Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
35
„Fagmannleg-
ur“ þjófur á ferð
í Víðidalnum
Skilaði hluta þýfísins eftir auglýsingu
Hestar
Valdimar Kristinsson
HESTAMENN verða fyrir
barðinu á þjófum eins og aðrir
réttlátir menn. Það sannaðist
fyrir skemmstu þegar farið
var inn í að minnsta kosti fimm
hesthús í hesthúsahverfinu í
Víðidal í Reykjavík og stolið
ýmiskonar reiðtygjum úr fjór-
um þeirra. Hann virtist gefa
sér góðan tíma við verknaðinn
því í nokkrum húsanna fékk
hann sér öl sem var þar til
staðar meðan hann dundaði
sér við verknaðinn.
Að sögn Gísla B. Björnssonar
hesthúseiganda var farið inn í
húsið hjá honum og stolið þaðan
beislismélum ýmiskonar og þar á
meðal vel merktu stangarbeisli
og sagði hann greinilegt að þarna
hafí verið á ferðinni þaulvanur
hestamaður því aðeins var tekið
það sem eitthvert verðmæti var
í. Sneitt var hjá öllu ódýru og
gömlu en aðeins tekið það sem
var nýtt og verðmætt. Beislimél
voru tekin af gömlum höfuðleð-
rum, nýjar gjarðir af gömlum
hnökkum.
Úr einu hesthúsinu var tekinn
nýr „Ástund Special" hnakkur
en hann kostar strípaður í kring-
um 70 þúsund krónur en verð-
mæti þýfisins var á bilinu 80 til
100 þúsund í hverju húsi. Gísli
kvaðst að sjálfsögðu ekki hafa
verið ánægður með þessa heim-
sókn og því hengt upp auglýsingu
í hesthúsahverfinu þar sem fram
kom að brotist hafi verið inn í
nokkur hesthús og allar upplýs-
ingar sem stuðlað gætu að því
að þýfíð kæmi í leitirnar væru
vel þegnar. Einnig lét hann það
fljóta með að þjófinum væri vel-
komið að skila þýfínu í húsið því
margt af því sem hann hafí tekið
sé merkt og því erfitt að koma
því í verð og stórvarasamt að
nýta í eigin þágu. Varð þjófurinn
við þessum tilmælum og henti
dótinu inn um glugga aðfaranótt
laugardagsins. Skilaði hann þó
eingöngu því sem merkt var.
Sagði Gísli þetta gefa vísbend-
ingu um að þjófurinn væri líklega
með hesta þarna í hverfinu eða
alltjent eitthvað á ferð þar fyrst
hann sá auglýsinguna og fannst
honum það heldur dapurlegt að
mitt á meðal hestamanna skuli
fínnast menn á svona lágu plani.
Er nú vonandi að misindis-
maðurinn sjái nú að sér og skili
því sem hann tók ófrjálsri hendi
og reyni að feta gæfulegri braut-
ir framvegis.
Alþjóðleg gæð-
ingakeppni hald-
in í Svíþjóð í vor
ÍSLENSK gæðingakeppni nýtur vaxandi vinsælda á megin-
landi Evrópu og á Norðurlöndum og virðist sífellt meiri
áhersla lögð á að keppnin fari nákvæmlega fram eftir ís-
lenskum reglum. í nýútkomnum Eiðfaxa er heilsíðuauglýs-
ing frá sænskum aðilum þar sem boðað er til fyrstu alþjóð-
legu gæðingakeppninnar sem haldin er í Svíþjóð.
í auglýsingunni eru nokkuð
góðar upplýsingar um hvernig
staðið skuli að keppninni og
skráningu og ýmsu öðru. Mótið
verður haldið dagana 28. apríl
til 1. maí á stað sem heitir
Haringe Slott Stuteri og af
mynd af staðnum að dæma virð-
ist hann mjög glæsilegur.
Keppnisgreinar verða A- og
B-flokkur gæðinga, tvennskon-
ar töltkeppni (tölt T1 og tölt
T2), 250 metra skeið og gæð-
ingaskeið. Svo virðist sem boðið
sé upp á góða aðstöðu fyrir
hrossin og tekið er fram að
styrktaraðili mótsins muni
greiða kostnað af hesthúsplássi
fyrir hesta sem koma frá ís-
landi.
Hér virðist um að ræða nokk-
uð spennandi mót þar sem
greinilega er vonast eftir þátt-
töku frá íslandi enda kannski
ekki annað við hæfi þar sem
keppt verður í ratnmíslenskri
keppnisgrein. En það er svo
aftur spurning hvort einhvetjir
séu tilbúnir að fórna hestum
héðan á mótið svona rétt fyrir
landsmót. Síðast er svo dagskrá
mótsins sem virðist nokkuð
furðuleg miðað við annað sem
kemur fram í auglýsingunni því
hún er svohljóðandi: 28. apríl.
Móttaka/fundur með knöpum
og dómurum. 29. apríl. Bjór-
kvöld. 30 apríl. Hin árlega
„Hallarskemmtun". Það er ekki
ólíklegt að einhver spyrji hvað
þetta hafi nú með hesta að gera.
--------»■ ----
Sting til
Islands?
SVO gæti farið að stórpoppar-
inn Sting stigi fæti sínum á Is-
land á þessu ári sem reyndar
stóð til að yrði á síðasta ári en
ekkert varð af vegna anna
söngvarans. Flestir reikna
sjálfsagt með að erindi hans
verði að skemmta landanum
með söng og spili en svo er nú
ekki, því tilgangur ferðarinnar
verður að heimsækja íslenska
hesta og reyna þá eitthvað í
útreiðartúrum.
Poppstjarnan á nú þegar einn
íslenskan gæðing, sem að sögn
Eiðfaxa, sem birti þessá frétt,
heitir Hrímnir og er fæddur að
Arnarhóli í Vestur-Landeyjum.
Nýtur hann mikilla vinsælda hjá
Sting og fjölskyldu hans og nú er
það spurningin hvort þau fái sér
ekki fleiri íslenska gæðinga eftir
heimsókn hingað.
Konukvöld
Undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni
Sveit Hjólbarðahallarinn-
ar í úrslit á einum punkti
___________Brids______________
Arnór G. Ragnarsson
Sveitir VÍB, DV, Magnúsar
Magnússonar, Hjólbarðahallarinn-
ar, Tryggingamiðstöðvarinnar,
Metró, Bíóbarsins, S. Ármanns
Magnússonar, Landsbréfa og Spari-
sjóðs Siglufjarðar tryggðu sér rétt
til að spila um íslandsmeistaratitil-
inn í sveitakeppni en 40 sveita und-
ankeppni fór fram á Hótel Loftleið-
um um helgina.
Spilað var í fimm riðlum og voru
úrslitin mikið til „eftir bókinni"
nema í B-riðlinum. Sterkustu sveit-
irnar í þessum riðli voru Glitnir og
Hjólbarðahöllin en strax í fyrstu
umferðunum varð ljóst að tíðinda
var að vænta. Sveit Sparisjóðs
Keflavíkur vann Glitni í fyrstu
umferðinni 20-10 og sveit Magnús-
ar Magnússonar vann Hjólbarða-
höllina 19-11. í þriðju umferðinni
vann Sparisjóðurinn Hjólbarðahöl-
lina 20-10 en sveit Magnúsar
Magnússonar vann alla sína leiki
og stefndi örugglega á fyrsta sætið
í riðlinum.
Endirinn á riðlinum var drama-
tískur. Sveit Magnúsar spilaði við
yngstu sveitina í undankeppninni
og þurfti að ná jöfnu til að vera
örugg en sveit Hjólbarðahallarinn-
ar varð að vinna sinn leik a.m.k.
18-12 til að komast í úrslitin. Hjól-
barðahöllin með Hjalta Elíasson í
fararbroddi vann leik sinn 19-11
á kæru en var sektaður um R vinn-
ingsstig fyrir að fara yfir tíma-
mörk. Leikurinn fór því 18R gegn
10R og fór því sveit Hjalta inn í
úrslitin á einum punkti (IMP).
Sveit Magnúsar hlaut 139 stig,
Hjólbarðahöllin 129,5 stig, sveit
Glitnis 129 stig og sveit Sparisjóðs
Keflavíkur varð í fjórða sæti tap-
laus með 125 stig.
Ekki er hægt að skilja við um-
fjöllun í þessum riðli án þess að
minnast á sveitarformanninn,
Magnús Magnússon, sem leiddi
sveit sína til sigurs í riðlinum.
Magnús kom með sveit á íslands-
mót yngri spilara fyrir nokkrum
dögum og varð íslandsmeistari.
Hann varð íslandsmeistari í ein-
menningi í fyrra og í öðru sæti í
ár. Magnús var skráður í meistara-
stigaskrá hjá Bridsfélagi Húsavík-
ur. Um áramótin 1990/1991 var
Magnús skráður í 44. sæti (neðsta)
með eitt bronsstig. Hann er nú
skráður hjá BA með 111 meistara-
stig. Sem sagt ungur maður á upp-
leið sem vert er að fylgjast með.
í A-riðli sigraði Tryggingamið-
stöðin, hlaut 136 stig, og sveit
Metró varð önnur með 123 stig og
L.A. Café varð í þriðja sæti með
114 stig.
í C-riðli sigraði VÍB með 138
stig, DV varð í öðru sæti með 129
stig og sveit Birgis Arnar Stein-
grímssonar varð þriðja eftir hörku-
keppni með 120 stig.
I D-riðli sigraði sveit Landsbréfa
með yfirburðum, hlaut 154 stig og
vann alla sína leiki. íslandsmeistar-
amir frá í fyrra, sveit Sparisjóðs
Siglufjarðar, varð í öðru sæti með
128 stig en þeirra helzti keppinaut-
ur var sveit Icemac sem fékk 119
stig en Icemac missti af lestinni í
þriðju umferð með tapi fyrir Lands-
bréfum 25-2.
Bíóbarinn vann E-riðilinn, hlaut
144 stig, og S. Ármann Magnússon
var taplaus í öðru sæti með 142
stig. Sveit Hlyns Magnússanar
varð þriðja með 105 stig.
Keppnisstjórar voru Kristján
Hauksson og Einar Jónsson. ís-
landsbanki styrkti mótshaldið.
AMERICAN MALE
á Hótel íslandi 17. mars
Húsið opnað kl. 19.00
Matseðill
Gratineraðir sjávarréttir
með hvítlauksbrauði.
Verð með mat kr. 2.400,-
Verð án matar kr. 1.200,-
Tískusýning o.fl.
Diskótek. Kvennaklúbbur
íslands
HÓTEL ÍBd
Miða- og borðapantanir í slma 687111.
Sýningar American male:
Sjallinn, Akureyri, 18. mars. Þotan, Kfeflavík, 19. mars. Kántrýbær, Skagaströnd, 22. mars. Gjáin, Selfossi,
23. mars. Krúsin, (safirði. Kútter Haraldur, Akranesi, 25. mars. Höfðinn, Vestmannaeyjum, 26. mars.
Morgunblaðið/Arnór
Norðlendingarnir sigruðu örugglega í sínum riðli - óvænt en verðskulduð úrslit. Talið frá vinstri:
Anton Haraldsson, Grettir Frímannsson, Pétur Guðjónsson, Magnús Magnússon og Stefán Ragnarsson.