Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 Saga leikfangasafns dagmæðra í Reykjavík eftir Selmu Júlíusdóttur Ég ætla í þessari grein minni að reyna að upplýsa landann um tilurð leikfangasafns dagmæðra í Reykja- vík. Árið 1985 var hrundið í fram- kvæmd að reyna að stofna leikfanga- safn fyrir dagmæður í Reykjavík. Stjórn samtaka dagmæðra og þá- verandi umsjónarfóstrur höfðu mikla löngun til að koma leikfangasafninu á. Dagvist barna vann að þessu máli og lagði fram fyrir hönd Reykjavík- urborgar 50.000 króna framlag og áttu dagmæður að koma með jafn- mikið framlag í stofnfé. Borgin lagði áherslu á að þetta yrði sérstætt félag þar sem ekki væru landslög fyrir félagaskyldu í Samtökum dagmæðra en allar dag- mæður ættu rétt á félagsaðild að leikfangasafninu óháð félagsaðild að samtökunum. Einnig var ætlast til af borgarinn- ar hálfu að aðeins dagmæður Reykja- víkurborgar ættu aðgang að leik- fangasafninu en Samtökin í Reykja- vík höfðu opnað samtök sín fyrir öll- um dagmæðrum sem kusu að vera í samtökunum hvar sem þær bjuggu á landinu. Dagvist bama gekkst inn á að ljá leikfangasafninu húsnæði og þegar viðgerðarverkstæði losnaði í Lauga- borg var dagmæðmm boðið að fá það fyrir leikfangasafnið en þá var ekki í umræðunni að samtökin fengju þar inni líka. Stjórn samtakanna gerði hús- næðið alfarið upp með eigin höndum en borgin borgaði kostnað. Tvær umsjónarfóstmr og tvær dagmæður frá samtökunum unnu síðan að því að kaupa inn leikföng. Var byrjað á að kaupa fyrir 50.000 kr. framlagið frá borginni en síðan lánuðu samtök- in safninu fyrsta framlagið. Voru sendir út gíróseðlar til allra dag- mæðra í Reykjavík og sagt að þeir sem borgvðu gíróseðlana væru stofn- félagar leikfangasafns dagmæðra í „Þegar mikil sundrung kom upp í samtökum dagmæðra var álitið af forráðamönnum safns- ins og stjórn samtak- anna að óæskilegt væri að safnið lenti í deil- um.“ Reykjavík. 56 dagmæður borguðu þá strax en þær sem borguðu síðar töldust einnig stofnfélagar eða þar til að náðist upp í stofnféð 50.000 kr. Félagsgjald var 500 kr. Var lán- ið borgað til baka til samtakanna með þessu fé. Dagvist bama fékk forstöðukonur leikfangasafns Kjarv- alshúss til að gera spjaldskrá safns- ins á fullkominn hátt og kenna þeim dagmæðmm sem áttu að veita safn- inu forstöðu að vinna með hana. Kjarvalshússkonumar fengu greidd laun fyrir starfíð frá borginni og einnig umsjónarfóstrurnar en dag- mæðurnar unnu sjálfboðavinnu. Kynning á leikfangasafninu var 22. febrúar 1986 og komu þá allir saman sem stóðu að safninu og fréttamenn. Þá afhenti Anna K. Jónsdóttir for- manni samtakanna bréf sem sagði að dagvistarstjórn hefði samþykkt tillögu Bergs Felixsonar um að leik- fangasafnið fengi húsnæðið í Lauga- borg til afnota. Einnig tók Anna K. Jónsdóttir fram í bréfínu að þar sem skapast hefði aðstaða einnig fyrir félagsstarfsemi í húsnæðinu vegna dugnaðar félagsmanna samtakanna gæfíst tilefni til að gera leigusamn- ing við samtökin. Dagvist bama og stjórn samtaka dagmæðra sömdu um að fá Helgu Hansdóttur sem fyrst forstöðumann safnsins en stjórn samtakanna átti að bera ábyrgð á að leikfangasafnið færi rétt af stað. Félagatal leikfanga- safnsins hefur alla tíð verið óháð félagatali samtakanna. Hafa leik- fangasafnsdagmæður borgað árlega félagsgjöld. Engir hefur fengið lánuð leikföng úr safninu aðrir en þeir sem hafa borgað félagsgjöldin. Allar dagmæð- ur í Reykjavík hafa átt kost á að gerast félagar. Þessi félagsgjöld ásamt styrknum frá borginni sem er í allt 450.000 hafa alfarið borgað þau leikföng sem í safninu era. Oll vinna við rekstur safnsins hefur verið sjálfboðavinna. Stjórn samtaka dagmæðra hefur ekki skipt sér af starfí safnsins síðan 1988 en þær konur sem hafa veitt því forstöðu hafa skipt með sér verk- um innbyrðis. Leikfangasafnið er ekki á eigna- skrá samtaka dagmæðra í Reykjavík. Samtökin hafa ekki borgað leikföng fyrir safnið. Samtökin hafa stutt leik- fangasafnið á margan hátt og hefur verið náin samvinna milli félaganna. Þær dagmæður sem unnu við safnið vora einnig félagar í samtökunum og stjóm samtakanna verið oftast félagar í leikfangasafninu. Er mér tjáð að aðeins einn úr núverandi stjóm samtakanna sé fé- Selma Júliusdóttir lagi minn í safninu og margir félag- ar safnsins era ekki í samtökunum. Þegar mikil sundrung kom upp í samtökum dagmæðra var álitið af forráðamönnum safnsins og stjórn samtakanna að óæskilegt væri að safnið lenti í deilum. Borgarstjóri var beðinn um að hlutast til um að safn- ið fengi annað húsnæði og seinna var beðið um að borgin tæki starf- semina að sér svo að það dafnaði á öraggan hátt. Var stjómsýsla borg- arinnar beðin um að úrskurða hvort húsnæðið hefði verið lánað út í tvennu lagi. Fer hér brot úr úrskurði Hjörleifs Kvaran. „Það fer vart á milli mála að umrætt húsnæði í Laugarborg hefur verið látið í té annars vegar fyrir stjóm Samtaka dagmæðra og hins vegar fýrir Leikfangasafnið. Eiga því báðir aðilar að hafa aðgang að hús- næðinu." Þetta var skrifað 5. júlí 1993. Mér er alveg óskiljanlegt að sú lausn fékkst ekki án illdeilna. Ólína Þorvarðardóttir tók þetta upp mál á fundi borgarstjórnar 4. nóvem- ber síðastliðinn og ataði Önnu K. Jónsdóttur aur sem ásamt Bergi Felixsyni og Davíð Oddssyni höfðu forgöngu um að leikfangasafnið var stofnað. Ég er ekki undrandi á að Ólína Þorvarðardóttir sýndi svona fram- komu og ekki heldur að Kristín Ólafs- dóttir- fylgdi henni eftir en ég er mjög undrandi á að Siguijón Péturs- son skyldi láta hafa sig út í svona skítkast án þess að athuga málið frá öllum hliðum. Ég hef persónulega borið virðingu fyrir honum sem borg- arfulltrúa. Ég vona að hann sýni að þetta sé einsdæmi í hans vinnubrögð- um sem slíkur. Ég vona að safnið komist aftur í gang fljótlega í höndum Reykjavík- urborgar. Höfundur er fyrrverandi formaður Samtaka dagmæðra í Reykjavík. Ólafur Ólafsson ar era nú lengri t.d. eftir þvagfæra- skurð-, hjarta- og bæklunaraðgerð- um en í nágrannalöndunum. Nauð- synlegt er því að afla meira fjár til meðferðar þessara sjúkdóma. Bygging, búnaður og rekstur heil- brigðisstofnana er að öllu eða mestu leyti greiddur af skattfé almennings en um 70% þeirra eru félagar í aðild- arfélögum innan ASÍ, BSRB og BHMR. Ekki er líklegt að framan- greindir skattgreiðendur geti greitt 25.000-30.000 kr. á dag fyrir vistun á sérgreinasjúkrahúsum. Hvers eiga þeir að gjalda að vera skildir eftir í biðröðinni? Með hvaða rétti geta ein- staklingar keypt sig framhjá röðinni. Það samræmist ekki kröfum markað- arins að þeir er lagt hafa mest fé til uppbyggingar og reksturs „fyrir- tækisins" verði hafðir útundan. Hvað þá með skattsvikara sem eru margir samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins? Þeir hafa ekkert lagt til samneyslunnar en trúlega vel í stakk búnir að kaupa pláss á sjúkrahúsum. Um langan tíma hefur jafnræði ríkt í heilbrígðisþjónustunni hér á landi, þ.e. allir hafa haft svipað að- gengi að heilbrigðisþjónustunni. Ef farið verður að tillögum leiðara- höfundar verða kaflaskipti í heil- brigðisþjónustu á íslandi, andrúms- loftið mun breytast. Samkeppni milli stofnana hefur verið á faglegum grunni, en nú verður hún frekar á rekstrarlegum grunni. Samkeppnin verður um fjáða neytendur. í þessu andrúmslofti mun hver stofnun freista þess að búast dýrustu og af- kastamestu tækjunum. Markaðslög- málið verður ráðandi. Þjónustan verður dýrari eins og dæmin sanna, t.d. í Bandaríkjunum og fleiri löndum sem hafa farið þessa leið. Sú sam- kennd sem við höfum þróað með okkur um langan aldur verður nafn- ið eitt. Hr. ritstjóri, ég legg til að leiðara- höfundur ígrundi þessa tillögu betur áður en hann heldur henni til streitu. SIEMENS Ein vinsælasta og mest selda ryksugan á hreint frábæru veröi. ■ Lítil, létt og lipur • Kraftmildl (1200 W) > Stór rykpoki og þreföld sýklasía »Sjálíinndregin snúra og hleösluskynjari Hrífandi / ,r /. og pnfandi Siemens ryksuga Verð aðeins kr. 13.900,- (afb.verð) kr. 13.205, - (staðgr.verð) UMBOÐSMENN OKKAR ERU: Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs Borgarnes: Glitnir Borgarfjörður: Rafstofan Hvftárskála Hellissandur Blómsturvellir Grundarfjörður. Guöni Hallgrímsson Stykkishólmur. Skipavík Búðardalur: Húsavík: Vestmannaeyjar. Ásubúð öryggi Tréverk Isafjörður: PólRnn Þórshöfn: Hvolsvöllun Norðurraf Kaupfélag Rangæinga Blönduós: Neskaupstaðun Selfoss: Hjörleifur Júllusson Rafalda Árvirkinn Sauðárkrókur Reyðarflörðun Rarnet Garður: Rafsjá Raftækjav. Sig. Ingvarss. Siglufiörður: Torgið Egilsstaöir: Sveinn Guömundsson Keflavik: Ljósboginn Akureyri: Breiðdalsvík: Ljósgjafinn Stefán N. Stefánsson Viljir þú endingu og gæði - velur þú SIEMENS. SMITH & NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 628300 Jafnt skal yfir alla ganga? eftir Ólaf Ólafsson í blaði yðar hefur verið haldið uppi margþættri og gagnlegri um- ræðu um heilbrigðismál. Sú umræða hefur á margan hátt verið mótandi og ber að þakka það. í umræðum um „tekjutengingu í heilbrigðiskerfínu" segir svo i leiðara blaðs yðar þann 9. nóvember 1993. „Það er ástæða til að ítreka þær hugmyndir sem Morgunblaðið hefur áður sett fram um fleiri valkosti í heilbrigðiskerfínu, þ.e. að þeir sem þess óska geti fengið að kaupa ákveðna þjónustu og greiða hana fullu verði. Það myndi létta á hinu opinbera kerfi fyrir aðra.“ í almannatryggingakerfinu höfum við gengið lengra en margar ná- grannaþjóðir varðandi tekjutengingu á tryggingagreiðslum t.d. til fatlaðra (Social Security in the Nordic Co- „Ekki er líklegt að framangreindir skatt- greiðendur geti greitt 25.000-30.000 kr. á dag fyrir vistun á sér- greinasjúkrahúsum. Hvers eiga þeir að gjalda að vera skildir eftir í biðröðinni?“ untries 1993). Heilbrigðisþjónustan er í dag fjármögnuð með sköttum almennings sem era tekjutengdir. Öllu ver líst mér á tillögu leiðarahöf- undar um að þeir er þess óska geti keypt sér meðferð á sjúkrahúsi og komist þannig fyrr í aðgerð. Biðlistar sérgreinasjúkrahúsa eru langir og hafa lengst á síðastliðnu ári. Biðlist- TonLfiyp dfflJD liSK&lfTMÖÐ Háskólabíói fimmtudaginn 18. nóvember, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Osmo Váriská Einleikari: Jennifer Koh Jórunn Viðar: Eldur I Pjotr Tsjajkofskíj: Fiðlukonsert | Sergei Prokofief: Sinfónía nr. 5 Jennifer Koli er aðeins 16 ára gamal.t undrabarn á fiðlu. Hún hefur nú þegar leikið með mörgum stærstu sinfóníuhl jðmsveilum Bandaríkjanna. Sími 622255 Hljómsvelt allra islendlnga I I i Höfundur er landlæknir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.