Morgunblaðið - 02.02.1994, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
Atvinnuleysisdagar yfir 17 þúsund í janúar
Tæplega 700 manns
á atvinnuleysisskrá
ALLS komu 1.172 inn á atvinnuleysisskrá á Akureyri í janúarmán-
uði, en skráðir atvinnuleysisdagar voru 17.321 talsins og hafa aldrei
verið jafn margir. Um nýliðin mánaðamót voru tæplega 700 manns á
atvinnuleysiskrá, en fækkað hefur um rúmlega 300 manns á skránni
eftir að vinna hófst að nýju í frystihúsi Útgerðarfélags Akureyringa
og hjá Strýtu hf.
Sigrún Björnsdóttir, forstöðumað-
ur Vinnumiðlunarskrifstofunnar á
Akureyri, sagði að atvinnuleysistölur
hefðu farið hækkandi frá því í nóv-
ember þegar 465 manns voru skráð-
ir atvinnulausir og á tímabilinu frá
byijun desember til loka janúar hefði
10% atvinnuleysi verið viðvarandi í
bænum.
Yfir 17 þúsund
atvinnuleysisdagar
Alls voru 686 manns skráðir at-
vinnulausir um nýliðin mánaðamót,
en í mánuðinum komu alls til skrán-
ingar tæplega 1.200 manns. At-
vinnuleysisdagar fóru vel yfir 17
þúsund í nýliðnum mánuði. Á sama
tíma á síðasta ári voru 523 skráðir
atvinnulausir og var þá það mesta ■
sem sést hafði fram til þess tíma.
Atvinnulausir karlar voru nokkru
fleiri en konur, eða 399 á móti 287.
Mest atvinnuleysi er meðal félags-
manna í Einingu, en þar eru um 300
manns atvinnulausir, þá eru um 100
Iðjufélagar á atvinnuleysiskrá og
117 úr Félagi verslunar- og skrif-
stofufólks. Unl 80 iðnaðarmenn eru
skráðir atvinnulausir.
Átaksverkefni
Nýtt átaksverkefni hófst í gær
og verður fólk ráðið til starfa í vik-
unni, en alls var veittur styrkur til
að veita 60 manns atvinnu í tvo
mánuði. Fólkið mun starfa við ýmsar
stofnanir bæjarins eins og verið hef-
ur í fyrri verkefnum af þessu tagi.
Selir við ósa
SELIR hafa haldið sig við ósa Eyjafjarðarár síð-
ustu daga, en nokkuð skiptar skoðanir eru með-
al manna um ágæti veru þeirra þar. Áhugamenn
um stangveiði vilja vernda ósasvæðið og hrekja
selinn á brott, enda telja þeir fullvíst að hann
liggi í ungfiskinum sem þarna er. Svo eru aðrir
sem hafa yndi af því að fylgjast með selunum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Eyjafjarðarár
og þykir sjálfsagt að hann úði í sig fiski. Óvíst
er hvort hrafnarnir tveir sem í gærmorgun
gerðu selum gramt í geði hafi áhuga stang-
veiði, en þeir gerðu að minnsta kosti sitt besta
til að hrekja þá burt, en selurinn á myndinni sá
sitt óvænna og stakk sér ofan í vök eftir atgang
hrafnanna.
Samkomulag ríkissjóðs og bæjarsljórnar um Hitaveitu Akureyrar
Staða veitunnar betri og
gjaldskrá lækkar um 5%
GJALDSKRÁ Hitaveitu Akur-
eyrar verður lækkuð um 5% og
var samþykkt á fundi sljórnar
veitunnar nýlega að Iækkunin
gildi frá 1. janúar síðastliðnum.
Samkomulag hefur verið sam-
þykkt milli rikissjóðs og bæjar-
stjórnar Akureyrar um framleng-
inu samnings frá árinu 1987 varð-
andi skuldastöðu Hitaveitu Akur-
eyrar, en ríkisstjórnin samþykkti
samkomulagið á fundi í gærmorg-
un.
Franz Ámason veitustjóri sagði
Morgunblaðið/Rúnar Þór
FIÐLARINN býður upp á Prime-
Rib-steik á fimmtudagskvöldum
fram á vor, á myndinni eru frá
vinstri Einar Sigurðsson, Snæ-
bjöm Kristjánsson og Friðrik V.
Karlsson í óða önn að afgreiða
steikina.
Prime Rib á
Fiðlaranum
Á veitingastaðnum Fiðlaranum
verður boðið upp á Prime-Rib-
steik öll fimmtudagskvöld fram á
vor.
Tilgangurinn er að sögn Snæ-
björns Kristjánssonar, eins eigenda
Fiðlarans, að lengja helgina og þá
væri ætlunin að breyta ímynd stað-
arins hvað þessi kvöld varðar. Marg-
ir teldu sig ekki geta sótt staðinn
nema uppáklæddir, en á fimmtu-
dagskvöldum gæti fólk eftir sem
áður átt góða kvöldstund á veitinga-
staðnum þó það væri ekki í sínu fín-
asta pússi. Þá sagði Snæbjörn að
ætlunin væri að bjóða steikurnar á
hagstæðu verði og nefndi að Fiðlar-
inn væri aðili að Einkaklúbbnum og
meðlimir í þeim klúbbi greiða eitt
gjald fyrir tvo.
Samningur í tvíburatrolldeilunni
Hækka um 0,5%
SJÓMENN á Margréti EA og Jó-
hanni Gíslasyni ÁR fá 0,5% hækk-
un á skiptapróséntu eftir að samn-
ingar tókust í deilu Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar og Samherja hf.
Ágreiningur var milli aðila um
uppgjör til sjómanna á þessum
skipum, en þau stunda svokallaðar
tvíburatrollveiðar.
í samningunum felst að sjómenn
fá 32,3% hlut til skiptanna miðað við
28 menn í áhöfn og er það 0,5%
hækkun frá því sem var áður. Samn-
ingurinn gildir til 4. júní næstkom-
andi, en þá rennur hann út án upp-
sagnar. Verði á tímibilinu gerður
samningur milli Sjómannasambands
íslands og Landssambands íslenskra
útgerðarmanna kemur hann í stað
þessa samnings.
Þokkalega sáttur
„Auðvitað vill maður alltaf sjá
hærri tölur, en ég held við séum
þokkalega sátt við þessa niðurstöðu
og þá kannski ekki síst að Samheija-
menn hafa lýst því yfir að þeir muni
við fyrsta tækifæri koma þeim mann-
skap í pláss sem ekki hefur enn feng-
ið vinnu," sagði Konráð Alfreðsson
formaður Sjómannafélags Eyjafjarð-
ar, en öðru af tveimur skipum Sam-
herja sem verið hafa á tvíburatroll-
veiðum, Oddeyrinni EA, hefur verið
lagt tímabundið.
að á árinu 1987 hefði verið undirrit-
að samkomulag milli ríkissjóðs og
bæjarstjórnar sem fól í sér að yrðu
skuldir Hitaveitu Akureyrar hærri
en 2 milljarðar króna í árslok árið
2000 myndi ríkissjóður taka við 75%
af upphæðinni sem umfram það er.
Sú upphæð er miðuð við verðlag árs-
ins 1987.
Samningurinn frá 1987 er runninn
út og hefur nú verið framlengdur,
en þetta samkomulag er ein af for-
sendum þess að hægt er að lækka
gjaldskrá Hitaveitu Akureyrar um
5%. Framvegis er reiknað með að
gjaldskrá veitunnar fylgi byggingar-
vísitölu eins og hún hefur gert fram
tii þessa. Samþykkt hefur verið að
lækkunin verði látin gilda frá 1. jan-
úar síðastliðinn.
Betri staða
„Þessi lækkun hefur lengi verið í
undirbúningi, staða veitunnar leyfir
þessa gjaldskrárlækkun núna og því
var ákveðið að hrinda henni í fram-
kvæmd og við væntum þess hún
komi bæjarbúum til góða,“ sagði
Franz. Hann sagði að gróft áætlað
væru skuldir veitunnar 1.850 milljón-
ir króna umreiknað á verðlag ársins
1987. „Þannig að við stöndum heldur
betur en ráð var fyrir gert og það
er af hinu góða.“
Fyrir eigendur einbýlishúss sem
greiðir 80 þúsund í kyndikostnað á
ári nemur lækkunin um 4 þúsund
krónum þannig að eftir lækkun verð-
ur hitunarkostnaður 76 þúsund krón-
ur.
Könnun fimm nemenda MA á útivist unglinga á Akureyri
Meirihluti unglinga and-
vígur núgildandi lögum
Fjórðungur foreldra setur útivistarreglur af ótta við ofbeldi
ALMENN andstaða virðist vera meðal unglinga á Akureyri við útivistar-
lögin, jafnvel þó að núgildandi lög séu þeim í fæstum tilvikum til
ama. Meirihluti forelda setur börnum sínum ákveðnar útivistarreglur,
en flestir unglinganna hafa þó leyfi til að vera klukkustund lengur úti
á kvöldin en lögin kveða á um.
Námskeið í fyrstu hjálp
MIÐSTÖÐ fólks í atvinnuleit
verður með opið hús í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju í dag,
miðvikudag, frá kl. 15 til 18 og
er ýmislegt á dagskrá að vanda.
Að þessu sinni og næsta miðviku-
dag, 9. febrúar, verður hluti sam-
verustundarinnar notaður til
kennslu í grundvallaratriðum
skyndihjálpar og endurlífgun.
Kennari verður Jón Knutsen, sem
annast hefur námskeið í skyndi-
hjálp á vegum Rauða krossins.
Kaffi og brauð verður á borðum
og ýmsar upplýsingar liggja frammi
ásamt nýjustu dagblöðunum.
Allir sem eru án vinnu eru hvatt-
ir til að mæta og nota sér þetta
tækifæri til að kynnast grundvallar-
atriðum „fyrstu hjálpar". Enginn
veit hvort eða hvenær á þá þekk-
ingu reynir en víst er að oft hefur
hún úrslitum ráðið.
(Fréttatilkynning.)
Þetta kemur m.a. fram í könnun
um útivist unglinga sem fímm nem-
endur Menntaskólans á Akureyri
gerðu í kjölfar mikillar umræðu á
höfuðborgarsvæðinu varðandi versn-
andi ástands í miðbæ Reykjavíkur.
Lögum samkvæmt skulu allir ung-
lingar á aldrinum 13 til 16 ára vera
komnir í hús kl. 22.00 öll kvöld vik-
unnar. Könnunin var gerð meðal
nemenda í 9. og 10. bekk Gagn-
fræðaskólans á Akureyri og var til
samanburðar hringt í foreldra hluta
þessarar unglinga.
Meirihlutinn andvígur
lögunum
Meirihluti unglinganna er andvíg-
ur núgildandi lögum, en um þriðj-
ungi þeirra stóð á sama um þau.
Þrír fjórðu hluta foreldranna voru
frekar hlynntir þeim reglum sem í
gildi eru.
Langstærsti hluti foreldra setur
börnum sínum ákveðnar reglur um
útivist á kvöldin, en fram kemur í
könnuninni að um helmingur ungl-
inganna hefur leyfí til að vera úti
klukkustund lengur en lögin kveða
á um, eða til 23. Um 60% foreldr-
anna segjast hafa lögin til hliðsjónar
er þeir setja útivistarreglur.
Meirihluti foreldra kvaðst vita
hvar unglingarnir héldu sig væru
þeir úti eftir kl. 22 á kvöldin en um
það ber þeim ekki saman við börnin
sín því um þriðjungur þeirra svaraði
í könnuninni að foreldramir vissu
ekki um ferðir sínar að kvöldlagi.
Um fjórðungur foreldra setur úti-
vistarreglur af ótta við að börnin
verði fyrir líkamlegu eða andlegu
ofbeldi og tæpur fjórðungur til að
koma í veg fyrir áfengisneyslu og
svipaður fjöldi taldi rétt að fara að
lögum, en tæp 30% töldu ekki rétt
að unglingar væru úti á kvöldin.
Arnkell Logi Pétursson, Emil Þór
Vigfússon, Halldór Hildimundarson,
Heimir Snorrason og Sigfús Þór Sig-
mundsson gerðu könnunina.
Peningakassi hvarf
PENINGAKASSA Lækna-
þjónustunnar í Hafnarstæti er
saknað, en tilkynnt var um
hvarfið til lögreglunnar á
Akureyri í gærdag.
Að sögn varðstjóra lögregl-
unnar voru um 30 þúsund krónur
í kassanum, 20 þúsund í pening-
um og 10 þúsund í ávísunum.
Rannsókn stendur yfir, en engar
vísbendingar var við að styðjast
að sögn varðstjóra. Tvö innbrot
sem framin voru um helgina, í
Gagnfræðaskólann á Akureyri
og tískuverslunina Parið, eru
einnig óupplýst.