Morgunblaðið - 16.11.1993, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
■ SYSTRAKVÖLD verður í
Glerárkirkju í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 16. nóvember, og hefst það
kl. 20.30.
Kvöldið helgast af lofgjörð,
bænagjörð og kyrrlátum söng. Slík
Verðstríð enn háð á bökkum Glerár
Þorláksmessutöm
í stórmörkuðunum
53
ENGIH HÚS
ÁH HITA
53
ARABIA
Hreinlætistæki
18% staðgreiðsluafsláttur
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Morgunblaðið/Rúnar Þor
Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands fór í Verkmenntaskólann þar akureyrsk fyrirtæki sýndu fram-
leiðslu sína. Þar snæddi forsetinn hádegisverð af hlaðborði.
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, setti íslenska viku í gærmorgun
Landsmenn standi saman
og velji íslenskar vörur
Fólk kom í rútum til að versla á Akureyri
ÞORLÁKSMESSUTÖRN kölluðu verslunarstjórar Bónus og
KEA-Nettó ástandið í verslununum um helgina. Fólk kom víða
að af Norðurlandi til að versla og höfðu hópar tekið sig saman
og komu með rútum til Akureyrar í þeim tilgangi að versla.
Laufey Ingadóttir aðstoðar-
verslunarstjóri í Nettó sagði að
flestir væru að gera stórinnkaup.
„Fólk hamstrar, ég hef á tilfinn-
ingunni að fólk haldi að þetta
munu standa stutt og verðið
hækki aftur, en það er eins og
hafi gripið um sig einhvers konar
æði,“ sagði Laufey.
Sigurður Gunnarsson, verslun-
arstjóri í Bónus, tók í sama streng,
það hefði mátt halda að skammt
væri til jóla miðað við fólksfjöld-
ann sem kom í verslunina á laug-
ardaginn. „Fólk er að nýta sér
þessa samkeppni og þau lágu verð
sem við bjóðum," sagði Sigurður.
Hann sagði að heldur væri farið
að róast,„ég lækkaði verðið ekki
nema einu sinni í gær,“ sagði
hann.
Lítri af mjólk kostaði 56 krónur
í Bónus seinni partinn í gær og
57 krónur í Nettó. Tveir lítrar af
Coka Cola eru komnir í 122 krón-
ur í Bónus, en verðið hefur lækk-
að stöðugt frá því verslunin var
opnuð.
Fjöldi fólks kom í verslunar-
ferðir til Akureyrar um helgina,
ýmist saman í rútu eða á einkabíl-
um.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Verslunarferð
EINHVERJIR gætu haldið að myndin sýndi íslendinga á ferð i
Dyflini, með fulla rútu af varningi, en þetta eru Hofsósingar sem
tóku sig saman og komu til að versla í stórmörkuðum á Akur-
eyri um helgina.
í Grófinni sagði Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands: „íslenskt -
já takk“, keypti ullarhatt og gaf hann dóttur sinni, Ástríði.
landsmenn til að standa saman og
velja íslenskar vörur, það ættu
menn að gera af heilbrigðri skyn-
semi því með kaupum á íslenskri
framleiðslu væri unnt að efla mjög
atvinnu í landinu.
Hattur úr íslenskri ull
Að lokinni setningarathöfn í
Listasafninu á Akureyri var vinnu-
stofan Grófin skoðuð og þar keypti
forsetinn fyrstu íslensku vöruna
eftir að landsátakið hófst; hatt úr
íslenskri ull sem hún gaf dóttur
sinni Ástríði, en hún var með í för.
Eftir stutta skoðunarferð um
listamiðstöðina í Grófargili var
haldið í Mjólkursamlag KEA og síð-
an í Verkmenntaskólann á Akur-
eyri. Þar kynntu akureyrsk fyrir-
tæki í matvælaiðnaði framleiðslu
sína og var gestum boðið til hádeg-
isverðar. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri svæðisskrifstofu iðn-
aðarins, flutti ræðu fyrir hönd Har-
aldar Sumarliðasonar formanns
Samtaka iðnaðarins, en hann, svo
og flestir reykvískir gestir sem vera
áttu við opnun íslensku vikunnar,
komst ekki norður vegna veðurs í
gærmorgun. Þórunn Sveinbjörns-
dóttir, formaður Sóknar, þakkaði
Akureyrarbæ fyrir að standa að
opnun íslensku vikunnar, en Halldór
Jónsson bæjarstjóri sagði það hafa
verið ánægjulegt verkefni að leggja
sitt af mörkum til að stuðla að því
að efla íslenska framleiðslu.
Góður dagur
Eftir hádegi var farið í skoðunar-
ferð í Slippstöðina-Odda, verslun-
armiðstöðina Sunnuhlíð og síðan
var starfsemi á endurvinnslusvæði
við Réttarhvamm kynnt, en þar eru
þijú fyrirtæki-starfandi á sviði end-
urvinnslu, Endurvinnslan, Gúmmí-
vinnslan og Úrvinnslan. Vigdís
kvaddi heimamenn með þeim orðum
að dagurinn hefði verið fádæma
skemmtilegur og myndi seint líða
sér úr minni.
Að íslensku vikunni standa Sam-
tök iðnaðarins, Vinnuveitendasam-
band íslands, Alþýðusamband ís-
lands og Upplýsingaþjónusta land-
búnaðarins.
Systrakvöld hafa verið haldin í
Glerárkirkju nokkuð reglulega og
verða hér eftir á hverju þriðjudags-
kvöldi. Áhersla er lögð á innri upp-
byggingu í ljósi og kærleika Guðs.
Konur á öllum aldri eru velkomnar
á Systrakvöld.
Á morgun, miðvikudag, verður
kyrrðarstund í kirkjunni frá kl. 12
til 13 og á fimmtudag kl. 18.15
er fyrirbænastund í kirkjunni.
(Úr fréttatilkynningu.)
ÍSLENSK vika hófst formlega í
gær þegar forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, lýsti því
yfir að landsátak með yfirskrift-
inni „íslenskt - já takk“ væri
hafið. Frú Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti íslands, er verndari
íslensku vikunnar, sem stendur
yfir frá 15. til 20. nóvember.
Setningarathöfnin fór fram í
Listasafninu á Akureyri.
Frú Vigdís sagði í ræðu sinni við
opnunina að Islendingar ættu sinn
garð, hann gætu þeir lagt í órækt
ef ekki væri um hann hugsað, en
hann gæti Jíka gefið arð ef vel
væri eftir honum litið. „Við getum
haft áhrif á þá framtíð sem við vilj-
um eiga í þessu landi og það hefur
áður verið lyft grettistaki," sagði
Vigdís í ræðu sinni. Hún hvatti
Rannveig Jósefsdóttír
látin á 105. aldursári
RANNVEIG Jósefsdóttir, sem var
elst íslendinga, lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri síðastlið-
inn föstudag, 12. nóvember. Hún
var á 105. aldursári. Hún bjó
ásamt dóttur sinni í Helgamagra-
stræti 17 á Akureyri.
Rannveig var fædd 24. apríl árið
1889 að Eyrarlandi, sem þá var
sveitabær skammt ofan Akureyrar,
en þar stendur Fjórðungssjúkrahúsið
nú. Rannveig dvaldi að Eyrarlandi
sín fyrstu æviár, en flutti níu ára
gömul að Kroppi í Eyjafirði þar sem
hún ólst upp hjá Davíð Jónssyni
hreppstjóra þar og Sigurlínu Jónas-
dóttur kcnu hans.
Á yngri árum var Rannveig í
kaupavinnu og vist, m.a. hjá Pétri
Péturssyni kaupmanni þar sem hún
var í sex ár, en mestan hluta starfs-
ævi sinnar vann hún hjá Geflun þar
sem hún starfaði í rösk íjörutíu ár.
Rannveig eignaðist eina dóttur,
Freyju Jóhannsdóttur.