Morgunblaðið - 16.11.1993, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
23
Reif föt utan af 13
MAÐUR á þrítugsaldri réðist að 13 ára telpu við Tindasel í Breið-
holti um miðnætti á laugardagskvöld, skellti henni til jarðar og
reif af henni sokkabuxur. Þegar stúlkan hrópaði á hjálp kom styggð
að manninum svo hún komst undan honum og heim til sín þar sem
móðir hennar hringdi á lögreglu. Maðurinn er ófundinn.
Stúlkan var ein á ferð á leið henni, skellti henni til jarðar og
heim til sín þegar maðurinn veitti réðist að henni með fyrrgreindum
henni eftirför og réðist síðan að hætti. Stúlkan gaf á honum þá lýs-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðurkenning Þróunarfélags
Reykjavíkur afhent
KETILL Axelsson eigandi veitingahússins Café París, tekur við
viðurkenningu Þróunarfélags Reykjavíkur fyrir árið 1993. Það
var Magnúsi L. Sveinsson forseti borgarstjórnar sem afhenti lista-
verkið Framstreymi eftir Guðnýju Magnúsdóttur. Er þetta í
annað sinn sem félagið veitir viðurkenning fyrir framlag til efling-
ar miðborgar Reykjavíkur. í umsögn stjórnar félagsins segir að
Ketill hafi stundað verslunarrekstur í miðborginni í 36 ár, rekið
Tóbaksverslunina London og London dömudeild og á síðasta ári
opnaði Café París. Þá segir að viðhald og umhirða húseigna
Ketils við Austurstræti 12a og Austurstræti 14, sé til mikilla
fyrirmyndar. Milli Ketils og Magnúsar er Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, formaður stjórnar Þróunarfélags Reykjavíkur.
Islenska útvarpsfélagið
Fjölvarpi með 8 erlendum
stöðvum hleypt af stokkunum
ÍSLENSKA útvarpsfélagið hefur útsendingar Fjölvarps, 8 er-
lendra sjónvarpsstöðva, á mánudag. Fyrst um sinn nær útsend-
ingin aðeins til hluta íbúa á Stór-Reykjavíkursvæðinu, í Kefla-
vík og á Akranesi. Til að ná útsendingunni þarf sérstakan
loftnetsbúnað. Loftnetið og kostnaður við uppsetningu þess er
á bilinu 23.-30.000 kr. Mánaðaráskrift að Fjölvarpinu fyrir
áskrifendur Stöðvar 2 er kr. 923 og kr. 2.630 fyrir aðra.
í tilkynningu íslenska út-
varpsfélagsins segir að Fjölvarpinu
tilheyri 8 erlendar sjónvarpsstöðv-
ar: frétta- og dagskrárrásin BBC
World Service, bandaríska frétta-
rásin CNN, breska fréttarásin Sky
News, teikni- og bíómyndastöðin
TNT & The Cartoon Network, tón-
listarrásin MTV, íþróttarásin Euro-
sport, fræðslustöðin Discovery
Channel og BBC News. Hið síðast-
nefnda sé væntanlegt snemma á
næsta ári.
Fram kemur að fyrst um sinn
nái íbúar Stór-Reykjavíkursvæðis-
ins, Keflavíkur og Akranes útsend-
ingunni. Þó séu innan þessara
svæða svokölluð skuggasvæði og
nái íbúar þeirra ekki útsendingu í
bráð. „Það er góð þumalputta-
regla,“ segir í tilkynningu útvarps-
ára telpu
ingu að hann væri um 190 sm á
hæð, dimmraddaður og með skegg-
hýjung.
Stúlkan var með áverka í andliti
og á fótum eftir manninn og var
flutt til aðhlynningar á slysadeild
þar sem gert var að sárum hennar.
Víðtæk en árangurslaus leit var
gerð að manninum um nóttina.
félagsins ,„að ef að Perlan sést
ofan af þaki hjá fólki ætti það að
ná útsendingum Fjölvarpsins með
sérstökum loftnetsútbúnaði, sem
seldur er á fijálsum markaði, og
myndlykli," segir ennfremur í til-
kynningunni en myndlykil getur
fólk fengið lánaðan, gegn 2.500
kr. skilagjaldi, hjá útvarpsfélaginu.
Kostnaðaráætlun
Jón Árni Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Rafiðnaðarskólans,
sagðist benda því fólki á, sem vildi
ná Fjölvarpinu, að hafa samband
við rafeinda- eða rafvirkja með
sérstök hæfnisvottorð til að fá þá
til að kanna aðstæður og segja
fyrir um væntanlegan kostnað
vegna uppsetningar loftnetsbúnað-
ar áður en áskrifti væri pöntuð.
Aðspurður sagði hann að loftnet
vegna móttöku kostaði á bilinu
18.-20.000 og kostnaður við upp-
setningu væri á bilinu 5.-10.000 kr.
Mánaðaráskrift að Fjölvarpi fyr-
ir áskrifendur Stövðar 2 er kr. 923
með vsk. Mánaðaráskrift að Fjöl-
varpi eingöngu er kr. 2.630 með
vsk. íslenska útvarpsfélagið hf.
kaupir gamla myndlykla af þeim
áskrifendum sem taka áskrift að
bæði Stöð 2 og Fjölvarpi og jafn-
gildir hann þriggja mánað áskrift
að Fjölvarpi.
Mánaðaráskrift að Fjölvarpi fel-
ur í sér greiðslu fyrir CNN, MTV,
Eurosport, TNT & The Cartoon
og Sky News. Aðrar erlendar
stöðvar sem Fjölvarp endurvarpar
eru áskrifendum að kostnaðar-
lausu. Tekið verður á móti pöntun-
um um áskrift hjá íslenska út-
varpsfélaginu frá 22. nóvember.
Þar er einnig hægt að fá upplýs-
ingar um rafiðnaðarmenn með til-
skylið hæfnisvottorð.
Nýr VW Golf á aáeins 1.058.
MIKIL GÆÐI
FYRIR
LÍTIÐ VERÐ
Það er ekki oft sem eðalvagn á
borð við VW Golf býðst á jafn
lágu verði og raun ber vitni:
1994 árgerSin af þessum
[Dýska gæðabíl kostar nú
aðeins 1.058.000 kr.
Volkswagen
m l
HEKLA
Laugavegi 170 - 174 • Sími 69 55 00
VERNP
UMHVtRflS-
VIDURKtNNING
lONIÁNAMOUS