Morgunblaðið - 06.03.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994
5
Fundur um samkeppnismál hjá Samtökum iðnaðarins
Hugmynd um vanskila-
lista yfir fyrirtæki
Á félagsfundi Samtaka iðnaðarins í liðinni viku kom fram hug-
mynd um að gefa út lista yfir fyrirtæki sem væru í vanskilum innan
samtakanna. Að sögn Andrésar Magnússonar lögfræðings samtak-
anna er vijji fyrir því hjá aðildarfélögum að samtökin sjái um upplýs-
ingamiðlun um þessi efni.
Andrés Magnússon sagði við
Morgunblaðið, að áhugi væri meðal
fjölda aðildarfyrirtækja Samtaka
iðnaðarins á því að samtökin móti
reglur um það hvernig varað verði
við viðskiptavinum sem hafi orðið
uppvísir að alvarlegum vanskilum.
Andrés sagði að fyrirtæki yrðu oft
fyrir verulegum skaða við stór
gjaldþrot viðskiptavina þeirra, og
væri gjaldþrot Miklagarðs dæmi um
slíkt.
Andrés sagði það spurningu hvað
'Samtök iðnaðarins gætu gengið
langt í þessum efnum án þess að
bijóta í bága við samkeppnislög.
Þó iægi ljóst fyrir, að miðla mætti
upplýsingum um fyrirtæki sem ekki
hefðu staðið í skilum við aðildarfyr-
irtæki SI. Þá væri einnig ljóst að í
Danmörku gengju samtök atvinnu-
rekenda í Danmörku mjög langt í
þessum efnum og hefðu komist upp
með það gagnvart samkeppnislög-
um þar í landi.
Fákeppni í bygg-
ingavöruverslun
Á félagsfundinn komu Georg
Kæra undir-
búin vegna
ólöglegra
fískveiða
FISKISTOFA undirbýr nú kæru
vegna ólöglegrar Iöndunar skips
á seinasto fiskveiðiári. Að sögn
Þórðar Ásgeirssonar, fiskistofu-
stjóra, stóðu landanir yfir í tals-
verðan tíma en málið hefur verið
í rannsókn seinustu mánuði. Upp-
skátt varð um ólöglega veiði og
löndun skipsins þegar í ljós kom
að fyrirtæki sem gerir viðkomandi
skip út framleiddi vöru án þess
að kaupa hráefni til framleiðsl-
unnar. „Þetta sýnir að þó að menn
komist í einhverjum tilvikum
framhjá vigtinni eru þeir ekki
sloppnir, við fáum skýrslur víðar
en frá hafnarvogum, s.s. svokall-
aðar ráðstöfunarskýrslur," segir
Þórður.
Þórður segir að rannsókn sé lokið
og verði viðkomandi aðili kærður
fljótlega. Meðal þess sem Fiskistofa
tók til rannsóknar var bókhald fyrir-
tækisins. Hann vildi ekki greina frá
því í hvaða byggðarlagi löndun fór
fram, hversu miklum afla skipið
landaði og hver aflasamsetning var,
en tók þó fram að ekki væri um
aðila á Vestfjörðum að ræða. Þórður
segir að málið fái venjulega meðferð
opinberra mála og krafist verði refs-
ingar yfir viðkomandi aðila fyrir
lagabrot, auk þess sem Fiskistofa
muni leggja gjald á þann afla sem
um er að ræða og var ekki gefinn
upp, í samræmi við lög um álagningu
gjalds vegna ólögmæts sjávarafla.
Enn sé ekki ljóst hversu hárrar fjár-
hæðar verður krafist, en um sé að
ræða fullt andvirði þess afla sem
Fiskistofa telur að hafi verið veiddur.
Mál þetta er hið fyrsta sinnar teg-
undar síðan Fiskistofa tók til starfa
fyrir hálfu öðru ári og segir Þórður
að stofnunin liti þetta brot mjög al-
varlegum augum. „Við munum
bregðast við öðrum sambærilegum
málum ef þau koma upp á sama
hátt, enda okkar hlutverk að fylgjast
með og koma upp um brot sem þessi
ef þau eiga sér stað,“ segir Þórður.
Hann segir að staðreyndir málsins
séu óyggjandi og hafí hinn brotlegi
vart getað þrætt fyrir sekt sína.
Ólafsson forstjóri Samkeppnis-
stofnunar og Guðmundur Sigurðs-
son viðskiptafræðingur hjá Sam-
keppisstofnun og fluttu erindi um
samkeppnislög og reglur og sátu
síðan fyrir svörum um breyttar að-
stæður í samkeppnismálum.
í almennum umræðum á eftir var
meðal annars fullyrt að um ákveðna
fákeppni væri að ræða á bygginga-
vörumarkaði og byggingavöruversl-
anir neituðu að selja vöru frá fram-
leiðendum sem seldu beint sjálfir.
Einnig kom fram það sjónarmið,
að átaksverkefni sveitarfélaga
leiddu oft aðeins til þess að störfin
soguðust frá einu sveitarfélagi til
annars, sem gæti vart talist eðlileg
samkeppni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ræða um samkeppnismál
FRÁ félagsfundi Samtaka iðnaðarins. Guðmundur Sigurðsson við-
skiptafræðingur heldur erindi um samkeppnismál.
Thailand,
litríkt
ævintyri!
Thailand er ekki lengur eins fjarlægt og þú
heldur. Ferð í 13 daga til Thailands með dvöl á
Royal Cliff Bay Resort lúxushótelinu býðst nú á mjög hagstæðu verði.
Á hótelsvæðinu er að finna úrvals strendur, sundlaugar, dýrindis veitingastaði
auk góðra verslana og íþróttasvæða. Margir möguleikar eru á ferðum um
Thailand en einnig gefast möguleikar á stuttum ferðum
frá Bangkok til nágrannalandanna Laos, Kampútseu j| 4!
og Víetnam.
Verð frá 86.610 kr.*
Nýr og glæsilegur ferðabæklingur um Asíu.
Komið og fáið eintak.
Hagstæðar ferðir bjóðast einnig til Penang í Malasíu og dvöl
á lúxushóteli í 13 daga. Verð frá 108.310 kr.*
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða Flugleiða eða
ferðaskrifstofuna þína.
SAS, sími 622211. Flugleiðir, sími 690300.
‘Innifalið í verði: Flug, gisting fyrir einn í 2ja manna herbergi í 10 nætur og flugvallarskattur.
/Í///SAS FLUGLEIDIR