Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
Slysabætur endur-
spegla mismun á
launum kynjanna
ÚTREIKNINGUR skaðabóta vegna líkamstjóns miðast, <að sögn Ingvars
Sveinbjörnssonar lögfræðings hjá Vátryggingafélagi Isiands, við þær
tekjur sem búast má við að viðkomandi hefði haft. Sé viðkomandi í
föstu starfi er reiknað út frá launum viðkomandi eða höfð hliðsjón af
launum annarra i sama starfi en sé um að ræða ungt fólk sem ekki
hafi valið sér ævistarf er miðað við meðallaun sem ætla mætti að viðkom-
andi hefði aflað. Sé um karl að ræða er miðað við meðallaun karla en
ella meðallaun kvenna. Að sögn Ingvar Sveinbjörnsonar hafa útreikning-
ar í slíkum dæmum leitt til þeirrar niðurstöðu að meðallaun kvenna séu
um 70% af meðallaunum karla. Með gildistöku nýrra skaðabótalaga sl.
sumar var þessari reikningsaðferð hins vegar breytt þannig að þurrkað-
ur var út munur á kynferði. Við uppgjör slysa sem orðið hafa eftir
gildistöku laganna mun þvi ekki gæta þess munar eftir kynferði ungra
fórnarlamba alvarlegra slysa sem gætt hefur fram af þessu.
Ingvar Sigurbjömsson sagði að við
útreikning á tjóni þess sem verður
fyrir slysi sé miðað við laun viðkom-
andi, hafi hann haslað sér völl í
ævistarfi og þá jafnframt litið til
Kristján Jóhannsson
óperusöngvari
Samkomulag
við Ríkis-
óperuna í Vín
KRISTJÁN Jóhannsson óperu-
söngvari hefur gert samkomulag
um að syngja við Ríkisóperuna í
Vín, minnst einu sinni á ári til
ársins 2002. Kristján telur þetta
samkomulag mikla viðurkenningu
fyrir sig sem söngvara, enda Vín-
aróperan ein hin virtasta í heimin-
um.
Kristján sagði í samtali við Morg-
unblaðið að samkomulagið væri vilja-
yfirlýsing af beggja hálfu um að
hann tæki þátt í sýningum í Vín
næstu átta ár, en sérstaklega yrði
samið um hverja uppfærslu. Þessa
dagana er verið að leggja á ráðin
um verkefnaval og er rætt um að
Kristján syngi dramatísk tenórhlut-
verk í ítölskum óperum eftir höfunda
á borð við Verdi og Puccini. „I þessu
felst að þeir eru að byggja upp fram-
tíðartenór á þessu sviði. Staðreyndin
er sú að ég er 15 til 20 árum yngri
en þær stórstjömur sem nú eru að
syngja þessar óperur við Vínaróper-
una. Mönnum er ljóst að það þarf
að fara að breyta til,“ sagði Kristján.
Samkomulaginu fylgir þátttaka í
fleiri frumsýningum og almennum
sýningum en hingað til. Kristján seg-
ir að við Vínarópemna sé mikið
mannval og miklar kröfur gerðar.
Kristján á að baki fjóra samninga
við Vínaróperuna og tók nýlega í
fyrsta skipti þátt í frumsýningu og
tilheyrandi æfingum. Hann syngur
nú í Manon Lescaut eftir Puccini og
telur að frammistaða sín í þeirri
uppfærslu hafi ráðið úrslitum um
samkomulagið sem fyrr um ræðir.
„Þeir voru að reyna í mér þolrifín
og ég held að frammistaðan mín
hafi rekið á þetta smiðshöggið. Við-
tökur hafa verið geysilega góðar,“
sagði Kristján Jóhannson.
meðallauna viðkomandi stéttar. Fyrir
þessu sé löng dómvenja og hafi þess-
ar aðferðir verið margstaðfestar af
dómstólum. Þar á meðal hafi verið
staðfestur útreikningur sem taki mið
af því að meðallaun kvenna séu um
það bil 70% af meðallaunum karla.
„Þetta hlutfall hefur farið hækkandi
á undanfömum árum og vonandi
þurrkast munurinn út sem fyrst,“
sagði Ingvar. „Þessi dómvenja styðst
við þau rök að sá sem ábyrgð ber á
slysi eigi að bæta það tjón sem hann
veldur."
Ingvar sagði að samkvæmt nýju
skaðabótalögunum væri ailur kynja-
munur þurrkaður út þannig að ungl-
ingar fengju sömu bætur án tillits
til kynferðis og bætur vegna alvar-
legri slysa hefðu verið stórlega
hækkaðar. Þessi breyting hefði m.a.
verið gerð vegna gagnrýni á þann
mun sem verið hefði á bótafjárhæð
eftir kynferði en sá munur hefði eins
og fyrr sagði miðast við útreikning
út frá raunverulegum tekjum við-
komandi hópa í þjóðfélaginu.
Morgunblaðið/Arnór
INGVAR Jónsson við spilaborðið. Andstæðingurinn er gamla
kempan Hjaiti Elíasson, en hann leiddi sveit sina í úrslitakeppn-
ina með ævintýralegum lokaspretti.
Ekkert kynslóöabil
í bridsíþróttinni
INGVAR Jónsson heitir hann
og er aðeins 13 ára. Hann var
meðal þátttakenda í undan-
keppni Islandsmótsins i brids
sem fram fór á Hótel Loftleið-
um um helgina.
„Þetta er ekkert erfitt og
búið að vera gaman. Ég er búinn
að fá 2 gullstig, held ég. Ég
spila mikið - mest við Birki
bróður, en stundum við Kristján
Blöndal. Við Kristján unnum
innanfélagsmót á Króknum í
vetur og svo urðum við þriðju á
Norðurlandsmótinu," sagði hinn
ungi spilari þegar hann var
spurður um þátttökuna.
Ingvar er sonur Jóns Sigur-
björnssonar, en Jón og kona
hans, Björk Jónsdóttir, áttu
fjóra syni sem tóku þátt í undan-
keppninni.
„Við spilum einu sinni í viku
hjá bridsfélaginu en svo spilum
við líka í Fljótunum. Svo er spil-
að heima. Stundum er sveita-
keppni og þá eru Jón Kort afi
og Guðlaug amma líka með en
þau spila ekki hjá bridsfélag-
inu,“ sagði Ingvar Jónsson í ör-
stuttu spjalli í mótslok.
Sjá umfjöllun um undan-
keppni íslandsmótsins á bls.
35.
Fundu 220
grömm af
kókaíni
FÍKNIEFNALÖGREGLAN lagði
hald á 220 grömm af kókaíni hjá
þremur mönnum sem handteknir
voru um helgina og er talið að
einn þeirra hafi flutt efnið inn til
landsins frá Mið-Ameríku í byijun
mánaðarins.
Mennirnir sem eru 26-32 ára
gamlir, voru handteknir um helgina,
einn er talinn hafa flutt efnið inn til
landsins um Keflavíkurflugvöll þegar
hann kom til landsins frá Mið-Amer-
íku í byijun mánaðarins og hinir eru
taldir hafa átt þátt í að dreifa efninu
innanlands. Ekki lá fyrir í gær sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hve mikið kókaín mennirnir hefðu
flutt inn til landsins eða hve stórum
hluta þess hefði verið dreift hér áður
en þeir voru handteknir.
Þetta er fjórða stærsta kókaínmál
sem komið hefur upp hérlendis. Ein-
ungis einn þremenninganna hefur
áður komið við sögu fíkniefnamála.
---------♦ »--♦--
Reykjanes-
braut lokuð
SLÆMT veður var og léleg færð
á Reykjanesbraut í gærkvöldi.
Mikii ofankoma var með skaf-
renningi og blindu.
Að sögn lögreglunnar í Keflavík
var vitað um nokkra tugi bíla sem
ýmist höfðu verið skildir eftir utan
vegar eða voru fastir á veginum
þegar líða tók á kvöldið. Ekki var
búist við að brautin yrði rudd fyrr
en veður gengi niður.
Mest ankning krabbameins á íslandi vegna fólksfjölgunar
Krabbaineiiistilfellum fjölg-
ar um 76% til ársins 2010
Ekki tekið tillit tii forvamarstarfs í nýrri norrænni skýrlsu
Krabbameinstilfellum mun fjölga hér á landi úr 800 á ári nú í
1.400 árið 2010 eða um 76%. Tilfellum á Norðurlöndunum fjölgar
úr um 90 þúsund í um 125 þúsund á sama tíma eða um 37%. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu sem Norræna framkvæmdanefndin gegn
krabbameini hefur látið gera um tíðni krabbameins fram til ársins
2010. Laufey Tryggvadóttir, faraldsfræðingur, segir að spá þessi
sé líklega of svartsýn, því í henni er ekki gert ráð fyrir forvarnar-
starfi sem þjóðimar vinna.
Þessi mikla aukning á íslandi
er að hluta skýrð með mikilli fólks-
fjölgun hér á landi, en ísland er
yngst Norðurlandanna og þjóðimar
séu að eldast. Annað atriði sem
hefur áhrif á fjölgun tilfellanna er
aukning áhættu eða nýgengi sjúk-
dómsins sem segir hve mörg til-
felli greinast árlega á hvetja 100
þúsund íbúa, miðað við óbreytt
ástand.
Hér á landi er búist við að aukn-
ing verði á öllum krabbameinum
nema á magakrabbameini.
Skýrslan byggir á skráningu
krabbameinstilfella á íslandi, í
Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi og
Noregi síðastliðin 40 ár. Laufey
segir að slíkar skrár séu hvergi til
í heiminum nema á Norðurlöndun-
um, hjá krabbameinsskrám land-
anna.
Skýrslan vekur ugg
Guðmundur Ámi Stefánsson,
heilbrigðisráðherra, segir að skýrsl-
an veki ugg en ekki megi gleyma
því að mun fleiri sem fá krabba-
mein nú læknist.
Jón Þorgils Hallgrímsson, læknir
og formaður Krabbameinsfélags
íslands, segir að á árunum 1956-60
hafi um 20% þeirra sem greindust
með krabbamein lifað lengur en
fimm ár. Á árunum 1976-80 hafi
hlutfallið hins vegar verið komið
upp í 40%. Þessar tölur sýni að
meðferð krabbameinssjúkra hafi
batnað og auk þess greinist krabba-
mein fyrr _en áður.
Sjá: „íslenskir karlmenn...“
bls. 20
Námskynning í skólum
Ahugi & nýjum námsgreinum 18
Viðskipti/'Atvinnulíf
Hagnaður Olís 92 milljónir 22
Jafnaðarmenn i Neðra-Sax-
landi
Fokkamir styrkja stöðu sína 27
Guðlaugssund 10 ára
Árlegt sund nemenda Stýrimanna-
skólans 54
Leiðari_______________________
Ný forysta í borgarstjóm 28
jOjgrauiiblaftib ^ OdklCBt
Helgl Skjurðsson undlr smá-
sjánni hjá Stuttgart og Dresdcn
SvamjrísJfltuswti
Iþróttir
► Þýsk lið sýna Helga Sig-
urðssyni knattspyrnumanni
áhuga. - Kristinn og Ásta á
verðlaunapall í Svíþjóð. - Svan-
ur sjötti í Lillehammer.
Interrail kort í járnbrautarlestir
Munu verða áfram
til sölu hér á landi
LESTARKORTIN Interrail verða seld á íslandi eftir 1. apríl sem
áður. Til greina kom að meina sölu þeirra hérlendis eftir þann tíma
vegna samræmingar sölureglna milli ESB-landanna.
Greint var frá því í Morgunblaðinu
um miðjan febrúar að Ferðaskrif-
stofu stúdenta hefði borist bréf frá
dönsku ríkisjámbrautunum þar sem
greint var frá því að sala Interrail
korta yrði hugsanlega ekki leyfð á
íslandi eftir 1. apríl. Var skýrt frá
því að söluaðili yrði annaðhvort að
vera hluti af Interrail jámbrautakerf-
inu eða í eigu jámbrautafélags sem
væri hluti af því. Inga Engilberts
rekstrarstjóri ferðaskrifstofunnar
segir að sú niðurstaða að skrifstofan
mætti selja kortin hafi fengist fyrir
skömmu. „Ég veit ekki hvernig þetta
var leyst nákvæmlega en ég býst við
að það hafi verið látið gott heita að
skrifstofan skuli vera hluti af um-
boðsmannaneti dönsku ríkisjám-
brautanna," segir Inga.
\ W-
§3
j|!
M
í
Wmml
Nvjiir vjii'ur á útsöMeröi
:B«P.
eins jicssa ijora daga
KRfNGWN W
gatan min
Kringlukast
Með blaðinu í dag fylgir átta
síðna auglýsingablað frá
Kringlunni.