Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
ÞRIÐJA ARAS IRA A HEATHROW-FLUGVOLL
írski lýðveldisherinn (IRA) gerði á sunnudag
þriðju sprengjuárásina á Heathrow-
flugvöllinn í London á innan viö viku.
Engin sprengjanna sprakk.
) Excelsior- hóteliö
Midvikudaginn 9. mars klukkan 18:05.
IRA skýtur fjórum sprengjum
að nyrðri flugbrautinni frá
bílastæði hótelsins.
Stór-London
Heathrow- flugvöllur
Þriðja sprengjuárás írska lýðveldishersins á Heathrow-flugvelli á tæpri viku
Flugumferð í
samt lag á ný
Flugleiðaþota tafðist vegna lokunar vallarins
Lundúnum. Reuter.
FLUGUMFERÐ um Lundúnaflugvellina Heathrow og Gatwick
komst í samt lag í gærmorgun en báðum völlum var lokað í hálfa
þriðju klukkustund í fyrrakvöld vegna sprengjuárása írska lýðveld-
ishersins, IRA. Þota Flugleiða var meðal flugvéla sem varð að lenda
annars staðar af þessum sökum. Forsætisráðherra bresku og írsku
ríkisstjórnanna gagnrýndu IRA harðlega í gær og sögðu aðgerðir
þeirra einungis tefja fyrir því að friður komist á í Norður-írlandi.
Sömuleiðis var óskum um viðræður við stjórnmálaarm samtak-
anna, Sinn Fein, um friðaráætlun fyrir Norður-írland, hafnað.
Ein sprengja af fjórum sem skot-
Cains Lane
Föstudaginn 11. mars
klukkan 12:07:
Þremur sprengjum
varpað í átt að
flugbrautinni
skammt frá
flughöfn 4.
ið var að Heathrow-flugvellinum
gærmorgun lenti ofan á þaki flug-
hafnar númer fjögur en hinar
skammt frá flugbrautunum. Þær
sprungu ekki frekar en í fyrri
sprengjuárásum IRA á flugvöllinn
í síðustu viku og engan sakaði. Síð-
degis bárust frekari hótanir um
aðgerðir á bæði Heathrow og
Gatwick og var því báðum flugvöll-
um lokað.
Talsmenn lögreglunnar sögðu að
svo virtist sem tilgangur IRA með
árásunum væri að hræða en ekki
drepa. Um áróðursbragð væri að
ræða og hefði atburðurinn vakið
athygli um heim allan.
I gærmorgun hvöttu leiðtogar
IRA til þess að hafnar yrðu viðræð-
ur um friðaráætlun bresku og írsku
ríkisstjómanna fyrir Norður-Irland.
Er það í fyrsta sinn sem hryðju-
verkasamtökin sem slík hvetja til
viðræðna og var eftir því tekið að
þau höfnuðu ekki áætluninni.
Albert Reynolds forsætisráð-
hema írlands sagði ekki koma til
greina að breyta áætluninni í við-
tali við /iBC-sjónvarpið í gær. Tals-
maður bresku stjórnarinnar hafnaði
sömuleiðis ósk IRA um viðræður.
„Viðræður koma ekki til greina
fyrr en ofbeldisaðgerðum lýkur. Það
er svívirðileg móðgun við almenning
á írlandi og í Bretlandi að IRA
skuli segjast hafa áhuga á friði á
sama tíma og ógnarherferð samtak-
anna linnir ekki og þau halda áfram
að drepa fólk með köldu blóði,“
sagði talsmaður bresku stjórnarinn-
ar.
i einum
Stýriliöi
12 - 240V AC/DC
umc
Fjölvirkir
stýriliðar
einfalda valið
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
Tafir hjá Flugleiðum
Flugleiðaþota í áætlunarflugi til
Lundúna í fyrrakvöld varð frá að
hverfa eftir klukkustundar biðflug
yfir London. Lenti hún í Luton en
þangað var stefnt mörgum flugvél-
um .á leið til Heathrow og Gatwick.
Þangað var ekið með farþega sem
biðu heimferðar í London og vegna
örtraðar í Luton seinkaði heimferð-
inni. Komst Flugleiðaþotan ekki til
landsins fyrr en í gærmorgun.
Allar
sprengju-
vörpurnar
sem notaöar
voru I árásunum
þremur voru sömu
geröar - limm
á járngrind.
^Suövesturjaðarinn
Sunnudaginn 13. marskl. 08:00:
Fjórum sprengjum skotið af óræktarsvæöi
sunnan vallargirðingarinnar. Ein kemur ofan
á þak flughafnar-4 sem tæmd hafði veriö af fólki
skömmu áður vegna viðvarana IRA.
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands ræðast við
Lofa nánu samstarfi
þrátt fyrir ágreining
Vladívostok. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Bandaríkjanna og Rússlands Iof-
uðu í gær samstarfi við að koma
á friði á átakasvæðum heimsins
þrátt fyrir ágreining í ýmsum
málum.
Ráðherrarnir ræddust við í þijár
klukkustundir í borginni Vladívo-
stok í austurhluta Rússlands þegar
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hafði þar
skamma viðdvöl á leið sinni til Was-
hington frá Kína. Ráðherramir
ræddu einkum friðarumleitanirnar í
Bosníu og Miðausturlöndum.
„Við viðurkennum að sem tvær
stórþjóðir með mikla hágsmuni
hljótum við að hafa mismunandi
sjónarmið . .. En við lofum að reyna
að leysa ágreiningsmál okkar á op-
inskáan hátt,“ sagði Christopher
eftir fundinn.
Andrej Kozyrev, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði að „hveiti-
brauðsdögum" Bandaríkjamanna og
Rússa í alþjóðamálum væri lokið en
ekki „hjónabandinu“. Hann lagði
áherslu á að Rússland væri stór-
veldi og að Rússar kæmu til sam-
starfsins við Bandaríkjamenn sem
jafningjar.
Rússar hafa undanfarin tvö ár
lagt sig fram um að hafa gott sam-
starf við Bandaríkjamenn en að
undanförnu hafa þeir verið að móta
utanríkisstefnu sem tekur meira
mið af eigin hagsmunum þeirra.
Ágreiningur hefur komið upp í ýms-
um málum, svo sem varðandi stríðið bandalagsins
í Bosníu og stefnu Atlantshafs- Evrópu.
í málefnum Austur-
Reuter
Erfitt slökkvistarf
MÁVUR flýgur framhjá olíuskipinu Nassia, sem lenti í árekstri við
flutningaskip í Hellusundi á sunnudagskvöld. Eldur breiddist út í
olíuskipinu og talið er að slökkvistarfið taki tíu daga.
Sjóslys í Hellusundi á sunnudagskvöld
Eldur í olíuskipi eftir
mannskæðan árekstur
Istanbul. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 15 manns fór-
ust og 28 slösuðust í hörðum
árekstri olíuskipsins Nassia og
flutningaskips í Hellusundi á
sunnudagskvöld. Sextán skipveija
var enn saknað í gær.
Lestu betur
Námskeið fyrir fullorðna sem vilja bæta sig
í lestri og stafsetningu.
Námskeiðið er á vegum Lestrarmiðstöðvar Kennaraháskóla
íslands og Félagsmálaskóla alþýðu.
Kennsla fer fram í Lestrarmiðstöð kl. 20-22 mánudaga og
miðvikudaga frá 23. mars (8 skipti).
Kennari er Guðni Kolbeinsson.
A
KENNARA
ÍSLANDS
Nánari upplýsingar
eru veittar hjá . (
MFA í síma FÉLAGSMÁLASKÓLI
%
sima
814233
Þetta er versta sjóslys í Hellu-
sundi, einu af ij'ölfamasta sundi
heims, frá árinu 1979 þegar spreng-
ing varð í olíuskipi með þeim afleið-
ingum að 43 skipveijar létu lífið.
Eldur blossaði upp í Nassia og talið
er að slökkvistarfið taki tíu daga.
Siglingar um sundið verða bannaðar
þar til hættan vegna slyssins er liðin.
Olíuskipið sigldi undir fána Kýpur
og var með 98.500 tonna hráolíufarm
frá Rússlandi. Það lenti í árekstri við
flutningaskipið Ship Broker, sem er
einnig skráð á Kýpur. Bæði skipin
strönduðu Evrópumegin sundsins en
Nassia rak á Asíuströndina. Olíuskip-
ið var síðan dregið út á Svartahaf
svo skip slökkviliðsins kæmust að
því.
Bæði skipin voru án hafnsögu-
manna. 40 sjóslys hafa orðið í Hellu-
sundi frá árinu 1960 og tyrkneska
stjómin hefur sett nýjar siglingaregl-
ur sem taka gildi 1. júlí og eiga að
draga úr hættunni á umhverfisslys-
um vegna tíðra siglinga olíuskipa um
sundið.
Milljarður
dollara til
Euro-Disney
EIGENDUR franska skemmti-
garðsins Euro-Disney tilkynntu
í gær um áætlun til bjargar fjár-
hag fyrirtækisins. Ekki var búist
við að svo skjótum aðgerðum
til bjargar fyrirtækinu en þær
urðu til þess að verð á hlutabréf-
um í því hækkaði töluvert. Rúm-
um milljarði dala verður veitt
til fyrirtækisins, þar af greiðir
móðurfyrirtækið, Walt Disney
Co„ 49%.
Hillary játar
á sig mistök
HILLARY Rodham Clinton, for-
setafrú Bandaríkjanna, viður-
kennir að sér hafi orðið á mistök
í Whitewater-málinu í viðtölum
í vikuritunum Newsweek og
Time. „Okkur urðu augljóslega
á mörg mistök í málinu. Eg yrði
fyrst til að viðurkenna það -
og auðvitað óska ég þess að
svona hafi þetta ekki farið
vegna þess að menn hafa gert
miklu meira úr þessu máli en
tilefni er til,“ sagði forsetafrúin
m.a.
Alsírskra
fanga leitað
ALSÍRSKAR öryggissveitir
drápu að minnsta kosti 24 heit-
trúarmenn sem flýðu rammgirt
fangelsi í fjallahéruðum landins
í síðustu viku og náðu 79 manns
til viðbótar. Fangelsið hýsti
marga hættulegustu fanga
landsins en heittrúarmenn réð-
ust á það í síðustu viku og kom-
ust um 900 menn undan, þar
af 280 sem dæmdir höfðu verið
til dauða.
Mafíósi hand-
tekinn
ÍTALSKA lögreglan handtók í
gær einn af höfuðpaurum sikil-
eysku mafíunnar í árás á bú-
garð austur af Palermó. Sagði
í frétt ítalska útvarpsins að
maðurinn, Benedetto Capizzi,
ætti sæti í æðsta ráði mafíunnar
á Sikiley. Hann hefur verið á
flótta í tvö ár.
Jeltsín í frí
BORÍS Jeltsín, Rússlandsfor-
seti, hélt í gær í frí til Sochi við
Svartahaf. Forsetinn kveðst
ekki enn náð sér af tveimur
slæmum flensum og hyggist
safna kröftum í tvær vikur.
Haft var eftir forsetanum að
hann væri þess fullviss um að
allt væri með kyrrum kjörum í
Rússlandi og því væri honum
óhætt að bregða sér í frí.
Ungmennin
vilja hvaða
starf sem er
NÆRRI 75% franskra ung-
menna er svo umhugað um að
fá vinnu, að þau myndu taka
hvaða starfi sem byðist. í könn-
un sem gerð var meðal fólks á
aldrinum 18-24 ára, kom í ljós
að 66% aðspurðra lögðu mesta
áherslu á atvinnuöryggi en síðan
komu gþð laun og framavon.
Fjórði hver Frakki undir 26 ára
aldri er nú án vinnu.
Einsleitar krár
BARÁTTU SAMTÖK fyrir
dökkum bjór í Bretlandi hafa
lýst áhyggjum sínum yfir þeirri
þróun sem orðið hefur í hönnun
kráa. Segja samtökin að krárnar
séu smátt og smátt að tapa ein-
kennum sínum þegar þeim sé
breytt í átt til hins „uppruna-
lega“ með innréttinum úr harð-
viði, messingi, lituðu gleri og
blúndugardínum.