Morgunblaðið - 16.11.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993
33
Einkavæðing Tele Danmark
erfið ífæðingu
EINKAVÆÐING Tele Danmark, danska símafélagsins, ætlar að reyn-
ast snúnari en talið hafði verið og það er með öllu óvíst, að hún
gangi hljóðalaust fyrir sig. Það er aðallega pólitíkin, sem vefst fyr-
ir mönnum, en fyrirhugað var að hefja einkavæðinguna á fyrri helm-
ingi næsta árs með því að minnka hlutafjáreign ríkisins úr 93,7% í
51%. Var áætlað, að hlutafjársalan gæti fært fyrirtækinu 30 miHj-
arða isl. kr.
Tele Danmark er tiltölulega ungt
félag en það var stofnað með samein-
ingu þriggja landshlutafélaga, síma-
félaganna í Kaupmannahöfn, Jót-
landi og I'jóni, og ríkissímafélagsins,
sem annaðist millilandasímtöl. A síð-
asta ári velti Tele Danmark 164
milljörðum ísl. kr., hagnaður fyrir
skatt var rúmir 14 milljarðar, eignir
voru metnar á 285 milljarða og eigið
fé var 77 milljarðar.
Lög um einkavæðingu Tele Dan-
mark á að leggja fyrir þingið fyrir
jól en það eru einkum tveir þröskuld-
ar í vegi fyrir sölunni.
Sá fyrri er rannsókn fram-
kvæmdanefndar Evrópubandalags-
ins, EB, á skilmálum sölunnar. Grun-
ur leikur á, að fyrirkomulagið — að
fyrirtækið kaupi í raun hlutabréfín
af rikinu á undirverði en selji aftur
með verulegum hagnaði — feli í sér
dulda niðurgreiðslu frá ríkinu.
Það er svo aftur spurning hvaða
augum erlendir fjárfestar líti fyrir-
tækið. Eiginfjárhlutfallið er 27% en
á móti kemur, að í reikningsuppgjöri
Tele Danmark er hvergi getið lífeyr-
isskuldbindinga upp á 84 milljarða
ísl. kr. „Þetta er tímasprengjan, sem
tifar undir Tele Danmark," segir
Todd Johnson, bandarískur fjármála-
ráðgjafi með aðsetur í Kaupmanna-
höfn. Johnson bendir á, að sam-
kvæmt bandarískum bókhaldsregl-
um verði að geta lífeyrisskuldbind-
inga. Sé þeirri reglu beitt gagnvart
Tele Danmark komi í ljós, að eiginfj-
árhlutfall þess er neikvætt.
Þótt Tele Danmark sé að mestu
leyti í eigu ríkisins eru meðal hlut-
hafa einkaaðilar, sem keypt hafa
hlut í von um hagnað verði fyrirtæk-
ið einkavætt. Tilvist þeirra hefur hins
vegar þvælst mjög fyrir pólitíkusun-
um og fyrri tilraunir til einkavæðing-
ar strönduðu á því, að ríkið krafðist
ævarandi réttar til að leysa til sín
hlutabréf í einkaeigu á genginu 1,25
og takmarka arðgreiðslur við 10%.
í staðinn fyrir þetta hefur danska
stjómin lagt fram nýja og mjög
flókna áætlun. Samkvæmt henni á
Tele Danmark að geta nálgast nýtt
fjármagn og komið um leið í veg
fyrir, að einkaaðilarnir hagnist. Fyr-
irtækið á að kaupa 42,7% hlutinn,
sem ríkið ætlar að selja, og leysa til
sín hlut einkaaðilanna fyrir 170 dkr.
hvern en það var markaðsverð Tele
Danmark í júní sl. Síðan á fyrirtæk-
in að færa niður hlutafé sitt um það
sama og nemur kaupunum og gefa
út nýjan hlutabréfaflokk, sem aftur
hafí sama verðgildi og hlutabréfin,
sem voru færð niður. Verða þessi
nýju bréf flokkuð sem B-bréf.
B-bréfin verða seld á almennum
markaði en þegar Tele Danmark
hefur keypt þau fyrir 170 dkr. og
selt þau fyrir 500 kr. eða meira þá
er ekki nema von, að ásakanir komi
fram um beinan ríkisstyrk. Þetta
mál er nú til umfjöllunar hjá fram-
kvæmdastjórn Evrópubandalagsins
og er niðurstöðunnar beðið með mik-
illi eftirvæntingu í Danmörku.
' Morgunblaðið/Silli
NÝIR EIGENDUR — Sólrún Hansdóttir og Sigurður Frið-
riksson.
Veitingarekstur
Eigendaskipti
á Bakkanum
Húsavík
Bakkinn, skyndibitastaður með vínveitingaleyfi á Húsavík, hefur
nú skipt um eigendur og hafa hjónin Sólrún Hansdóttir og Sig-
urður Friðriksson keypt staðinn af Astu Ottesen sem rekið hef-
ur hann í nokkur ár.
Veitingastaðurinn er á Garð-
arsbraut 20, í húsi sem upphaf-
lega var byggt 1934 og þá rekin
þar skó- og fatabúð og síðar
aðrar verslanir, en á níunda ára-
tugnum var byggt við húsið og
hafinn þar veitingarekstur. Nýju
eigendurnir segjast munu reka
þetta í svipuðu formi og verið
hefur en þó fylgir alltaf nýjum
herrum nýir siðir.
- Fréttaritari.
Gríptu - meðan það gefst:
N óvemb ertilboð
WáVVA 486/33DX Local BUS
t------ með öflugum búnaði
T
fp
— á ald(
200 MB diskur
4 MB innra minni
256K cache
14" SVGA lággeisla litaskjár
S31Mb skjáhraðall
2 raðtengi, 1 hliðtengi og leikjatengi
DOS 6.2, Windows 3.1 og mús
á aldeilis ótrúlegu verði:
Aðeins 139.966.- Kr stgr
Greiðsluskilmálar Glitnis,
E
Komdu í verslun okkar eða hringdu í sölufólkið
og fáðu nánari upplýsingar.
EINAR J. SKÚLASON HF
Grensásvegi 10, 108 Reykjavík, Sími 63 3000.
VJS / VJOiSVDNItylDOV flN ? IJH