Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
19
Til vamar hf. Eim-
skipafélagi Islands
eftir Vilhjálm
Bjarnason
Dekurdís Morgunblaðsins, Agn-
es Bragadóttir, birtir eina afurð
af rannsóknarblaðamennsku sinni
í Morgunblaðinu þann 12. mars.
Þar er íjallað um hf. Eimskipafé-
lag íslands. Uppistaðan í greininni
er skætingur, útúrsnúningur og
ályktanir af því dregnar.
Stærsta ályktun dekurdísarinn-
ar er sú að 11,5% af hlutafé hf.
Eimskipafélags íslands hafi tapast
á sl. þremur árum.
Nú er það svo að rekstur Eim-
skips hefur gengið þokkalega þau
ár, sem um er rætt, í tvö ár var
hagnaður tæpar 400 milljónir
hvort ár en eitt árið var 40 millj-
óna tap. Bókfært eigið fé félagsins
hefur því vaxið um 800 milljónir
á þeim tíma sem um er rætt. Því
er vandséð hvernig þessi 11,5%
af hlutafé hafa tapast. Útgreiddur
arður af hlutabréfum í Eimskip
er um 400 milljónir króna. Ekki
er ljóst hvort arðgreiðslur eru
teknar með í útreikninga dekurdís-
arinnar. Þá hafa einnig myndast
duldir varasjóðir í skipum félags-
ins, varasjóðir sem leysast upp ef
og þegar skip verða seld. Sá vara-
sjóður nemur nú um 1.500 milljón-
um króna.
Það er hins vegar rétt, að verð
á hlutabréfum í Eimskip hefur
lækkað lítillega á þeim tíma, sem
rannsókn dekurdísarinnar nær til.
Þeir einir hafa tapað, sem hafa
selt sín hlutabréf og innleyst tapið.
Annar kafli greinarinnar fjallar
um viðmiðun við ávöxtun íslenekra
ríkisskuldabréfa. Þau skiluðu 6,7
- 8,2% ávöxtun á árunum 1991 -
1993 samanborið við „4% nei-
kvæða ársávöxtun" hlutabréfa í
Eimskip þrátt fyrir hagnað á tíma-
bilinu. Þessi þriggja ára „neikvæða
ávöxtun" á Eimskipafélagsbréfum
gæti náð því að verða jákvæð með
tveggja daga verðsveiflu.
Þessi samanburður segir aðeins
eitt:
Allir
fermingarmynda
tökutímar eru að
verða
upppantaðir
í öllum okkar myndatökum eru
allar myndimar stækkaðar í
13 x 18 cm tilbúnar til að gefa
þær, að auki 2 stækkanir
20x25cmog einstækkun
30 x 40 cm í ramma
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
Ljósmyndast. Barna og
fj.myndir sími: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs
^ sími: 4 30 20
3 Odýrastir
Rekstur ríkissjóðs íslands hlýt-
ur að hafa verið svona mikið hag,-
stæðari en rekstur Eimskips á
þessu tímabili.
Nú veit dekurdísin það jafnvel
og höfundur þessarar greinar, að
á því tímabili, sem um er rætt,
var verulegur hallarekstur á ríkis-
sjóði. Fjármálaráðherrar geta
ákveðið þá vaxtaprósentu, sem
þeim sýnist á sín skuldabréf. Þeir
hafa ekki áhyggjur af endur-
greiðslu spariskírteinanna. Það
fellur í hlut eftirmanna þeirra að
greiða skuldirnar. Það er athyglis-
vert að lesa það í Morgunblaðinu,
málsvara einkaframtaks á íslandi,
að best rekna fyrirtæki landsins
sé svo aumt að það geti ekki einu
sinni keppt við ríkisskuldabréf.
Hver er meinsemdin?
Er afkoma atvinnulífsins svona
slæm eða eru vextir á ríkisskulda-
bréfum úr takt við það sem er að
gerast í landinu? Afkoma atvinnu-
lífsins er vissulega ekki góð en
ávöxtun á spariskírteinum er út í
bláinn. í raun getur aðeins eitur-
lyfjasala keppt við vaxtaákvarðan-
ir fjármálaráðherra.
Grein dekurdísarinnar er einn
samfelldur áróður til sparifjáreig-
enda um að notfæra sér þann sós-
íalíska valkost að kaupa spariskír-
teini ríkissjóðs. Mér er spurn: Á
þessi þjóð að lifa af spariskírtein-
um á komandi árum. Mér er ekki
kunnugt um að það sé nokkur
verðmætasköpun að baki þeirri
ávöxtun sem fjármálaráðherrar
bjóða þegnum sínum. Miklu heldur
er um sóun að ræða, það er verið
að gera útlendinga ríka.
Hluti af grein dekurdísarinnar
fjallar um hlutabréfakaup Eim-
skips/Burðaráss hf. Nú er það
svo, að hiutabréf hafa til skamms
tíma verið óæðra sparifé í þessu
landi. Er það á annan veg en í
þeim löndum, sem hafa byggt upp
mesta hagsæld fyrir þegna sína.
Eimskip/Burðarás hf., Sjóvá-
Almennar tryggingar hf. og Líf-
eyrissjóður verslunarmanna hafa
sýnt lofsvert frumkvæði við að
byggja upp hlutabréfamarkað hér
á landi. Frumkvæði þeirra hefur
fært sparifjáreigendum þá trú, að
hlutabréfaeign sé sparifé en ekki
safngripur. Það að verð á hluta-
bréfum hefur lækkað á undanförn-
um árum ætti að vera Morgun-
blaðinu, málsvara einkaframtaks,
áhyggjuefni á allt öðrum forsend-
um en dekurdísin skrifar. Þær for-
sendur eru fyrst og fremst slæm
afkoma atvinnulífs á liðnum árum.
Ekki er fjallað um það í grein
dekurdísarinnar.
Stærstur hluti af hlutabréfaeign
Eimskips/Burðaráss hf. er í Flug-
leiðum hf. Afkoma Flugleiða hf.
er vissulega óviðunandi fyrir hlut-
hafana. Afkoman er þó ekki verri
en svo, að 5 prósentustiga betri
nýting á flugvélum og hótelum
félagsins leiðir til ásættanlegrar
afkomu og góðrar afkomu miðað
við það sem gerist í flugheiminum
í dag. Við slíka breytingu eru for-
Vilhjálmur Bjarnason
„Það að verð á hlutabréf-
um hefur lækkað á und-
anf örnum árum ætti að
vera Morgunblaðinu, mál-
svara einkaframtaks,
áhyggjuefni á allt öðrum
forsendum en dekurdísin
skrifar. Þær forsendur
eru fyrst og fremst slæm
afkoma atvinnulífs á liðn-
um árum.“
sendur fyrir því að gengi hluta-
bréfa í Flugleiðum hf. gæti tvö-
faldast til þrefaldast.
Það er huggun fyrir smærri
hluthafa í Flugleiðum hf. að einn
stór hluthafi skuli eiga svo mikla
hagsmuni í félaginu, því þeir vita
þá að hinn stóri mun gæta hags-
muna þeirra í þeirri baráttu, sem
fram fer til að bæta afkomu Flug-
leiða hf. Eitt er víst að skætingur
bætir ekki afkomuna.
En það er þó athyglisvert við
hlutabréfamarkaðinn, að þau sjáv-
arútvegsfyrirtæki, sem þar eru
skráð, hafa náð athyglisverðum
árangri í þeim aflasamdrætti sem
nú gengur yfír. Það gefur hluthöf-
um þeirra von ef fiskur veiðist þá
á annað borð við ísland. En ef fisk-
ur veiðist ekki, þá veit ég ekki á
hvern hátt spariskírteini og hús-
bréf verða endurgreidd, þrátt 'fyrir
„góða ávöxtun" slíkra þréfa.
Stjórn og forstjóri hf. Eimskipa-
félags íslands eru ekki hafnir yfir
gagnrýni. Ég vil til dæmis nefna
hér, að ég tel að arðgreiðslur fé-
lagsins miðað við eigið fé séu of
lágar. Heimildir til útgáfu jöfnun-
arhlutabréfa á að nýta betur.
Þá tel ég einnig að fyrirkomulag
við stjórnarkjör í Eimskip og Flug-
leiðum hf. sé ekki veijandi. Á ég
við það fyrirkomulag að kjósa
helming stjórnar annað hvort ár
■ og þá til tveggja ára. Að sjálf-
sögðu á afl atkvæða að ráða á
hveiju ári. Það má vel vera að
niðurstaðan verði sú sama.
Ég vil eindregið hvetja Morgun-
blaðið til að hefja baráttu fyrir
því, að sparnaðarform sem leiða
af sér aukna hagsæld fyrir íbúa
landsins, sparnaðarform sem
treysta atvinnulíf, búi við sömu
skilyrði og sósíalísk sparnaðar-
form fjármálaráðherra. Ég vil
benda á greinar mínar um skatt-
lagningu hlutabréfa og hluthafa-
stefnu í tímaritinu Vísbendingu.
Efni annarrar greinarinnar, um
skattlagninguna, var endurprent-
að í Staksteinum en hinnar var
að engu getið í Morgunblaðinu.
Þau sjónarmið, sem fram komu
í greinum þessum, tel ég að séu
í samræmi við þann málstað, sem
Morgunblaðið hefur hingað til tal-
ið sig standa vörð um.
Höfundur er viðskiptafræðingur
og löggiltur verðbréfamiðlari.
Heimsending á fs
Keyptu 15"
pizzuog
fáðu frían
llftra af
sukkulaði
eða vanillu
rjdmafs
Dominos Pizza kynnir
nýjung á fslandi
SENDUM FRITT
UM ALLA,
REYKJAVIK
SÍMI 8*12 345
:■ t i 1^:1:1)1111; '■■■: 1 II I ':
HÓNNUN: PREf