Morgunblaðið - 06.03.1994, Síða 1
80 SIÐUR B/C
54. tbl. 82. árg. SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Emil Nolsoe, talsmaður samtaka togaraútgerða í Færeyjum
Ekkert kvótakerfi hefur
dugað á Norður-Atlantshafi
Berbrjósta
ræningjar
HÓPUR kvenna frá Austur-Evrópu
beitti nýstárlegri aðferð við að ræna
úr peningakössum þriggja stórmark-
aða í úthverfum hollensku borgarinn-
ar Zwolle fyrir skömmu. Konurnar
snöruðust inn í verslanirnar, sumar
fóru úr öllu að ofan og létu öllum
illum Iátum. Afleiðingin varð upp-
lausn og ringulreið sem vinkonur
þeirra fáklæddu noxuðu til að laum-
ast í kassana og tæma þá. Síðan héldu
ræningjarnir út í bíla sína og þutu á
brott. „Þetta virðist vera fremur ein-
falt en það virkar,“ sagði talsmaður
lögreglunnar.
Deilt um met
við Guinness
DÓMSTÓLL í Kalkútta hefur gefið
skipun um að öll eintök af heimsmeta-
bók Guinness í Indlandi skuli gerð
upptæk um hríð. Ástæðan er sú að
ekki er minnst á met indverskra hjóna
en þau segjast hafa orðið fyrst allra
í heiminum til að aka umhverfis jörð-
ina í bíl árið 1986. Reynt er að ná
sáttum í málinu.
Hundasund
áErmarsundi
VERÐUR þriggja ára gömul, svört
Labrador-tík, Umbra, fyrst hunda til
að svamla yfir Ermarsund? Eigandi
hennar, Bandaríkjamaðurinn Ted
Erikson, synti sjálfur fram og aftur
yfir sundið 1965 og sonur hans varð
fyrstur til að komast þrisvar í röð
yfir það árið 1981. Eigandi Umbru
er staðráðinn í að taka hana með sér
næsta sumar og segir að tíkin hafi
sjálf átt hugmyndina, hún sé frábær.
„Eg verð að nota sundfit til að hafa
við henni“. Æfingar standa nú yfir í
Flórída þar sem Erikson býr og eru
syntar um fimm kílómetra lotur en
Ermarsundið er 32 kílómetrar þar
sem það er mjóst. Breskir dýravernd-
unarsinnar hafa mótmælt áformum
Bandaríkjamannsins harðlega og
segja að um illa meðferð á dýrum sé
að ræða. Dýrið sé ófært um að synda
svo langa leið, geti drukknað. Dýra-
læknar taka undir þetta og segja
hunda ekki hafa líkamsbyggingu til
svo mikilla sundafreka.
ÖLL 42 togskip í Færeyjum voru annað-
hvort þegar komin í höfn eða á leið þang-
að um hádegisbii í gær en útgerðarmenn
ákváðu að mótmæla samþykkt kvótalaga
á Lögþinginu í fyrradag með því að liætta
veiðum. Um 80% af öllum fiski sem unn-
inn er í landinu kemur af togskipunum.
„Ef þetta er það sem þeir vilja þá skulu
þeir fá það,“ sagði Emil Nolsoe, formað-
ur samtaka togaraútgerða, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hann sagði að kvóta-
lögin væru einstaklega illa og klaufalega
unnin, „þetta er hræðilegt". Útilokað
væri að starfa í samræmi við þau.
„Ég veit ekki hvað gerist næstu dagana,“
sagði Noisoe. „Sem stendur sé ég enga lausn,
vona auðvitað að hún finnist en þessar tillög-
ur eru slík svívirðing við sjómenn að það er
ólýsanlegt." Línuskipin hafa ekki siglt í land.
Nolsoe vísaði því eindregið á bug að deilan
væri að verulegu leyti innbyrðis milli út-
gerðarmanna, annars vegar eigenda togara
og hins vegar línuveiðiskipa sem fá meiri
kvóta samkvæmt lögunum en togaramehn
telja eðlilegt.
Hann sagði að kvótalögin væru slæm mis-
tök frá upphafi til enda. Sjálfur ságðist hann
teljá að hægt væri að vernda fiskistofnana
fyrir rányrkju með því að beita ýmsum tækni-
legum hindrunum (þ.e. tíma- og staðbundnu
veiðibanni, aukinni möskvastærð og fleiri
ráðstöfunum). Flotinn hefði minnkað svo
mikið undanfarin ár, togskipum fækkað úr
87 í 44, að ekki væri hægt að ofbjóða stofnun-
um með núverandi veiðiflota.
„Sjálfur tel ég að eigi kvótakerfi yfirleitt
að geta virkað þá verði kvótarnir að vera
fullkomlega framseljanlegir en það eru þeir
ekki samkvæmt þessum lögum. En ég held
að ekkert kvótakerfi á Norður-Atlantshafi
hafi virkað ... Það eru tíu ár síðan þið íslend-
ingar samþykktuð kvótakerfi, hefur það dug-
að til að vernda þorskstofninn? Hefur kvóta-
kerfið verndað þorskstofnana í Norðursjón-
um? Það er að vísu alltaf hægt að spyija á
móti hvernig hefði farið án kvótakerfis en
því getur enginn svarað. Reyndar held ég
að íslenska kerfið sé betra en það danska
en það merkir ekki að það fyrrnefnda sé
gott.“
Nolsoe sagði togaramenn nú bíða eftir
viðbrögðum stjórnmálamanna. Hann sagðist
telja að þrýstingur Dana hefði ráðið úrslitum;
allir þingmennirnir sem greitt hefðu atkvæði
með tillögunni segðust hafa gert þetta gegn
betri vitund til að tryggja aðstoð frá Dönum.
16
MEISTARI
MAGNÚS
HIÐMÍKLA
NÁVÍGI
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
ASUNNUDEGI