Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 15.03.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 17 harðri baráttu við Framsóknar- flokkinn um fylgi bænda og hafa flokkarnir af kappi stundað yfirboð á tilboðum hins með þeim afleiðing- um að sóun og ofstjóm eru einu orðin sem hægt er að nota tl að lýsa landbúnaðarkerfinu. Uppákomur Egils Jónssonar em auðvitað ekkert annað en nýjasti kaflinn í þessari dapurlegu landbún- aðarsögu Sjálfstæðisflokksins. Fortíð og framtíð Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldr- ' ei verið hinn frelsandi engill Atþýðu- flokksins. Undir lok sjötta áratug- arins gerði Alþýðuflokkurinn upp við haftakerfið og krafðist í leiðinni hagræðingar í landbúnaði. Hér fýlgdi hann svipaðri þróun og sam- bærilegir flokkar i Evrópu. A sama tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn keppst við að ná meiri fullkomnun í ríkisstýrðum landbúnaði en sjálfur Framsóknaflokkurinn. Yfír þessa óþægilegu staðreynd vill Björn Bjarnason skauta og tala þess í stað um 1934. Heldur varð honum þó hálft á því svellinu. Deilurnar um landbúnaðarmálin eiga sér sögulegar rætur sem ekki er hægt að horfa fram hjá. í við- reisnarstjórninni 1959-1971 var hart deilt um landbúnaðarmál, þó aldrei syði uppúr á sama hátt og síðustu misserin. Framtíðin skiptir þó meira máli en fortíðin. Hér skipt- ir öllu að ná sátt um framkvæmd GATT-samningsins. Ekki byrjaði það gæfulega með upphlaupi Egils Jónssonar. Vonandi verður framtíð þessa máls átakaminni. GATT er lykillinn að nýrri sátt um landbún- aðarstefnuna hér á landi. Höfundur er aðstoðarmaður umh verfisráðherra. Norðurlandanna • yfirlit yfir fjárfestingaráætlanir sem unnið er að bæði á norrænum og innlendum vettvangi • áherslu á vinnu við að koma í framkvæmd samvinnu starfsfólks innan fyrirtækja sem starfa í fleiri löndum • tillögur um hvernig hægt er að tryggja norræna samvinnulíkanið á vinnumarkaðssviðinu • tillögur um hvernig Norðurlönd- in geta viðhaldið hæfu og vel menntuðu vinnuafli • tillögur um hvernig Norðurlönd- in geta tryggt og aukið jafnrétti karla og kvenna á vinnumarkaði • tillögur um sameiginlega staðla á sviði umhverfis- og vinnuum- hverfismála, þannig að Norðurlönd- in keppi á grundvelli strangari krafna um vörur, gæði, nýjungar og þróun, en ekki á grundvelli launa og vinnuskilyrða • tillögur um aukna áherslu á fjárfestingar bæði í samgöngu- og samskiptakerfum og í félagslega geiranum • tillögur um sameiginlegar um- hverfisfjárfestingar. Höfundur er framhaldsskólakennari. SKEIFUNNI 11 • SÍMI 67 97 97 Sviptur réttindum fyrir átta umferðarlagabrot NÍTJÁN ára piltur var í fyrradag dæmdur til að greiða tíu þúsund króna sekt og þola ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði fyrir átta smærri umferðarlagabrot, sem voru framin á tímabilinu frá ágúst 1992 til september 1993. Maðurinn braut af sér með því að aka fjórurn sinnum of hratt og fara þrisvar yfir á rauðu ljósi, fyrir að bijóta beygjubann og aka þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökurétt- indum. Hvert um sig hefðu brotin að jafnaði varðað lágri fjársekt en þar sem lögreglan hefur undanfarin misseri haldið ökuferilsskrá þar sem safnað er upplýsingum um ökuferil einstaklinga var gefin út ákæra gegn piltinum og þess krafist að Silfurhúðun ^ 25% afmælisa^filrtur í tilefni 25 ára afmæli^fi|ljf@r"bjóðum við 25% afslátt af allri silfmftóðiih, t.d. á könnum, kerta- stjökum og ská&W*' Nýttu þ^j^%pWinn. Tilboðið gildir til 10. mars. ^S^rhúðun, Opið: Framnesvegi 5, Virka daga sími 19775. frá kl. 4-6 e.h. hann yrði sviptur ökuréttindum tímabundið vegna tíðra brota. Við þeirri kröfu varð Héraðsdómur svo sem fyrr greinir. Fleiri ökumenn eru í svipuðum sporum og pilturinn og hafa margít- rekað gerst sekir um ýmis minni umferðarlagabrot. Samkvæmt upp- lýsingum Morgunblaðsins hyggst lögreglan fara sömu leið með mál þeirra og bjóða þeim jafnvel sáttir sem fela í sér sviptingu ökuréttinda um tíma. Fylgstu mef) á þribjudögum! Á þriðjudögum er gefið út sérstakt íþróttablab þar sem fjallað er um allt það helsta sem gerst hefur í íþróttaheiminum innanlands og utan. Úrslit eru birt úr fjölmörgum greinum íþrótta, t.d. öllum deildum í knattspymu, hand- og körfuknattleik, einnig eru fréttir af golfi, júdó, blaki, karate, frjálsum íþróttum og kappakstri svo eitthvað sé nefnt. Viðtöl eru tekin við íþróttafólk, umsagnir um leiki og lífleg umfjöllun um allt sem tengist íþróttum. PltrgnmWaliilí - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.