Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 02.02.1994, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1994 29 ÞJÓÐMÁL: Stefán Friðbjarnarson Gjaldeyrishöftin kvödd „Einangrun íslenzka hagkerfisins afnumin“ Með aðildinni að Alþjóðagjaldeyrissjóðnum árið 1947 undirgeng- ust íslendingar að stefna að frjálsum gjaldeyrisviðskiptum á grund- velli stöðugs gengis. Síðustu hömlur á langtíma- fjárfestingar erlendis féllu úr gildi um áramótin. Samtímis vóru stigin fyrstu skrefin í af- námi hafta á skammtímahreyf- ingar fjármagns. Arið 1994 gilda ákveðnar fjárhæðatakmarkanir á þessi viðskipti, en þær falla úr gildi 1. janúar 1995. Þar með verða öll gjaldeyrishöft fallin brott og frelsi tryggt í fjár- magnsflutningum og gjaldeyris- yfirfærslum, hálfri öld frá lykt- um síðari heimsstyijaldarinnar, tæpri hálfri öld frá stofnun Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins. Skjótur fengur skjótt upp gengur! Feiknmikill gjaldeyrir hlóðst upp í höndum Islendinga í heimsstyrj- öldinni síðari, 1939-1945. Auk þess hélzt verð á útflutningsafurðum hátt fyrstu eftirstríðsárin. Staða okkar var því allt önnur og miklu betri en stríðshtjáðra Evrópuþjóða. En Adam var ekki lengi í Para- dís! Framkvæmda- og eyðsluhvötin var mikil. Innflutningur óx hrað- byri og langt umfram útflutning, enda var raungengi krónunnar fyrst eftir stríðið tvöfallt hærra en árið 1939. Árið 1947 var gjaldeyr- isforðinn uppurinn. Búinn heilagur. Þá barst stuðningur úr tveimur áttum. Þjóðin hlaut stóran vinning i Faxaflóa-síldar-happdrættinu. Síðan kom Marshall-aðstoðin. Þetta tvennt bætti úr brýnum gjaldeyris- þörfum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Flestar Evrópuþjóðir bjuggu við mikinn gjaldeyrisskort fyrst eftir stríðið. Marshall-aðstoðin bætti úr sárustu þörfinni. í september 1949 var gengi brezka pundsins fellt um rúmlega 30%. Flestar Evrópumynt- ir fylgdu í kjölfarið. Einnig íslenzka krónan. Og nú dregur til tíðinda. íslend- ingar eru meðal stofnenda Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, sem tók form- lega til starfa 1947. Með þeirri aðild samþykktum við það megin- markmið sjóðsins að koma & frjáls- um gjaldeyrisviðskiptum á grund- velli stöðugs gengis, sem þó mátti breyta þegar jafnvægi skorti í ut- anríkisviðskiptum. Nú átti það að vera keppikefli að ráða bót á því jafnvægisleysi, sem ríkt hafði í gengismálum, til að eiga samleið með umheiminum í átt til fijálsra utanríkisviðskipta. Fjölgengiskerfi - Útflutningssjóður Árið 1950 verður vart viðleitni í þessa átt. Þá er gengi krónunnar lækkað um hvorki meira né minna en 42,6%. Gengislækkuninni fylgja ýmsar hliðarráðstafanir, sem greiða áttu leið til aukins frelsis í innflutningi, leið út úr jiöftum og skömmtun liðinna ára. Árangurinn varð þó lítill. Minnkandi afla og versnandi viðskiptakjörum var um kennt. Síðan er hörfað í meint skjól fjöl- gengiskerfis. Fyrsta skrefið var bátagjaldeyrir, svokallaður, 1951, sem fól í sér álag á gjaldeyri til kaupa á sérstökum vörutegundum. Annað skrefið var rekstrarstyrkur til togaraútgerðar 1954, fjármagn- aður með innflutningsgjaldi á bif- reiðar. Árið 1956 er efnt til útflutn- ingssjóðs , sem hefur með hendi allar millifærslur af þessu tagi. Tveimur árum síðar er lagt á 55% yfirfærslugjald á gjaldeyrissölur, sem fer í styrki til útflutningsfram- leiðslu. Kerfið var mjög flókið. Það felur í sér mismun'un atvinnu- greina, auk umtalsverðrar gengis- lækkunar. Viðreisn leysir haftahnúta Það er ekki fyrr en með viðreisn- arstjórninni, 1959 - 1971, að fjarar að ráði undan hafta- og skömmtun- arkerfinu. í upphafi árs 1960 er gerð söguleg tilraun til að koma á jafnvægisgengi - samfara mikilli gengislækkun. Aðhald í peninga- málum og fjármálum ríkisins var aukið. Verulegur hluti innflutnings- verzlunar var gefinn frjáls. Jóhann- es Nordal og Ólafur Tómasson komast svo að orði í ritgerð í Kle- mesarbók (1985); „Tóku Islendingar nú á sig í fyrsta skipti skuldbindingar um frjáls gjaldeyrisviðskipti og inn- flutning, en þó langt á eftir flestum vestrænum þjóðum. Þrátt fyrir margvíslegar sveiflur í greiðslu- jöfnuði og efnahagsþróun, hefur ekki verið hvikað frá þeirri stefnu síðan. Hafa aðgerðir ígengismálum verið veigamikill þáttur í þeirri stefnu, sem fylgt hefur veríð íþess- um tilgangi..." Seðlabankanum var falið með nýjum lögum að ákveða stofngengi krónunnar, að fengnu samþykki ríkisstjórnar. Þar með var horfið frá lögbindingu gengisins, sem staðið hafði frá árinu 1939. Næstu sex árin eða til hausts 1967 var gengi krónunnar óbreytt, en vegna verðbólgu hækkaði raungengi um þriðjung á þessu tímabili. Þess vegna var gripið til gengislækkunar árin 1967 og 1968 til stuðnings útflutningsatvinnuvegunum. Á fyrstu árum sjöunda áratugar- ins fór að bera á jafvægisleysi í alþjóðagjaldeyrismálum. Gengis- lækkun Bandaríkjadals 1973, sem krónan fylgdi, leiddi til þess að flestir gjaldmiðlar heims fara á flot. Sama ár er lögum um Seðlabanka breytt á þann veg að heimilt er að víkja frá mörkum, bæði fyrir ofan og neðan stofngengi. Tíma fast- gengis er lokið í biii. Breytingar raungengis í tilvitnaðri ritgerð Jóhannesar Norðdals og Ólafs Tómassonar í Klemesarbók (1985) segir m.a. um raungengið í tveimur heimsstyrj- öldum: „Sérstaka athygli vekur, hversu mikil röskun á raungengi fylgdi heimsstyijöldunum tveimur, en þær höfðu báðar meiri verðbólguáhrif hér á landi en í viðskiptalöndunum. Lætur nærri, að raungengið hafi í lok beggja styijaldanna verið orðið tvöfallt hærra en það var í upphafi þeirra. Eftirleikurinn er hins vegar mjög ólíkur. Eftir fyrri heimsstyij- öldina lagaði hagkerfið sig að breyttum aðstæðum á mjög skömmum tíma, m.a. vegna sveigj- anleika í gengisskráningu og verð- lagi. Eftir lok síðari styijaldarinn- ar, sem færði íslendingum gífurleg- an auð, tókst hins vegar ekki að koma á jafnvægi út á við á ný, fyrr en eftir hálfan annan áratug, sem einkenndist af haftabúskap og greiðsluerfíðleikum. Ósveigjanleiki í gengismálum átti hér auðsjáan- lega mikla sök á...“ ísland og viðskiptabandalögin Krafan um fríverzlun vaj' snar þáttur í sjálfstæðisbaráttu íslend- inga á 19. öldinni. Viðskiptahöft og skömmtunarkerfi urðu þó hlut- skipti þeirra langtímum 'saman á þeirri 20., að fullveldi fengnu. Máski hefur þrýstingurinn á þróun til viðskiptafrelsis á þessri öld frem- ur komið að utan, frá viðskipthátt- um í umheiminum, en frá lands- mönnum sjálfum, ekki sízt í milli- ríkja- og gjaldeyrisviðskiptum. Aðildin að Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum færði okkur skuldbinding- ar um að stefna að fijálsum gjald- eyrisviðskipt-um. Fijálsræði í við- skiptum var skilyrði fyrir Marshall- aðstoð, m.a. til að koma í veg fyrir verndarstefnu og þjóðernissjónar- mið millistríðsáranna. íslendingar fengu þó undanþágu frá skilyrðum Marshall-aðstoðar um fijáls við- skipti (sbr. Haglýsingu ís- lands/Sigurður Snævar/1993). Fríverzlunarbandalag Evrópu, EFTA, var stofnað árið 1959. ís- land gengur í bandalagið 1970. Þá lækka tollar á útflutningsvörum okkar í EFTA-ríkjum. Samningar takst síðan við EB (Evrópubanda- lagið, síðar Evrópusambandið) 1972. Þar með vóru í höfn umtals- verðar tollalækkanir á sjávarvörum á mikilvægum Evrópumörkuðum. Aðild okkar að EES fyrir skemmstu, sem hefur mikið fram- tíðargildi, tryggir markaðsstöðu okkar enn betur. íslendingar gerast bráðabirgða- aðilar að GATT árið 1964 og full- gildir aðilar 1967. Þannig unnust tollalækkanir fyrir íslenzkar sjáv- arvörur í Bandaríkjunum. Nýr GATT-samningur, sem nú er í höfn, á eftir að stórauka alþjóðleg við- skipti og auðvelda þjóðum heims róðurinn upp úr efnahagslægð og atvinnuleysi. Aðildin að framangreindum sam- tökum og samningum hafði og aðra mikilvæga hlið. Hún þrýsti á ís- lenzk stjórnvöld að leysa hafta- linúta í miiliríkja- og gjaldeyrisvið- skiptum. Ferlið til frjálsræðis Það var upp úr miðjum áttunda áratug aldarinnar að ferlið til fijáls- ræðis, sem viðreisnarstjómin var kveikjan að, hejdur áfram. Árið 1977: í forsætisráðherrat- íð Geirs Hallgrímssonar og við- skiptaráðherratíð Ólafs Jóhannes- sonar er þeim, sem ekki bar skylda lögum samkvæmt til að seija bönk- unum gjaldeyri sem þeim áskotnað- ist, heimilað að opna gjaldeyris- ' reikninga í dölum, pundum, mörk- um og dönskum krónum. Eigendur máttu taka út af þeim allt að 2.500 dali án þess að gera sérstaka grein fyrir notkun íjárins. 1983 -1985: Með breytingu á lögum um skipan gjaldeyris og við- skiptamála árið 1983, í viðskipta- ráðherratíð Matthíasar Á. Mathie- sen, er stigið mikilvægt skref til aukins fijálsræðis í gjaldeyrisverzl- un hér á landi, samanber forystu- grein Morgunblaðsins 23. desember sl. Breytingarnar fólu m.a. í sér í’ýrnri gjaldeyrisverzlun í banka- kerfinu, opnun almennra gjaldeyr- isreikninga í innlendum bönkum og sparisjóðum og opnun svokalF aðra útflutningsreikninga, það er vöru- og þjónustugjaldeyrisreikn- inga. 1990: Árið 1990 er síðan stigið afgerandi skref út úr höftunum - inn í nútímann. 1. september það ár tekur gildi ný reglugerð um skip- an gjaldeyris- og viðskiptamála. Gjaldeyrisyfirfærslur vegna er- lendra þjónustuviðskipta vóru gefn- ar fijáisar. Innlendum aðilum er heimilað að opna bankareikninga erlendis eftir svipuðum reglum og giltu um gjaldeyrisreikninga í inn- lendum bönkum. Það er Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra, sem undirritar þessa sögulegu reglu- gerð. Þar með var fylgt fram veiga- miklum kapítula í stefnu ríkis- stjórnar Davíðs Oddssonar. Gjaldeyrishöftin kvödd I reglugerðinni er kortlagt að fella niður í áföngum hvers konaí' gildandi höft og hömlur í gjald- eyrisviðskiptum. Jón Sigurðsson komst svo að orði um þessar breyt- ingar í grein hér í blaðinu 25. ág- úst 1990: „Með þeim breytingum, sem nú eru ákveðnar í gjaldeyris- og við- skiptamálum, er einangrun ís- lenzka hagkerfisins afnumin, en skilin milli innlendra og erlendra viðskipta og fjármagnsmarkaða hafa lengi staðið aukinni velmegun hér á landi fyrir þrifum." Síðustu múrar gjaldeyrishaft- anna eru hrundir - eða að hnini komnir. Með ákvörðunum og að- gerðum núverandi ríkisstjórnar og samningum við umheiminn hafa þau markmið loksins náðst eða nálgast mjög, sem sett vóru á odd- inn með aðildinni að Alþjóðagjald- eyrissjóðnum þegar árið 1947, fyr- ir 47 árum. Það er að tryggja hér svipað frelsi í milliríkja- og gjald- eyrisviðsklptum og viðgengst í umheiminum, meðal annnars í fjár- magnsflutningum og gjaldeyrisyf- irfærslum. Þau sögulegu tímamót koma sannarlega ekki vonum fyrr. Framgangur fræðilegs ritmáls eftir Tryggva V. Líndal Nú er að breytast, að íslendingar noti allir samskonar ritmál. Hér á ég við málið sem notað er í dagblöð- unum, af blaðamönnum og flestum greinarhöfundum. Það mál miðast við að lesandinn geti lesið um hvað- eina á svipuðum hraða, hvort sem um er að ræða slúður, efnahags- mál, fræði eða ljóð. En sá árangur fæst með því að hafa nógu lítið í hverri setningu, sníða sérhæfð hug- tök af alþýðuhugsun, og með því að leggja rækt við þau heimilislegu hugartengsl sem eru samfara því að lesa dagblöð með kaffinu. (Svipað má segja um íslenska bókaútgáfu; þar er gullaldaríslensk- an höfð til hliðsjónar að þessu leyti. Þó er víst að mikill hluti verka önd- vegisrithöfunda okkar þætti of fyr- irhafnarmikill aflestrar fyrir þennan ímyndða meðaltalslesendahóp, svo sem sum skrif Snorra Sturlusonar, Jónasar Hallgrímssonar, Jóns Sig- urðssonar, sem og skrif ýmissa rit- höfunda lærdóms- og upplýsingaald- ar.) Þessi lágkúrutilhneiging kemur til vegna stæðrar markaðarins. Hún kemur þó ekki í veg fyrir að íslend- ingar hugsi og skrifi jafn flóknar hugsanir og menn gera erlendis, t.d. í enskumælandi löndum. Það sýna doktorsritgerðir íslendinga, þótt fæstar séu þær að vísu á íslensku. Ein afleiðing fámennis er sú að þegar Islendingar setjast á háskóla- bekk hérlendis, eru flestar námsbækurnar á útlensku. Því er vandi þeirra tvöfaldur: Annars vegar að læra að nota tungumál sem hjálp- artæki við nákvæmari og yfirgrips- meiri hugsun, og hins vegar að þurfa að gera það á öðrum málum en ís- lensku. Þetta leiðir til þess síðarmeir, að flestir þeirra tjá sig síður á háskóla- „Ein afleiðing fámennis er sú að þegar íslending- ar setjast á háskólabekk hérlendis, eru flestar námsbækurnar á út- lensku. Því er vandi þeirra tvöfaldur: Annars vegar að læra að nota tungumál sem hjálpar- tæki við nákvæmari og yfirgripsmeiri hugsun, og hins vegar að þurfa að gera það á öðrum málum en íslensku.“ plani, og þá frekar á útlensku. í enskumælandi löndum er þessu á annan veg farið: Þar er gnótt bóka Tryggvi V. Líndal af öllu tagi, sem haldið er að fólki strax í menntaskóla. Því opnast þessi heimur fræðilegrar málnotkunar fyrir þeim á sama tíma og t.d. heim- ur ljóða. Nú eru sem betur fer teikn á loftr um að þetta sé að breytast hér á landi. Dæmi um það er uppgangur heimspekinnar sem fræðigreinar á íslensku. í kringum hana hafa kom- ið fram tímarit, bækur, þættir í hljóðvarpi og sjónvarpi, dálkar í dag- blöðum, umræðufélög, kennarastöð- ur og stofnanir. Eg þekki allt það sem hér um ræðir af eigin raun. Þó hefur mér orðið þetta hugleiknara undanfarið, en ég hef verið að þýða af ensku á íslensku, fræðsluefni handa sérfræð- ingum. Þar munu þeir víða þurfa að hægja á leshraðanum um helm-' ing, og hafa sig alla við að týna ekki þræðinum. En annað eins til- heyrir nútíma tungumáli. Og slíkar setningar skrifaði Aristóteles fyrir 2300 árum. Því er gleðilegt að slíkt virðist ætla að verða flestum íslend- ingum kunnuglegt fyrir árið 2000. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.