Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.04.1994, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994 Vill leyfi fyrir tívolí JÖRUNDUR Guðmundsson hefur sótt um leyfi til að reka tívolí á Akureyri dagana 29. júlí til 1. ágúst næstkomandi. Hefur Jörundur óskað eftir að fá að staðsetja tívolíið á grasfletinum austan Samkomuhússins. Bæjarráð hefur falið bæjarverkfræðingi og umhverfísstjóra að leggja fram til- lögu um mögulega staðsetningu fyr- ir tívolíið í samráði við heilbrigðisfull- trúa. Afgreiðslu þessa erindis var frestað á fundi bæjarráðs á fimmtu- dag. ------------- Tónlistarskólinn Kynning í forskóla FORSKÓLADEILD Tónlistarskól- ans á Akureyri býður í maí mán- uði upp á ókeypis fjögurra tima námskeið til að kynna starfsemi sína. í forskólanum hljóta 5-8 ára böm þjálfun og fræðslu um undirstöðuatr- iði tónlistariðkunar og hlustunar og þar er lagður grunnur að ákveðnum sjálfsaga sem fylgir tonlistamámi. Fjöldi þátttakenda á námskeiðið er takmarkaður en skráning stendur yfir á skrifstofu skólans til 4. maí. Gleðskapur fyrir prófin Morgunblaðið/Rúnar Þór PRÖF eru framundan í Verkmenntaskólanum á Akureyri en áður en nemarnir fara að kúra sig yfír námsbæk- umar gerðu þeir sér glaðan dag svo sem venja er til. Þeir vom mættir við heimili skólameistara, Bernharðs Haraldssonar kl. 6 í gærmorgun og þegar hann hafði verið kært kvaddur lá leiðin til kennara skólans. Formaður Neytendafélags Akureyrar og nágrennis Skipuð verði rannsóknar- nefnd vegna fasteignasölu Leikfélag Akureyrar Sýningar- metsett SÝNINGARMET var sett hjá Leikfélagi Akureyrar um síðustu helgi þegar 124. sýning leikársins var en aldrei hafa verið svo marg- ar sýningar á einu og sama leikárinu. Mikil gróska hefur verið í starfsemi Leikfélags Akur- eyrar í vetur og hafa oftast verið tvo leikverk í sýningu samtímis. Félagið sýnir nú í tveimur húsum, í gamla Sam- komuhúsinu er stórsýning vetrarins, Óperudraugurinn eftir Ken Hill með söngperlum eftir mörg þekktustu tónskáld óperusögunnar og í annexíu LA, Þorpinu, er enn verið að sýna Barpar eftir Jim Cartwr- ight við miklar vinsældir. Á síðustu sýningu á Bar- pari var slett sýningarmet hjá félaginu, þá var 124. sýning leikársins en sýningar hafa aldrei verið jafn margar á einu leikári. Enn á LA eftir að bæta um betur því nokkrar sýningar em eftir áður en leik- árinu lýkur, bæði á Óperu- draugnum og Barpari. FRA GRUNNSKÓLUM AKUREYRAR Innritun 6 ára bama (fædd 1988) fer fram í grunnskólum bæjarins þriðjudaginn 3. maí og miðvikudaginn 4. maí nk. kl. 10-12 f.h. og 13-15 e.h. Jafnframt verður könnuð þörf á gæslu yngri bama. Innrita má með símtali við viðkomandi skóla. Á sama tíma þarf að tilkynna flutning eldri nemenda milli skólasvæða. Nemendur sem flytjast í Giljahverfi skulu inn- rita sig í Glerárskóla. Símanúmer skólanna: Gagnfræðaskóli Akureyrar 24241. Barnaskóli Akureyrar 24172. Glerárskóli 12666. Lundarskóli 24888. Oddeyrarskóli 22886. Síðuskóli 22588. Skólafulltrúi. HÚSNÆÐISSKRIFSTOFAN Á AKUREYRI Staða ráðgjafa Húsnæðisskrifstofan á Akureyri óskar eftir starfs- krafti til skrifstofustarfa. Æskilegt er að umsækjandi hafi menntun í viðskiptafræði eða sambærilega menntun. Umsækjandi þarf að eiga auðvelt með að umgangast fólk og vera lipur í þjónustu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Laun samkvæmt kjarasamningi Akureyrarbæjar. Húsnæðisskrifstofan á Akureyri er reyklaus vinnu- staður. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf, sendist Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, Skipagötu 12, sími 96-26311, fyrir 6. maí. VILIIJÁLMIJR Ingi Ámason formaður Neytendafélags Ak- ureyrar og nágrennis ætlar að fara fram á það við Þorstein Pálsson dómsmálaráðherra að skipuð verði sérstök rannsókn- arnefnd til að fara í saumana á samskiptum ungmenna við fast- eignasala á Akureyri. Beiðnin kemur í kjölfar ályktun- ar frá Samskiptanefnd Félags fasteignasala, en Vilhjálmur Ingi sendi málið þangað til umfjöllun- ar. í greinargerð Samskiptanefnd- arinnar kemur fram að málið sé afar viðamikið og flókið. Nefndin bendir á að augljós atriði sem koma fram í gögnum sem fyrir liggja verði að teljast ámælisverð. Vinnubrögð hefðu mátt vera betri við umrædda sölu fasteignarinnar og nokkur atriði nefnd í því sam- bandi. Graðfolinn Forsaga málsins er að tvö ung- menni festu kaup á íbúðarhúsi sem þau síðan misstu og telur formað- ur Neytendafélagsins að þau hafí vísvitandi verið blekkt og öryggis þeirra ekki gætt af hálfu fast- eignasalans. Þau hafi verið ginnt til að falsa pappíra til að fá hærra greiðslumat og hafí graðfoli í þeirra eigu verið notaður í því skyni að mynda þá eignastöðu sem nauðsynleg var til að fá nógu hátt lán til húsnæðiskaupa. Mál þetta kom upp á síðasta ári og í kjölfar- ið ritaði Vilhjálmur Ingi nokkar greinar um málið. ■ BLASARASVEITIR og sam- spilshópar blásara koma fram á tónleikum sem haldnir verða á veg- um Tónlistarskólans á Akureyri næstkomandi mánudag, 2. maí, í Akureyrarkirkju kl. 19.00. Blás- arasveitirnar koma allar fram, grunnsveit sem Jacqueline F. Simm stjómar, yngri blásarasveit undir stjórn Sveins Sigurbjörns- sonar og eldri blásarasveit sem Jón Halldór Finnsson stjórnar. MESSUR ■AKUREYRARPRESTAKALL: Messað verður í Akureyrar- kirkju kl. 14. á morgun, 1. maí. Kór Akureyrarkirkju syngur. Tónleikar og kaffisala kórsins eftir messu í Safnaðarheimilinu. ■GLERÁRKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 14. sunnudaginn 1. maí. Prestur séra Hannes Örn Blandon. ■ HJÁLPRÆÐISHERINN: Al- menn samkoma kl. 14.00. Heimilasamband kl. 16.00 á mánudag, Krakkaklúbbur kl. 17 á miðvikudag fyrir 7-12. ára. ■ HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld. Vakningsam- koma kl. 20.00 sunnudaginn 1. maí. Konur af kvennamóti sjá um samkomuna. Æskulýðs- fundur fyrir 9-12 ára miðviku- dag kl. 17.30. og grunnfræðsla fyrir nýja sama daga kl. 20.30. ■KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa kl. 18.00 í dag, laugar- dag, og kl. 11.00 á morgun, 1. maí. Islenskir hvolpar Fallegir og vel ættaðir íslenskir hvolpar eru til sölu. Ættbókarfærðir. Hvolparnir eru skoð- aðir og bólusettir af dýralækni. Upplýsingarísíma 96-26996. Hjartasjúklingar á Eyjafjarðarsvæðinu Ráðherra beiti sér fyrir fjölgun aðgerða Á aðalfundi Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu sem hald- inn var nýlega var samþykkt einróma eftirfarandi ályktun af á ann- að hundrað fundarmönnum: „Aðalfundur Félags hjartasjúkl- inga á Eyjafjarðarsvæðinu skorar á heilbrigðisráðherra að beita sér fyr- ir fjölgun aðgerða á Landspítalan- um a.m.k. tímabundið til að fækka sjúlingum á biðlista."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.