Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 34

Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 Laugaland í Holtum Ertu að skipuleggja ættarmótið, ráðstefnuna eða fjöl- skylduferðina í sumar? Að Laugalandi í Holtum finnur þú það sem þú leitar að, ráðstefnusalina, sundlaugina, gufubaðið, leiktækin og góða gistingu. Láttu það eftir þér. Pantanir og upplýsingar í síma 98-76543, fax 98-76620. Láttu elelzi vanann veráa þér að lieilsutjóni. Hugleiclclu livort ekki er kominn tími til að endurnýja gömlu clýnuna Jjína. Lystadún-Snæland framleiðir allt frá einföldustu dýnum til úrvals rúmdýna sem fullnægja ströngustu kröfum um útlit, gæði og {jægindi. 'AXUS dýnan er þnskipt. Uist er iag illctll. mjúkum svampi, í miðjunni er latex, sem er unnið úr náttúru- gúmmíi, og neðst er stífur svampur. Stgr.verð 26.900 kt. (80x200sm) Hnwym er blædd eggja- jjaöraayna Lakkaskomum mjúkum svampi efst og neðst og í miðjunni er vandaður fjaðrakjarni Stgr.verð [l 8.500 A(80x200am) jjaðradyna latexi efst og neðst, á milli em mjúkar fjaðrir sem steyptar eru inní stuðpúða úr frauði. Hver fjaðraeining er klædd í poka og fjaðrar Jíví sjálfstætt. Stgr.verð [32.800 ICT. j (80x200sm) Skútuvogi 11* Sími 68 55 88 Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar verður að Vinnu- miðlun Reykjavíkurborgar Ankiii áhersla á vinnu- miðlun og ráðningar „ÞETTA er mjög spennandi starf,“ sagði Oddrún Kristjánsdótt- ir, sem nýlega tók við stöðu framkvæmdastjóra Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar. Oddrún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdasljóri Liðsauka hf. í 12 ár. Það fyrirtæki veitir alhliða afleysinga- og ráðningarþjónustu en ákveðið hefur ver- ið að auka áherslu á ráðningar og vinnumiðlun hjá Ráðningar- stofunpi. A næstunni fara fram ráðningar í 170 störf á vegum borgarinnar í fyrsta áfanga í átaki borgaryfirvalda gegn at- vinnuleysi og verður tekin upp sú nýbreytni að auglýsa ákveðn- ar stöður lausar til umsóknar. Verður eingöngu ráðið fólk af atvinnuleysisskrá. „Það er ákveðinn vilji hjá borgaryfirvöldum að taka at- vinnumálin til sérstakrar endur- skoðunar," sagði Oddrún. Borg- arstjórn hefur samþykkt að ráða allt að 1.000 manns í sérstök átaksverkefni og verður ráðið í 170 störf á vegum borgarinnar í þessum mánuði. Auglýst var í dagblöðum um helgina og tekið á móti umsóknum frá og með mánudegi. Um er að ræða störf sem henta ófaglærðu fólki, iðn- aðarmönnum, skrifstofufólki og háskólamenntuðum. „Það sem er nýtt er að fólki er gefinn kost- ur á að sækja um ákveðið starf allt eftir menntun og áhuga í stað þess að boðið er ákveðið starf sem menn verða að taka en hafa jafnvel engan áhuga fyrir,“ sagði hún. Bætt aðstaða Fyrir dyrum standa flutningar hjá Ráðningarstofunni inn að Engjateig 11 í sumar og um leið verður nafni Ráðningarstofunn- ar breytt í Vinnumiðlun Reykja- víkurborgar. Þar verður öll að- staða mun betri með sérstökum viðtalsherbergjum, þar sem rætt verður einslega við hvern og einn en Ráðningarstofan býr nú við þröngan húsakost, þar sem ill- mögulegt er að sinna sem skyldi þeim sem þangað leita. „Við ætlum að stór auka áherslu á vinnumiðlun í framtíðinni auk þess sem veitt verður mun betri þjónusta við þá sem eru í at- vinnuleit og eru atvinnulausir en það hefur ekki verið hægt sem skyldi til þessa vegna þrengsla,“ sagði Oddrún. „Við ætlum að auka alla ráðgjöf og upplýsingar og stendur til að ráða sérmennt- að fólk til starfa sem getur kynnt fólki þann rétt sem það hefur en hingað kemur fólk í mis góðu andlegu ástandi og á oft mjög erfitt. Þá verður ráðinn atvinnur- áðgjafi til starfa við vinnumiðl- unina.“ Störf við hæfi Þessa dagana er verið að full- komna tölvukerfið sem tekið var Oddrún Kristjánsdóttir fram- kvæmdastjóri Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar. í notkun á síðasta ári og hefur reynst ágætlega við skráningu dagpeninga og vikulega stimplun þeirra 3.500 sem eru á atvinnu- leysisskrá. „Við erum að þróa þann hluta sem snýr að vinnum- iðluninni og þegar því er lokið verður mun auðveldara að bjóða atvinnulausum störf við hæfi,“ sagði Oddrún. „Það er sérstak- lega gaman að fá tækifæri til að taka þátt í þessari uppbygg- ingu en hér búa menn að mikilli reynslu." Bæjarstjórnir í Ólafsvík og Njarðvík Atvinnulíf treyst á sama hátt og á Vestfjörðum BÆJARRÁÐ Ólafsvíkur hefur sent frá sér ályktun þar sem þeim tilmælum er beint til ríkisstjórnar, að sérstaklega verði skoðað með hvaða hætti hægt er að treysta atvinnulífið í hinu sameinaða sveitarfélagi sem Ólafsvík er hluti af, ásamt Breiðuvíkurhreppi og Neshreppi utan Ennis, enda „er vandi þessa svæðis síst minni en á Vestfjörðum", eins og segir í ályktuninni. í ályktuninni kveðst bæjarráð Ólafsvíkur fagna tilraunum ríkis- stjórnarinnar við að aðstoða at- vinnulífið á Vestfjörðum, og að veita fé til skuldajöfnunar sveitar- félaga vegna sameiningar þeirra. Síðan segir: „Bæjarráð Ólafsvíkur bendir á að Ólafsvíkurkaupstaður hefur staðið frammi fyrir miklum erfíðleikum í atvinnumálum á und- anförnum árum sem rekja má að miklu leyti til mikillar skerðingar á þorskkvóta, en Ólafsvíkingar hafa nær eingöngu byggt sína afkomu á þorskveiðum og er fyrir- sjáanlegt að svo verði áfram.“ Hagsmunir Suðurnesja Á fundi bæjarráðs Njarðvíkur á miðvikudag var eftirfarandi bókun lögð fram og samþykkt samhljóða: „Bæjarráð Njarðvíkur vill í fram- haldi af úthlutun ríkisstjórnar ís- lands á fjármunum til að treysta atvinnulífið og sveitasjóði á Vest- fjörðum minna ríkisstjórnina á að á Suðurnesjum hefur mikið at- vinnuleysi verið viðvarandi sl. tvö ár. Þetta mikla atvinnuleysi hefur skapað sveitarsjóðunum á Suður- nesjum ómæld peningaútlát og þó tekist hafi að halda í horfinu varð- andi atvinnuleysið þá eru erfiðleik- arnir miklir á öllum sviðum at- vihriulífsins 'dg'atvfrihuléysíð ál- varlegt eins og opinberar tölur um atvinnuleysi sýna. Bæjarráðið fer fram á það við ríkisstjórn íslands að Suðurnesjamenn verði látnir sitja við sama borð og aðrir lands- menn þegar kemur að því að út- hluta fjármunum ríkisins til at- vinnuuppbyggingar út um landið og til að styrkja sveitarsjóðina. Bæjarráðið vill beina þeim ein- dregnu tilmælum til alþingis- manna Reykjaneskjördæmis að þeir gæti hagsmuna kjördæmisins í þessu máli.“ Komst einn yfir heiði ÁRMANN Leifsson í Bolungarvík er nú með sex stóra flutningabíla í förum. Til að tryggja betri þjónustu var hann að fá þennan nýja Volvo- bíl, sem er með drif á öllum hjólum og nokkuð hærri en venjulegir flutn- ingabílar. Bjarni Gunnarsson reyndi hann á Steingrímsfjarðarheiði fyr- ir fáum dögum. Þótt ekki væri mokað og eins og hálfs metra jafnfall- inn snjór væri á heiðinni komst hann yfir. Engir aðrir flutningabílar réyndu við heiðina þann daginn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.