Morgunblaðið - 02.02.1994, Side 21

Morgunblaðið - 02.02.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 21 Reuter * Omar drap mig FRANSKIR rann- sóknarmenn virða fyrir sér óvenju- legt sönnunar- gagn í morðmáli í Frakklandi; hurð, sem talið er að fórnarlambið hafi ritað nafn morð- ingjans á. Rík ekkja fannst myrt á heimili sínu og á eina hurðina hafði verið ritað með blóði ekkjunnar: „Ómar drap mig“, en Ómar var garð- yrkjumaður henn- ar. Washington. Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, ræddi við Bill Clinton Banda- ríkjaforseta í Washington í fyrrakvöld og sagði að mikilvægasta framtíðarverkefni Vesturlanda væri að stuðla að áframhaldandi lýð- ræðisþróun í Rússlandi og Austur-Evrópu. Hann sagði þó að Þjóðverj- ar gætu ekki lagt meira af mörkum en þeir hefðu þegar gert. „Við höfum náð hámarkinu og öðrum þjóðum, einkum í Evrópu, getum ekki axlað meiri byrðar," sagði Kohl, sem var í tveggja daga heimsókn í Washington, eftir fund- inn með Clinton. Hann sagði að Þjóðveijar hefðu lagt langmest af mörkum til að stuðla að umbótum í Rússlandi en nú væri komið að að auka framlag sitt. Kohl hvatti ennfremur Banda- ríkjamenn til að gegna áfram leið- togahlutverki á alþjóðavettvangi. „Heimurinn heldur áfram að binda vonir sínar við ykkur.“ Kanslarinn áréttaði að hann vildi Geislavirks efnis leitað í Bodensee Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, frcttaritara Morgunblaðsins. INTERPOL tekur nú þátt í rannsókn á ferðum farþega sem fórust í flugslysi rétt fyrir lendingu á Altenrhein-flugvelli við Bodensee í Sviss fyrir rúmri viku. Cessna-vél hrapaði í vatnið og hefur ekki fundist enn. Tveir þýskir kaupsýslumenn voru í vélinni ásamt flugmanni frá Berlín. Þeir höfðu viðkomu í Prag. Talið er víst að tvær tékkneskar dansmeyjar hafi stigið um borð í vélina þar. Mennirnir tveir stunduðu ólögleg viðskipti með geislavirk efni frá gömlu Sovétríkjunum. Ottast er að geislavirkt efni kunni að hafa verið um borð í vélinni. Helmut Kohl ræðir við Bill Clinton í Washington Getum ekki aukið aðstoðina við Rússa fara hægt ú sakirnar varðandi hernaðaríhlutun í Bosníu. Hann sagði að með því að senda þangað hermenn skapaðist hætta á „óheyrilegum blóðsúthellingum". Kohl og Clinton, sem eru báðir þekktir fyrir góða matarlyst, ræddu þróunina í Rússlandi á ít- ölskum veitingastað sem viðskipta- vinir róma fyrir stóra matar- skammta. Þjóðveijarnir Josef Rimmele, verktaki, og Klaus Eichler, fv. for- maður fijálsíþróttasambands Austur-Þýskalands, eru sagðir hafa tekið að sér að selja geisla- virkt efni frá Sovétríkjunum fyrr- verandi en ekki tekist það. Rúss- arnir sem útveguðu þeim efnið heimtuðu 500.000 þýsk mörk af þeim og fluttu þá nauðuga til Riga í Lettlandi þegar þeir gátu ekki borgað. Annar þeirra var látinn Viðskipti Svíajákvæð VIÐSKIPTI Svía við útlönd voru hagstæð um 51,6 mil{jarð sænskra króna, jafnvirði 475 milljarða íslenskra, fyrstu 11 mánuði ársins 1993. Alls nam útflutningur Svía 352,8 milljörðum sænskra króna fyrstu 11 mánuði ársins 1993 og var þar um 18% aukningu að ræða miðað við sama tímabil árið á undan. Innflutningur nam 301,2 millj- örðum og var þar um 13% aukn- ingu að ræða á milli ára. laus til að útvega lausnarfé en lögreglan blandaðist í málið á meðan hann var í burtu og handt- ók hann og alla viðriðna þegar hann sneri aftur til Lettlands. Ekki er ljóst af hveiju Þjóðveijarn- ir voru síðan látnir lausir. Þeir höfðu áður komist í kast við skatt- rannsóknarlögregluna í Þýska- landi. Ekki er vitað hvað mennirnir ætluðust fyrir í Sviss. Þeir ætluðu hugsanlega að sækja peninga eða flytja peninga ólöglega til lands- ins. Einnig er óljóst hvaða ferð var á tékknesku dansmeyjunum. Fréttir í þýskum dagblöðum fullyrtu að mennirnir væru með rúbidium og 70 kg af Cásium (ísótóp 137) í farteskinu. Sérfræð- ingum þykir það ólíklegt. Geisla- virkni þess er svo sterk að maður myndi farast á einni sekúndu ef hann kæmi of nálægt þvi. Það þyrfti að pakka 70 kg í fimm tonn af blýi til að geta flutt það á örugg- an hátt. 70 kg af blýi skýla hins vegar geislavirkni 1 gramms af Cásium. Óstaðfestar fréttir herma að Þjóðveijarnir hafi ætlað að smygla efninu til Frakklands. Ekki er vitað til hvers. Leit að flugvél- inni heldur áfram. Norður-Kórea sýnir ekki kjarnorkuverin Sakar Bandarík- in um að ganga á bak orða sinna Tókýó, Vín. Reuter. STJORNVÖLD í Norður-Kóreu sökuðu Bandaríkin í gær um svik og lýstu því yfir að þau væru reiðubúin að taka aftur öll þau vil- yrði og loforð sem þau hefðu gefið í tengslum við kjarnorkueftir- lit og viðurkenningu á Samningnum um takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna. Sögðust suður-kóreönsk stjórnvöld vinna að því ásamt Bandaríkjamönnum og Kínverjum að koma í veg fyrir að upp úr viðræðum við N-Kóreumenn slitnaði. í yfirlýsingu utanríkisráðuneyt- is N-Kóreu eru Bandaríkin sökuð um að hafa gengið á bak orða sinna frá því um síðustu áramót um að vinna að friðsamlegri lausn á deilu ríkjanna sem er tilkomin vegna ótta um að N-Kóreumenn séu að koma sér upp kjarnorku- vopnum. Segist N-Kórea því ekki lengur vera bundin af loforðum sínum, þar á meðal um að fresta því að draga undirritun sína á Samningnum um takmörkun á útbreiðslu kjarnorkuvopna til baka, svo og að stöðva allar fram- kvæmdir í tengslum við kjarnorku. Segja N-Kóreumenn að Banda- ríkin hafi sett sér úrslitakosti; þeir verði að samþykkja kröfur Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) um eftirlit í kjarnorkuver- um í N-Kóreu, vilji þeir að viðræð- ur verði teknar upp að nýju. Telur N-Kórea að með þessu segi Banda- ríkjamenn að þeir hyggist ekki halda viðræðum áfram. N-kóreönsk yfirvöld hafa enn ekki leyft eftirlitsmönnum IAEA að kanna kjarnorkuver sín en eftir- litsmennirnir verða að tilkynna yfirmönnum sínum um niðurstöð- urnar innan þriggja vikna. Fáist leyfið ekki, mun IAEA tilkynna að Norður-Kórea hafi hindrað ör- yggiseftirlit og slíkt gæti kallað á refsiaðgerðir Sameinuðu þjóð- anna. Andmæla brúargerð Kaupmannaliöfn. Reuter. ÞÝSK stjórnvöld hafa farið þess á leit við sænsk og dönsk stjórn- völd að gerð brúar yfir Eyrar- sund verði frestað þar til áhrif hennar á umhverfið hafa verið könnuð. Þjóðveijar finna að því að rætt skuli um brúargerð í stað ganga undir sjávarbotni. Danskir og sænskir embættismenn sögðu að mótmælin væru að því leyti til- gangslaus að ákveðið hefði verið að ráðast ekki í brúarsmíði ef það þætti leiða til umhverfisspjalla. Kirkjnleg sveifla í BÉstaðakirkju Gospel söngkonan Etta Cameron syngur Gospelsöngva þann 6., 7. og 8. febrúar í Bústaðakirkju klukkan 20.30 ásamt kirkju- og barnakór Bústaöakirkju. Stjórnandi er Guðni Þ: Guðmundsson. Undirleikari Ettu Cameron er píanóleikarinn Nikolaj Hess en einnig leika Gunnar Hrafnsson á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur. Etta Cameron er ein eftirsóttásta Gospel Söngkona heims í dag. Hún hefur undanfarið búið í Kaupmannahöfn og haldið fjölda tónleika víða um Evrópu við mjög góðar undirtektir. Forsala aðgöngumiða verður fimmtudaginn 3. febrúar og föstudaginn 4. febrúar frá 16-20. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 bæði kvöldin. BUSTAÐAKIRKJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.