Morgunblaðið - 06.03.1994, Page 2
2 FRÉTTIR/INIULEIMT
/
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994
EFNI
j
Búramið
rannsökuð
í nóvember
HAFRANNSÓKNASTOFNUN
hyggst rannsaka djúpslóðina suð-
ur af Islandi í haust og reyna þá
að gera rannsóknir á búra að sögn
Jakobs Jakobssonar, forstjóra
stofnunarinnar.
Jakob segir að líklega verði farið
í leiðangurinn í nóvember, en tals-
verðum vandkvæðum sé bundið að
rannsaka búrann, vegna þess hversu
djúpt hann liggi og hversu erfið tog-
sióð sé á svæðinu. Yfirleitt fínnist
búri á meira en 500 metra dýpi.
Hann segir að búrinn sé hægvaxta
fiskur sem verði mjög gamall og
þeir fistar sem veiddust hér við land
væru einhverra tugi ára gamlir.
Um þessar mundir eru sérfræðing-
ar Hafrannsóknastofnunar í djúp-
sjávartegundum, eins og búra, á ráð-
stefnu í Englandi þar sem verið er
að safna saman upplýsingum um
fiskitegundir sem finnast á djúpsióð.
----------♦ ♦------
Harður árekst-
ur við Fitjar
HARÐUR árekstur varð á Reykja-
nesbraut snemma í gærmorgun á
móts við Fitjar. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík urðu lítiis háttar
meiðsl á farþega og ökumanni
annarrar bifreiðarinnar.
Bílamir sem skullu saman voru
Volvo-fólksbíll og níu manna fólks-
flutningabíll. Var Volvoinn óökuhæf-
ur eftir áreksturinn og þurfti að
draga hann á brott.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Dorgað í bæjarferð
FÉLAGARNIR Davíð, Jóhann Björn og Arnar brugðu sér bæjarleið í liðinni viku, þeir eiga heima á Hrafnagili
í Eyjafirði en fóru að dorga á Leirutjöm í Innbæ Akureyrar. Þeir höfðu ekkert orðið varir þegar ljósmynd-
ari átti leið hjá og festi þá á fílmu, en áhuginn leyndi sér ekki.
Matthías Bjamason um áform um afnám flutningsj öfnunar á olíu og bensín
Gerir alvarlegar athuga-
semdir við frumvarpið
Forstjóri Skeljungs og framkvæmdastjóri Verslunarráðs styðja breytinguna
„ÉG HEF ekki séð frumvarpið og
mér finnst skrítið að fjölmiðlar
skýri frá frumvarpi sem á eftir
að leggja fyrir stjórnarflokkana.
Við það geri ég alvarlega athuga-
semd. Og í öðru lagi, ef það er
ætlunin að hafa mismunandi verð
Steingrímur segir að bæði við-
skiptaráðherra, sem skipar í stöð-
una, og Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, hafi lýst yfír stuðningi
sínum við umsókn hans um stöðuna
og segist ekki trúa því að bankaráð
Seðlabankans muni leggjast gegn
sér. Hann segir að hljóti hann stöð-
una muni hann segja af sér for-
mennsku í Framsóknarflokknum á
miðstjórnarfundi sem boðaður sé
15.-16. apríl, enda taki hann við
stöðunni, ef af verði, eftir þá helgi.
Halldór Ásgrímsson varaformaður
muni að sjálfsögðu taka við fram
til þess að kosið verði í haust, en
hann eigi ekki von á öðru en end-
umýjun í forystu flokksins gangi
átakalaust fyrir sig.
um landið á olíuvörum, þá geri
ég enn sterkari athugasemdir við
það. Að öðru leyti vil ég ekki tala
um málið fyrr en ég hef séð þetta
svart á hvítu,“ sagði Matthias
Bjarnason alþingismaður um
frumvarp viðskiptaráðherra um
Steingrímur segist vera stoltur
af þátttöku sinni í stjórnmálum síð-
ustu tvo áratugi. Þeir hafí verið
farsælir og það uppbyggingarstarf
sem unnið hafi verið í íslensku þjóð-
lífí á þessu tímabili sé sá grunnur
sem byggt sé á í dag. Hann segist
sjá einna mest eftir því að ekki
hefði verið tekið með öðrum hætti
á stjóm peningamála í ríkisstjóm-
inni 1983. Verðtrygging fjármagns
skyldi ekki hafa verið afnumin að
minnsta kosti í áföngum og þannig
komið í veg fyrir gífurlega skulda-
söfnun hjá heimilum og fyrirtækj-
um og að ekki skyldi hafa tekist
að hafa hemil á vöxtum eins og til
stóð þegar þeir hafí verið hækkaðir
árið 1984.
afnám Iaga um flutningsjöfnunar-
sjóð olíu og bensíns. Forsljóri
Skeþ’ungs fagnar frumvarpinu og
framkvæmdastj óri Verslunarráðs
segpr að núverandi kerfí bjóði upp
á óhagkvæmni og markmiðið sé
að afnema það.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins höfðu tvö frumvörp verið í
undirbúningi varðandi fyrirkomulag
flutningsjöfnunar olíuvara að undan-
fömu. I öðru var gert ráð fyrir að
dregið yrði úr flutningsjöfnun þannig
að hún takmarkaðist við sjóflutninga
pg ákveðna birgðastaði innanlands.
í hinu eru hins vegar lög um flutning-
sjöfnunarsjóð og innkaupajöfnun olíu
og bensíns afnumin og jafnframt sú
skylda olíufélaganna að bjóða sama
verð um allt land. Niðurstaða ráð-
herra varð sú að leggja síðamefnda
frumvarpið fram um algjört afnám
flutningsjöfnunar.
Kristinn Bjömsson, forstjóri Skelj-
ungs hf., segir að ef um stjómar-
frumvarp sé að ræða þá fagni hann
því mjög. „Ég er eindregið á þeirri
skoðun að lögin um flutningsjöfnun
frá 1985 séu til mikillar óþurftar í
olíudreifíngarmálum á íslandi,“ segir
hann. Kristinn sagðist sammála
viðskiptaráðherra um að þessi breyt-
ing myndi auka samkeppni olíufélag-
anna og verða mikill hvati til að fé-
lögin reyndu með öllum ráðum að
koma þessari vöru til endanlegs not-
anda hvar sem hann er staddur á
sem ódýrastan hátt. Þau muni reyna
að vera samkeppnishæfari en mót-
aðilinn til að geta boðið vöruna á sem
lægstu verði. „Ég tel að þetta sé
fyrst og fremst samkeppnisatriði.
Varan verður kannski á eitthvað
mismunandi verði en þó aldrei dýrari
en svo að ekki sé hægt að selja hana,“
sagði Kristinn.
Vilhjálmur Egilsson, alþingismað-
ur og framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs íslands, segir að Verslunarráðið
hafi stutt afnám flutningsjöfnunar.
„Ástæðan er fyrst og fremst sú, að
þetta kerfi býður að mörgu leyti upp
á óhagkvæmni í þessum viðskiptum.
Það hefur til dæmis komið í veg fyr-
ir að útgerðin gæti keypt olíu á eðli-
legu verði. Þetta hefur ekki hjálpað
okkur í samkeppninni um viðskipti
við erlenda aðila. Svo er spurning
hvort sé eðlilegt að byggja upp mik-
ið dreifingarkerfi sem hvílir eingöngu
á flutningsjöfnuninni," sagði hann.
Vilhjálmur sagði að ýmsar leiðir
væru færar að því markmiði að
leggja flutningsjöfnunarkerfíð niður
en það ætti eftir að koma í ljós hvort
menn vildu taka þetta í einu stökki
eða í áföngum.
Heklaflytur
inn Kia-bíla
HEKLA hf. er að semja við
kóreska bílaframleiðandann
Kia um að taka við umboði
fyrir bílana hér á landi. Hekla
hefur þegar fengið bíl af gerð-
inni Kia Sephia hingað til
lands.
Sigfús Sigfússon forstjóri
Heklu hf. segir að framvinda
þessa máls byggist alfarið á því
verði sem Hekla fái bílana á en
ennþá hefur ekki verið gengið
frá neinu í því sambandi. Kia,
sem er næststærsti bílaframleið-
andinn í Suður-Kóreu, er að
byija að markaðssetja sína bíla
í Evrópu og er bíllinn m.a. kom-
inn til Þýskalands og Danmerk-
ur.
Sjá „Hekla að semja ...“
bls. Cl.
Steingrímur segir
af sér á miðstjómar-
fundi 15.-16. apríl
- verði hann skipaður í stöðu seðlabankastjóra
STEINGRÍMUR Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, skil-
aði inn umsókn um stöðu seðlabankastjóra til Sighvats Björgvinsson-
ar viðskiptaráðherra. Steingrímur segir í Tímanum í gær að þetta
sé að mörgu leyti heppilegur tími til að hætta afskiptum af sljórnmál-
um, hann sé orðinn 65 ára gamall og Framsóknarflokkurinn standi
sterkt.
A
► 1-4?
Ungir menn á niðurleið
►í Síðumúlafangelsi sitja nú tveir
16 ára piltar sem eru að hefja
kynni sín af fangelsiskerfinu. Þeir
eiga að baki fjölda afbrota. Hér
er fjallað um þá málsmeðferð sem
afbrot unglinga fá og mögulegar
breytingar á meðferð afbrotaungl-
inga. /10
Loksins í lestina
► Svíar, Finnar og Austurríkis-
menn hafa náð samkomulagi við
Evrópusambandið um aðild.
Reikna má með að eðli og mikil-
vægi Norðurlandasamstarfsins
fnuni minnka. /12
Tromp eða tvist?
►Þegar búvörudeilan stóð sem
hæst blossuðu upp vangaveltur um
hvort þingrof væri í aðsigi og hvort
stjórnarskrárbreytingin 1991
þýddi að hönd forsætisráðherra
væri veikari en ella. /16
Meistari Magnús
►Evrópumeistarinn íþolfimi,
Magnús Scheving, er trésmiður,
þolfimikennari, skemmtikraftur og
starfar mikið með unglingum.
Hann er óstöðvandi vinnuþjarkur
og æfir nú ötullega fyrir heims-
meistaramótí Japan. /18
Hið mikla návígi
►Kjartan Lárusson er forstjóri
Ferðaskrifstofu íslands hf. Hann
hefur haft góða yfirsýn yfír ferða-
þjónustu hér á landi um langt ára-
bil. /20
B
► 1-28
Jötunspil í jökulheim-
um
►Síðujökull, suðvestan í Vatna-
jökli, hefur verið á ferðalagi frá
því í janúar. Margir hafa lagt leið
sína að jöklinum og skoðað þetta
stórbrotna náttúruundur. /1
Með hækkandi sól
►Framhaldsskóli Vestfjarða held-
ur nú árlega sólrisuhátíð. í skólan-
um er boðið upp á íjölbreytt nám,
meðal annars fyrir skíðafólk. /4
C BÍLAR
► 1-4
Hekla hf. að semja við
Kia bílaframleiðand-
ann í Kóreu
►Hekla hf. hefur þegar fengið
sýningarbíl til landsins frá næst-
stærsta bílaframleiðanda í Suður
Kóreu. /1
Daihatsu Charade
►Nýjustu útgáfu af Daihatsu
Charade TR var nýlega hleypt af
stokkunum. Þessi bíll hefur stund-
um verið mest seldi smábíll lands-
ins. /4
Fréttir 1/2/4/6/bak
Leiðari
Helgispjall
Reykjavikurbréf
Minningar
íþróttir
Útvarp/sjónvarp 48
Gárur
Mannlífsstr.
Kvikmyndir
INNLENDAR FRÉTTIR-
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR-
1-4
'IR ÞÆTTIR
/bak Da;gurtónlist 15b
26 Fólk i fréttum 20b
26 Myndasögur 22b
26 Brids 22b
28 Stjömuspá 22b
46 Skák 22b
48 Bfó/dans 23b
51 Bréf til blaðsins 28b
6b Velvakandi 28b
14b Samsafnið 30b