Morgunblaðið - 15.03.1994, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
55
Úrslit í prófkjöri D-
listans í Bolungarvík
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík
haldið 13. mars 1994
Niðurstaða:
ÓLAFUR Kristjánsson bæjarstjóri
varð í fyrsta sæti á lista sjálfstæð-
ismanna í Bolungarvík í prófkjöri
sem efnt var til um sl. helgi.
í öðru sæti varð Ásgeir Þór Jóns-
son verslunarmaður og Örn Jóhanns-
son verkstjóri hafnaði í þriðja sæti,
Ágúst Oddsson héraðslæknir og
bæjarfulltrúi varð í fjórða sæti, Víðir
Benediktsson framkvæmdastjóri í
fímmta, Gunnar Hallsson verslunar-
maður í sjötta, Jón S. Ásgeirsson
verkstjóri í sjöunda og Jósteinn Bac-
hmann aðalbókari í áttunda sæti.
Víðir Benediktsson gaf kost á sér
í_ fyrsta sætið á móti Ólafí. Örn og
Ásgeir kepptu um annað sætið, en
Ágúst sóttist eftir fjórða sætinu
ásamt Jóni S. Ásgeirssyni.
Nr. Nafn/skipt- ing atkvœða 1 sæti 2 sæti Samt. 1 og 2 3 sæti Samt. 1 til 3 4 sæti Samt. 1 til 4 % ,rild atkv.
4. Ágúst Oddsson 19 17 36 44 80 114 194 77%
2. Ásgeir Þ. Jónss. 14 98 112 40 152 21 173 69%
6. Gunnar Iiallss. O 11 11 41 52 25 77 31%
7. Jón S. Ásgeirss. 3 8 11 24 35 28 63 25%
8. Jóst. Bachmann O 3 3 18 21 8 29 12%
1. ólafur Kristjánss. 109 11 120 17 137 18 155 62%
5. Víðir Benediktss. 98 11 109 16 125 20 145 58%
3. Örn Jóhannsson 9 93 102 52 154 18 172 68%
252 252 252 252 1008
Á kjörskrá 284, gild atkvæði: 252, greidd atkvæði 259 eða 91%.
Þar af s. yfirlýsingar: 129, auðir og ógildir: 7
Reglur um
kosningu
allsherj-
argoða
AÐALFUNDUR Ásatrúarfé-
lagsins, haldinn þann 12.
mars síðastliðinn, samþykkti
reglur um kjörgengi og kosn-
ingu allsheijargoða.
Allir félagsmenn, 25 til 75
ára, sem njóta stuðnings 9 fé-
lagsmanna, eru kjörgengir.
Framboðum skal skilað til lög-
sögumanns fyrir 1. apríl næst-
komandi, en ef aðeins einn býð-
ur sig fram telst hann sjálfkjör-
inn allsherjargoði. Kosningin
skal vera leynileg og fara fram
bréflega. Atkvæði verða talin
21. maí að öllum frambjóðend-
um viðstöddum. Hljóti enginn
hreinan meirihluta skal kosið á
ný á milli þeirra tveggja sem
flest atkvæði hlutu. Kjöri skal
lýst á Þingvöllum í 10. viku
sumars.
Héraðsdómur Reykjavíkur
Fyrrum ritstjóri greiði
dómara 600 þúsund kr.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Gunnar Smárk Egilsson,
fyrrverandi ritstjóra Pressunnar og útgefanda Pressunnar, Blað hf.,
til að greiða Má Péturssyni, héraðsdómara og fyrrum bæjarfógeta í
Hafnarfirði, samtals 600 þúsund krónur í miskabætur, birtingarkostn-
að og málskostnað og auk þess 25 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna
meiðyrða í garð Más, sem birtust í Pressunni 28. maí 1992 og voru
dæmd dauð og ómerk í málinu.
í fyrrgreindu tölublaði Pressunnar
birtist grein þar sem íjallað var um
störf vegna skipta á dánarbúi sem
Már Pétursson hafði til meðferðar.
Jafnframt var birt mynd af Má yfir
forsíðu blaðsins og fyrirsögn þar sem
sagði að erfingi hefði orðið arflaus
vegna afglapa Más. í greininni sem
var inni í blaðinu var síðan nánar
fjallað um málið undir svipaðri fyrir-
sögn og með sjö tilgreindum ummæl-
um sem Már krafðist ómerkingar á
í dómsmálinu.
Már kærði skrif blaðsins til Siða-
nefndar Blaðamannafélags íslands
Sprengjuhótanir á Heathrow
Védís varð fyrir töfum
VÉDÍS, þota Flugleiða, varð fyrir töfum í áætlunarferð á sunnudag
vegna sprengjuhótana á Heathrow flugvelli í London. Þotunni var
snúið til flugvallarins í Luton og komust farþegar þar frá borði og
um borð. Heimleiðin lá síðan um Glasgow og kom vélin til Keflavík-
ur rúmum sjö stundum á eftir áætlun.
Frantz Hákansson flugstjóri seg-
ir að vélin hafí verið í hefðbundnu
biðflugi fyrir lendingu á Heathrow
þegar tilkynning barst um að völlur-
inn væri lokaður af öryggisástæð-
um. Völlurinn í Gatwick var einnig
lokaður og vélinni snúið til Luton.
Fjöldi flugvéla olli öngþveiti í
Luton og þurftu farþegar í Védísi
að bíða um þijár stundir um borð
eftir afgreiðslu, völlurinn einfald-
lega annaði ekki hinni stórauknu
umferð. Frantz flugstjóri þakkar
Óla Smith, starfsmanni Flugleiða í
London, að allt fór vel að lokum,
þrátt fyrir tafir. Óli kom með far-
þegum til íslands frá London og
sá um að farþegar héðan komust
frá borði. Eftir fímm stunda töf á
Luton-velli komst vélin loks af stað
til Glasgow og stðan heim.
10. ieikvika, 13. mars 1994
Nr. Leikur: Röðin:
1. Atalanta - Lecce - - 2
2. Cremonese - Foggia 1
3. Genoa - Juventus - X -
4. Mllan - Sampdorla 1
5. Parma - Inter 1
6. Roma - Reggiana - X -
7. Torino - Cagliari 1
8. Udinese - Lazio - X -
9. Ancona - Venezia - - 2
10. Cosenza - Verona 1
11. Pescara - Monza 1
12. Ravenna - Lucchese 1
13. Vicenza - Cesena 1 ■ *
Heildarvinningsupphæðin:
25,1 milljón krónur~)
3.390.850 | kr.
1 kr'
J kr.
j kr.
13 réttir:
12 réttin
11 réttir:
10 réttir:
97.620
4.910
900
10. leikvika , 12. mars 1994
Nr. Leikur: Röðin:
1. Bolton - Oidham - - 2
2. Man. City - Wimbledon - - 2
3. Newcastlc - Swindon 1 - -
4. Norwich - QPR • - 2
5. Southamp. - Sheff. Wed - X -
6. Bamsley - Tranmere 1 - -
7. C. Palace - WBA 1 - -
8. Derby - Millwall - X -
9. Grimsby - Birmingham 1 - -
10. Notts Cnty - Watford 1 - -
11. Oxford - Peterboro - - 2
12. Southcnd - Portsmouth 1 - -
13. Stoke - Notth For. - - 2
Heildarvinningsupphæðin:
113 milljón krónur
410.350
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
9.410 1
800
250
kr.
kr.
) kr.
jkr.
sem taldi að um alvarlegt brot á
siðareglum hafí verið að ræða og
flest lögmál við fréttaöflun og fram-
setningu frétta hafi verið brotin í
umfjöllun Pressunnar um hin meintu
afglöp Más. Ekki hafí verið reynt
að sannreyna ásakanir á hendur Má
með því að ræða við hann sjálfan
og fyrir liggi að fréttin hafi verið
birt án þes að staðfestingar væri
leitað á fullyrðingum heimildar-
manna Pressunnar.
Að beiðni Más fjallaði Dómarafé-
lag íslands um málið og komst stjórn
félagsins að þeirri niðurstöðu að það
væri rangt sem haldið var fram í
fréttinni að erfðaskrá í máli því sem
um var rætt hafi verið fölsuð þótt
hún hafí verið vefengjanleg þar sem
formskilyrðum hafi ekki verið full-
nægt. Taldi dómarafélagið að ekkert
hafi réttlætt þær alvarlegu ásakanir
sem fram hafí komið í fyrirsögn og
meginmáli blaðagreinarinnar.
Fyrir hönd ritstjórans og útgáfu-
félagsins var krafíst frávísunar
vegna galla á málatilbúnaði og
sýknu þar sem skýrt hafí verið frá
samkvæmt bestu vitund og í sam-
ræmi við þær upplýsingar sem aflað
hafí verið og metnar hafi verið gild-
ar og að í greininni hafí hvorki ver-
ið að fínna móðganir né aðdróttanir
í garð Más. Þá var einnig vísað til
prentfrelsisákvæðis stjórnarskrár-
innar og þess að blaðamönnum yrðu
settar óeðlilega þröngar takmarkan-
ir í skrifum ef þeir mættu ekki draga
ályktanir í greinum sínum.
í niðurstöðum Sigríðar Ólafsdótt-
ur héraðsdómara segir að umrædd
blaðagrein feli í sér grófar ærumeið-
ingar og aðdróttanir í garð Más og
VAKORTALISTI
Dags. 15.3.1994. NR. 152
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8300
5414 8301
5422 4129
5221 0010
0310 5102
0957 6157
2814 8103
3122 1111
3163 0113
0494 0100
7979 7650
9115 1423
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORT HF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
sé þar sérstaklega vegið að æru
hans sem embættismanns. Efni
greinarinnar sé þannig fram sett að
Már sé annars vegar beinum orðum
vændur um afglöp og vanrækslu í
starfí en hins vegar sé fjallað um
málið á þann hátt að hin ýmsu um-
mæli feli í sér grófar, tilefnislausar
og óviðeigandi aðdróttanir á emb-
ættisfærslu hans. Ekkert hafi komið
fram sem réttlæti slíka framsetningu
og hafí hvorki verið leiddar að því
líkur eða sannanir á neinn hátt, að
embættisfærsla Más hafí verið
ámælisverð eða rangt að málum
staðið eins og ýmist sé sagt berum
orðum í greininni eða látið að liggja.
Síðan er fjallað um fyrirsögn, mynd-
birtingu og kynningu greinarinnar,
forsíðu og þau sjö ummæli sem Már
krafðist ómerkingar á og ómerking-
arkrafan tekin til greina í öllum til-
vikum. Einnig voru, að kröfu Más,
ómerkt ummæli í frétt Pressunnar
um stefnu Más á hendur blaðinu en
þar voru endurteknar sumar þær
staðhæfínga sem settar höfðu verið
fram í fyrri greininni.
í málinu hafði Már Pétursson kraf-
ist 500 þúsund króna bóta, 250 þús-
unda til að kosta birtingu dómsins auk
málskostnaðar og þar sem um einkar-
efsimál var að ræða var þess einnig
krafíst að ritstjórinn yrði dæmdur til
að greiða sekt til ríkissjóðs.
Honum voru dæmdar 250 þúsund
krónur í miskabætur, 150 þúsund
krónur til að standa undir kostnaði
við birtingu dómsins og 200 þúsund
krónur í málskostnað úr hendi Gunn-
ars Smára. Fjárhæðirnar má inn-
heimta með aðför að útgáfufélagi
Pressunnar, Blaði hf. Að auki var
Gunnar Smári dæmdur til að greiða
25 þúsund króna sekt til ríkissjóðs.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins eru þær miskabætur sem
Má Péturssyni voru dæmdar í málinu
einhverjar þær hæstu sem dæmdar
hafa verið í meiðyrðamáli hér á landi.
ÞAR SEM
SMÁTÆKIN FÁST
fr/Ti [i . '/PSI •j
‘ * jl
fpiU|W
i
PFAFF 6085 SAUMAVEL
HEIMILISVÉL m/20 SPORUM
SENNHEISER HD-560
HEYRNARTÓL
FRÁBÆR HLJÓMUR
BRAUN 3012
RAKVÉL SYSTEM 1-2-3
FRAMTÍÐAREIGN
......
HÁRBLÁSARI FRÁ
BRAUN PX 1200 SÚPERVOL
m/DREIFARA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4500 0022 0316
4543 3700 0009 7116
4543 3718 0006 3233
4546 3912 3256 0090
4842 0308 1995 3028
ÖLL ERLEND KORT
SEM BYRJA Á:
4550 50** 4560 60**
4552 57** 4941 32**
Afgreiðslufólk vinsamiegast takið qfangreind
kort úr umfert og sendiö VISA islandi
sundurklippt.
VER0LAUN kr. 5000,-
lyrir að tdólesta kort og visa á vágest.
V7S4
rnmtm
Höföabakka 9 • 112 Reykjavik
Sími 91-671700
GASKRULLUJARN
FRÁBRAUN
STYLE'N GO
Upplýsingar um
umboðsaðila
hjá Gulu línunni
öll verð miðast við staðgriðslu
BORGARTUNI 20
sími 626788
/ fef§ /-/:/;/: /•/;