Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 14

Morgunblaðið - 06.03.1994, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994 -í TROM TVSTU V2 eftir Pál Þórhallsson FORSÆTISRÁÐHERRA í ríkisstjórn hveiju sinni hefur tromp á hendi þar sem er þingrofsheimildin. Þegar þingið gerist tregt í taumi hefur forsætisráðherra getað rofið þing fyrirvaralaust, sent þingmenn heim og boðað til kosninga eins og dæmi eru um. Fyrir þremur árum var stjórnarskránni breytt á þann veg að þingrofsheimildin var takmörkuð og staða Alþingis styrkt. Ólafur Hannibalsson blaðamaður flutti útvarpser- indi um síðustu helgi þar sem hann velti upp þeim mögu- leika að yrði búvörudeilan ekki leidd til lykta gæti myndast nýr meirihluti á Al- þingi sem skákaði forsætis- ráðherra og kæmi í veg fyrir að hann gæti rofið þing. Þessi boðskapur olli allnokkrum titringi, þingmenn dustuðu rykið af stjórnarskránni og veltu því fyrir sér hvað gæti verið hæft í þessu og sýndist sitt hveijum. 4 í « Forsætisráðherra hefur vald til að rjúfa þing en hann þarf atbeina forseta enda er þingrofsvaldið formlega í höndum forseta sam- kvæmt stjómarskránni. Skýringin er söguleg, þin- grofsvaldið var upphaflega vald þjóðhöfðingjans til að senda þing- ið heim. Heimildin til að ijúfa þing áður en kjörtímabili er lokið hefur þróast með ýms- um hætti og sums staðar hefur hún verið afnum- in eins og í Noregi. Þar er kosið á fjögurra ára fresti og þess á milli verða menn að gera svo vel að stjórna landinu hvort sem þeim líkar betur eða verr. En hvað felst í þingrofs- heimildinni eins og hún var fram að stjórnarskrár- breytingunni 1991? Gera verður greinarmun á þin- grofsúrskurði eða ákvörðun um þingrof og þingrofi 'sem slíku. I stjómarskránni var gert ráð fyrir að þetta færi hvort tveggja saman, að þingmenn misstu umboð sitt þegár við þingrof, þ.e. þegar þingrofs- úrskurður væri birtur. Oftast var samt svo mælt fyrir um í þingrofs- úrskurði að þingrofið skyldi ekki taka gildi fyrr en síðar, þ.e. á kjördegi. Tvö kunn dæmi eru þó um að þingrof forsætisráðherra tæki strax gildi, af hálfu Tryggva Þórhallssonar 1931 og Ólafs Jóhannessonar 1974. Ekki leikur vafi á að ákvarðanir þeirra voru í fullu samræmi við stjórnar- skrána þótt þær væm pólitískt um- deildar. Stjórnarskráin bauð upp á að forsætisráðherra svipti þingmenn umboði og stjómaði landinu óáreittur í tvo mánuði fram að kosningum. Auk þess máttu líða sex mánuðir frá kosningum þar til þing kæmi saman á ný. Með stjórnarskrárbreytingu árið 1991 var þetta vald takmarkað. 24. gr. stjómarskrárinnar var breytt þannig að þrátt fyrir þingrofsúrskurð halda alþingismenn umboði sínu til kjördags. Jafnframt er fresturinp frá þingrofsúrskurði' til kosninga styttur úr tveimur mánuðum í 45 daga auk þess sem þing verður að koma sam- an tíu vikum eftir kosningar í síð- asta lagi. En hvað þýðir þessi breyt- ing? Lagatextinn sjálfur og greinar- gerðin veita ekki miklar uplýsingar. Og segist Davíð Oddsson forsætis- ráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins líta svo á við fyrstu sýn að ekki hafi verið um neina efnis- breytingu á þingrofsréttinum að ræða, meginatriðið hafi verið að menn vora að stytta fresti. Sá agnúi hafí einnig þótt á því að svipta þing- menn umboði að þá var til dæmis enginn forseti þings til að gegna hlutverki handhafa forsetavalds. Að sögn Gunnars G. Schrams pró- fessors í stjómskipunarrétti er helstu heimildina um skýringu á stjórnar- skrárgreininni eftir breytingu að finna í umræðum á Alþingi, nánar tiltekið framsöguræðu Ólafs G. Ein- arssonar en að framvarpinu stóðu formenn allra þingflokka. Ólafur G. sagði meðal annars að tilgangurinn væri að treysta stöðu Alþingis og koma í veg fyrir að hægt væri að svipta þingmenn umboði fyrirvara- laust. Ef breytingin næði fram að ganga tæki þingrof aldrei gildi fyrr en á kjördegi. „Samkvæmt frum- varpinu ber því þingrof að með þeim hætti að Alþingi er rofið þegar for- seti íslands, í reynd forsætisráð- herra, tekur ákvörðun um slíkt og gerir það kunnugt með forsetabréfi, en síðan þarf að fresta þinginu til þingloka, þ.e. fram að kjördegi. Þing- inu verður auðvitað ekki frestað fyrr en samþykki þess liggur fyrir, en í raun mun þó aldrei geta liðið langur tími frá því að þingrof er kunngert og þar til þingið lýkur störfum því frestir era það stuttir fram að kosn- ingum að þingmenn eru auðvitað knúnir til þess að ljúka þingstörfum mjög fljótlega eftir tilkynningu um þingrof," sagði í framsöguræðunni. Framvegis ekki stórdeilur um þingrof Um þýðingu þessarar breytingar í sögulegu samhengi sagði Ólafur G. Einarsson: „Hér er auðvitað um mjög mikilsverða breytingu að ræða og Ijóst að framvegis verða ekki slík- ar stórdeilur um þingrof og verið hafa a.m.k. tvisvar, þ.e. 1931 og 1974, þegar Alþingi var rofið frá og með þeim degi þegar kunngert var um þingrofið. Við eram vissulega ekki að Ieggja neinn dóm á þá at- burði er þá gerðust, síður en svo, en með þessu frumvarpi er ver- ið að leggja til að þó að Alþingi sé rofið, þá verði þingmenn ekki umsvifalaust sviptir umboði. Forsæt- isráðherra hefur áfram þingrofsrétt- inn en hann getur ekki tekið umboð- ið af alþingismönnum og heldur ekki bundið enda á þingstörf fyrr en meiri hluti Alþingis veitir samþykki sitt til þess að þingstörfum verði hætt eftir þingrofsákvörðunina fram að kjördegi þegar nýtt umboð er veitt.“ Þingið getur því starfað frá þing- rofsúrskurði fram að kosningum. Hve langur er sá tími? Eins og áður segir mega ekki líða meira en 45 dagar og í raun er örðugt að halda þingkosningar með öllu styttri fyrir- vara en mánaðar. Til dæmis segir í 26. gr. kosningalaga að öll framboð til alþingiskosninga skuli tilkynnt yfirkjörstjórn skriflega eigi síðar en 2 vikum fyrir kjördag og í 19. gr. sömu laga segir að 24 dögum fyrir kjördag skuli leggja kjörskrá fram til sýnis. Forsætisráðherra með atbeina for- seta getur þó klipið framan af þeim tíma sem þingið hefur til ráðstöfunar fram að kosningum. Samkvæmt 23. gr. stjórnarskrárinnar getur forseti frestað fundum Alþingis í allt að tvær vikur einu sinni á ári. En hann verður samkvæmt sömu grein að kveðja Alþingi saman til funda ef ósk berst um það frá meirihluta al- þingismanna. Þingið getur auðvitað sinnt öllum venjulegum störfum frá þingrofsúr- skurði til kjördags. Það getur meðal annars samþykkt vantraust á ríkis- stjórnina og myndað nýja stjóm. En það getur ekki frestað kosningunum sem boðaðar voru um leið og þingrof- ið. En hvaða máli skiptir þessi breyt- ing? „Það liggur auðvitað fyrir að það var gerð sú breyting á stjórnar- skránni að þingið situr áfram og þar með er búið að taka af forsætisráð- herra þann rétt að svipta þingið umboði. Þetta styrkir almennt stöðu þingsins og meirihluta þess gagnvart þingrofsvaldi forsætisráðherra," seg- ir Olafur Ragnar Grímsson, formað- ur Alþýðubandalagsins. „Ut af fyrir sig sé ég ekki að þingrofsréttur for- sætisráðherra hafi breyst mikið,“ segir Steingrímur Hermannsson for- maður Framsóknarflokksins. En er það til dæmis raunhæfur möguleiki að þingið taki sig til og myndi nýja ríkisstjórn eftir þingrofs- úrskurð? „Þingrofsheimildin var tak- mörkuð mjög og þingið hefur nokkuð sjálfstæða stöðu,“ segir Sigurður Líndal prófessor í almennri lögfræði. „Forsætisráðherra getur fræðilega notað heimild 23. gr. stjórnarskrár- innar til að senda þingið heim. En það gildir einungis í tvær vikur. Þing- ið hefði því frítt spil eftir það og fram að kosningum. En tíminn væri auðvitað mjög stuttur og lítið svig- rúm til dæmis fyrir nýja stjórn ef því væri að skipta. Þó má auðvitað segja að það sé styrkur í kosningum að geta haft valdið í landinu en bera þó í raun enga ábyrgð.“ Bryndís býður í mat í útvarpspistli sínum leggur Ólafur Hannibalsson út af því að forsætis- ráðherra fer ekki einn með þingrofs- valdið heldur verður forseti að stað- festa gjörninginn með undirskrift sin.ni. „Setjum sem svo að í staðinn , fyrir lifur hafi Bryndís kjúklinga- bringur, kalkúnalappir og skinku í matinn á Vesturgötunni nún_a um helgina [þ.e. síðustu helgi] og Ólafur Ragnar og Steingrímur ákveði að kíkja inn og endurnýja gamlan kunn- ingsskap. Þegar þeir hafa kyngt þessu lostæti í rólegheitum kemur þar tali þeirra að þeir telja að fiokk- ar sínir í Reykjavík hafi sýnt gott fordæmi með því að sameinast um einn lista og rétt sé að láta þessa nýju stöðu endurspeglast í lands- stjórninni. Þeir láta forseta Islands vita að meirihluti sé brostinn fyrir núverandi ríkisstjóm, en nýr meiri- hluti reiðubúinn að taka við og sitja út kjörtímabilið. Að loknum fundi landbúnaðamefndar á þriðjudag kemur svo Davíð að máli við forseta og biður hana að heimila sér að ijúfa þing. Hvað gerir forsetinn þá? Hvor- um aðilanum á hann að veita fullt- ingi sitt, forsætisráðherranum eða þingmeirihlutanum?" sagði Ólafur í pistli sínum. En hvað segja stjórnmálaforingj- arnir um þessar vangaveltur? „Menn vora farnir að velta því fyrir sér hvort forsætisráðherra hygðist ijúfa þing,“ segir Steingrímur Hermanns- son. „Menn voru farnir að hugsa sem svo, hann hlýtur að ætla að rjúfa þing fyrst hann gerir ekki harðari tilraun til að ná sáttum." Steingrím- ur segir að hann hefði fagnað slíkri ákvörðun. „Ég vil gjarnan að það yrði kosið fyrr en seinna.“ Þegar Steingrímur er spurður um vanga- veltur Ólafs Hannibalssonar um að stjórnarskrárbreytingin leiði til þess að nýr meirihluti þingmanna gæti við þessar aðstæður tekið ráðin af forsætisráðherra segir hann: „Ég var dálítið undrandi að heyra þetta en mér er tjáð að sumir virtir lögfræð- ingar telji að svo sé. Ef að forseti hefur fyrir framan sig vilja meiri- hluta Alþingis til að mynda aðra rík- isstjórn þá beri honum ekki að sam- þykkja þingrofstillöguna."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.