Morgunblaðið - 06.03.1994, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR SUNNUDAGUR 6. MARZ 1994
ur sem hann hafði einsett sér að
láta rætast. Þegar hann kom í skól-
ann hafði hann aflað sér reynslu
af starfi með ungu fólki og þroska-
skertum einstaklingum. Samhliða
náminu vann hann með bömum
með einhverfu. Eitt síðasta verkefni
hans var námsefni sem hann skrif-
aði til að vekja til umhugsunar um
málefni þeirra.
Helga fannst tíminn dýrmætur
og hann lagði mikið undir. Hann
tók virkan þátt í félagsstörfum og
var fulltrúi nemenda í ýmsum
nefndum og ráðum. Hann hafði list-
ræna hæfileika, fékkst við að yrkja
og sendi frá sér tvær ljóðabækur.
Hann hafði áhuga á leikstarfsemi
og leikrænni tjáningu. Okkur líður
seint úr minni frammistaða hans á
síðustu árshátíð skólans þegar hann
brá sér með eftirminnilegum hætti
í gervi kennara og nemenda.
Helgi hafði áhuga á öllu sem við-
kemur mannlífinu og hefur það án
efa ráðið því að hann fór í kennara-
nám. Valgreinarnar kristin fræði,
félagsfræði og sögu valdi hann í
samræmi við þann áhuga. í
kennslustundum var Helgi opinn
og spurull og hafði margt til mála
að leggja.
Það er alltaf erfitt að horfast í
augu við skyndilegan dauða ungs
fólks í blóma lífsins. Sérstæður per-
sónuleiki er horfinn langt fýrir ald-
ur fram. Við höfum fengið enn eina
áminningu um nálægð dauðans í
lífinu og lútum höfði í sorg. Ástvin-
um Helga Más vottum við dýpstu
samúð.
F.h. Kennaraháskóla íslands,
Erla Kristjánsdóttir,
Gunnar J. Gunnarsson,
Ingvar Sigurgeirsson,
Dóra S. Bjarnason.
Okkur setti hljóðar. Helgi er dá-
inn. Minningarnar streyma fram í
hugann: spurningarnar, athuga-
semdimar, húmorinn og hláturinn.
Spumingar og athugasemdir
Helga urðu oft til þess að líflegar
umræður sköpuðust í kristinfræði-
tímum. Hann sá oft málin frá öðm
sjónarhorni en við og var óhræddur
að láta það í ljós. Það var eiginleiki
sem okkur þótti vænt um.
Það verður tómlegt í kristin-
fræðitímunum sem eftir eru, því
stórt skarð hefur myndast í litla
hópinn okkar. Enginn mun fylla það
skarð, en í hugum okkar mun minn-
ingin um hann lifa. Við kveðjum
Helga með sárum söknuði og vott-
um aðstanderidum hans okkar
dýpstu samúð.
Jesús mælti: „Ég er upprisan og
lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa,
þótt hann deyi. Og hver sem lifir
og trúir á mig mun aldrei að eilífu
deyja." (Jóh. 11. 25-26.)
Vinir í kristinfræðivali í KHÍ.
Kveðja frá Knattspyrnufé-
laginu Haukum
Þegar ungur maður fellur frá í
blóma lífsins, verður okkur sem
eftir stöndum orðfall. Ljúfur og
elskulegur drengur og hinn besti
félagi hefur lokið sinni lífsgöngu.
Þótt hún spannaði ekki nema ríflega
þrjá áratugi, þá var hún bæði við-
burðarík og eftirminnileg og sökn-
uðurinn er sár.
Helgi Már Jónsson var einn af
þeim ágætu Haukafélögum sem var
fæddur og uppalinn á Holtinu,
sjálfu höfuðvígi Haukanna. Þar átti
hann stóran og góðan vinahóp sem
fylgdist að hvort heldur var í leik
eða starfi.
Helgi Már æfði og keppti í hand-
knattleik með öllum yngri flokkum
Hauka og var dyggur stuðnings-
maður og áhugasamur um vel-
gengni félagsins, eftir að hann
hætti keppni sjálfur. Góður árangur
félagsins á íslandsmótinu í hand-
knattleik í vetur yar honum sem
fleirum mikið ánægjuefni og hann
fylgdist vel með og af miklum
áhuga.
Við Haukafélagar þökkum sam-
fylgdina og samstarfið og sendum
ættingjum og vinum hugheilar sam-
úðarkveðjur. Blessuð sé minning
Helga Más.
Lúðvík Geirsson, formaður
Ilauka.
í dag kveðjum við Helga Má,
skólabróður okkar í Kennaraháskól-
anum. Hann tók virkan þátt í fé-
lagslífi skólans og var m.a. í nem-
endastjórn og starfaði í ýmsum
nefndum.
Helgi var persónuleiki sem allir
tóku eftir. Þrátt fyrir að eflaust
hafi skipst á skin og skúrir í lífi
hans var hann jákvæður að eðlis-
fari og hafði það óneitanlega áhrif
á okkur hin. Honum var ekkert
mannlegt óviðkomandi og hann
hafði velferð allra að leiðarljósi.
Hann var alltaf tilbúinn að ræða
málin og urðu umræður og pæling-
ar oft djúpar, þar sem bijóta þurfti
málin til mergjar.
Á árshátíð skólans sem nýlega
var haldin sló hann eftirminnilega
í gegn í söngleik sem þar var settur
upp. Atriði hans var lítið, en vakti
þó hvað mesta lukku.
Við kveðjum Hgela Má með sökn-
uði og munum ætíð minnast hans.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vom grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgrímur I. Hallgrímsson)
3. árs nemar í KHÍ.
Fleiri minningargreinar um Helga
Má Jónsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Stóragerði 24 - Opið hús
Til sýnis og sölu 4-5 herb. 96 fm íbúð á 1. hæð. Bíl-
skúrsréttur. Laus strax. Hús nýviðgert utan. Verð 7,8 m.
Verður til sýnis sunnudaginn 6. mars frá kl. 13-16.
Húsið -fasteignasala,
Skeifunni 19, sími 684070.
Eyþór Eðvarðsson, hs. 679945.
LAUFÁS
ASTEIGNASAL
SlÐUMÚLA 17
812744
Lágmúli
Leiga - sala
Fax: 814419
i ui
i i
Skrifstofuhúsnæði íboði!
Lögfræðingar - Tryggingafélög - Verkfræðingar - Verðbréfafyrirtæki -
Arkitektar - Opinberar stofnanir - Læknar - Hugbúnaðarfyrirtæki -
Endurskoðendur - Félagastarfsemi - Tannlæknar - Námskeiðahald
Rekstrarráðgjafar - Auglýsingstofur - Sálfræðingar
Skipulag: Húsnæðið er ca 400 fm og skiptist í 8 skrifstofur, funda-
herbergi, afgreiðslu, skrifstofutorg, tvær skjalageymslur.
(önnur eldtraust), kaffistofu og snyrtiherbergi.
Önnur gæði: Gott ástand, lyfta, áberandi skiltastaðir, friðsæl gata en
örskammt í greiðar akstursleiðir í allar áttir, frábært út-
sýni, GÓÐ BILASTÆÐI.
Hótel á Hvammstanga
Til sölu hótel Vertshús á Hvammstanga. Hótelið, sem
er vel tækjum búið, er í nýlegu 338 fm timburhúsi.
Góður veitingasalur, sex 2ja manna herb. Allur búnaður
flygir. Skipti á fasteign á höfuðborgarsv. koma til greina.
Fasteignamarkaðurinn hf.,
Óðinsgötu 4, símar 11540 og21700.
iIOLl
FASTEIGN ASALA
-a* 10090
SKIPHOLTI 50B, 2. hæð t.v.
Franz Jezorski, lögg. fast.sali.
Bollagarðar
Stórglæsil. 235 fm einbhús é tveimur
hæðum á þessum fráb. útsýnisstað á
Seltjnesi. Sérlega vandaðar innr. Skipti
mögul. á ódýrari eign. Verð 16,9 millj.
Austurbrún
Góð 48 fm íb. á 5. hæð með alveg
dúndur útsýni yfir Viðey og Sundin.
Nýtt gler. Gott fyrir einstaklinga. Áhv.
húsbr. 2,9 millj. Verð 4,6 millj.
Langholtsvegur - bflsk.
Rúmg. og björt 92 fm íb. á 1. hæð í
góðu steinh. Skiptist m.a. í 3 herb. og
stofu. Stór og góður bílskúr fylgir. Áhv.
5,0 millj. Verð 9,0 millj.
Opið í dag kl. 14-17
Engihjalli 19, íb. 4D
Reynihvammur 27, Kóp.
Þessi fína íbúð um 100 fm verður til
sýnis í dag kl. 14-17. Heitt á könnunni
og Eyja ætlar aö baka pönnukökur fyrir
þig og þína. Skipti mögul. á minni eign
með bfl. Áhv. 4,5 millj. Verð 6.950 þús.
aðeins.
Dalbrekka 4, Kóp.
Á þessum sótríka stað ( Kóp. býðst þér
að kaupa 3ja herb. 70 fm neðri sérh.
með bílskúr á aðeins 6,8 millj. Magnús
ratvirki tekur á móti gestum og gang-
andi kl. 14-17. Gakktu í bæinn.
Smárarimi 28, Grafarv.
í þessu viröulega einbhúsi í hjarta Kóp.
býðst þér 147 fm íb. á tveimur hæðum
ásamt þrælgóðum 36 fm bílsk. íb. skipt-
ist m.a. í 4 herb. og 2 stofur. Alda sýn-
ir þér slotið í dag kl. 14-17. Hikaðu
ekki við að ganga í bæinn. Áhv. 5,5
millj. Verð 9,9 millj. (alveg fáránlegt
verð á þessari eign).
Rauðhamrar 10
Þetta fallega einbhús á einni hæö er
til sýnis fyrir alla væntanlega kaupendur
í dag milli kl. 14 og 17. Húsið er rúml.
fokh. að innan. Áhv. húsbr. 6,1 millj.
Verö aðeins 9,7 millj.
Álftamýri 54
Hér á þessum frábæra stað bjóðum við
þér og þinni fjölsk. að skoða fallega 87
fm 3ja-4ra herb. íb. í dag. Þú heimsæk-
ir Aniku milli kl. 14 og 17. Þær stoppa
ekki lengi þessar. Tækifærisverö 7,0
millj.
Fagrihjalli 86, Kóp.
Gullfalleg 110 fm íb. á 3. hæð í þessu
fallega húsi í Grafarvogi. Innr. og gólf-
efrii í sérfl. Góður bílsk. fylgir. Þú skoð-
ar hjó Björgu í dag kl. 14-17. Áhv. 5,3
millj. byggsj. Verð aðeins 10,5 millj.
Hrísateigur 17
Hér færðu 223 fm parh. á tveimur
hæðum m. innb. bílskúr á þessum skjól-
góða stað í Kóp. Húsið er ekki fullb.
Skoðaðu hjá Ingólfi í dag milli kl. 14 og
17. Skipti á minni eign. Áhv. 6,5 millj.
Verð 11,5 millj.
Hér er rótta elgnin fyrir þig. 76 fm íb.
á 2. hæð í þessu þríb. Allt endurn. innr.
o.fl. Komdu og skoðaðu í dag. María
og Sæmundur taka ó móti þér. Áhv.
3.650 þús. húsbr. Gott verð í dag.
Furubyggð 26, Mos.
Kóngsbakki 6,
3. h. t.h.
89 fm 4ra herb. ib. á 3. hæð.
Tengt fyrir þvottav. é baði. Park-
et á stofu. Ahv. gott ián frá
byggsj. 3,2 millj. Gott umhverfi.
Sklpti á ódýrera f sama hverfl.
Skoðaðu í dag.
Ef þú ert að leita að glæsil. fullb. húsi
m. bilsk., garði og öllu tilheyrandi, þá
skaltu skoða þetta hús milli kl. 14 og 17
í dag. Þú verður ekki fyrir vonbrigðum.
Verð 13,8 millj.
Lokastfgur 20
Hér (þessu vlnaiega húsl I Þing-
hottunum höfum við bréðhuggu-
lega 3ja herb. íb. sem þú skoöar
hjá Þunðí í dag kl. 14-17. Vertu
akki feimin(n) við að skoða i dag,
á morgun gæti það orðiðof saint.
Verðið er prúttað og ktárt 6 Hóli,
aðeins S,9 millj.
Opiðhús kl. 14-17