Morgunblaðið - 20.01.1994, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994
KÖRFUKNATTLEIKUR
Rondey
stiga-
hæstur
ÚRVALSDEILDIN í körfuknatt-
leik hefst á nýjan leik í kvöld
eftir langt jólafrí. Flestir leik-
menn hafa nú leikið fimmtán
leiki með iiðum sínum og því
er ekki úr vegi að athuga nokk-
uð hvernig menn hafa staðið
sig samkvæmt tölulegum upp-
lýsingum Körfuknattleikssam-
bandins.
Rondey Robinson hjá Njarðvík
hefur gert flest stig í deild-
inni, 421 í 15 leikjum og er með 28
stig að meðaltali í leik. Franc Boo-
ker úr Val.er hins vegar með flest
stig að meðaltali í leik, hefur gert
374 stig í 12 leikjum eða 31,1 að
meðaltali. Athygli vekur að enginn
íslendingur er meðal fimm efstu
þegar meðalskorið er skoðað en stór-
skytturnar Kristinn Friðriksson úr
Keflavík og Bárður Eyþórsson úr
Snæfelli hafa báðir gert 310 stig og
eru í 5.-6. sæti hvað það varðar en
þeir hafa hins vegar báðir gert 20,6
stig að meðaltali og eru því ekki
langt á eftir. Tveir erlendir leikmenn
sem báðir eru famir af landi brott,
Dwayne Price, ÍA, og Chip Entw-
istle, Snæfelli, hefðu verið á lista
yfír fímm efstu hvað varðar meðal-
tal, en þeir voru báðir með 21,7 stig
að meðaltali þegar þeir voru látnir
fara, eða 283 stig.
Lárus Dagur Pálsson frá Sauðár-
króki er hittnastur fyrir utan þriggja
stiga línuna. Hann hefur 52,83%
nýtingu og gerir tvær þriggja stiga
körfur að meðaltali í leik. Alls hefur
hann gert 28 þriggja stiga körfur
eða 84 stig. Einar Einarsson úr ÍA
og Henning Henningsson úr Skalla-
grími hafa gott meðaltal en komast
samt ekki á „topp 5“ hvað varðar
nýtingu. Einar með 2,9 körfur að
meðaltali og 39,81% nýtingu og
Henning 2,6 körfur og 39,39% nýt-
ingu. Alexander Ermolinskij er eini
erlendi leikmaðurinn sem kemst á
„topp 10“ í þessum flokki, er með
44,44% nýtingu og 1,1 körfu að
meðaltali í leik.
Enginn leikmaður kemst á „topp
5“ í skotum utan og innan teigs, en
Guðni'Guðnason úr KR er sá eini sem
er á „topp 10“ á báðum listum, með
66,10% nýtingu innan teigs og
41,30% utan teigs. Keflvíkingar nýta
skot sín vel innan teigs og eru í þrem-
ur efstu sætunum auk þess sem Jón
Kr. er í tíunda sæti. lÓt-ingar eiga
einnig þijá menn af efstu fimm á
lista yfír bestu nýtingu utan teigs.
Vítahittni leikmanna er ekki eins
góð og í fyrra. Þá var besti maður
með 91% nýtingu og fimmti maður
með 82% en núna er efsti maður
með 81,54% nýtingu og fimmti mað-
ur með 78,0%.
Eins og undanfarin ár er Jón Kr.
Gíslason, þjálfari og leimaður ÍBK,
með flestar stoðsendingamar það
sem af er. Franc Booker hjá Val
hefur reyndar örlítið hærra meðaltal
Köpfubolflnn
í tölum
VILLUR (meðalt. í leik)
Birqir Mikaelsson, UMFS 3,9
Siq. Elver Þórólfsson, UMFS 3,7
Raqnar Þ. Jónsson, VAI 3,7
Nökkvi Már Jónsson, UMFG 3,6
Robert Buntic, UMFT 3,5
1 SKOT UTAN VÍTATEIGS
skot/hitt nýting
Davíð Grissom, KR 126/60 48%
Wayne Casey, UMFG 62/29 47%
Birqir Mikaelsson, UMFS 47/21 45%
Guðni Guðnason, KR 46/19 41%
Flermann Hauksson, KR 56/22 39%
SKOT INNAN VITATEIGS
skot/hitt
FRÁKÖST (meðalt. í leik)
John Rhodes, Haukum___________
Rondey Robinson, UMFN
Robert Buntic, UMFT
Guðmundur Bragason, UMFG
Alexander Ermolinskij, UMFS
ÞRIGGJA STIGA KORFUR
skot/hitt nýting
STIGASKOR (meðalt. í leik)
Franc Booker, Val 31,1
Rondey Robinson, UMFN 28,0
Wayne Casey, UMFG 25,0
Robert Buntic, UMFT 21,5
1 Jonathan Bow, IBK 21,1
Albert Óskarsson, ÍBK 83/62 75% Lárus Daqur Pálsson, UMFT 53/28 53%
Jonathan Bow, ÍBK 155/109 70% Bryn|ar Karl Siqurðsson, Val 50/25 50%
Kristinn Friðriksson, IBK 83/58 70% Berqur Emilsson, Val 35/17 49%
Rondey Robinson, UMFN 251/174 69% Wayne Casey, UMFG 57/26 46%
Alexander Ermolinskij, UMFS 102/70 69% Kristinn Friðriksson, IBK 92/41 45%
i STOÐSENDINGAR
leikir meðalt.
Franc Booker, Val 69 12 5,7
Jón Kr. Gíslaosn, ÍBK 85 15 5,6
Siq. Elver Þórólfsson, UMFS 70 14 5,0
Jón Arnar Ingvarsson, Haukum 65 14 4,6
Friðrik Ragnarsson, UMFN 66 15 4,4
BOLTA TAPAÐ
leikir meðalt.
Birqir Mikaelsson, UMFS 67 15 4,4
Franc Booker, Val 50 12 4,1
John Rhodes, Haukum 61 15 4,0
Bárður Eyþórsson, Snæfelli 52 15 3,4
Robert Buntic, UMFT 47 14 3,3
BOLTA STOLIÐ
leikir meðalt.
Sverrir Sverriss., Snæfelli 60 15 4,0
Franc Booker, Val 44 12 3,6
Teitur Örlygsson, UMFN 52 15 3,4
Jón A. Ingvarss., Haukum 47 14 3,3
Birgir Mikaelsson, UMFS 47 15 3,1
VITAHITTNI
skot/hitt nýting
Kristinn Friðriksson, ÍBK 65/53 82%
Davíð Grissom, KR 59/48 81%
Birgir Mikaelsson, UMFS 99/79 80%
Kristinn Einarsson, Snæfelli 69/54 78%
Henning Henningsson, UMFS 50/39 78%
Morgunblaðið/Júlíus
Rondey Robfnson hefur leikið vel með Njarðvíkurliðinu.
en Jón, 5,7 stoðsendingar að meðal-
tali á móti 5,6. En Jón hefur 85 sinn-
um gefið þannig á félaga sína að
þeir þurfi aðeins að leggja knöttinn
í körfuna. Rétt er að geta þess að
Páll Kolbeinsson, UMFT, er með 4,4
stoðsendingar að meðaltali eins og
Friðrik Ragnarsson en sá síðar-
nefndi hefur átt 66 sendingar í 15
leikjum en Páll 53 í 12 leikjum.
í fráköstunum er John Rhodes hjá
Haukum að vanda sterkur. Hann
hefur tekið 90 sóknarfráköst og 193
í vörninni, eða alls 283 og það gerir
18,81 að meðaltali í leik. Guðmund-
ur Bragason er eini Islendingurinn
á „topp 5“ með 184 fráköst og 12,2
að meðaltali. Vesturlandsleikmenn-
irnir, Entwistle og Price hefðu báðir
verið ofarlega ef félög þeirra hefðu
talið þörf á að hafa þá áfram, en
Entwistle hafði tekið 166 fráköst,
12,7 að meðaltali, og Price 150 eða
11,5 að meðaltali.
Birgir Mikaelsson, leikmaður og
þjálfari Skallagríms er á fimm listum
og hefur þegar verið rætt um tvo
þeirra, vítahittni og skot utan teigs.
Birgir hefur oftast tapað boltanum,
eða 67 sinnum en það gerir 4,4 sinn-
um að meðaltali í leik. Hann er í
5. sæti yfir þá sem oftast „stela“
boltanum af mótheija, hefur gert
það 47 sinnum eða 3,1 sinni að
meðaltali. Birgir er einnig í efsta
sæti hvað varðar villur, þær hefur
hann fengið 59 sinnum eða 3,9 villur
að meðaltali í leik.
■ ÁSTA S. , Halldórsdóttir,
skíðakona frá Isafirði, keppti í
alþjóðlegu stigamóti í svigi í
Casterotto á Italíu í gær. Hún
varð í 37. sæti af 110 keppendum
og bætti sig stigalega. Hún átti
áður best 135 stig en fékk 77
stig fyrir árangurinn í gær. Hún
keppir aftur í risasvigi á sama
stað í dag en síðan heldur hún
til Maribor í Slóveníu þar sem
hún verður á meðal keppenda í
heimsbikarmóti í svigi á laugar-
dag.
I ÁSTA er númer 76 í svigi á
nýjasta styrkleikalista Alþjóða
Skíðasambandsins (FIS), sem
þýðir að hún er 76. besta svig-
kona heims. Hún er með 24,25
stig og startar því í fyrsta rás-
hópi í Evrópubikarmótum, sem
er næst á eftir heimsbikarmótum
í styrkleika. Þetta er í fyrsta sinn
sem íslendingur kemst svo ofar-
lega á FlS-listanum.
Foster til ÍBK fyrir Bow
Jonathan Bow, bandaríski körfu-
knattleiksmaðurinn sem leikið
hefur með Keflvíkingum í úrvals-
deildinni þrjú síðustu árin, var í gær
látinn fara frá félaginu. Ástæðan
er hegðunarvandamál utan vallar.
Landi hans, Reymond Foster, sem
lék með Tindastóli um tíma í fyrra,
tekur stöðu Jonathans í liðinu og
spilar líklega fyrsta leik sinn í kvöld
með ÍBK gegn Skallagrími.
Jón Kr. Gíslason þjálfari ÍBK
sagði að þeir hefðu verið tilneiddir
að taka þessa ákvörðun. „Menn geta
ekki leyft sér hvað sem er. Við vor-
ara búnir að aðvara hann oftar en
einu sinni og það dugði ekki og því
var ekkert annað að gera þó það sé
erfitt svona rétt fyrir bikarúrslita-
leikinn gegn Njarðvík. Við lítum á
þessa leikmenn sem atvinnumenn
og þeir eru það. Þeir eru ekki í vinnu
frá klukkan átta ti'i fimm. Þeir eru
andlit félagsins útávið allan sólar-
hringinn,“ sagði Jón.
Bow hefur leikið hér á landi síðan
1989 er hann kom til Hauka og lék
eitt tímabil. Árið eftir fór hann yfir
í KR og varð bikarmeistari með fé-
laginu. Síðan lá leiðin til Keflavíkur
og þar hefur hann leikið tvö undan-
farin keppnistímabil og orðið tvíveg-
is íslandsmeistari og einu sinni bik-
armeistari með félaginu. Hann lék
131 leik fyrir ÍBK og gerði í þeim
2.761 stig, sem er 21 stig að meðal-
tali í leik. „Við sjáum eftir honum
sem leikmanni. Hann hefur gert
góða hluti fyrir okkur hér í Kefla-
vík,“ sagði Jón Kr. þjálfari.
„Það er mjög leiðinlegt að enda
ferilinn hjá ÍBK á þennan hátt. Ég
átti satt að segja ekki von á þessu
og veit ekki hvort ég verðskulda
þessa meðferð," sagði Jonathan Bow
við Morgunblaðið. „En það hefur
verið ákveðið vandamál í gangi —
félagið hefur ekki verið sátt við mig
og ég ekki við félagið. En ég óska
Keflvíkingum alls hins besta í fram-
tíðinni. Ég reikna með að vera hér
á íslandi í tvær til þijár vikur og
vera með dóttur minni, en fara síðan
til Bandaríkjanna og reyna að kom-
ast að hjá liði í Evrópu. Annars er
ég opinn fyrir öllu og ef íslenskt lið
sýndi mér áhuga myndi ég skoða
það gaumgæfilega."
Nýji leikmaðurinn Reymond Fost-
er átti að koma til landsins í dag
og sagðist Jón Kr. reikna með að
nota hann gegn Snæfelli í kvöld.
Foster er 2.06 metrar á hæð og
gerði 30 stig að meðaltali í leik með
Tindastóli í fyrra. Hann lék í CBA-
deildinni bandarísku fyrir áramót og
ætti því að vera í góðri æfingu.
Reymond Foster inun taka stoou
Jonathans Bows hjá ÍBK strax í leikn-
um gegn Snæfelli í úrvalsdeildinni í
kvöld. Foster er 2.06 metrar á hæð
og lék í fyrra með Tindastóli.