Morgunblaðið - 15.03.1994, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
Nokkrar staðreyndir
um Hvalfjarðargöng
eftir Gylfa Þórðarson
Að undanförnu hefur átt sér
stað nokkur umræða í fjölmiðlum
um fyrirhuguð Hvalfjarðargöng.
Skiljanlegt er að svo nýstárleg
framkvæmd veki athygli og um-
ræðu og ýmsar skemmtilegar hug-
myndir um lausn samgöngumála
um utanverðan Hvalfjörð hafa
'komið fram.
Þar sem ýmsir hugmyndasmið-
anna virðast ekki hafa undir hönd-
um allar nauðsynlegar upplýsingar
er nauðsynlegt að eftirfarandi
komi fram, bæði þeim og öðrum
landsmönnum til fróðleiks:
1. Fyrir rösklega 5 árum var enn
á ný farið að athygá möguleika á
vegtengingu um utanverðan Hval-
fjörð. Það lá fyrir í upphafi af
hálfu ráðamanna í vegamálum, að
engar líkur væru á að þessi fram-
kvæmd yrði á vegaáætlun, þ.e.
kostuð af ríkinu, a.m.k. næsta ald-
arfjórðunginn. Því hefur alltaf ver-
ið ljóst og út frá því gengið, að ef
í þessa framkvæmd yrði ráðist
þyrfti hún að fjármagnast af öðr-
um en ríkinu, án ríkisábyrgða og
endurgreiðsla kæmi af vegtolli af
umferðinni.
Rétt er að fram komi að u.þ.b.
5 árum áður hafði íslenska jám-
blendifélagið staðið fyrir athugun
á rekstri feija yfir Hvalfjörð sem
yrðu reknar fram að þeim tíma að
vegtenging kæmi, sem menn héldu
þá vera mun lengra i en útlit er
fyrir í dag. Það er skemmst frá
að segja að niðurstöður þessara
athugana vöktu engan áhuga hjá
samgönguyfirvöldum.
2. Fyrstu athuganir sem áhuga-
aðilar létu gera í samstarfi við
Vegagerð ríkisins og erlenda aðila
með reynslu í áþekkum verkum
bentu til að þetta væri áhugavert
verkefni og mjög fýsilegt að skoða
betur. Þó var strax ljóst að heildar-
kostnaður verksins yrði að liggja
innan ákveðins hámarks ef fjár-
mögnun ætti að vera möguleg
miðað við þær tekjur sem vænta
mætti af umferð um mannvirkið.
Þá þegar virtist sem berggöng
væru eini kosturinn sem gæti legið
innan þessara kostnaða'rmarka.
3. Frá stofnun Spalar hf. í ársbyij-
un 1991 hefur verið unnið sleitu-
laust að þessu verkefni og lagt í
það verulegt fjármagn og mikil
vinna. Félagið hefur kappkostað
að ráða til hvers verkþáttar hæf-
ustu aðila, innlenda og erlenda,
hvort sem það hefur snert tæknileg
eða Ijármálaleg viðfangsefni. Mér
er til efs að margar ámóta fram-
kvæmdir hér á landi hafi fengið
jafn mikla skoðun hæfra manna
og jiessi.
Arið 1991 fóru fram viðamiklar
jarðeðlisfræðirannsóknir á hugsan-
legum leiðum og jarðfræðikort
voru unnin af svæðunum beggja
vegna Hvalfjarðar. Niðurstöður
voru í stórum dráttum þær, að
bergið virtist nokkuð vel fallið til
gangagerðar, þó frekari rannsókn-
ir þyrfti að gera áður en ráðist
yrði í framkvæmdir. Þessar rann-
sóknir fóru síðan fram á síðari
hluta síðasta árs og fyrstu vikum
þessa árs.
Þó ekki hafí farið fram jafn
mikil skoðun á gerð brúar eða
botnstokks fyrir Hvalfjörð voru þó
skoðaðar hugmyndir sem einstakir
aðilar lögðu fram, einkum að því
er varðaði botnstokkinn, enda
sýndist sú lausn álitlegri en brú.
Fyrirtækin ístak hf. og Phil &
Sön unnu greinargóða skýrslu að
beiðni félagsins um kostnað við
gerð botnstokks, en ljóst var að
heildarkostnaður við þá lausn yrði
talsvert yfir hámarksmörkum, sem
síðar reyndust lægri en í upphafi
var haldið, þegar erlendir fjármála-
aðilar fóru að vinna frekar í verk-
efninu og varð það til þess að gera
þessa lausn enn íjarlægari.
Þeir sem til þekkja við Hvalljörð
vita að þar eru veður oft mjög
hörð og þar fjúka margir bílar út
af veginum á hveiju ári. Um allar
þær hugmyndir sem settar hafa
verið fram að undanförnu, þ.e. brú
og fyllingu, botnstokk og fyllingu
eða feijusamband gildir, að mikil
vandræði gætu skapast vegna veð-
urs, bæði á byggingartíma og í
rekstri. Þetta atriði hafði stjórn
Spalar einnig í huga þegar íjallað
var um hina ýmsu kosti.
4. Eins og reyndar oft hefur kom-
ið fram í fjölmiðlum er gert ráð
fyrir að verktaki sjái alfarið um
íjármögnun verksins þar til hann
skilar því fullbúnu til verkkaupa
eftir þiggja mánaða reynslurekst-
ur. í staðinn fær verktaki við undir-
skrift samninga greiðsluábyrgðir
frá þeim sem fjármagna mannvirk-
ið til lengri tíma og er því rétt að
ítreka að endanlegir lánveitendur
leggja ekkert ljármagn fram né
taka á sig nokkrar ábyrgðir fyrr
e.n mannvirkjð er afhent fullbúið.
Áhætta á framkvæmdatíma liggur
því öll hjá verktaka og trygginga-
raðilum hans.
Gert er ráð fyrir að erlendir
bankar leggi fram 62-63% af lang-
tímaflármögnuninni, en 37-38%
komi frá innlendum aðilum, eink-
um lífeyrissjóðum.
Reiknað er með að erlend lán
verði uppgreidd innan 10 ára frá
því rekstur hefst, innlend skulda-
bréf innan 14-15 ára og hlutafé
innan 17-18 ára en þá fær ríkið
mannvirkið afhent án endurgjalds,
en þá er gert ráð fyrir að ríkið
hafi fengið um 2.000 milljónir
króna á núvirði í skatttekjur af
göngunum.
5. Arið 1992 fékk félagið Hag-
fræðistofnun Háskóla íslands til
að gera athugun á þjóðhagslegum
ávinningi vegtengingar um utan-
verðan Hvalfjörð. Miðað við fyrir-
liggjandi upplýsingar áætlaði
stofnunin þjóðhagslegan ávinning
um 7.100 milljónir króna, þar af
væri ávinningur neytenda um
Gylfi Þórðarson
„Árið 1992 fékk félagið
Hagfræðistofnun Há-
skóla Islands til að gera
athugun á þjóðhagsleg-
um ávinningi vegteng-
ingar um utanverðan
Hvalfjörð. Miðað við
fyrirliggjandi upplýs-
ingar áætlaði stofnunin
þjóðhagslegan ávinning
um 7.100 milljónir
króna, þar af væri
ávinningur neytenda
um 4.500 milljónir
króna.“
4.500 milljónir króna. Hver 10%
breyting í grunnspá umferðar
mundi auka eða minnka þennan
ávinning um tæplega 1.200 millj-
ónir króna. Jafnframt var bent á
að frestaðist opnun vegtengingar-
innar um eitt ár töpuðust 335 millj-
ónir króna í þjóðhagslegum ávinn-
ingi.
Þá er rétt að benda á að fram
hefur komið í skýrslum Vegagerð-
ar ríkisins að stofnunin telur berg-
göng um utanverðan Hvalljörð þau
arðsömustu sem hægt er að ráðast
í hér á landi.
6. Nokkuð hefur borið á þeim mis-
skilningi, jafnvel meðal lærðra
manna, að hægt væri að nota fjár-
magnið sem ætlað er til þessa
mannvirkis til ými.-.sa verkefna á
vegum ríkisins, s.s. þyrlukaupa.
Eins og áður hefur komið fram
stendur ríkið algjörlega fyrir utan
fjármögnun Hvalijarðarganganna
og því hefur það verkefni engin
áhrif á hvort eða hvenær verður
ráðist í einstakar fjárfestingar á
vegum ríkisins. Þeir aðilar sem
koma til með að standa undir fjár-
mögnun ganganna gera það út frá
arðsemissjónarmiðum og engu
öðru. Ef ekkert verður af fram-
kvæmdum, t.d. vegna þess að öll
tilboð reynast of há, er Ijóst að
möguleikar annarra fjárfestinga
sem menn láta sig dreyma um
aukast ekkert.
Að lokum vildi ég varpa fram
þeirri spurningu hvort ekki væri
skynsamlegt að skoða botnstokks-
hugmyndina í sambandi við fyrir-
hugaða vegarstyttingu frá Reykja-
vík og upp á Kjalarnes. Þessi út-
færsla skapar mikla vinnu og það
hlýtur að vera miklu skynsamlegra
að þreyta frumraunina í grunnum
sundum og fjörðum heldur en í
djúpum Hvalfirðinum, þar sem
veðurlag er ákaflega óhagstætt
fyrir svona framkvæmd.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sementsverksmiðjunnar hf. og
stjórnarformaður Spalar hf.
--------»-»'■■♦.-..—
■ Nuddstofa Reykjavíkur hef-
ur hafið starfsemi í Sundlauginni
í Laugardal í samvinnu við leirb-
öðin þar. Boðið verður upp á ýmiss
konar nudd svo sem slökunarnudd,
klassískt nudd, íþróttanudd,
svæðameðferð, höfuðnudd, and-
litsnudd og heildrænt nudd, á
vægu verði. Kristján Jóhannsson
sjúkranuddari mun hafa umsjón
með starfseminni. Leirböðin við
Laugardalslaug hafa starfað í einn
mánuð. Á þeim tíma hafa um 100
manns komið í böðin. Flestir hafa
látið mjög vel af þeim. Gerðar
hafa verið ræktunartilraunir á
leirnum og reyndist ekkert rækt-
ast í honum. Leirbaðsmeðferðin
tekur um eina klst. og nuddmeð-
ferðin frá 25. mín. upp í 55 mínút-
um.
vann stórsigur í Linares
Karpov
Skák
Margeir Pétursson
ANATÓLÍ Karpov, heims-
meistari FIDE, hefur þegar
tryggt sér einn glæsilegasta
mótasigur skáksögunnar á
stórmótinu í Linares á Spáni,
sem lýkur í dag. Fyrir síðustu
umferðina var Karpov með 10
vinninga af 12 mögulegum en
Gary Kasparov, heimsmeistari
eigin atvinnumannasambands,
í öðru sæti með 8V2 v. Þetta
er fyrsta mótið sem þeir taka
báðir þátt í eftir að Kasparov
og Short klufu sig frá FIDE í
fyrra. Karpov getur nú með
nokkrum rétti haldið því fram
að hann hafi sannað sig sem
heimsmeistari og ljóst er að
þetta kemur á allra versta tíma
fyrir Kasparov.
Hann er ekki einu sinni örugg-
ur með annað sætið, því Lettinn
Aleksei Shirov er aðeins hálfum
vinningi á eftir honum. Það sem
skipti sköpum var tap Kasparovs
fyrir Kramnik í 10. umferð. I
umferðinni á eftir vann Karpov
síðan dæmigerðan og sannfær-
andi sigur á hinum 18 ára gamla
Kramnik.
Staðan fyrir síðustu umferð
1. Karpov 10 v.
2. Kasparov 8V2 v.
3. Shirov 8 v.
4. Barejev 7 v.
5. Kramnik 6 '/2 v.
6. Lautier 6 v. og biðskák
7-8. Anand og Kamsky 6 v.
9.-10. Gelfand og Topalov 5'/2 v.
11. Illescas 4 V2 v.
12. ívantsjúk 4 v. og biðskák
13. Júdit Polgar 3'/2 v.
14. Beljavskí 2 v.
í síðustu umferð mætast m.a.
Beljavskí og Karpov, Kasparov
og Lautier og Shirov og Anand.
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Vladímir Kramnik
Slavnesk vörn
I. d4 - d5, 2. c4 - c6, 3. Rf3
- Rf6, 4. Rc3 - e6, 5. e3 -
Rbd7, 6. Bd3
Uppáhald Karpovs í stöðunni
er hið rólega 6. Dc2, en hann
hefur undirbúið glaðning fyrir
Kramnik.
6. - dxc4, 7. Bxc4 - b5, 8. Bd3
- a6, 9. e4 - c5, 10. d5 - c4,
II. dxe6 - fxe6, 12. Bc2 -
Bb7, 13. 0-0 - Dc7, 14. Rg5 -
Rc5, 15. e5!
Þetta virðist vera nýr leikur í
þessari þekktu stöðu. Iíarpov
sneiðir framhjá flækjunum sem
koma upp eftir 15. De2 eða 15.
Df3.
15. - Dxe5, 16. Hel - Dd6,
17. Dxd6 - Bxd6, 18. Be3! -
0-0, 19. Hadl - Be7, 20. Bxc5
- Bxc5, 21. R$e6 - Hfc8, 22.
h3!
Undirbýr peðaframrás á
kóngsvæng til að stugga við
svarta riddaranum á f6. Kramnik
tekst ekki að leysa vandamál sín.
22. - Bf8, 23. g4 - h6, 24. f4
- Bf3, 25. Hd2 - Bc6, 26. g5
- hxg5, 27. fxg5 - Rd7, 28.
Rxf8 - Rxf8, 29. Hd6 - b4,
30. Re4 - Be8,
Kramnik óttast g5-g6 en í kjöl-
farið hefði mátt reyna virkari
vörn.
31. Rg3 - Hd8, 32. Rf5 - Hxd6,
33. Rxd6 - Bg6?
Tapar peði. Það varð að reyna
33. - Bd7.
34. Bxg6 - Rxg6, 35. Rxc4 -
Hd8, 36. He4 - b3, 37. axb3 -
Hd3, 38. Kg2 - Hxb3, 39. h4
- Rf8, 40. He8
og svartur gafst upp.
Yfirburðir TR í
deildakeppninni
A-sveit Taflfélags Reykjavík-
ur jók forskot sitt í seinni hluta
Deildakeppni Skáksambands ís-
lands, sem fram fór um helgina.
Sveitin sigraði með miklum yfír-
burðum og B-sveit TR skaust
óvænt upp í annað sætið. Það
var ekki síst að þakka Davíð
Bronstein sem tefldi á fyrsta
borði fyrir B-sveitina um helgina
og vann allar þijár skákir sínar.
Úrslit deildakeppninnar urðu
þessi:
1. deild:
1. Taflfélag Reykjavíkur 42 v.
af 56 mögulegum.
2. TR, B-sveit 32*/2 v.
3. Skákfélag Akureyrar, 31 v.
4. Skáksamb. Vestfjarða 29‘/2 v.
5. Hellir 28‘/2 v.
6. Skákfélag Hafnarfjarðar 25 v.
7. Taflfélag Garðabæjar 24 'h v.
8. Ungmennasamb. A-Húnvetn-
inga 11 v.
2. deild:
1. Taflfélag Kópavogs 26 v. af 42
2. Skákfélag Akureyrar, B-sveit
25'/2 v.
3. Taflfélag Reykjavíkur, D-sveit
24‘/2 v.
4. Taflfélag Reykjavíkur, C-sveit
22 v.
5. Skáksamband Vestíjarða, B-
sveit 21 v.
6. Ungmennasamb. Eyjaijarðar
20‘/2 v.
7. Taflfélag Akraness 17/2 v.
8. Taflfélag Kópavogs, B-sveit
11 v.
3. deild:
1. Taflfélag Reykjavíkur, G-sveit
2. Taflfélag Vestmannaeyja
3. Hellir, B-sveit
4. Skákfélag Akureyrar, C-sveit
5. Skákfélag Keflavíkur
6. Taflfélag Reykjavíkur, F-sveit
7. Ungmennasamb. Eyjafj. B-
sveit
8. Taflfélag Reykjavíkur, E-sveit
Teflt var til úrslita um öll
sætin í þriðju deild, en fyrst fór
fram undankeppni. Taflfélag
Vestmannaeyja flyst upp í aðra
deild, þrátt fyrir naumt tap, 2R-
3R, fyrir G-sveit TR í úrslitum.
Sama félagi er aðeins heimilt að
hafa tvær sveitir í annarri deild
og TR hefur tvær fyrir.
4. deild:
1. Skákfélag Selfoss og nágrenn-
is
2. Taflfélag Akraness, B-sveit
3. Skáksamband Austurlands
4. Skákfélag Hafnarfjarðar, B-
sveit
Teflt var til úrslita um ijögur
efstu sætin, en hin félögin í deild-
inni voru Skákfélag heyrnar-
daufra, Skákfélag Keflavíkur,
B-sveit, Taflfélag Húsavíkur og
Taflfélag Garðabæjar, B-sveit.
Á fjórða hundrað manns úr
öllum landshlutum tefldu í
Deildakeppni SÍ.
Jóhann hraðskákmeistari
Jóhann Hjartarson sigraði með
yfirburðum á hraðskákmóti Is-
lands á sunnudaginn, tapaði að-
eins einum og hálfum vinningi í
18 skákum. Úrslit urðu þessi:
1. Jóhann Hjartarson I6V2 v.
2. Margeir Pétursson 13 v.
3. Hannes H. Stefánsson 12/2 v.
4. Helgi Ólafsson 12 v.
5. -6. Jón Garðar Viðarsson og
Sigurður Daði Sigfússon 11‘/2 v.
7.-9. Rúnar Sigurpálsson, Jón
Viktor Gunnarsson og Ólafur B.
Þórsson 11 v.
10.-11. Bragi Halldórsson og
Unnsteinn Siguijónsson IOV2 v.
o.s.frv.
Skákstjóri var Haraldur Bald-
ursson.