Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.11.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1993 39 ■+ Jakobína Bjarna- dóttir - Minning Fædd 5. október 1906 Dáin 6. nóvember 1993 Hún Bína mín er dáin, háöldruð á áramælikvarða, en hún var ung í anda og á þeim aldri sem viðmæl- andinn var. Hún þekkti ekki kyn- slóðabil frekar en hégóma eða til- gerð og hún var afskaplega hrein- skiptin og heiðarleg. Svo hafði hún hlýjasta hjartað af öilum þessum góðu konum í Vesturbænum og ekki síst átti hún ómældan sjóð af hnausþykkum brauðsneiðum sem hún var óspör á að stinga að okkur krökkunum. Hún átti hjartahlýju sem ég lærði betur að meta þegar ég fór að eldast. Hún sagði mér nýlega að þegar hún var bam fyrir vestan átti hún kött og á heimilinu voru líka hundur og hænsni og þeg- ar hún fór í skólann fylgdu henni úr hlaði kisan, hundurinn og haninn sem rak lestina, þau vissu hvaðan gott kom. Bína var hluti af ævi minni alveg frá fyrsta minni og aldrei féll skuggi á í rúm fimmtíu ár. Hún var hluti af Vesturbæjarkoppaklúbbnum sem samanstóð af konum búandi við Vesturvallagötu, Holtsgötu og Brekkustíg sem tóku sig saman einu sinni á sumri og leigðu rútu til að skreppa út úr bænum. Þegar ég hringdi í hana fyrir einum og hálfum mánuði til að tilkynna henni lát móður minnar beygði hún af og sagði að nú væru þær allar farnar þessar góðu vinkonur úr Vestur- bænum. Ég hef þá trú að þær séu allar saman að ylja sér við skemmti- legar minningar. Ég á eftir að sakna símtalanna okkar Bínu og ég fínn að það fer hluti af manni með öllum sem fara, sem manni hefur þótt vænt um. Elsku Palli, Lilla og Baddi og aðrir aðstandendur, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. \ Elsku Bína mín, far þú í Guðs friði og þökk fyrir allt. Guðrún Siguijóns. Þeim fækkar óðum, sem áttu bernsku sína í upphafi þessarar ald- ar og nú hefur kvatt ein besta vin- kona mín úr þeim hópi eftir langa og á köflum erfíða starfsævi. Þegar ég nú sest niður og minnist þessarar sæmdarkonu, sem ég hélt að ég vissi allt um, verður mér ljóst, að ég veit næsta lítið um ættir hennar og upp- runa nema hvað hún var að vestan og átti sín fyrstu ár á Patreksfirði. Ég veit þó, að hún tilheyrði þeim hópi íslendinga, sem kynntust mold- argólfinu í uppvextinum og að hún hafði tæplega slitið barnsskónum, er hún var komin í fulla og erfiða vinnu í þeirri lífsbaráttu, sem flestir af hennar kynslóð komust ekki hjá. Og mér er til efs, að henni hafi síð- an nokkurn tíma fallið verk úr hendi fyrr en nú hin síðari ár, er tímans tönn hafði sett sitt mark á stoðkerfi hennar og sjón. Mér virtist hún a.m.k. alltaf vera að, þegar fundum okkar bar saman á liðnum meira en 50 árum. Það má ekki skilja mig svo, að Bína hafi ekki gefið sér tíma til þess að lesa og spjalla, síður en svo. Hún var hafsjór af fróðleik um menn og málefni, fylgdist vel með öllu, sem gerðist nær og fjær, hún var stálm- innug og vel greind. Já, hún hafði gaman af að ræða hin margvísleg- ustu mál en aldrei heyrði ég hana tala illa um nokkurn mann. Þvert á móti fannst mér hún gera sér far um að skýra það og afsaka í fari fólks, sem mörgum þótti miður fara. Hún var á sinn hátt í raun mikill heimspekingur en nú verður því miður ekki lengur sóttur fróðleikur eða skemmtun í hennar brunn. Þó ég hafi ekki vitað nema fátt eitt um Bínu, ættir hennar og upp- runa, þá finn ég samt nú, að ég vissi raunar allt um hana. Því að sú hlýja og það viðmót, sem ég mætti hjá henni aðeins nokkurra ára gamall og ævinlega síðan hefur sagt mér allt um hana, sem skiptir máli. Ég fæ aldrei þakkað að fullu fyrir þá vinsemd, er hún sýndi mér, aldrei þakkað fyrir öll þau ótal skipti, sem ég fékk að koma inn í hlýjuna hjá henni og finna til öryggis að ógleymdum öllum þeim bitum, er hún gaf mér í svanginn. í mínum huga er fallin mikilhæf kona, sem fór í gegnum lífið með reisn, bar sig aldrei illa eða kvart- aði, reyndi ávallt að gera gott úr öllu því, sem miður fór og var alltaf góður leiðbeinandi. Hún var jafn mild í dómum sínum eins og hún var staðföst og réttlát. Hún var af- rekskona. Blessuð sé minning hennar. Isak G. Hallgrímsson. Hún elsku amma okkar er látin. Þessi yndislega og góða kona fékk loksins hvíldina. Bína amma var sterk kona, með mikinn baráttuvilja, lífsglöð og hrók- ur alls fagnaðar hvar sem hún kom. Hún átti marga vini og ekki má gleyma þeim eiginleika sem mest bar á, umhyggjuseminni. Það var sá þáttur í hennar fari sem við barnabörnin fundum hvað mest fyr- ir. Ávallt þegar leið okkar lá á Hring- brautina og síðar á Litlu-Grund, var spurt um líðanina, þrátt fyrir að hún sjálf þjáðist af miklum kvölum í mjöðminni. En hún kvartaði sjaldan, því að þannig var hún amma. Amma tók mikinn þátt í lífi okk- ar, hlustaði með mikilli athygli á okkur og ráðlagði okkur ávallt heilt. Hún hafði frá mörgu að segja og var minni hennar slíkt að undrun sætti. Sögur hennar voru svo skemmtilegar að fólk og staðir urðu ljóslifandi í hugskotum okkar. Eftirlifandi eiginmaður ömmu er Páll Guðbjartsson en þau bjuggu saman í um 60 ár. Þau eignuðust tvö börn, Guðbjart og Ingu Valdísi. Guðbjartur, fæddur 24. september 1935, giftist Nítu Pálsson og eiga þau dæturnar Helenu og Kristínu, . Inga Valdís, fædd 24. september 1937, giftist Ingibergi B. Þorvalds- syni, en hann lést fyrir rúmu ári. Þau eignuðust þrjár dætur, Jakob- ínu, Astu Brynju og Kolbrúnu. Barnabarnabörnin eru orðin sex að tölu. Það er ljóst að mikið skarð hefur verið rofið í fjölskylduna við fráfall Bínu ömmu. Þessi hláturmilda kona fór í gegnum lífið af mikilli bjart- sýni og góðmennsku og leikur eng- inn vafi á að vel hefur verið tekið á móti henni í andans heimi. Elsku amma, Guð geymi þig og við þökkum þér samveruna. Dótturdætur. Innheimta Kristín Einarsdóttir, Kvenfélagi Hallgrímskirkju. „Nú er einfalt að vera gjaldkeri því innheimta féJagsgjaldanna fer öll í gegnum Félagasjóð. Við fáum yfirlit mánaðarlega og ársreikning um áramót.“ Innheimta félagsgjalda Greiðsluþjónusta Yfirlit yfir félagsgjöldin Rekstrarreikningur árlega Bókhaldsmappa í kaupbæti L Lapdsbanki íslands Banki allra landsmanna • •
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.