Morgunblaðið - 02.02.1994, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1994
FJOLMIÐLAR
HANDKNATTLEIKUR
KNATTSPYRNA
Avidesa gegn
Bidasoa
Selfyssingar hefðu farið til Barcelona
Iþróttanefnd
ríkisins
heiðrar fjöl-
miðil áriega
íþróttanefnd ríkisins • hefur
ákveðið að heiðra einn fjölmiðil
hérlendis árlega, frá og með þessu
ári, fyrir umfjöllun um íþróttir. I
því skyni verður viðkomandi fjölm-
iðli veittur bikar (mynd til hliðar)
um hver áramót héðan í frá, til
varðveislu í eitt ár.
Ingi Björn Albertsson, alþingis-
maður og formaður Iþróttanefndar,
tilkynnti um þessa ákvörðun nefnd-
arinnar í hófi sem Samtök íþróttaf-
réttamanna gengust fyrir er kjör
íþróttamanns ársins var tilkynnt í
byijun árs. Tók formaður Samtaka
íþróttafréttamanna við bikarnum
og varðveitir hann þar til bikacinn
verður afhentur fjölmiðli í fyrsta
skipti.
Ingi Björn sagði að dómnefnd á
vegum íþróttanefndar ríkisins
myndi skera úr um hvaða fjölmiðill
yrði fyrir valinu hveiju sinni; sá
fjölmiðill sem að hennar mati hefði
skarað fram úr með vandvirkri og
faglegri umfjöllun um íþróttir.
Geir Sveinsson, Júlíus Jónasson
og félagar þeirra hjá Avidesa
mæta Bidasoa, sem sló ÍR út úr
EHF-keppninni, í undanúrslitum.
Það verður því Spánarslagur.
Dregið var í Evrópukeppninni í
Vín í gær. Steaua Búkraest frá
Rúmeníu mætir austurríkska fé-
laginu Linde frá Linz.
Ungverska liðið Pick Szeged,
sem lék gegn Selfossi, mætir Barc-
elona í undanúrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa, en franska liðið
OM Vitrolles og Bayer Dormagen,
sem Kristján Arason þjálfar næsta
keppnistímabil, mætast.
Sænska liðið Drott leikur gegn
franska liðinu París St. Germain
Asnieres, sem Júlíus Jónssson lék
með, í undanúrslitum í Borgar-
keppninni, en Granollers frá Spáni
mætir þýska liðinu Essen.
Þess má geta að íslenskir lands-
líðsmenn hafa leikið, og leika, með
sex af félögunum sem eru í undan-
úrslitum. Fyrir utan sem áður hef-
ur verið talið, lék Alfreð Gíslason
með Essen og Bidasoa, Ágúst
Svavarsson með Drott, Viggó Sig-
urðsson með Barcelona, Geir
Sveinsson og Atli Hilmarsson með
Granollers.
Beckenbauer
stjórnar
heimsliðinu
í Rússlandi
Franz Beckenbauer, fyrrum
landsliðsþjálfari Þýskalands,
sem er eini maðurinn sem hefur
bæði verið fyrirliði og þjátfari
heimsmeistaraliðs, mun stjóma
heimsliðinu í knattspyrnu í St.
Pétursborg í Rússlandi í sumar.
Heimsliðið mun þá mæta úrvals-
liði Rússlands 7. ágúst og verður
leikurinn liður í lokadegi Priðar-
leikanna á Kirov-leikvellinum.
Beckenbauer var fyrirliði
landsliðs V-Þýskalands, sem varð
heimsmeistarai í Miinchen 1974,
og þjálfari liðs Þjóðveija, sem
varð meistari í Róm 1990. Þess
má geta að Beckenbauer fékk silf-
urverðlaun í HM í Englandi 1966
og bronsverðlaun í HM í Mexíkó
1970.
KNATTSPYRNA
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Bikarmeistarar Keflvíkinga
Bikarmeistarar ÍBK í kvennaflokki, aftari röð frá vinstri: Lóa Björg Gestasdóttir, Hanna Kjartansdóttir, Elínborg Her-
bertsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Sigurður Ingimundarson, þjálfari, Ingibjörg Emilsdóttir og Gunnhildur Theodórsdóttir.
Fremri röð frá vinstri: Guðlaug Sveinsdóttír, Andra Olga Færseth, Björg Hafsteinsdóttir, Anna María Sveinsdóttir,
Anna María Sigurðardóttir, Þórdís Ingólfsdóttir og Árný Hildur Árnadóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Bikarmeistarar Keflvíkinga
BIKARMEISTARAR í körfuknattleik karla 1994. Aftari röð frá vinstri: Jón Guðmundsson, liðsstjóri, Guðjón Gylfa-
son,Albert Óskarsson með soninn Ragnar, Sigurður Ingimundarson, Brynjar Harðarson og Magnús Gunnarsson, vatns-
beri og lukkupolli. Fremri röð frá vinstri: Kristinn Friðriksson, Jón Kr. Gíslason, Guðjón Skúlason, Ólafur Gottskálks-
son, Raymond Foster og Böðvar Kristjánsson.
Félög tryggi
landsliðsmenn
Alþjóða knattspyrnusambandið,
FIFA, hefur ákveðið að félög-
um sé skylt að tryggja landsliðsmenn
sína, en viðkomandi knattspyrnusam-
bönd þurfi ekki að taka þátt í kostn-
aðinum að neinu leyti.
Ákvörðun FIFA tók gildi um ára-
mót og þessa dagana er verið að
senda knattspyrnusamböndum innan
FIFA reglugerðina, en félögin verða
að tryggja leikmenn vegna ferðalaga,
veikinda og meiðsla.
Að sögn Michels Zens Ruffinens,
ritara nefndar FIFA um stoðu leik-
manna, var þessi ákvörðun tekin að
vel athugaiðu máli í nokkur ár, fyrst
og fremst til að tryggja stöðu minni
og fátækari sérsambanda. Örar
breytingar á félagaskiptum gerðu það
að verkum að efnaminni sambönd
ættu ekki peninga til að standa und-
ÚRSLIT
Körfuknattleikur
1. deild karla:
IS-ÍR........................49:61
NBA-deiIdin:
Leikir aðfaranótt þriðjudags:
Detroit - Cleveland........103:107
■Liðin sem léku á útivelli í gær sigruðu
öll. Cleveland lenti þó í kröppum dansi í
Detroit, en vann samt. Detroit tapaði þar
með sínum 10. leik í röð á heimavelli og
hefur það aðeins gerst einu sinni áður hjá
félaginu. Mark Price gerði 21 stig og Larry
Nance 20 fyrir Cleveland en Joe Dumars
gerði 29 stig fyrir Pistons og Isiah Thomas
22.
Dallas - Atlanta.................85:90
■ Dominique VVilkins gerði 24 stig fyrir
Atlanta og rauf þar með 23.000 stiga múr-
inn og varð 11. leikmaðurinn í sögu NBA
til að gera slíkt. Kevin Willis gerði 17 stig
og tók auk þess 16 fráköst og Mookie Bla-
ylock gerði 18 stig. Doug Smith gerði 22
stig og Jim Jackson 14 fyrir hið lánlausa
lið Dallas.
LA Clippers - Golden State......96:110
■Latrell Sprewell gerði 32 stig fyrir Warri-
ors og kappinn byrjaði vel því hann gerði
20 stig í fyrsta leikhluta. Chris Webber
gerði 20 stig og Billy Owens 19 en hjá
Clippers var Ron Harper stigahæstur með
19 stig og Danny Manning gerði 18 og var
rekinn af velli þegar þrjár mínútur voru
eftir fyrir að deila við dómarana.
Íshokkí
NHL-deildin:
Leikið aðfaranótt þriðjudags:
Boston - Quebec.....................4:3
NY Rangers - Pittsburgh.............5:3
Ottawa - Chicago....................0:1
Vancouver - Los Angeles.............3:1
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Selfoss: Selfoss - KA........20
I. deild kvenna:
Kaplakriki: FH - Stjarnan.i..18
Strandgata: Haukar - Grótta.... 18.30
Höllin: KR - Víkingur.....19.15
Eyjar: ÍBV - Ármann..........20
ir tryggingunum og FIFA yrði að
gæta réttar þeirra.
Hann sagði að þessi breyting hefði
legið í loftinu. Því ætti hún ekki að
koma félögunum á óvart og engin
mótmæli hefðu borist, þó um veruleg-
ar upphæðir geti verið að ræða, eink-
um hjá félögum með marga landsliðs-
menn-
Hjá KSI fengust þær upplýsingar
að að kostnaður vegna trygginga
hefði verið mikill á áttunda áratugn-
um og í byijun þess níunda, en undán-
farin ár hefði upphæðin verið nálægt
einni milljón króna á ári. Samið hefði
verið við atvinnumannafélög, sem ís-
lenskir leikmenn hefðu verið hjá, um
að þessar tryggingar væru á þeirra
hendi, en ákvörðun FIFA gerði það
að verkum að nú væru slíkir samning-
ar óþarfir.
FELAGSLIF
FH-ingar með hópferð
FH-ingar hafa ákveðið að vera með for-
sölu og hópferð á undanúrslitaleik Selfoss
- FH í bikarkeppninni, sem fer fram á laug-
ardaginn. Forsala aðgöngumiða verður í
Sjónarhól í dag og fram á föstudag eftir
kl. 16. Miðaverð er kr. 700 fyrir fullorðna
og 200 fyrir börn, en sætagjald i langferða-
bifreið er k. 200. Farið verður frá Kapla-
krika kl. 14.45.
Þorrablót GR
Þorrablót Golfklúbbs Reykjavíkur verður
haldið laugardaginn 5. febrúar í golfskálan-
um í Grafarholti og hefst kl. 20. Miðapant-
anir er á skrifstofu klúbbsins. Hljómsveit
Örvars Kristjánssonar leikur fyrir dansi.
Þorrablót FH
Þorrablót FH verður í Kaplakrika laugar-
daginn 5. febrúar kl. 19.30. Blótstjóri verð-
ur Ingvar Viktorsson bæjarstjóri og Ólafur
B. Schram, formaður HSÍ, verður heiðurs-
gestur. Miðasala hjá Rósu í Sjónarhóli.
Lávarðamót UMFG
Grindvíkingar ætla að halda lávarðamót
í körfuknattleik helgian 12. og 13. febrúar.
Keppt verður í flokki 30 ára og eldri og
40 ára og eldri. Það ræðst af þátttökunni
hvernig verður leikið en þátttöku ber að
tilkynna fyrir3. febrúartil Olafs (92-68145,
92-15300) Jóns Emils (92-68105,
92-16000) eða Björns (92-68757,
92-68060). Þátttökugjald er kr. 10.000 á lið.
Öldungameistarmót
Oldungameistarmot íslands í frjálsíþrótt-
um innanhúss verður haldið í Baldurshaga
um helgina. Mótið hefst á laugardag kl.
13.16 og verður siðan fram haldið á sunnu-
dag kl. 13. Þátttökugjald er kr. 500 fyrir
hveija grein og þátttökutilkynningar þurfa
að berast í dag til FRl eða Ólafs Unnsteins-
sonar í síma 37759.
Leiðrétting
Myndatexti. með grein um afmælismót
Júdósambandsins í blaðinu í gær var ekki
réttur. Sagt var að Sigurður Bergmanr.
væri í glímu við Vernharð Þorleifsson, en
myndin er frá glímu Sigurðar við Þorvald
Blöndal. Beðist er velvirðingar á mistökun-
um.