lesið og skrifað á diska með MS-DOS, OS/2 og ProDOS-sniði. Nettenging er inn- byggð og þannig má tengja hana við aðrar tölvur og á þann hátt samnýtt skanna og prentara, senda tölvupóst og vinna í sam- eiginlegum gögnum. Svo er stýrikerfi Macintosh-tölvanna auðvitað allt á íslensku. Samanburður á vinnslugetu: Macintosh Classic Macintosh Colour Classic Macintosh LC Macintosh LCII Madntosh LCIII Macintosh IIci Áætlaöar mánaöargreiöslur: Euro-raðgreiðslur: Engin útborgun og 11.044 ,- kr. á mán. t 11 mánuði Visa-raðgreiðslur: Engin útborgun og uvjþ.b. 6.910,- á mán. í 18 mánuði Munalán: 26.855,- kr. útborgun og 3.707 kr. á mán. í 30 mánuði Með hagstæðum samningum og sameiginlegum innkaupum Apple á Norðurlöndunum tókst okkur að útvega um 100 stk. af Macintosh LCIH á þessu ótrúlega verði. Við byrjuðum að selja úr þessar sendingu í gær, en tölvumar eru væntanlegar til landsins í næstu viku. Verð aðeins 107.419,- kr. eða Umboðsmenn: Haftækni, Akureyri Póliinn, ísafirði Apple-umboðiö ™ Skipholti 21, sími: (91) 624800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.