Morgunblaðið - 30.04.1994, Side 1
64 SIÐUR LESBOK/C
96. tbl. 82. árg.
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
De Klerk og
Mandela lofa
kosningarnar
Jóhannesarborg. Reuter.
F.W. de Klerk forseti Suður-Afríku og Nelson Mandela, sem þyk-
ir líklegur arftaki hans á forsetastóli, sögðust þess fullvissir í
gærkvöldi, þegar kjörstöðum var endanlega lokað, að þingkosning-
arnar hefðu verið frjálsar og farið heiðarlega fram. Athygli hefur
vakið að ofbeldi var ekki framið i landinu meðan á kosningunum
stóð.
De Klerk og Mandela sögðu að
þrátt fyrir nokkra erfiðleika sums
staðar í landinu hlytu kosningarn-
ar að teljast hafa farið fram með
viðunandi hætti. Þar sem skortur
var á atkvæðaseðlum voru kosn-
ingarnar framlengdar um einn dag
í blökkumannahverfunum KwaZ-
ulu, Venda, Transkei, Ciskei,
Lebowa og GaZankulu. Gífurlegur
straumur var á kjörstaði þar í gær
og þykir það staðfesta að ákvörð-
unin um að framlengja kosning-
arnar þar hafi verið skynsamleg
og til þess fallin að draga úr
spennu.
Mandela sagðist í gær hlakka
til að takast á við það verkefni
að sameina þjóðina að kosningum
loknum. Aðspurður um hvort hann
og Afríska þjóðarráðið hefðu unn-
ið kosningarnar sagði hann að það
sem fyrst og fremst skipti máli
væri að þjóðin hefði farið með sig-
ur af hólmi. „Við erum að reisa
nýtt ríki. Gleymum því liðna, blás-
um lífi í anda sátta,“ sagði hann
í sjónvarpsviðtali og talaði sem
hann væri orðinn þjóðhöfðingi.
Ný meirihlutastjórn undir for-
ystu blökkumanna á mikið undir
því komið að her og lögregla, sem
hvítir menn stjórna, sýni henni
hollustu ef viðhalda á stöðugleika.
Mandela lofaði framgöngu hers
og lögreglu í kosningavikunni og
sagði hana hafa dregið úr spennu.
Sömuleiðis lagði Mandela þunga
áherslu á að þjóðin þyrfti áfram á
hæfileikum hvítra manna að halda.
Talning atkvæða átti að hefjast í
dag og var jafnvel búist við að
vísbending um niðurstöður fengist
samdægurs.
Sjá leiðara á miðopnu og
„Andrúmsloftið einkennist af
bjartsýni og miklum vænting-
um“ á bls. 22.
Þyrlusveitir til bjargar lýðræðinu
Reuter
ÞYRLUR suður-afríska stjórnarhersins voru í gær notaðar til að flytja ný kjörgögn til blökkumannabyggða þar
sem kosningarnar voru framlengdar um einn dag. Akvörðunin um að fjölga kjördögum var sögð hafa komið í
veg fyrir að upp úr syði á viðkomandi svæðum.
Kvailmillj ón íbúa flýr
Rúanda á sólarhring
Genf, Byumba, Bujumbura. Reuter.
MEIRA en kvartmilljón íbúa flúði hörmungarnar í Rúanda á einum
sólarhring yfir til Tanzaníu, að sögn talsmanns flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Er það umfangsmesti og hraðasti
flótti sem stofnunin hefur nokkru sinni haft afskipti af.
400 hermenn falla eða særast 1 hörðum bardögum 1 Jemen
Borgarastríð vofír yfír
Sanaa. Reuter.
UM 400 hermenn hafa fallið eða særst í bardögum milli hermanna frá
norðurhluta Jemens annars vegar og suðurhlutanum hins vegar. Um
200 skriðdrekum var beitt í. bardögunum, sem eru þeir hörðustu sem
blossað hafa upp í landinu frá því Norður- og Suður-Jemen voru sam-
einuð fyrir fjórum árum.
Hermálayfírvöld í Jemen vonast til
þess að þegar verði lýst yfir vopna-
hléi í landinu vegna harðra bardaga
um 50 km frá borginni Sanaa. Segja
talsmenn hersins að ástandið geti
orðið skelfilegt haldi bardagar áfram.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis-
ins í Aden varaði við því að bardagar
gætu breiðst út og magnast svo að
borgarastyijöld yrði ekki umflúin. Á
fimmtudag varð aðstoðarforsætisráð-
herra landsins fyrir skotárás og létu
Ríki í mál við ríkið
San Diego. Reuter.
KALIFORNÍURÍKI stefndi í gær ríkissjóði Bandaríkjanna og krafð-
ist tveggja milljarða dollara bóta fyrir að fangelsa ólöglega innflytj-
endur.
Pete Wilson ríkisstjóri Kalifor-
níu lagði sjálfur fram kæruna á
hendur ríkisstjórn Bills Clintons
forseta í alríkisdómstól í San Di-
. égo. Wilson sagði við það tækifæri
að yfirvöld í Kaliforníu væru búin
að fá nóg af vandanum sem fylgdi
ólöglegum innflytjendum. Tími
raunhæfra aðgerða til þess að
skrúfa fyrir að menn komist til
landsins með ólöglegum hætti
væri runnin upp.
þrír lífverðir hans lífíð í þeim en sjálf-
ur hlaut ráðherrann skotsár. Hann
er fylgismaður forsetans, Ali Abdullah
Saleh frá norðurhlutanum, en flokkur
hans hefur átt í illdeilum við fylgis-
menn varaforsetans, sem er frá suður-
hlutanum.
Tvö ríki þrátt fyrir sameiningu
■Suður-Jemenar vilja ekki tengjast
norðurhlutanum of nánum böndum,
hann er ijölmennari og afturhalds-
samari. Suðurhlutinn var áður undir
stjóm marxista og þykja átökin nú
minna á bardaga Suður- og Norður-
Jemena á áttunda áratugnum. Jem-
enar úr norðri og suðri beijist eins
og um tvö óvinaríki sé að ræða, ekki
eina þjóð.
Þrátt fyrir að Jemenar eigi sér
aðeins einn þjóðfána og þjóðsön, er
landið að mörgu leyti enn tvö ríki.
Hvor hluti um sig hefur eigin her,
lögreglu, gjaldmiðil, sjónvarp, útvarp
og flugfélög. Frá því í ágúst sl. hefur
í raun verið alger aðskilnaður og
fjandskapur á milli ríkjanna og lög
frá því fyrir sameiningu í gildi.
Haft var eftir flóttamönnum
sem komu til Tanzaníu í gær að
versnandi hernaðarástand í suður-
hluta landsins hefði orðið þess
valdandi að fólk lagði á flótta. í
fyrstu hefðu menn stefnt til ná-
grannaríkisins Búrúndi en her-
menn Rúandastjórnar hefðu snúið
þeim til baka. Byrjaði fólk að safn-
ast að landamærum Tanzaníu upp
úr hádegi á fimmtudag og höfðu
meira en 250.000 farið yfir þau í
gær á einum sólarhring.
Fulltrúi UNHCR sakaði lögregl-
una og stjórnarhermenn um að
hafa í gærmorgun drepið um 300
manns í skotárás á um 5.000
manna hóp flóttamanna, aðallega
Tútsía er þeir reyndu að brjótast
út af íþróttaleikvangi í borginni
Cyangugu í suðurhluta landsins.
Þar leitaði fólkið skjóis þegar átök
hófust 6. apríl. Lögreglan hefur
staðið vörð urn leikvanginn og
meinað starfsmönnum hjálpar-
stofnana um aðgang. „Flótta-
mannahjálpin hefur fengið fregnir
af því að á hvetju kvöldi hafi 40
til 50 menntamenn verið fluttir
burt af leikvanginum og líflátnir.
Er aðgerðunum lýst sem skipu-
lögðum atgervishreinsunum,"
sagði í yfirlýsingu UNHCR.
Fulltrúar alþjóðlegra hjálpar-
stofnana segja að þjóðarmorð hafi
verið framin í Rúanda undanfamar
þtjár vikur og álíta að a.m.k.
100.000 manns liggi í vaTnum.
Fulltrúi barnahjálpat' SÞ (UNIC-
EF) sagði í gær að hætta væri á
að kólerufaraldur brytist út þar
sem ár og vantsból væru full af
rotnandi líkum.
----» ♦ ■ ♦--
Þing ESB
samþykkir
stækkun
Brussel. Reuter.
HÁTTSETTIR fulltrúar hjá
þingi Evrópusambattdsins (ESB)
sögðust þess fullvissir í gær að
stækkun sambandsins yrði sam-
þykkt á þinginu nk. miðvikudag.
Egon Klepsch þingforseti fundaði
í fyrradag með formönnum þing-
flokka. Sögðu fulltrúarnir að eftir
fundinn lægi fyrir að 275 þingmenn
myndu samþykkja stækkunina eða
a.m.k. 16 fleiri en nauðsyn krefði.
Fulltrúarnir sögðu að jafnframt
mætti búast við að fjöldi þingmanna
léti tækifærið ekki ónotað til þess
að krefjast aukinna áhrifa þingsins
í ákvarðanatöku innan ESB.
Samþykkt þingsins er nauðsyn-
legt til þess að af stækkun ESB
geti orðið um næstu áramót. Á fyrri
stigum hefur verið efast um að
stækkunin næðist í gegnum þingið.
Nú séu þingmenn hins vegar þeirr-
ar skoðunar að ekki sé hægt að
refsa nýjum aðildarríkjum fyrir
innri vandamál ESB.