Morgunblaðið - 16.11.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
27
Listaverkaþjófnaðurinn í Stokkhólmi fyrir rúmri viku
Prakkarar skiluðu inn
eftirlíkiiigiim verkanna
Stokkhóimi. Reuter.
FALSANIR eða eftirlíkingar af átta listaverkum, sem stolið var úr
Nútímalistasafninu í Stokkhólmi fyrir rúmri viku, fundust á sunnu-
dag í anddyri safnsins. Er talið nokkuð augljóst, að einhveijir lista-
skólanemar í borginni hafi verið þarna að verki.
„Þegar ég kom inn í anddyrið
kom málningarlyktin á móti mér
en myndirnar voru þó þurrar við-
komu, hafa líklega verið gerðar í
síðustu viku,“ sagði Kjell Hestrell,
öryggisvörður í safninu, í viðtali
við sænska útvarpið. Um var að
ræða eftirlíkingar af sjö málverk-
um eftir Pablo Picasso og einni
höggmynd eftir Georges Braque.
Þegar frumverkunum var stolið
notuðu þjófarnir aðferð úr kunnri
kvikmynd frá sjötta áratugnum,
rufu gat á þakið og létu sig síga
niður. Verkin eru metin á um 4,3
milljarða ísl. kr.
Hélt að frumverkin væru
fundin
Lögreglan skýrði raunar frá því
til að byrja með, að um væri að
ræða frumverkin, sem taugaveikl-
aðir ræningjarnir hefðu skilað, en
við athugun kom fljótt í ljós, að
svo var ekki. „Falsanimar voru
ekki einu sinni vel gerðar," sagði
Hestrell og Björn Springfeldt, for-
stöðumaður safnsins, sagði, að hér
hefði verið um að ræða heldur
smekklaust grín. Tveir myndlistar-
nemar i Stokkhólmi hafa tilkynnt
lögreglunni að eftirlíkingar af um-
ræddum verkum, sem þeir hafí
gert fyrir sýningu, hafi verið stolið
frá þeim sl. laugardagskvöld.
Nútímalistasafnið í Stokkhólmi
hefur heitið um 2,5 millj. kr. í verð-
laun fyrir upplýsingar, sem leitt
gætu til að verkin yrðu endurheimt
en listfræðingar segja, að þau séu
svo kunn, að ógerlegt sé að selja
þau á almennum markaði. Geta
sumir sér til, að nota eigi verkin
til að kúga fé út úr eigendunum.
„Armurinn“
HÖGGMYND Picasso, „Armur-
inn“, sem er á Nútímalistasafn-
inu í Stokkhólmi, bendir á gatið
sem þjófarnir gerðu á þakið.
Michael Jackson í meðferð vegna ofnotkunar verkjalyfja
Pepsi riftir samningi
sínum við söngvarann
Lundúnum. Reuter. The Daily Telegraph.
Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi hefur sagt upp samningi sínum
við poppsöngvarann Michael Jackson eftir að hann aflýsti tónleika-
ferð sinni og ákvað að fara í meðferð vegna Iyfjavanda. Fyrirtæk-
ið sem styrkti tónleikaferðina sagði á sunnudag að samningurinn
við Jackson hefði gilt til loka ferðarinnar og því væri hann nú úr
sögunni. Talið er að hann hafi numið sem svarar um 500-700 millj-
ónum króna.
„Dangerous" tónleikaferð Jack-
sons hafði gengið misjafnlega.
Tónleikum hefur verið aflýst og
þeim frestað, auk þess sem fram
komu ásakanir í Bandaríkjunum
um að Jackson væri sekur um að
hafa misnotað böm kynferðislega.
Lýsti hann þessum ásökunum á
föstudag sem tilraun til fjárkúgun-
ar, honum fyndist hann niðurlægð-
ur og særður og hann fyndi til
mikils sársauka innra með sér
vegna ásakananna.
Söngvarinn er ekki á flæðiskeri
staddur, þrátt fyrir riftun Pepsi,
því að langtímasamningur hans við
Sony-útgáfufyrirtækið nemur að
minnsta kosti 4,6 milljörðum
króna.
Tók inn verkjalyf vegna
brunasára
í yfirlýsingu Jacksons segir að
hann hafi fengið verkjalyf eftir að
kviknaði í hári hans við upptökur
á auglýsingu fyrir Pepsi. Hann
hafi gripið til lyfjanna á ný fyrir
nokkrum mánuðum er hann gekkst
undir sársaukafulla lýtaaðgerð til
að fjarlægja ör sem hann hlaut við
brunann og hafi að endingu orðið
háður þeim.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins er talið að léttari
verkjalyf, t.a.m. aspirín, hafi enga
ávanabindingu í för með sér. A
hinn bóginn er það þekkt að menn
verði háðir sterkari verkjalyfjum
eins og morfíni, petitíni og metha-
don, sem m.a. er notað við með-
ferð heróín-sjúklinga.
H. R. Haldeman látinn
Lykilmaður
í Watergate
H.R. Haldeman, skrifstofustjóri
Hvíta hússins í forsetatíð Richards
Nixons Bandaríkjaforseta, lést á
föstudag á heimili sinu í Santa
Barbara í Kaliforníu. Banamein
hans var krabbamein. Haldeman,
sem var 67 ára gamall, var dæmd-
ur í fangelsi fyrir þátt sinn í Wat-
ergate-hney kslinu.
Arið 1975 var Haldeman fundinn
sekur um svik og meinsæri í tengslum
við rannsókn Watergate-málsins, al-
varlegasta hneykslismáls sem upp
hefur komið í stjórnmálasögu Banda-
ríkjanna. Hann sat inni í 18 mánuði.
Áfallið reið yfir 1972 þegar nokkr-
ir aðstoðarmenn Nixons voru hand-
teknir í höfuðstöðvum Demókrata-
flokksins í Watergate-byggingunni (
Washington þar sem þeir höfðu kom-
ið fyrir hlerunarbúnaði. Sannað þótti
að þetta hefði verið gert með sam-
þykki Nixons og neyddist hann til
að láta af embætti árið 1974. Hann
hefur ávallt frá þeim tíma haldið fram
sakleysi sínu en viðurkennt að við-
brögð sín við innbrotinu hafi ekki
verið rétt. Haldeman, sem þráfald-
lega var vændur um valdasýki og
hroka, hélt því ávallt fram að hann
hefði verið fórnarlamb fjölmiðlaof-
sókna. í endurminningum sínum,
„The Ends of Power“ fullyrti hann
að Nixon hefði fyrirskipað innbrotið
í Watergate-bygginguna og að forset-
inn hefði með skipulegum hætti reynt
að koma í veg fyrir rannsókn málsins.
Jólaferðln til
Kanarí er að
seljast upp
Við þökkum frábærar undirtektir við Kanaríferðum Heimsferða.
Nú er jólaferðin að seljast upp og einnig ferðin 16. febrúar og
mjög mikið bókað í janúarferðirnar. Hringdu og fáðu bækling
sendan og kynntu þér nýja, glæsilega valkosti á Kanarí í vetur.
Bókaðu strax og tryggðu þér sæti meðan enn er laust.
w TURAVIA
air europa
V/SA
mammm
Brottfarir:
18. desember
6. janúar
26. janúar
16. febrúar
9. mars
23. mars
Flugvallaskattar og forfallag|ald
fullorðinna kr. 3.630 barna kr. 2.375
18. des. - Jólaferð
Verð kr. 59.800,-
pr. mann m.v. hjón meö 2 börn, 2—14 ára.
Las Isas.
Verð kr. 75.200,"
pr. mann m.v. 2 í íbúð. Las Isas.
6. jartúar - 20 dagar
Verð kr. 42.300,"
pr. mann m.v. hjón með 2 börn. 2-14 ára,
Turbo Club.
Verð kr. 59.700,"
pr. mann m.v. 2 í íbúð, Turbo Club.
16. febrúar
Aðeins 8 sæti laus
HEIMSFERÐIR hf.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600
Leynifundur kínverskra kommúnista
Umbótaáætlun í
efnahagsmálum
Peking. The Daily Telegraph.
KÍNVERSKI kommúnistaflokkurinn kynnti á sunnudag nýja um-
bótaáætlun, sem ætlað er að umbylta úreltu banka- og skattakerfi
í Kína og varða nýja leið fyrir efnahagslífið. Var áætlunin, sem
kallast „sósíalískur markaðsbúskapur", samþykkt á leynilegum fundi
miðstjórnar flokksins.
Að sögn fréttastofunnar Nýja
Kína eru meginatriði áætlunarinnar
10 og snúast um umbætur í ríkis-
kerfinu, í banka-, skatta-, félags-
og réttarfarsmálum og hvað varðar
opinbera áætlanagerð, fjárfesting-
ar, utanríkisverslun og landbúnað.
í leiðara flokksmálgagnsins, Dag-
blaðs alþýðunnar, sagði, að áætlun-
in væri „stórkostleg brú yfir á
næstu öld“ og sagt var, að mið-
stjórnarfundurinn hefði haldið „hátt
á loft merki Dengs Xiaopings og
kenningum hans um sósíalisma á
kínverskum forsendum".
Ný lýðræðissamtök
Um helgina var einnig skýrt frá
því, að hópur manna í Peking hefði
stofnað samtök til að beijast fyrir
fjölflokkakerfi í Kína. Heita þau
„Friðarskráin“ og í yfirlýsingu frá
þeim segir, að hröð efnahagsþróun
í landinu krefjist þess, að tekið verði
upp lýðræðislegt fjölflokkakerfi, að
öðrum kosti sé hætta á, að breyting-
arnar leiði til upplausnar og ofbeld-
is. Kínverskur almenningur var þó
hvattur til að vinna með kommún-
istaflokknum en einnig var skorað
á yfirvöld að virða alþjóðlegar sam-
Þvottavélar
á verði
sem allir
ráða við!
Þær nota
HEITT OG KALT vatn
- spara tíma og rafmagn
•Fjöldi þvottakerfa eftir
þínu vali
•Sérstakt ullarþvottakerfi
•Fjölþætt hitastilling
•Sparnaðarrofi
•Stilling fyrir hálfa hleðslu
Verð 52.500,-
49.875,- Stgr.
L85-800 sn. vinda.
Verð 57.500,-
54.625,- Stgr.
(D
ffét Offi
munXlán
Heimilistæki hff
SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 00 . FAX 69 15 55
þykktir um mannréttindi.
Félagar í samtökunum eru sumir
þeir sömu og tóku þátt í mótmælun-
um á Torgi hins himneska friðar
1989 en þau voru bæld niður af
mikilli hörku. Ætla samtökin að
hefla undirskriftasöfnun til stuðn-
ings markmiðum sínum.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraur
Kopavogi, sími
571800
Honda Civic CRX ’88, hvítur, 5 g., ek. 78
þ., rafm. í rúðum, sóllúga o.fl. V. 760 þús.,
sk. á ód.
MMC Colt EXE ’88, hvítur, 5 g., ek. 82
þ., spoiler o.fl. V. 420 þús.
Toyota Corolla XL '88, steingrár, 4 g.,
ek. 78 þ. V. 520 þús. stgr.
Hyundai Pony XL 1.3 Sedan '92, hvítur,
5 g., ek. 37 þ. V. 670 þús. stgr.
Toyota Landcruiser turbo diesel '87, 5
g., ek. 129 þ., 38“ dekk, driflæsingar o.fl.
Toppeintak. V. 2 millj.
Toyota Corolla Lift Back 1.6 XL '92, 5
g., ek. 27 þ., hvítur. V. 1080 þús.
Fjörug bflaviðskipti
Vantar á skrá og á staðinn
góða bíla, helst skoðaða '94.
Ath.: Bón og þvottur á staðnum.
Suzuki Swift GA '89, blár, 5 g., ek. 70 þ.
V. 390 þús. stgr.
Lada station '88, drapplitaður, 5 g., ek.
52 þ. V. 190 þús.
Honda Accord EX '91, sjálfsk., ek. 30 þ.,
grásans, rafm. í rúðum, spoiler, cent. o.fl.
V. 1490 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX '90, hvítur, 5 g., ek.
51 þ., rafm. í rúðum, spoiler, álfelgur,
cent. V. 850 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla GLi Sedan '93, rauður, 5
g., ek. 18 þ., rafm. í rúðum, cent. V. 1250
þús., sk. á ód.
Lada Sport, '90, 5 g., ek. 36 þ. V. 450 þús.
Daihatsu Cuore ’88, rauður, sjálfsk., ek.
55 þ., 4ra dyra. V. 290 þús.
Isuzu-Crew Cap 4x4 diesel ’90,4ra dyra,
m/húsi, ek. 62 þ. V. 1390 þús.
Nissan King Cap 4x4 m/húsi ’90, 5 g.,
ek. 59 þ. V. 1250 þús.
Ford Econoline 250 4x4 '90, sjálfsk., ek.
40 þ., breytt drifhlutföll o.fl. V. 2.2 millj.
BILAR A TILB0ÐSVERÐI:
Lada 1500 station ’92, 5 g., ek,
32 þ. V. 490 þús.
Tilboðsverð: 390 þús. stgr.
Honda Prelude ’85, 5 g., ek. 125
þ., sóllúga, spoiler. V. 480 þús.
Tilboðsverð: 330 þús. stgr.
MMC Colt QL ’90, 5 g„ ek. 69 þ.
V. 690 þús.
Tilboðsverð: 600 þús. stgr.
Toyota Corolla Liftback '88,
sjélfsk., ek 98 þ. V. 630 þus.
Tilboðsverð: 520 þús. stgr.
Mazda GLX 1500 5 g„ ek. 129 þ„
5 dyra. Gott eintak. V. 370 þus.
Titboðsverð: 290 þús. stgr.