Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
21
Greind tilfelli allra tegunda krabbameins í körlum
frá 1958 og spá um fjölda þeirra til 2012,
á hverja 100.000 íbúa á ári. - 350
Tölurnar eru leiðréttar með tilliti til ólíkrar
■■■■!■-...-i----------1---------\---------1---------\---------1---------1---------1—........1.........i-150
58-62 63-67 68-72 73-77 78-82 83-87 88-92 93-97 98-02 03-07 08-12
upplýsingar fyrir þá sem bera
ábyrgð á þróun og mótun heil-
brigðiskerfisins,“ segir Snorri. Nið-
urstöðurnar sýni svo hvernig við
stöndum í samanburði við önnur lönd
og þannig geti íslendingar til dæmis
litið til þeirra landa sem standa sig
best og sjá hvað er öðruvísi þar.
Snorri segir að við þurfum að
skoða það sem Finnar geri rétt í
sínu heilbrigðiskerfi. Hann segir að
íslendingar vinni mikið starf í for-
vörnum, það dugi ekki til því samt
sem áður aukist tíðni krabbameins
hér á landi. „Við verðum að reyna
að snúa þessari þróun við,“ segir
hann.
Finnar vinna gott starf í að skipu-
leggja sín heilbrigðismál, segir
Snorri, og þeir taki ákvarðanir á
grunni staðreynda og rannsókna.
Eins nákvæm spá og hægt er
að gera
Hann segir að spáhluti skýrsl-
unnar sé eins nákvæmur og hægt
sé að gera í heiminum í dag. Á
Norðuriöndunum séu til vandaðar
þjóðskrár og þar hafi þau mikla
sérstöðu miðað við aðrar þjóðir.
Einnig séu til mjög ítarlegar upplýs-
ingar um krabbamein á Norður-
löndunum sem krabbameinsskrár
landanna hafa safnað og vel mennt-
að fólk til að vinna úr þessum upp-
lýsingum. í raun sé þessi skýrslu-
gerð verk sem aðrar þjóðir séu
hreinlega ekki færar um að vinna
en geti jafnframt haft gagn af. Nú
sé verið að kortleggja ástandið í
þessum málum og athuga hver þró-
unin verði í framtíðinni.
Önnur skýrslan kemur út í haust
og eru þar gefnar tölur um algengi
krabbameins, eða hversu margir ei-u
á ljfí með sjúkdóminn, þ.e. læknað-
ir. í þeirri skýrslu koma fram upplýs-
ingar um dauðsföll af völdum
krabbameins síðastliðin 40 ár og spá
um þróunina fram til ársins 2010.
Þriðja skýrslan fjallar um mis-
munandi leitarstarf sem unnið er í
löndunum, til dæmis í ristli, bijóst-
um og leghálsi kvenna. Sú skýrsla
veki enn sem komið er upp fleiri
spurningar en hún svari og sé
hvatning til frekari rannsókna.
Í fjórðu skýrslunni verður borið
saman hvernig tekist hefur að
lækna krabbamein á Norðurlöndun-
um og hvar ástandið sé best i þeim
efnum og í fimmtu skýrslunni verð-
ur fjallað um tillögur að efldu for-
varnastafi, bættri meðferð sjúk-
dómsins, bættu leitarstarfi og
hvernig hægt sé að hlúa_ betur að
þeim sem ekki læknast. í henni er
að finna bein tilmæli til þeirra sem
vinna að mótun heilbrigðismála.
Á undanförnum árum hafa þeir
sem ekki læknast af sjúkdómnum
lifað lengur en áður þekktist og
segir Snorri að þetta fólk og að-
standendur þeirra þurfi að fá úr-
lausn og aðstoð heilbrigðiskerfis-
ins.
Breyttar áherslur í samstarfi
Norðurlanda
Hann segir að breyttar áherslur
í norrænu samstarfi hafi haft áhrif
á verkefnið, því með auknum áhuga
á Evrópusamstarfi hafi Norðurlönd-
in ákveðið að auka samskipti sín á
milli á menningarsviðinu og því
hafi fjárveitingar til þessa verkefnis
verið lækkaðar um helming í fyrra.
„Loks þegar Norðurlandaþjóðirn-
ar sjá fram á að geta borið sig
saman innbyrðis og bent á leiðir til
framfara þá verða engir peningar
eftir,“ segir Snorri. Hann segir að
fján'eitingin dugi til þess að klára
skýrslugerðina en síðan séu engir
peningar til að fylgja þeim eftir.
„Þegar búið er að skila af sér skýrsl-
unum þá strandar á framkvæmd-
inni,“ segir hann.
Niðurgreiðslur á raforku til húshitunar auknar
10.000 heimili
fá 5.400 kr.áári
RÁÐHERRA hefur ákveðið að auka niðurgreiðslur á raforku til hitun-
ar íbúðarhúsnæðis frá og með 1. mars um 15% eða 4.200 krónur á
meðalíbúð á ári. Niðurgreiðslur til meðalnotanda hækka úr 33.600
krónum í 37.800 krónur á ári. Aðgerðirnar munu kosta ríkissjóð um
50 milljónir á ári, en alls verður 397 milljónum króna varið í ár til
niðurgreiðslna á raforku til húshitunar. Jafnframt hefur stjórn Lands-
virkjunar ákveðið að auka afslátt á raforku til þessara nota um 1.200
krónur miðað við heilt ár. Samanlagt jafngilda aðgerðirnar 5,6% lækk-
un til notenda eða að jafnaði um 5.400 krónum í auknum niðurgreiðsl-
um á ári.
Niðurgreiðslur á raforku til hit-
unar á sveitabýlum og niðurgreiðslur
til Orkubús Vestfjarða og rafkyntra
hitaveita muna hækka til samræmis.
Alls munu aðgerðirnar koma um
10 þúsund heimilum í landinu til
góða. Á blaðamannafundi sem Sig-
hvatur Björgvinsson iðnaðarráðherra
hélt til að kynna hinar auknu niður-
greiðslur kom fram að eftir þessar
aðgerðir væri raforka til húshitunar
komin niður í sama verð og gilti í
desember 1992, áður en virðisauka-
skattur lagðist á orkuverðið og fyrir
3% hækkun á raforku frá Landvirkj-
un um sl. áramót, sem leiddi til 1,7%
almennrar hækkunar.
Meðalkostnaður við rafhitun íbúð-
arhúsnæðis er um 150 þúsund krón-
ur á ári en eftir þessar aðgerðir er
hlutur meðalgjaldanda á þeim svæð-
um kominn undir níutíu þúsund krón-
ur. Auk afsláttar Landsvirkjunar og
niðurgreiðslu ríkissjóðs er vsk. af
raforku til húshitunar endurgreiddur
að svo miklu leyti sem hann fer
umfram viðmiðun sem miðast við
greiddan vsk. á svæði Hitaveitu
Reykjavíkur. Fram kom í máli ráð-
herra að á síðasta ári var kynding
íbúðarhúsnæðis með raforku, fyrir
þær aðgerðir sem nú taka gildi, 2,14
sinnum dýrari en sambærileg notkun
orku frá Hitaveitu Reykjavíkur og
hefur það hlutfall farið stiglækkandi
á kjörtímabilinu, en það var 2,4 árið
1990.
ÞJONUSTU-
Við tökum við ábendingum
og tillögum sem varða
þjónustu SVR í símsvara
814626
Strætisvagnar Reykjavíkur hf
Mazda 323 4 dyra á 1.098.000.- kr.*
*staðgr. nieð ryðvöm og skráningu.
Ámm saman hefur MAZDA staðið sig
frábærlega í evrópskum könnunum á
bilanatíðni og rekstrarkostnaði fólks-
bifreiða en kostir MAZDA koma einnig
fram í aksturseiginleikum og þægindum.
Hagstætt kaupverð MAZDA kemur sér vel
nú. Lág bilanatíðni og lítill rekstrar-
kostnaður nýtist þér til frambúðar.
Hafðu samband við sölu- og umboðs-
menn okkar sem veita þér allar nánari
upplýsingar.
óbilandi traust
S0LUAÐILAR: Akranes: Bílás sf., Þjóðbraut 1, sími 93-12622. (safjörður: Bílatangi hf., Suðurgötu 9,
sími 94-3800. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sími 96-26300. Egilsstaöir: Bílasalan Fell, Lagarbraut 4c,
sími 97-11479. Selfoss: Betri Bílasalan, Hrísmýri 2a, sími 98-23100. Keflavík: Bílasala Keflavíkur,
Hafnargötu 90, sími 92-14444. Notaöir bílar: Bílahöllin hf., Bíldshöföa 5, sími 91-674949.