Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 43

Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994 43 Minning Guðmundur Kristinsson Okkur var illa brugðið þegar við fréttum það hingað til Bandaríkj- anna að Gummi vinur okkar hefði látist af slysförum. Það er sárt að kveðja góðan vin sem manni þykir vænt um en næsta ómögulegt að sætta sig við að lífi þessa indæla drengs sé lokið svona snemma. Frá því Linda frænka kynnti okkur fyrst fyrir Gumma sínum höfum við verið í óslitnu sambandi við þau og hefur góð vinátta hald- ist þrátt fyrir vegalengdirnar sem gjaman hafa skilið okkur að. Við hittumst þó alltaf þegar tækifæri gafst og voru farnar ófáar ferðir í foreldrahús Lindu, þar sem þau Gummi dvöldu þegar þau heimsóttu ísland í fríum frá námi sínu í Banda- ríkjunum. Þá var kátt á hjalla því Gummi var sérstaklega skemmti- legur og lífsglaður maður, og um- fram allt fróður á flestum sviðum. Hann hafði líka þann einstaka hæfi- leika að draga það skemmtilegasta fram í fólki og láta því finnast það alls megnugt í lífsins ólgu og sjó. Góðvild og fómfýsi Gumma var best lýst þegar hann stóð fyrir því að við drifum okkur til Bandaríkj- anna í nám í desember 1990. Þau jólin fór Linda ein heim til íslands í jólafrí en Gummi varð eftir til þess að koma okkur inn í alla hluti í þessu framandi landi. Hann taldi heldur ekki eftir sér að keyra á undan okkur í 16 tíma í grenjandi rigningu til þess að koma okkur á áfangastað. Ekki lét hann staðar numið þar heldur fylgdi okkur í skólann þar sem við áttum fund með ráðgjafa okkar, því Gummi vildi vera viss um að það yrði séð vel fyrir okkur áður en hann sleppti af okkur hendinni. í Bandaríkjunum emm við búin að vera síðan hin ánægðustu enda gengið vel og liðið yndislega. Má segja að Gummi hafí verið stór örlagavaldur í lífi okkar og verðum við honum ævinlega þakklát fyrir að hafa leitt okkur inn á þessa braut. Við þökkum guði fyrir að hafa fengið að njóta samvista við Gumma þessi ár. Hann mun eiga sinn stað í hjörtum okkar og verður minningin um Gumma, vin okkar, ávallt nálæg. Elsku Linda, Jóhann Kristinn og aðrir ástvinir, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur, megi góður guð gefa ykkur styrk til að takast á við þennan mikla missi. Stefán Antonsson og Ólöf Jónsdóttir. ------♦ ♦ ♦---- Brids Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsklúbbur Félags eldri borgara, Kópavogi Föstudaginn 4. mars var spilaður tvímenningur og mættu 16 pör. Úrslit: Eysteinn Einarsson - Þorleifur Þórarinsson 275 Ingiríður Jónsd. - Jóhanna Gunnlaugsd. 262 Bergur Þorvaldsson - Þórarinn Ámason 245 Júlíus lngibergsson—Jósef Sigurðsson 241 Þriðjudaginn 8. mars var spilaður tvímenningur og mættu 22 pör, spilað var í tveim riðlum, A, 10 pör, B, 12 pör, og urðu úrslit í A-riðli: Gunnþórunn Erlingsd. — Þorleifur Þórarinss. 136 Bergur Þorvaldsson - Þórarinn Ámason 127 Karl Adolfsson - Eggert Einarsson 122 Mcðalskor 108 B-riðill: Heiga Guðbrandsd. - Ásbjöm Magnússon 132 Sigríður Pálsd. - Eyvindur Valdimarsson 125 Ásthildur Sigurgíslad. — Lárus Amórsson 121 Jóna Halldórsd. - Hannes Ingibergsson 117 Meðalskor 110 Næst verður spilað þriðjudaginn 15. mars í Fannborg 8 (Gjábakka), kl. 19. Bridsfélag Breiðholts Að loknum 8 umferðum í Butler-tví- menningr er staða efstu para þessi: UnaAmadóttir-KristjánJónasson 101 Baldur Bjartmarsson — Helgi Skúlason 98 Lilja Guðnadóttir—Magnús Oddsson 97 ValdimarSveinsson-ÞorsteinnBerg 91 Jens Jensson - Lúðvík Ólafsson 86 Keppninni lýkur næsta þriðjudag. Þá verða spilaðar 5 umferðir og að þessu sinni hefst spilamennska kl. 19.10. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNAR ÁRMANNSSON, Ásvallagötu 63, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 17. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans, er vin- samlegast bent á Hlifarsjóð SÍBS. Guðríður Málfríður Helgadóttir, Guðný Gunnarsdóttir, Jóhann Einvarðsson, Gunnar Jóhannsson, Einvarður Jóhannsson, Vigdi's Jóhannsdóttir, Ari Kristinn Gunnarsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KJARTAN ÞORLEIFSSON, Fannborg 7, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. mars kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag ís- lands. Kristín María Kristinsdóttir, Bryndís Kjartansdóttir, Karl Arason, Ágústa Kjartansdóttir, Ólafur F. Ólafsson, Svanhvft Kjartansdóttir, Einar S. Sigurðsson, Halldór Kjartansson, Helgi Kjartansson, Guðbjartur Kjartansson, Bára Kjartansdóttir, Guðbjörg J. Jakobsdóttir, Þórður Jakobsson, Jón Kristinn Jakobsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær fósturfaðir okkar og afi, AÐALSTEINN ANDRÉSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 16. mars kl. 15.00. Brynhildur Sigtryggsdóttir, Kolbrún Pálmadóttir, Jón Pálmi Pálmason, Aðalsteinn Leví Pálmason, Helga Pálmadóttir, Hjördís Baldursdóttir, Selma Jónsdóttir, Björg Jónsdóttir, Aðalsteinn Bragi Jónsson, Helen Agnarsdóttir, Sigurlaug Agnarsdóttir, Þórður Agnarsson, Jóhann Gunnar Scheving. Alúðarþakkirfyrirauðsýnda samúð, vin- áttu og hlýhug við andlát og útför fóst- urföður okkar, afa og langafa, GÍSLA GÍSLASONAR fyrrverandi verkstjóra, Flókagötu 23. Þórunn Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir og fjölskyldur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐJÓNS JÓNSSONAR, Heiðarvegi 25, sem lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja hinn 4. mars. Jón Valgarð Guöjónsson, Guðlaug Gunnarsdóttir, Addý Jóna Guðjónsdóttir, Kristmundur Sörensen, Hafþór Guðjónsson, Þorgerður Hlööversdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ÁGÚSTU SVEINSDÓTTUR, Dalalandi 14, Reykjavík. Sigríður Gústafsdóttir, Skúli Guðmundsson, Ólafur Gústafsson, Kristfn Sigurðardóttir, Gústaf Gústafsson, Björg Hauksdóttir og barnabörn + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR SVANLAUGSDÓTTUR, Hörðalandi 4. Anna Kristófersdóttir, Ómar Arason, Harald Kristófersson, Anna Pétursdóttir, Hjalti Kristófersson og barnabörn. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, MAGNÚSAR JÓNSSONAR, Suðurgötu 12, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Keflavíkur. Helga Jónsdóttir, börn og tengdabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, Espigerði 2. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 1 -A, Landakotsspítala. Bogey Dagbjartsdóttir, Margrét Guðlaug Sigurðardóttir, Sigurður Kr. Sigurösson, Erla Möller og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengadaðir og afi, GARÐAR EYJÓLFSSON, Bjarmalandi 6, Sandgerði, er látinn. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og hlýhug. Sigrún Þorgrfmsdóttir, Björk Garðarsdóttir, Pétur Brynjarsson, Eyjólfur Gisli Garðarsson, Valgerður Hrefna Birkisdóttir, Birna Helga Garðarsdóttir, Magnús Garðarsson og barnabörn. + Einlægt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og vinarþel vegna andláts móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, ÞORBJARGAR ÞÓRARINSDÓTTUR BENDER. Rós Bender, Erlendur Á. Garðarsson, Fjóla Ósk Bender, Sóley S. Bender, Friðrik Kr. Guðbrandsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, fósturmóður, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEFANÍU GUÐRÚNAR ÁSKELSDÓTTUR, Grenimel 4. Sérstakar þakkir færum við öllu starfs- fólki deildar 3-B, Landakotsspítala. Óskar Eyjólfsson, Sæmundur Bjarkar Árelfusson, Hildur Jónsdóttir, Ása Laufey Sæmundsdóttir, Sigríður Ó. Sæmundsdóttir, Jón Óskar Sæmundsson, Ingibjörg Þ. Sæmundsdóttir, Stefanfa Guðrún Sæmundsdóttir, Bragi Vilhjálmsson, Kristín Jóna Bragadóttir. + Innilegar og hugheilar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu með heimsóknum, blómum og minningar- gjöfum við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, MÓSES AÐALSTEINSSONAR. Sérstakar þakkir fyrir einstaka um- hyggju, alúð og aöstoð færum við starfsfólki gjörgæsludeildar Landspítal- ans, prestinum okkar, séra Gísla Jónas- syni, sóknarnefnd og kirkjukór Breiðholtskirkju, Kvenfélagi Breið- holts, vinnufélögum, bekkjarfélögum hans - M.A-45 - og Lúðra- sveit Reykjavíkur, sem heiðraði minningu hans viö útförina. „Drottinn er minn hiröir, mig mun ekkert bresta" Davíðss. 23. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ragnheiður Mósesdóttir, Matthew James Driscoll, Kári og Katrín Þórdís Driscoll.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.