Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 21 Um bóka- og þáttagerð eftir Siglaug Brynleifsson Fimmtudaginn 16. september sl. birtist grein í Morgunblaðinu eftir Njörð P. Njarðvík: „Er menn- ing munaður?“. Þar lætur höfund- ur í ljós áhyggjur vegna „rann- sókna í þágu atvinnuveganna“ og þá áhersju sem forystumenn í Háskóla íslands leggja á starfs: menntun, sem höf. telur að sætti menn við „það sljóa hugmynda- leysi sem tröllríður íslensku þjóðfé- lagi“. Er sljóleikinn ekki einkenni hugmyndaleysis? — Nóg um það. — Síðan ræðir höfundur „hroða- legustu afglöp núverandi ríkis- stjórnar" sem höfundur telur að sé ákaflega andstæð menningu og menntun, berjist beinlínis gegn menningunni, eins og hann skilur hugtakið. í því sambandi minnist hann á virðisaukaskatt sem lagður er á bækur, blöð og tímarit. Höf- undur telur að skattur þessi hamli listsköpun á sviði bókmennta í landinu og sé mjög svo ósann- gjarn. Það ber að athuga að bók- menntaleg „hugverk" komast til skila með prentun og útgáfu bóka. Prentun, bókband og pappír er iðnaðai-vara, smekklega útgefin bók er hliðstæða við vel hannað verkfæri eða smíðisgrip úr tré eða járni, stól eða borð. Á þennan varning er lagður óbeinn skattur, sem nefnist virðisaukaskattur. „Myndverk" svonefnd eru undan- þegin þeim skatti. Þau eru talin til lista og listmálarinn hefur þeg- ar borgað skatt þegar hann kaup- ir striga, blindramma og liti. List- sköpun hans er ekki skattlögð. Úrvinnsla hráefnisins sem skapar bók er skattlögð sem iðnaður og ber því útgefanda að greiða skatt af þeim iðnaðargrip eins og smið af smíðisgrip. Þessi skattur kemur höfundi hreint ekkert við fremur en aðstöðugjald útgefenda, sem fellt var niður við upptöku virðis- aukaskatts. Það er ekki lagður skattur á þann texta, það „hug- verk“, sem prentiðnaðarmenn koma á pappírinn, en starf þeirra og útgefanda er skattlagt. Höfundurinn lætur að því liggja að húmanísk menntun sé hálfgerð hornreka í augum forustumanna Háskóla íslands. Hann gerir þá kröfu að: „Háskólamenntun á að beinast ... og einkennast af fijálsri þekkingarleit, sem kallar á frumlega skapandi hugsun, sem er öguð við skilgreinandi kröfur vísinda, fræða og lista ...“ Starfa „dóserar“ í bókmenntum innan Háskóla Islands samkvæmt þessari kröfu? Því miður virðist svo ekki vera. Það fer lítið fyrir „Viðamesta rannsókn sem gerð hefur verið í íslenskum bókmenntum undanfarinn rúman áratug er ekki nefnd á nafn, sem er „Rætur Islandsklukkunnar“ eftir Eirík Jónsson, sem Hið íslenska bók- menntafélag gaf út 1981.“ hrífandi eða snjöllum útlistunum úr þeim herbúðum. Bókmennta- rýni þeirra er á lægsta stigi „de- konstrúktjónalismans“ og almennt lágkúrulegt snakk er ekki undan- tekning. Ef vönduð og nákvæm vinnu- brögð eru stunduð í rannsóknum á verkum íslenskra höfunda, þá vill svo einkennilega til, að þeim er ýtt til hliðar og eru afskipt allri umræðu. Viðamesta rannsókn sem gerð hefur verið í íslenskum bók- menntum undanfarinn rúman ára- tug er ekki nefnd á nafn, sem er „Rætur íslandsklukkunnar“ eftir Eirík Jónsson, sem Hið íslenska bókmenntafélag gaf út 1981. Í hausthefti Skírnis sl. birtist grein Eiríks Jónssonar: „Rætur þáttarins Temjudin snýr heim“ — Textasamanburður — Nýjasta rannsókn Eiríks Jónssonar á text- um Halldórs Laxness. Þessi um- Siglaugur Brynleifsson. fjöllun Eiríks virðist vera slíkt feimnismál, að hennar hefur ekki verið getið í fjölmiðlum, nema hvað „kunnáttumaður" í „Rauðum pennum“ að dómi ókunnuglegs fransks háskóla, gat greinarinnar í dagblaði í júlí sl. „Kunnáttumað- ur“ virðist ekki hafa skilið, hvorki greinina né textasamanburð þátt- arins „Temjudin snýr heim“ og þar með úrvinnslu og þýðingar Hall- dórs Laxness úr öðriim verkum, við samantekt þáttarins. Þetta er gott dæmi um á hvaða stigi bókmenntarýni er meðal þeirra, sem „dósera“ í bókmennt- um við Háskóla íslands og skoð- anabróður þeirra. Það er von að N.N. þyki risið lágt. Hann vill kenna núverandi ríkisstjórn um þessa lágkúru, en orsökin er nærtækari. Ekki getur ríkisstjórnin gefið „dóserum“ í ís- lenskum bókmenntum við HÍ skýr- leika og skarpleika hvað þá vönd- ugleika og þekkingu. Því miður. Höfundur er rithöfundur. Á MAZDA 323 4WD skutbíl ferð þú þangað sem þig langar, með 10 5 þaö sem þú þarft! SÖLUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóðbraut 1, sími 93-12622. ísafjörður: Bílatangi hf., Suðurgötu 9, sími 94-3800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sími 96-26300. Egilsstaðir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c, sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bílasala Keflavíkur, Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaöir bílar: Bílahöllin hf., Bíldshöföa 5, sími 91-674949. 323 4WD skutbíll Umsagnir MAZDA eigenda eru í takt við þau próf sem gerð hafa verið á MAZDA bílum m.a. hjá þýska bílablaðinu "Auto Motor und Sport". í nýjasta 100.000 km bilanaprófinu eru 3 MAZDA fólksbílar í fimm efstu sætunum, af 85 bílum sem prófaðir vom. MAZDA 323 4WD er ekki aðeins bíll, sem þú getur treyst, hann er ódýr í rekstri, rúmgóður fjórhjóladrifinn skutbíll með sídrifi og læsanlegum millikassa, 5 gímm, álfelgum o.fl. Við eigum fáeina bfla á lager á mjög hagstæðu verði frá kr. 1,340.000,- MISSTU EKKIAF ÞESSU TÆKIFÆRI. Hafðu strax smnband við sölumenn okkar. í reynsluakstrinum upplifir þú seigluna í þessum ágæta bíl. Skúlagötu 59, síml 91-619550 ElífiC Ait PURPOH v* 'A fURAl FIAV ÍUM t’ACKED 100% ARABICA GÆÐA KAFFI ^E5H NATURAL Fl/ VACUUM PACKÍ N6T WT. 16 07 Góða kaffið í rauðu dósunum frá Mexico
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.